Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Page 37
FÓKUS 37
ERJUR VEGNA SNYRTIMEÐFERÐAR – HÓTA KÆRUM Á VÍXL
Helena Íris Kristjánsdóttir sagði farir sínar
ekki sléttar af samskiptum við snyrtistofuna
The House of Beauty í Reykjavík. Hún vildi
vara fólk við fyrirtækinu og sagði að sér
hefði verið hótað lögsókn af lögmanni snyrti-
stofunnar. Sigrún Lilja Gyðja Guðjónsdóttir,
eigandi stofunnar, sagði Helenu Írisi hafa
verið „mjög erfiða“ í samskiptum.
Á vef snyrtistofunnar er henni lýst sem
líkamsmótunarstofu sem býður upp á „bylt-
ingarkenndar meðferðir við mótun líkamans
og samsetningu á þeim sem eru einnar sinnar
tegundar á landinu“. Helena Íris samþykkti
að vera módel fyrir stofuna í skiptum fyrir 50
prósent afslátt. Hún er fimm barna móðir og
var spennt fyrir meðferðinni en þegar með-
ferðinni lauk sagðist Helena ekki sjá neinn
mun á sér, fyrir utan að hún væri blá og marin
eftir meðferðirnar. Hún vildi fá nýjar með-
ferðir, sér að kostnaðarlausu, en fékk ekki
sökum meints dónaskapar hennar í garð
starfsfólks.
Helena sagði fyrrverandi starfsfólk hafa haft
samband við sig og farið ófögrum orðum um
eiganda stofunnar, Sigrúnu Gyðju. Sigrún
Gyðja svaraði fyrir sig og sagði Helenu ljúga
og sakaði hana á ný um dónaskap gagnvart
starfsfólki.
Helena sagði að ef hún fengi endurgreitt
myndi hún gefa allan peninginn til góðgerð-
armála, ekki er vitað hver endalok málsins
urðu en óvíst er að Sigrún Lilja hafi endur-
greitt henni.
MÆTTU Í SVIÐSLJÓSIÐ
MEÐ HVELLI
Það er óhætt að segja að vinkonurnar og
frænkurnar Nadía Sif Líndal og Lára Clau-
sen hafi komið fram í sviðsljósið með hvelli
þegar þær heimsóttu tvo landsliðsmenn
Englands á Hótel Sögu.
Fótboltamennirnir, Mason Grenwood og
Phil Foden, brutu sóttvarnareglur og þurftu
að greiða sekt.
Nadía Sif og Lára urðu umtöluðustu mann-
eskjur landsins á einni nóttu. Þær komust
í heimsfréttirnar og voru á forsíðum allra
helstu fjölmiðla í Bretlandi.
Frænkurnar hafa báðar stigið fram í við-
tölum og lýst atburðum kvöldsins. Síðan
þá hafa þær verið reglulega í fjölmiðlum og
hefur fylgjendum þeirra fjölgað margfalt á
samfélagsmiðlum.
Það vakti til að mynda athygli þegar Nadía
Sif fór í gelísprautun og birti „fyrir og eftir“
myndir á snyrtistofu sem er vinsæl hjá
frægum Íslendingum.
Fókus ræddi nýverið við Láru Clausen, sem
varð fyrir barðinu á tölvuþrjóti. Hún sagði
einnig að þó svo að þær hefðu farið í nokk-
ur viðtöl hefðu þær ekki sagt söguna alla
og munu öll smáatriðin aldrei koma í ljós.
HELGI SELJAN OG LÍNA BIRGITTA FÓRU Í HART
Athafnakonan Lína Birgitta var himinlifandi
yfir að vinsæla tískutímaritið Vogue hefði
fjallað um vörumerki hennar, Define The
Line Sport, í júní.
Hún greindi frá því á samfélagsmiðlum
og sagðist vera hálfpartinn orðlaus og að
springa úr þakklæti.
Fjölmiðlamanninum Helga Seljan fannst
eitthvað athugunarvert við umfjöllunina
og sagði að líklegast væri um kostaða
auglýsingu að ræða. Helgi birti skjáskot úr
tímaritinu máli sínu til stuðnings.
Morgunblaðið fjallaði um umfjöllun Vogue
undir fyrirsögninni: Lína Birgit ta í einu
frægasta tískutímariti heims. Helgi Seljan
sagði að rétt fyrirsögn væri: „Lína Birgitta
keypti smáauglýsingu í útlensku blaði.“
Í samtali við DV sagði Lína Birgit ta að
Vogue hefði haft samband við sig og óskað
eftir að fjalla um merkið.
„Persónulega hefði mér aldrei dottið í
hug að auglýsa í erlendu blaði og hvað þá
Vogue af öllum blöðum, þar sem fókusinn
minn er aðallega á Íslendinga eins og stað-
an er núna, ég vil nota pening í markaðsmál
hér heima,“ sagði hún á sínum tíma.
MYND/VALLI
MYND/EYÞÓR MYND/AÐSEND
MYNDIR/AÐSENDAR
MYND/HOUSEOFBEAUTY.IS
M
YN
D
IR
/A
Ð
S
E
N
D
A
R
DV 30. DESEMBER 2020