Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Side 10
10 FRÉTTIR 30. DESEMBER 2020 DV
Hömstruðu klósettpappír
Íslendingar höfðu enn ekki
fundið stóísku róna og aftur
var fjölmennt í matvöruversl-
anir og safnað fyrir heims-
endi. Sérstaklega vinsæll varð
klósettpappírinn sem víða
seldist upp. Bandaríkjamenn
brugðu á það ráð að setja
kvóta á klósettpappírskaup.
Upplýsingafundir almanna-
varnadeildar ríkislögreglu-
stjóra urðu daglegur við-
burður. Á sama tíma tók nýr
ríkislögreglustjóri, Sigríður
Björk Guðjónsdóttir, við á
gífurlegum álagstíma.
Þegar veiran hóf innrás sína
í samfélagið skóku verkföll
enn daglegt líf höfuðborgar-
búa. Í byrjun marsmánaðar
biðluðu ríkislögreglustjóri,
landlæknir og sóttvarna-
læknir til deiluaðila að komast
að lausn svo að leysa mætti
kjaradeilurnar, enda óttuðust
þeir að deilurnar gætu komið
niður á sóttvarnaaðgerðum
heilbrigðisyfirvalda.
Strax um miðjan mánuðinn
var alvarleiki faraldursins
orðinn stjórnvöldum ljós.
Neyðarstig var sett á 7. mars.
Samdráttar í ferðaþjónustu
varð vart og Seðlabankinn
undirbjó víðtækar aðgerðir
til þess að tryggja afkomu
ríkissjóðs. Markaðir hrundu,
og stjórnvöld tilkynntu gríðar-
lega „viðspyrnupakka“, sem
að mestu fólu í sér stóraukin
útgjöld ríkissjóðs. Ferðabann
til Bandaríkjanna setti svo
punktinn yfir i-ið í mánuð-
inum. Á meðan ríkisstjórnin
fundaði um málið hrundi
gengi Icelandair í kauphöll-
inni og pósthólf ferðaþjón-
ustufyrirtækja fylltust af af-
bókunum.
Ljóst var að áhrif veirunnar
á samfélagið yrðu gríðarleg,
einkum á ferðaþjónustuna
og strax í mars hófu fréttir
að berast af umfangsmiklum
hópuppsögnum.
Gjörbreytt starfsemi
Samhliða samkomubanninu
15. mars gjörbreyttist starf-
semi Alþingis. COVID-frum-
vörp svokölluð voru það eina
sem komst að í þinginu og
voru það frumvörp Ásmundar
Einars Daðasonar, félags- og
barnamálaráðherra, sem sam-
þykkt voru fyrst þeirra. Snéru
þau að hækkun atvinnuleysis-
bóta og greiðslum til þeirra
sem sendir voru í sóttkví.
Hlutabótaleiðin, frestur á
skattgreiðslum fyrirtækja,
ferðaávísunin og fleira kom
úr smiðju hins opinbera.
Á meðan stóð utanríkisráðu-
neytið að skipulagðri kort-
lagningu Íslendinga erlendis,
og aðstoðaði þá sem þurftu við
að komast leiðar sinnar heim.
Utanríkisráðuneytið hvatti Ís-
lendinga erlendis eindregið til
þess að koma heim sem allra
fyrst, enda voru í lok mars
flugleiðir orðnar ótryggar og
hætta á að á þær myndi lokast
að fullu.
Karlmaður í Sandgerði er
grunaður um að hafa banað
konu sinni í lok marsmán-
aðar. Banamein konunnar var
kyrking. Í fyrstu var talið að
ekkert saknæmt hefði átt sér
stað. Eftir niðurstöðu réttar-
meinafræðings vaknaði þó
grunur um að konunni hefði
verið banað af ásettu ráði.
Aðalmeðferð í máli mannsins
fór fram í nóvember en dómur
er ekki enn fallinn.
Vandræði Icelandair, sem
áttu eftir að setja svip sinn
á íslenskt viðskiptalíf fram
á haustið, komust í hámæli í
mánuðinum. Verðmæti hluta-
bréfa í félaginu var þá hrunið
og flugleiðir lokaðar. Ríkið
brást við með því að niður-
greiða flug til Bandaríkjanna
og Evrópu til þess að halda
flugleiðum opnum til og frá
landinu.
71 árs gömul kona lést á
Landspítalanum í lok mars og
var hún sú fyrsta til að láta
lífið vegna COVID-19, sjúk-
dómsins sem kórónuveiran
veldur, á Íslandi.
Apríl
Karlmaður um þrítugt var
handtekinn í byrjun mánaðar
grunaður um manndráp í
Hafnarfirði. Kona um sextugt
fannst látin á heimili sínu, en
hún var móðir þess grunaða.
