Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Qupperneq 19
ALFREÐ ÞORSTEINSSON
Alfreð Þorsteinsson, sem lengi
var borgarfulltrúi Framsóknar-
flokksins og stjórnarformaður
Orkuveitunnar, lést 28. maí, 76 ára
að aldri. Alfreð var lengi formaður
íþróttafélagsins Fram og starfaði
mjög ötullega fyrir félagið. Dóttir
Alfreðs er Lilja Alfreðsdóttir
menntamálaráðherra.
GÍSLI GUNNARSSON
Gísli Gunnarsson, doktor í sagn-
fræði og prófessor við Háskóla
Íslands, lést í byrjun apríl, 82 ára
að aldri. Auk fræðistarfa lét Gísli
mikið að sér kveða í pólitísku
starfi og var virkur í Alþýðubanda-
laginu og Samfylkingunni. Gísli
var fjölfróður og skemmtilegur
samræðufélagi og síðustu árin
var hann ötull á samfélagsmiðlum.
JÓHANN TRAUSTASON
Jóhann Traustason, oftast kallaður Jói, lést þriðjudagsmorguninn 31. mars
en hann var fæddur árið 1958. Jóhann var frá Ísafirði en hann var þekkt-
astur fyrir baráttu sína við Bakkus þar sem hann hafði betur og átti edrúlíf
á síðustu æviárum. Jói starfaði mikið fyrir Samhjálp og sinnti meðal annars
húsvarðarstörfum og þrifum.
ALMA GEIRDAL
Alma Geirdal, ljósmyndari og uppistandari, lést þann 19. september eftir
langa baráttu við krabbamein. Alma greindist með brjóstakrabbamein 38
ára gömul, öðlaðist bata um tíma, en meinið tók sig síðan upp að nýju.
RÓSA INGÓLFSDÓTTIR
Rósa Ingólfsdóttir lést þann 14.
janúar, 72 ára að aldri. Rósa fang-
aði hug og hjörtu þjóðarinnar sem
dagskrárþula Ríkissjónvarpsins á
áttunda og níunda áratug síðustu
aldar en hún sinnti fjölmörgum
öðrum störfum sem vöktu athygli.
Hún var afburðaleikkona, merkur
lagasmiður, myndlistarkona og
auglýsingateiknari.
DV ræddi við dóttur Rósu, Klöru
Egilson, er greint var frá andláti
Rósu. Þær voru mjög nánar en á
dánarbeði Rósu áttu þær mægður
eftirfarandi samtal: „Ég sagði við
mömmu: Veistu það mamma,
að sterkasta aflið í heiminum er
ástin. Hún svaraði: Það er alveg
rétt hjá þér. Ástin er öflugust alls,
við sem erum elskuð, við deyjum
aldrei í raun.“
JÓNÍNA BENEDIKTSDÓTTIR
Jónína Benediktsdóttir, líkams-
ræktarfrömuður og athafnakona
lést þann 16. desember. Hún var
fædd þann 26. mars árið 1957.
Varð hún bráðkvödd á heimili sínu
í Hveragerði.
Jónína nam íþróttafræði í Kan-
ada og þegar heim var komið
stofnaði hún eina fyrstu líkams-
ræktarstöðina á Íslandi. Jónína
var áhugasöm um að kynna
landsmönnum mikilvægi líkams-
ræktar og stóð meðal annars fyrir
morgunleikfimi á Rás 1. Síðustu ár
hefur hún staðið fyrir lífsbætandi
heilsumeðferðum í Póllandi og nú
síðast á Hótel Örk í Hveragerði.
Jónína var þekkt fyrir brautryðj-
endastarf á sviði heilsuræktar og
flutti fyrirlestra um heilsutengd
málefni víða um heim.
