Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Síða 16
á að ekki væri hægt að kenna
neinum um hvernig fór, en al-
menningur var ekki að fullu
sannfærður enda kom fram í
skýrslunni að mikið af þeim
annmörkum sem voru fundnir
á Landakoti höfðu verið þekkt-
ir um nokkurt skeið. Skýrslan
er ekki formleg úttekt á smit-
inu, slík rannsókn fer fram á
vegum Landlæknis og er sú
rannsókn hafin.
Kjaramál voru enn fyrirferð-
armikil og samþykkti Alþingi
í lok nóvember að setja lög á
verkfall flugvirkja Landhelgis-
gæslunnar. Kom lagasetningin
í kjölfar þess að gæslan hafði
verið án þyrlu til taks í nokkra
daga, en slíkt þótti ótækt og
varða almannahagsmuni.
Farsóttarþreyta
Knattspyrnumaðurinn hár-
fagri, Rúrik Gíslason, til-
kynnti að hann hefði lagt fót-
boltaskóna á hilluna aðeins 32
ára gamall. Hann lék síðast
með þýska B-deildarliðinu
Sanhausen en losnaði þaðan í
júní. Hann mun þó ekki vera
verkefnalaus heldur hefur
hann stofnað tónlistarfyrir-
tækið RG19 Viðburðir ehf.
og þá og þegar mun vera von
á hans fyrsta lagi og mynd-
bandi.
Þriðja bylgja kórónuveir-
unnar hélt áfram að lama
samfélagið og tíu manna sam-
komutakmörkun fylgdi okkur
út mánuðinn og grímuskylda
var í flestum ef ekki öllum
verslunum. Mikil þreyta gerði
vart við sig í samfélaginu þar
sem margir voru komnir með
meira en nóg af sóttvarna-
aðgerðum en tíðindi utan úr
heimi um framleiðslu bólu-
efnis gáfu tilefni til bjartsýni.
Þingmennirnir Brynjar Níels-
son og Sigríður Á. Andersen
vöktu nokkra furðu þegar
þau fóru mikinn í fjölmiðlum
og gagnrýndu sóttvarnaað-
gerðir sem þeim þóttu ganga
of langt og ekki skila tilætl-
uðum árangri.
Sjálfur forseti Íslands var
sendur í sóttkví eftir að smit
kom upp í umhverfi hans
og Víðir Reynisson, einn af
þríeykinu knáa, veiktist af
veirunni.
Athygli vakti þegar Orka
náttúrunnar var sýknuð af
ásökunum fyrrverandi starfs-
manns, Áslaugar Thelmu
Einarsdóttur, um ólögmæta
uppsögn og kynbundna launa-
mismunum. Áslaug steig fram
á síðasta ári og greindi frá því
að uppsögn hennar hefði verið
í kjölfar þess að hún kvartaði
undan hegðun yfirmanns síns.
Í dómi héraðsdóms var rakið
að Áslaug hefði um hríð verið
hæst launuð allra forstöðu-
manna Orku náttúrunnar.
Eins var rakið að uppsögn
hennar hefði átt sér málefna-
lega ástæðu sem ekki tengd-
ist kvörtun hennar, heldur
frammistöðu hennar í starfi.
Desember
Landsmenn bjuggu sig undir
óhefðbundin og lágstemmd jól
í faraldrinum og voru hvattir
til að eiga aðeins samskipti
við mest tíu einstaklinga yfr
hátíðirnar. Landsmenn fóru
að leyfa sér bjartsýni eftir já-
kvæð tíðindi af bóluefnum sem
virtust handan við hornið. Það
olli því töluverðum vonbrigð-
um þegar greint var frá því að
ekki myndi takast að ná hjarð-
ónæmi með bólusetningu á Ís-
landi fyrr en síðla næsta árs.
Ísland á EM 2022
Yfirdeild Mannréttindadóm-
stóls Evrópu komst að þeirri
niðurstöðu að íslenska ríkið
hefð brotið í bága við ákvæði
Mannréttindasáttmála Evr-
ópu þegar skipað var í Lands-
rétt. En fjórir dómarar voru
skipaðir þvert á mat hæfnis-
nefndar án þess að fyrir því
hefði verið færður nægilegur
rökstuðningur.
Það varð mikið gleðiefni
í upphafi mánaðar þegar
A-landslið kvenna í knatt-
spyrnu tryggði sér sæti í úr-
slitakeppni EM 2022. Lands-
liðið ásamt þjálfara og fleirum
fagnaði áfanganum í Búdapest
í Ungverjalandi en þar átti
sér stað alvarlegur trúnaðar-
brestur milli leikmanna og
þjálfarans, Jóns Þórs Hauks-
sonar. Mun Jón, undir áhrifum
áfengis, hafa látið falla um-
mæli sem fóru langt fyrir
strikið gagnvart nokkrum
leikmönnum. Í kjölfarið sagði
Jón Þór starfi sínu lausu.
Samfylkingu barst liðs-
styrkur þegar Rósa Björk
Brynjólfsdóttir gekk í flokk-
inn. Rósa Björk sat á þingi
fyrir Vinstri græn, en sagði
sig úr flokknum í september
í kjölfar fyrirhugaðrar brott-
vísunar egypsku fjölskyld-
unnar, en viðbrögð Vinstri
grænna hefðu opnað augu
Rósu fyrir því að hún ætti
ekki lengur samleið með sín-
um gamla flokki.
Aurskriða á Seyðisfirði
Skömmu fyrir jól féll fjöldi
aurskriða á Seyðisfirði, með
hrikalegum afleiðingum.
Rýma þurfti bæinn og var
neyðarstigi almannavarna
lýst yfir. Fjórtán hús eru
horfin eða hrunin eftir ham-
farirnar og íbúar slegnir og í
sárum. Ekki varð af manntjón
en ljóst að litlu mátti muna þar
sem stór skriða féll á hluta
bæjarins sem ekki hafði verið
rýmdur og áttu þá margir
fótum sínum fjör að launa.
Mikil vinna er nú fram undan
við verðmætabjörgun og upp-
byggingu í bæjarfélaginu. En
ekki þykir víst að allir íbúar
treysti sér til að snúa til baka
eftir þessa erfiðu reynslu.
Það er því með litlum sökn-
uði sem Íslendingar kveðja
árið 2020, ár sem einkenndist
af vægðarlausri náttúrunni og
óþreytandi kórónuveirunni.
Við munum þó flest að erfið-
leikarnir styrkja okkur svo
það verður harðgerð þjóð og
full baráttuvilja sem skríður
undan þessum vetri, undan
veirunni og vonandi fljótlega
undan atvinnuleysi og kreppu.
Gleðilegt nýtt ár. n
Stórfellt eignatjón varð á Seyðisfirði þegar stórar aurskriður féllu á bæinn. MYND/ANTON
16 FRÉTTIR 30. DESEMBER 2020 DV
Fjórtán hús
eru horfin eða
hrunin eftir
hamfarirnar og
íbúar slegnir
og í sárum.