Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Qupperneq 14
14 FRÉTTIR Miklar deilur innan emb­ ættis lögreglustjórans á Suð­ urnesjum náðu suðupunkti í ágúst. Þáverandi lögreglu­ stjóri, Ólafur Helgi Kjartans­ son, steig til hliðar og tók við starfi hjá dómsmálaráðuneyt­ inu. Orðrómur gekk þess efnis að starfslokin hefðu ekki verið með hans vilja og ættu rætur að rekja til óeiningar innan embættisins þar sem starfs­ menn skiptust í tvær fylking­ ar og andrúmsloftið á vinnu­ staðnum væri eitrað. Til stóð að Ólafur tæki við nýrri stöðu um mánaðamótin ágúst/sept­ ember, en var svo óvænt gert að leggja niður störf hjá lög­ reglunni þann 21. ágúst. Ný­ lega bárust fréttir þess efnis að Ólafur Helgi sé með stöðu sakbornings í máli er varðar meintan gagnaleka frá emb­ ættinu, sem er talinn tengjast áðurnefndum deilum. Lík fannst í Breiðholti í rjóðri fyrir neðan Erluhóla og reyndist hafa verið þar um nokkurt skeið. Sá látni var 83 ára að aldri. Ekki hafði verið lýst eftir honum þegar hann hvarf, en vakti það nokkra athygli og óhug. Á daginn kom að maðurinn hafði verið ómannblendinn einfari og í litlum samskiptum við fjöl­ skyldu sína. Varnarleikur Samherja Útgerðarfyrirtækið Sam­ herji varð svo aftur áberandi í umræðunni, að þessu sinni að eigin frumkvæði. Fyrir­ tækið hóf að birta myndbönd sem var ætlað að hreinsa nafn fyrirtækisins eftir svonefnt Seðlabankamál sem og vegna Samherjamálsins í Nami­ bíu. Í myndböndunum voru alvarlegar ásakanir viðraðar á hendur RÚV sem og frétta­ manninum Helga Seljan. Ekki virtust myndböndin þó ná ætl­ uðum tilgangi og var útgerðar­ fyrirtækið harðlega gagnrýnt fyrir uppátækið. Fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður­ inn Jón Óttar Ólafsson kom að gerð myndbandanna og áreitti Helga Seljan mánuðum saman fyrir birtingu þeirra. Jón Óttar sat fyrir Helga og sendi honum ítrekað skilaboð þar sem hann boðaði birtingu myndbandanna og þeirra upp­ ljóstrana sem þeim myndi fylgja. Í einum skilaboðunum stóð: „Morgundagurinn verð­ ur erfiður, trúðu mér“. Jón Óttar baðst í kjölfarið opinber­ lega afsökunar. Samherji gafst þó ekki upp á myndbandagerð­ inni og baráttunni við RÚV. Knattspyrnukonan Sara Björk Gunnarsdóttir varð í lok mánaðar fyrsti Íslendingurinn til að skora í úrslitaleik Meist­ aradeildar Evrópu og önnur til að vinna Meistaradeildina þegar lið hennar, Lyon sigraði Wolfsburg. September Hundruðum var sagt upp um mánaðamótin ágúst/septem­ ber í ferðaþjónustunni, þegar ljóst varð að hún þyrfti að leggjast aftur í híði. Á sama tíma sagði frá því í fréttum að landsframleiðsla hefði dregist saman um 9,3%. Þingi var slitið í byrjun september og var lánalína og ríkis ábyrgð á lánum Ice­ landair með þó nokkuð mörg­ um skilyrðum síðasta verk þingsins. Mistök við krabbameinsleit Í byrjun september var mikið rætt um Krabbameinsfélag Íslands eftir að greint var frá því að mistök við skoðun leghálssýnis hefðu orðið til þess að kona um fimmtugt greindist með ólæknandi krabbamein. Hún hafði árið 2018 farið í sýnatöku og fengið þær niðurstöður að engar frumubreytingar væru til staðar. Þegar sýnið var skoðað aftur á þessu ári kom á daginn að miklar frumu­ breytingar voru hjá konunni á þeim tíma. Mistökin voru rakin til eins starfsmanns sem hafði látið af störfum. Gaf Krabbameins félagið til kynna að viðkomandi starfs­ maður hefði glímt við and­ leg veikindi, en sú fullyrðing vakti furðu og reiði enda um viðkvæmar persónuupp­ lýsingar að ræða. Ráðist var í umfangsmikla endurskoðun sýna og voru minnst þrjátíu konur kallaðar aftur í skoðun vegna málsins. Eftir að frétt­ ir um mistökin hófu að birtast stigu fleiri fram sem töldu