PÉTUR EINARSSON
Pétur Einarsson, fyrrverandi flug-
málastjóri, lést 20. maí, 72 ára að
aldri. Banamein hans var ólækn-
andi krabbamein, hvítblæði. Pétur
var flugmálastjóri frá árunum 1983
til 1992. Hann var með réttindi
sem héraðsdómslögmaður, at-
vinnuflugmaður og húsasmíða-
meistari, og minni skipstjórnar-
réttindi. Pétur var lífskúnstner
og djúphugull maður. Eftir hann
liggja nokkrar bækur. Pétur hélt
úti síðunni Dagbók krabbameins-
sjúklings á Facebook, þar sem
hann birti hugleiðingar sínar og
deildi lífsreynslu sinni.
KJARTAN LÁRUS PÁLSSON
Kjartan Lárus Pálsson, farar-
stjóri, blaðamaður og kylfingur,
lést þann 3. apríl, áttræður að
aldri. Kjartan var atkvæðamikill
kylfingur og var um tíma liðsstjóri
karlalandsliðsins í golfi.
ÞORMAR VIGNIR GUNNARSSON
Þormar Vignir Gunnarsson,
ljósmyndari og trésmiður, varð
bráðkvaddur að heimili sínu 12.
nóvember síðastliðinn. Þormar
var fæddur þann 30. september
árið 1973 og kvaddi því í blóma
lífsins. Þormar var vinnusamur
maður, hafði trésmíði að lifibrauði
en starfaði líka ötullega að ljós-
myndun, sem var ástríða hans.
Hann vann til dæmis mikið fyrir
DV og Morgunblaðið.
SVEINN AÐALSTEINSSON
Sveinn Aðalsteinsson lést 9. nóvember 74 ára að aldri. Sveinn varð snemma
gallharður sósíalisti sem fyldist vel með heimsmálunum og varð virkur í
Alþýðubandalaginu. Árið 1979 var Sveinn aðstoðarmaður Svavars Gests-
sonar fjármálaráðherra og vann í fjármálaráðuneytinu til 1980. Árið 1987
var Sveinn ráðinn sem forstöðumaður innlendra og erlendra viðskipta hjá
Alþýðubankanum og lyfti þar grettistaki á undraskömmum tíma. Sveinn
tók einkaflugmannspróf, starfaði um tíma í fiskútflutningi, keyrði strætó,
stofnaði skartripaverslun og ól upp 4 börn með eiginkonu sinni Sigrúnu
Hermannsdóttur. Sveinn var gallharður náttúruverndarsinni og barðist
gegn virkjunum allt sitt líf.
JÓHANNA ERLINGSDÓTTIR
Jóhanna Erlingsdóttir lést 14. maí
eftir 11 ára baráttu við krabbamein.
Jóhanna var úr Reykhólasveit en
bjó seinni árin í Kópavogi. Aðalstarf
Jóhönnu var rekstur Dillonshúss í
Árbæjarsafni en þar fékk sköpunar-
gleði hennar að njóta sín í matar-
gerðinni. Auk þess málaði Jóhanna
myndir og spilaði á harmonikku.
Jóhanna hafði sterkar skoðanir á
þjóðmálum og stjórnmálum og rétt-
lætiskenndin var leiðarljós hennar.
GISSUR SIGURÐSSON
Gissur Sigurðsson, fréttamaður til áratuga, lést þann 5. apríl en hann var
fæddur árið 1947. Gissur starfaði á fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar í
aldarfjórðung og þar áður á Ríkisútvarpinu. Hann þótti einstaklega fróður
og líflegur fréttamaður.
SVERRIR ÞÓR EINARSSON
Sverrir Þór Einarsson, sem þekktur var undir nafninu Sverrir tattoo, lést
seint í júlí, 58 ára að aldri. Sverrir var afar þekktur húðflúrari og litríkur per-
sónuleiki. Hann rak húðflúrstofuna Skinnlist Tattoo ásamt eiginkonu sinni.
MYND/AÐSEND MYND/AÐSEND
MYND/SIGURJÓN RAGNAR MYND/AÐSEND
Alma lætur eftir sig þrjú börn og tvö stjúpbörn. MYND/ANTON BRINK
MYND/AÐEND
Gissur hafði einstaka rödd. MYND/VILHELM GUNNARSSON
FRÉTTIR 19DV 30. DESEMBER 2020