Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIR 30. DESEMBER 2020 DV
Ummæli
ársins
2020
Á gervihnattaöld eru flestir að
fylgjast með, alltaf. Það getur
því verið óheppilegt að láta van-
hugsuð ummæli falla, en slíkt
gerist eins og gengur, enda
er enginn fullkominn. Hér eru
nokkur eftirminnileg ummæli
sem féllu á árinu, en mörg þeirra
hittu engan veginn í mark.
Þessi ummæli lét dómsmálaráðherra, Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir, falla á Twitter og vísaði þar til þess
að á tímum samkomubanns vegna COVID-19 væri þörf
á löglegri netverslun með áfengi. Ummælin vöktu hörð
viðbrögð og töldu margir það ósmekklegt af ráðherr-
anum að nota heimsfaraldurinn til að koma gæluverk-
efni sínu á framfæri.
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, er hlynntur því að stofna hálend-
isþjóðgarð á Íslandi og af því tilefni steig hann í pontu á Alþingi í desember
til að mæla fyrir slíkum þjóðgarði. Sagði hann breiða samstöðu fyrir málinu
á þingi sem og meðal þjóðarinnar og velti hann upp þeirri spurningu hvort
þessi minnihluti ætti að hafa neitunarvald gagnvart þjóðinni í málinu.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráð-
herra, lét þessi óheppilegu ummæli falla um þá sem
þiggja atvinnuleysisbætur frá ríkinu í Silfrinu á RÚV
í maí. Ummælin vöktu hörð viðbrögð og þóttu þau
sýna að félagsmálaráðherra hefði lítinn skilning á að-
stæðum bæði atvinnulausra sem og námsmanna.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra gerði ekki kröfu
um að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segði af
sér eftir að hann tók þátt í veislu í Ásmundarsal á Þor-
láksmessu þar sem lögreglan var kölluð til vegna brota
á sóttvarnareglum. Hún sagði þetta afsakanlegt af
hans hálfu. Ráðamenn fjölda annarra landa hafa sagt
af sér vegna slíkra brota.
Bæjarstjóri Akureyrar, Ásthildur Sturludóttir, lét
þessi óheppilegu ummæli falla eftir að það vakti at-
hygli hversu fá voru að greinast me kórónuveiruna
fyrir norðan. Fullyrðing Ásthildar vakti bæði undrun
og reiði netverja sem töldu orðin bera vott um hroka
og yfirlæti.
Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri
Viljans, vakti heldur betur athygli
á árinu fyrir framgöngu sína á
upplýsingafundum almanna-
varnadeildar ríkislögreglustjóra,
en hann varð fljótt þekktur fyrir
að kynna sig með ofangreindum
orðum áður en hann bar fram
spurningar á fundum.
Þingmaður Samfylkingarinnar, Ágúst Ólafur Ágústs-
son, var sakaður um kvenfyrirlitningu eftir að hann lét
þau ummæli falla í Sprengisandi á Bylgjunni að sitjandi
ríkisstjórn væri ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar fjár-
málaráðherra. Að venju eru ríkisstjórnir kenndar við
forsætisráðherra sem nú er Katrín Jakobsdóttir.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra
sagði það ekki koma til greina að gera reglugerðar-
breytingar til að hjálpa sex manna fjölskyldu frá
Egyptalandi, sem dvalið hafði á Íslandi í meira en tvö
ár, en til stóð að vísa fjölskyldunni úr landi.
Leikmaður Skallagríms, Atli
Steinar Ingason, lét ofangreind
orð falla um leikmann Berserkja,
Gunnar Jökul Johns, þegar liðin
tvö mættust í 4. deild karla í júlí.
Ummælin fólu í sér kynþáttafor-
dóma og ákvað aga- og úrskurðar-
nefnd KSÍ í kjölfarið að dæma Atla
í fimm leikja bann.
Kristján Þór Júlíusson, landbúnaðar- og sjávarút-
vegsráðherra, lét falla ummæli á Alþingi um að margir
bændur segðu starfið vera lífsstíl. Fullyrðing ráðherra
vakti hörð viðbrögð, einkum frá landbúnaði landsins.
Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, leikkona í leikhópnum
Lottu, náði að reita heilt bæjarfélag til reiði í sumar
með ummælunum sem hún lét falla í gríni og bjóst eng-
an veginn við þeim hörðu viðbrögðum sem brandarinn
vakti. Bæði leikhópurinn Lotta sem og Þórdís sjálf gáfu
út afsökunarbeiðni í kjölfarið, en allt kom fyrir ekki og
gekk það svo langt að henni fóru að berast líflátshót-
anir og hótanir um kynferðisofbeldi.
„Ef einhvern tímann væri þörf fyrir
löglega netverslun með áfengi.“
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
„Á einhver örlítill grenjandi minnihluti að hafa
neitunarvald um það að þjóðin megi stofna þennan
þjóðgarð sinn á sínu eigin landi?“
Steingrímur J. Sigfússon
„Ég er ekki hvatamaður þess að
hvorki námsmenn eða aðrir sem eru
á atvinnuleysisskrá fái fjármagn úr
ríkissjóði fyrir að gera ekki neitt.“
Ásmundur Einar Daðason
„Já, ég held að þetta sé afsakanlegt.“
Katrín Jakobsdóttir
„Það er ástæða fyrir því að hér er
lítið um smit. Fólk fer mjög varlega.
Akureyringar fylgja reglum.“
Ásthildur Sturludóttir
„Björn Ingi á Viljanum.”
Björn Ingi Hrafnsson
„Við Willum þekkjum alveg hver
stjórnar. Og það er ekki Katrín.“
Ágúst Ólafur Ágústsson
„Við gerum ekki reglugerðarbreytingar
til að bjarga einstaka fjölskyldum sem
fara í fjölmiðla.“
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
„Drullastu heim til
Namibíu.”
Atli Steinar Ingason
„Maður heyrir viðtöl við sauðfjárbændur
og á samtöl við þau, þar sem þeir segja
að þetta er meira lífsstíll heldur en
spurning um afkomu.“
Kristján Þór Júlíusson
„Jæja þá erum við búin að koma
á helv... Kópasker.“
Þórdís Björk Þorfinnsdóttir
Áslaug Arna vildi bæta aðgengi að áfengi. Þórdís fékk grófar hótanir vegna ummæla.
Steingrímur talaði um grenjandi minnihluta. MYNDIR/ANTON BRINK