sig hafa orðið fyrir skaða vegna mistakanna. Meðal þeirra voru aðstandendur 35 ára konu sem lést í ágúst. Mál minnst sjö kvenna eru nú á borði lögmannsins Sævars Þórs Jónssonar sem undir­ býr málarekstur á hendur Krabbameinsfélaginu. Þegar vísa átti hinni egypsku Khedr­fjölskyldu, sem sótt hafði um hæli, af landi brott, gripu lögreglu­ menn í tómt. Fjölskyldan var ekki þar sem hún átti að vera. Fjölskyldan var þess í stað farin í felur þar sem hún dvaldi í 10 daga þar til kæru­ nefnd í útlendingamálum snéri við sínum fyrri úrskurði og veitti fjölskyldunni land­ vistarleyfi. Fjölskyldan, hjón með fjögur börn, hafði dvalið hér á landi í tvö ár og hafði fjölskyldan aðlagast íslensku samfélagi vel. Fyrirhugaður brottflutningur var harðlega gagnrýndur í samfélaginu þar sem ómannúðlegt þótti að vísa fjölskyldu burt eftir tveggja ára dvöl. Dómsmála­ ráðherra hafði neitað því að beita sér sérstaklega í máli fjölskyldunnar og sagði það ekki koma til greina að fara að breyta reglum til að bjarga einstaka fjölskyldum sem færu í fjölmiðla. Hlutafjárútboð Icelandair Hlutafjárútboð Icelandair hófst þann 16. september og stóð yfir í tvo daga. Útboðið reyndist gríðarlega vel lukkað fyrir Icelandair og var þátt­ taka langtum framar vonum. Tekist var á um þátttökuna í stjórnum lífeyrissjóða, og kannski einna helst stjórn Líf­ eyrissjóðs verslunarmanna. Formaður VR hafði hvatt líf­ eyrissjóðinn, og fleiri reyndar, til þess að sniðganga þátttöku í útboðinu vegna framgöngu Icelandairmanna í deilunni við Flugfreyjufélagið. Um miðjan september­ mánuð fór svo hin svokallaða þriðja bylgja faraldursins af stað. Bylgjan átti eftir að leiða til talsverðra nýjunga, meðal annars grímuskyldu á almannafæri og tveggja metra reglan tekin upp að nýju. Kosið var um framtíð Lífs­ kjarasamningsins í lok mán­ aðarins. Aðkomu ríkisins var talin þörf til þess að komast hjá uppsögn samningsins. Aðgerðapakkar ríkins sem snéru meða annars að fram­ lengingu Allir vinna­átaksins og tímabundinnar lækkunar tryggingagjalds, voru taldir hafa orðið til þess að lífskjara­ samningurinn hlyti endurnýj­ un lífdaga. Frelsarinn sjálfur varð deiluefni á Íslandi eftir að Sunnudagaskólinn birti kynn­ ingarefni þar sem Jesú var teiknaður með brjóst og skegg. Myndin sem fékk viðurnefnið „trans Jesús“ olli titringi inn­ an Þjóðkirkjunnar þar sem fólk skiptist í fylkingar. Áfram fjölgaði atvinnu­ lausum á landinu. Þessi mán­ aðamót misstu um 300 manns vinnuna í hópuppsögnum. Einn landaði þó drauma­ vinnunni og það var Rúnar Alex Rúnarsson knattspyrnu­ maður sem gekk til liðs við enska félagið Arsenal. Arse­ nal mun hafa greitt um 260 milljónir íslenskra króna fyrir Rúnar Alex sem er 25 ára gamall. Áður var hann hjá liðinu Dijon í Frakklandi. Október Fjölmargir Íslendingar komu við sögu í risastórum, kín­ verskum gagnaleka í október. Virtist vera um að ræða lista yfir áhrifafólk sem kínversk stjórnvöld væru að fylgjast með. Mátti þar finna nöfn ís­ lenskra stjórnmálamanna, dómara, lögmanna, fjölmiðla­ manna, maka þeirra og barna og annarra skyldmenna. Stórt skref var stigið í samgöngumálum á höfuð­ borgarsvæðinu þegar Betri samgöngur ohf. var form­ lega stofnað í byrjun október. Aðilar að félaginu eru ríki og sveitarfélög höfuðborgar­ svæðisins og markmið fé­ lagsins að koma að bygg­ ingu samgöngumannvirkja á svæðinu, m.a. uppbyggingu Borgarlínunnar svokölluðu. Árni Mathie sen var skipaður stjórnarformaður félagsins. Mótorhjólamenn mótmæltu í kjölfar skelfilegs banaslyss. MYND/ERNIR 30. DESEMBER 2020 DV Tildrög slyssins voru rakin til hálku vegna galla í nýlögðu malbiki.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.