Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Side 11
FRÉTTIR 11DV 30. DESEMBER 2020
milli ríkisins og Félags ís
lenskra hjúkrunarfræðinga
þann 10. apríl. Mikil reiði
greip um sig meðal hjúkr
unarfræðinga þegar samning
urinn var kynntur þeim, enda
töldu þeir kjörin samkvæmt
samningnum ekki góð. Það fór
því svo að samningurinn var
felldur þann 29. apríl. Hávært
kall barst frá landsmönnum
samhliða kjaraviðræðunum,
þar sem skorað var á ríkið að
gera vel við hjúkrunarfræð
inga sem höfðu staðið í fram
línunni í kórónuveirufaraldr
inum.
Maí
Í byrjun maí var ákveðið að
slaka á sóttvarnaaðgerðum.
Tilslakanir tóku gildi þann
4. maí þar sem samkomu
bann var rýmkað úr 20 í 50
manns. Faraldurinn var tal
inn í rénun og hafði Ísland
vakið heimsathygli fyrir gott
gengi í baráttunni við veiruna.
Margir töldu baráttuna unna
og mátti greina mikinn létti
í samfélaginu sem fagnaði
tilslökunum og sumrinu og
landsmenn hófu að ferðast um
landið til að halda uppi ferða
þjónustunni og geðheilsunni.
Líkamsrækt, íþróttir og sund
ferðir voru aftur á dagskrá
og knæpur máttu hafa opið til
23.00.
Dýr landkynning
Stjórnvöld ákváðu að ráðast í
landkynningu á Íslandi sem
ferðamannastað á erlendum
mörkuðum með markaðs
átakinu: Ísland – saman í
sókn. Fjöldi auglýsingastofa
sóttist eftir því að fá að taka
verkefnið að sér, en fyrir val
inu varð bresk stofa, M&C
Saatchi, íslenskum stofum til
lítillar gleði. Eftirminnilegasti
afrakstur þessa markaðsátaks
er sennilega herferðin Let It
Out. Þar til gerðum hátölurum
var komið fyrir víðs vegar um
landið og fólki boðið að losa
um uppsafnaða streitu vegna
heimsfaraldursins með því
að láta öskur sín hljóma hér á
landi. Ísland hefur ætlað vel á
annan milljarð króna í þetta
átak.
Icelandair fylgdi eftir stóru
hópuppsögninni með því að til
kynna að félagið vantaði um
30 milljarða inn í reksturinn.
Hið opinbera samþykkti lána
línu, en skilyrti hana við að
komu markaðarins í gegnum
hlutafjárútboð á genginu ein
um, og allsherjar endurskipu
lagningu á fjárhag félagsins.
Útboðið fór fram á haustmán
uðum og tókst vel til.
Lítið gekk á í Alþingi nema
þá til þess að afgreiða allra
brýnustu málin er tengdust
aðgerðum ríkisins vegna CO
VID19 faraldursins. Í viðtali
við DV seinna um sumarið
sagði Steingrímur J. Sigfús
son, forseti Alþingis, að í upp
hafi hefðu menn ekki vitað
hvernig þetta yrði, en þegar
þingið var ekki undanskilið
20 manna samkomubanni
hefði hann þurft að bregðast
við. „Það máttu bara vera 20
í salnum í einu, aðrir horfðu
á umræður í hliðarsölum
þingsins og svo þegar kom að
atkvæðagreiðslum þurfti að
fara í þessa hringekju,“ sagði
Steingrímur og vísaði til þess
að þingmennirnir röðuðu
sér upp í röð með tvo metra
á milli manna og gengu inn
í þingsal einum megin og úr
honum hinum megin í hala
rófu. Þannig var tryggt að
þingmenn mættust ekki meira
en þurfti. Steingrímur rifjaði
enn fremur upp fjarfundi
þingnefnda, sem þá voru ný
mæli. „Þetta var eiginlega bíó
að fylgjast með þessu,“ sagði
hann. „Það verður talað um
þetta í framtíðinni.“
Verkfall starfsmanna Efl
ingar hjá öðrum sveitarfélög
um á höfuðborgarsvæðinu en
Reykjavík stóð í um viku í
apríl.
Samherjabörnin
Tekist var á um uppbyggingu
varnarmannvirkja við Kefla
víkurflugvöll innan ríkis
stjórnarinnar, en sagt var að
Vinstri græn hefðu hafnað
uppbyggingunni með öllu.
Guðlaugur Þór Þórðarson
utanríkisráðherra lagði tillög
una fram í ríkisstjórninni og
sagði þar að um væri að ræða
1218 milljarða framkvæmd
sem skapa myndi hundruð
starfa á Suðurnesjum.
