Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Side 47
mann. Ég sé þó að með ástinni
færist yfir hann meiri ró og
hann leyfir sér í auknum mæli
að slaka á og njóta.
Saga Garðarsdóttir hefur
klifið fjöllin nokkur og sú
reynsla hefur mótað hana og
gert hana að því sem hún er
í dag. Hún fær stórt hlutverk
í kvikmyndaseríu sem fram-
leidd er vestan hafs. Hún er
mikil og sterk fyrirmynd og
það verður aldrei tekið frá
henni. Heimurinn tekur opn-
um örmum á móti Sögu og hún
er tilbúin – loksins. Frjósemi
einkennir þetta ár hjá henni á
fleiri vegu en einn.
Yrsa Sigurðardóttir vinnur
hérna á við fjóra. Hún er kraft-
mikil kona. Í lok árs ákveður
hún hins vegar að hægja á sér
og vinna ekki of mikið. Leika
meira og sinna fjölskyldunni.
Hún er sátt við ákvörðunina.
Þáttasería byggð á sögu eftir
Yrsu verður framleidd fyrir
Netflix og hún hlýtur mikið
lof fyrir.
Fótboltakempur
Eiður Smári er drengur góður
með mikið innsæi og hjarta-
hlýju sem íslenska þjóðin vill
sjá ganga vel. Hann tekst á við
nýtt hlutverk í knattspyrnu-
heiminum þar sem þjóðin og
já, allur heimurinn, fylgist
grannt með honum. Gagnrýni
bítur ekki á hann en hún verð-
ur töluverð árið fram undan.
Hann stígur feilspor í byrjun
árs en það dugir til að minna
hann á hvernig best er ganga
í takt við hjartað og heilsuna.
Rúrik Gíslason er maður
með góða samkennd en ef
hann setur sér ekki skýr mörk
árið 2021 lendir hann í vand-
ræðum. Þessi vandræði birtast
hér árið fram undan en þau
eru hluti af þroskaskeiði hans.
Hann tæklar þessar hindranir.
Hann reynir fyrir sér á sviði
tónlistarinnar og kemur með
eitt lag sem kemst í nokkra
spilun hér á landi, þó það klífi
ekki í efsta sæti vinsældalist-
anna. Hins vegar verður tón-
listarferill hans snarpur og
hann finnur hratt að hjartað
hans er ekki í því. Hér er ís-
lensk kona sem birtist hér við
hlið hans. Ástin blómstrar.
Nýtt líf. Rúrik verður pabbi.
Viðskiptajöfrar
Róbert Wessmann viðskipta-
jöfur mun komast í gegnum
eitthvað óöryggi sem birtist
hér en hann þarf alltaf að
muna að allir eru jafn mikil-
vægir. Þar er lykill hans að
fallegri framtíð.
Björgólfur Thor Björgólfs-
son athafnamaður mun tjá sig
mun meira á árinu en áður.
Vasar hans fyllast en það er
ekki endilega ávísun á sanna
hamingju og það veit hann.
Innri órói.
Óljós stefna hans er áber-
andi. Hann veit ekki hvort
hann á að fara aftur á bak eða
áfram. Hugur hans er eins og
excel skjal í algjöru rugli og
það stemmir ekkert hérna.
Einbeiting er eitthvað sem
hann þarfnast ef hann vill að
hlið tækifæranna opnist upp
á gátt. Árið verður honum
erfitt persónulega. Hér á sér
hreinsun stað. Mér sýnist
eitthvað þungt og erfitt mál
fylgja honum eftir. Líklega er
þar um liðna atburði að ræða
sem enn á eftir að gera upp og
ég skynja að hann sé á mikl-
um flótta. Það eru margir að
reyna að gægjast inn í þetta
mál og hann þarf að hafa all-
an varann á sér. Líklega ætti
hann að treysta sem fæstum.
Skúli Mogensen gefst upp
á fluginu eftir enn eina mis-
lukkaða tilraun til að hasla
sér þar völl að nýju á vor-
mánuðum. Hann mun þó snúa
aftur næsta vetur með nýjar
hugmyndir á alveg nýju sviði.
Algjör viðsnúningur hjá hon-
um. Ég sé þó einhverja bresti
í ástarlífinu sem gætu endað
með því að Skúli snúi aftur á
lista yfir eftirsóttustu pipar-
sveina landsins.
Linda Pétursdóttir fegurð-
ardrottning hefur hugrekki
en hún verður að finna út
hvað hún vill. Ef hún tjáir sig
þá gæti hún fundið sína leið.
Árið 2021 sýnir hana frjóa
þegar kemur að hugmyndum
og nýtir hún þar tæknina á
réttan máta. Linda er ást-
fangin hér af eldri manni sem
gæti verið pabbi hennar en
ástin spyr ekki um aldur og
Linda blómstrar.
Kári Stefánsson
Kári Stefánsson forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar mun
blómstra á árinu 2021. Hann
heldur áfram að vera áber-
andi í sviðsljósinu fyrri hluta
næsta árs, en með sumrinu sé
ég hann draga sig í hlé og ein-
beita sér að fjölskyldunni og
skrifum. Hann vill skilja eftir
sig meira á prenti. Fyrirtæki
hans mun standa að nokkrum
athyglisverðum rannsóknum
sem tengjast COVID sem
verður tekið eftir og vitnað í
um allan heim. En ég sé líka
mikinn þunga yfir honum.
Þunga sem líklega er þreyta.
Undir lok næsta árs verður
Kári sestur í helgan stein eða
farinn að hugsa um það af
verulegri alvöru. Ég skynja
að hann sé nú þegar farinn
að leita af arftaka sínum, þó
tilhugsunin um að láta barn
sitt, Íslenska erfðagreiningu,
í hendur einhvers annars sé
erfið.
Atvinnulífið
Dágóðar launahækkanir taka
gildi um áramótin og mun
hækkunin reynst mörgum
vinnuveitendum þungur baggi
í COVID-kreppunni og ég sé
fram á töluverðar uppsagnir
á næstu mánuðum. Stytting
vinnuvikunnar verður einnig
áberandi og verður mikið til
umræðu, sérstaklega þegar
örlar á óánægju meðal laun-
þega um útfærslu á stytt-
ingunni. Vinnustaðir þar sem
unnið er á vöktum munu lenda
í nokkrum byrjunarerfiðleik-
um sem jafnast þó fljótlega
út. Ég sé atvinnuleysi ekki
minnka fyrr en vel er liðið á
árið. Mér sýnist mikið af fyrir-
tækjum hverfa frá Íslandi út af
auknum launakostnaði og háu
húsnæðisverði.
Vinnumálastofnun fer þó af
stað með spennandi lausnir
Linda Pétursdóttir. MYND/AÐSENDNína Dögg Filippusdóttir. MYND/EYÞÓR
Kári Stefánsson sest í helgan stein árið 2021. MYNDIR/VALLI
Linda er ástfangin hér af
eldri manni sem gæti verið
pabbi hennar en ástin spyr
ekki um aldur.
FÓKUS 47DV 30. DESEMBER 2020