Þar með var lögregla komin
með til rannsóknar tvö andlát
sem talin eru tengjast heimil-
isofbeldi.
Fréttir fóru að berast af
því að heimsfaraldurinn væri
kjöraðstæður fyrir heimil-
isofbeldi sökum einangrunar-
innar sem honum fylgir. 55
prósenta aukning var á til-
kynntu ofbeldi í apríl saman-
borið við febrúar, þegar engar
samkomutakmarkanir voru í
gildi. Lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu skráði hjá sér 82
tilvik heimilisofbeldis í apríl.
Víðtækar aðgerðir
Áfram einkenndist orðræða
og aðgerðir stjórnmálanna í
apríl að viðbrögðum við far-
aldrinum. Stjórnmálamenn,
núverandi og fyrrverandi,
hvöttu til samstöðu. Þannig
sagði til dæmis Vigdís Finn-
bogadóttir, fyrrverandi for-
seti Íslands, að Íslendingar
yrðu að takast á við faraldur-
inn af æðruleysi og virðingu
fyrir öðrum. „Þannig hafi Ís-
lendingar tekist á við áföll í
gegnum aldirnar með hugar-
farinu að öll él birti upp um
síðir.“ Vigdís fagnaði 90 ára
afmæli sínu í mánuðinum.
Stjórnvöld kynntu þá víð-
tækar aðgerðir til þess að
sporna við áhrifum farald-
ursins í svokölluðum aðgerða-
pakka II. Þar var að finna
áætlanir stjórnvalda um
stuðning við fjölmiðla, stuðn-
ingslán til minni fyrirtækja,
lokunarstyrki, auk innspýt-
ingar í fjölmörg verkefni sem
þegar voru á könnu ríkisins.
Kallað var eftir bakvörðum
úr ýmsum stéttum samfélags-
ins til að ganga í nauðsynleg
störf vegna kórónuveirunnar
en oft gátu heilu vinnustaðirn-
ir lamast er stór hluti starfs-
fólks þurfti að fara í sóttkví
eða einangrun. Slíkt átti sér
stað á Vesturlandi þegar smit
kom upp á hjúkrunarheimili í
Bolungarvík. Þar bauð kona
að nafni Anna Aurora fram
krafta sína sem sjúkraliði,
en sú átti eftir að verða and-
lag lögreglurannsóknar eftir
að grunur vaknaði um að hún
hefði villt á sér heimildir og
komið sér á fölskum forsend-
um inn í bakvarðasveitina.
Málið vakti mikla athygli og
var skrautlegur ferill konunn-
ar rifjaður upp opinberlega,
en hún hafði áður verið sökuð
um að villa á sér heimildir
og komið fram sem sérfræð-
ingur í ýmsum fögum án þess
að hafa tilskilda menntun.
Rannsókn á málinu hefur nú
verið hætt og var ekki gefin
út ákæra. Konan mun ætla
að leita réttar síns varðandi
ásakanirnar sem og umfjöllun
fjölmiðla um málið.
Hópuppsagnir og
kjaradeilur
Páskarnir urðu tilefni til
áhyggna hjá þríeyki almanna-
varna, en þeirri hátíð fylgja
gjarnan mikil ferðalög innan-
lands sem og úr landi. Farið
var af stað með átak þar sem
landsmenn voru hvattir til að
sleppa öllum ferðalögum og
ferðast frekar „innanhúss“,
en átakið má segja í hróplegri
mótsögn við átak sem nokkr-
um mánuðum síðar var ráðist
í, þar sem landsmenn voru
hvattir til að ferðast innan-
lands til að styðja við ferða-
þjónustuna.
Í blálok mánaðarins sam-
þykkti ríkið að framlengja
hlutabótaleiðina svokölluðu,
og að niðurgreiða launakostn-
að vegna uppsagnarfrests hjá
tekjulitlum fyrirtækjum. Hún
hafði þó sætt gagnrýni þegar
á daginn kom að fyrirtæki
sem ekki gátu talist í vanda
stödd vegna faraldursins, voru
að nýta sér hana.
Daginn eftir sagði Iceland-
air upp rúmlega tvö þúsund
manns í stærstu hópuppsögn
Íslandssögunnar. Hátt í fjögur
þúsund manns misstu vinnuna
fyrir mánaðamótin apríl/maí.
Hjúkrunarfræðingar stóðu
í ströngu og hafði ekki tekist
að semja um kjör þeirra og
samningar voru búnir að vera
lausir um langt skeið. Kjara-
samningur var undirritaður
Vigdís Finnbogadóttir var heiðruð með söng á 90 ára afmælinu. MYND/ERNIR
Páskarnir
urðu tilefni til
áhyggna hjá
þríeyki almanna-
varna.