Athygli vakti þegar stærstu
hluthafar í Samherja fram
seldu hlutabréf sín til barna
sinna. Tímasetningin olli
tortryggni í kjölfar Sam
herjamálsins, sem var um
fangsmikið á síðasta ári. En
Samherjamenn færðu þau rök
fyrir ákvörðuninni að þetta
hefði verið í nokkur ár í und
irbúningi og ætti að treysta
mikilvæg fjölskyldutengsl.
Kjaraviðræður við Flug
freyjufélagið sigldu í strand í
mánuðinum. Deilan harðnaði
til muna þegar fréttir láku út
að Icelandair væri að skoða
þann möguleika að ganga til
viðræðna við annað stéttar
félag í flugstéttinni og snið
ganga þannig Flugfreyju
félagið alfarið.
Utankjörfundaratkvæða
greiðsla vegna forsetakosn
inganna þann 27. júní hófst í
lok mánaðarins og voru tveir
í framboði. Sitjandi forseti
Guðni Th. Jóhannesson, og
Guðmundur Franklín Jónsson.
Áfram bárust tíðindi um
uppsagnir í ferðaþjónustunni
og víðar. Bláa lónið sagði upp
403 starfsmönnum eftir mik
inn samdrátt og óvissu.
Júní
Kórónuveirufaraldurinn setti
strik í reikninginn hjá þeim
landsmönnum sem hugðust
verja frídögum utan land
steinanna og mikil umræða
skapaðist um réttindi þeirra
sem höfðu bókað sér svonefnd
ar pakkaferðir. Margar ferða
skrifstofur brugðu á það ráð
að bjóða viðskiptavinum end
urgreiðslu í formi inneigna,
mörgum til lítillar gleði. Fjöl
margir stigu fram opinberlega
og greindu frá samskiptum
sínum við ferðaskrifstofur og
vandkvæðum við að fá ferð
irnar endurgreiddar. Sam
kvæmt ályktun Evrópuþings
ins áttu neytendur skýlausan
rétt til endurgreiðslu þó þeir
gætu vissulega þegið inn
eign í staðinn, en það væri þá
þeirra val en ekki ferðaskrif
stofunnar. Stjórnvöld brugðu
á það ráð að koma á fót svo
nefndum Ferðaábyrgðarsjóði
til að endurgreiða neytendum
pakkaferðir og var ferðaskrif
stofum veittur sex ára frestur
til að greiða sjóðnum til baka.
Forsetakosningar
Kjaramál voru áfram áber
andi í umræðunni. Flugfreyj
ur og Icelandair skrifuðu und
ir nýjan kjarasamning sem
var síðar felldur með afger
andi hætti í atkvæðagreiðslu
félagsmanna Flugfreyjufélags
Íslands. Icelandair tilkynnti í
kjölfarið að felldi samningur
inn hefði verið þeirra besta
boð og óvíst væri hvað fram
haldið hefði í för með sér.
Hjúkrunarfræðingar féllust
á miðlunartillögu ríkissátta
semjara og var ákveðið að vísa
afmörkuðum hluta launaliðar
í Gerðardóm. Gerðardómur
reyndist svo vonbrigði og var
talið að með honum hafi ekki
tekist að leiðrétta laun hjúkr
unarfræðinga í samræmi við
ábyrgð þeirra og menntun til
samræmis við aðrar viðmið
unarstéttir.
Landsmenn gátu hugsað um
eitthvað annað en faraldurinn
þann 27. júní þegar forseta
kosningar fóru fram. Þar
hlaut sitjandi forseti, Guðni
Th. Jóhannesson, yfirgnæf
andi meirihluta atkvæða, eða
um 92,2% gildra atkvæða. Er
það næstmesti stuðningur sem
nokkur hefur hlotið í forseta
kjöri í lýðveldissögunni.
Umdeild ritstjórastaða
Annað stórt fréttamál í júní
var ritstjórastaða hagfræði
tímaritsins Nordic Economics
Policy Review. Hagfræðingn
um Þorvaldi Gylfasyni hafði
verið boðin staðan, sem hann
þáði, en fjármálaráðuneytið
lagðist gegn því, þar sem
þeim þótti Þorvaldur of póli
tískur til að gegna stöðunni.
Ákvörðunina rökstuddi ráðu
neytið með vísan í Wikipedia
síðu um Þorvald, sem sagði
hann formann stjórnmála
afls. Síðar kom á daginn að
þær upplýsingar voru rangar.
Bjarni Benediktsson fjár
málaráðherra var kallaður á
fund stjórnskipunar og eftir
litsnefndar og beðinn um að
skýra afstöðu ráðuneytisins í
málinu. Í kjölfarið hófst um
ræða um stöðu fræðimanna á
Íslandi og þær afdrifaríku af
leiðingar sem stjórnmálaskoð
anir gætu haft á feril þeirra.
Þrennt lést í
miklum bruna
á Bræðra-
borgarstíg.
MYND/
ANTON BRINK