Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Page 55

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Page 55
FÓKUS 55 SVALA BJÖRGVINS OG GAUTI Tónlistarkonan og tískudívan Svala Björgvinsdóttir og Guðmundur Gauti Sigurðarson, alltaf kallaður Gauti, hættu saman í sumar eftir tveggja ára samband. BRÍET OG DÓRI Bríet Ísis Elfar, ein efnilegasta söngkona landsins, hætti með kærasta sínum, Halldóri Karlssyni, eða Dóra eins og hann er kallaður, fyrri hluta árs. Þó að sambands­ slitin sjálf hafi ekki vakið gífurlega athygli á sínum tíma, þá ættu flestir landsmenn að vita af þeim nú, þar sem Bríet söng um ástarsorgina á nýjustu plötu sinni, Kveðja Bríet. Platan hefur vakið mikla lukku hjá hlustendum, sérstaklega fyrir hversu einlæg og falleg hún er. SAGA SIG OG VILLI Einn vinsælasti tískuljósmyndari landsins, Saga Sigurðardóttir, og tónlistarmaðurinn Vilhelm Ant­ on Jónsson, betur þekktur sem Villi Naglbítur, hættu saman eftir rúmlega árs samband. Saga þykir ein eftirsóttasta einhleypa kona landsins. ÁSDÍS RÁN OG JÓHANN WÍUM Fyrirsætan og athafnakonan Ás­ dís Rán varð einhleyp á ný í ár. Hún var áður í sambandi með at­ hafnamanninum Jóhanni Wium, en það slitnaði upp úr því í vor. BJÖRG OG TRYGGVI Sjónvarpsstjarnan og handrits­ höfundurinn Björg Magnús­ dóttir og auglýsingahönnuðurinn Tryggvi Þór Hilmarsson byrjuðu saman í ár. LINDA PÉ Á LAUSU Alheimsfegurðardrot tningin, frumkvöðullinn og markþjálfinn Linda Pé varð einhleyp seinni hluta árs. KOLBEINN SIGÞÓRS OG HILDUR Landsliðskappinn Kolbeinn Sigþórsson varð einhleypur á ný í ár. Hann var í sambandi með fyrrverandi flugfreyju WOW air, Hildi Hilmarsdóttur. SVALA BJÖRGVINS OG KRISTJÁN EINAR Í lok sumars var Svala komin með nýjan kærasta, Kristján Einar Sig­ urbjörnsson sem er 22 ára faðir og sjómaður frá Húsavík. Samband þeirra vakti mikla athygli vegna aldursmunarins, sem er 21 ár. Þau trúlofuðu sig núna í desember. BRÍET OG RUBIN Bríet varð ástfangin í ástarsorg. Hún byrjaði með Rubin Pollock, gítarleikara Kaleo, í sumar. SNÆFRÍÐUR OG HÖGNI Snæfríður Ingvarsdóttir, ein efni­ legasta leikkona landsins, og hinn hæfileikaríki Högni Egilsson, söngvari Hjaltalín, hættu saman í byrjun sumars eftir sex ára sam­ band. Það leið þó ekki á löngu þar til leiðir þeirra lágu saman aftur og þau fundu ástina á ný. Þau hafa sést geislandi af ást, hönd í hönd í miðborginni. MYND/HAN N A MYND/STEFÁNMYND/INSTAGRAM MYND/SAMSETT DV MYND/SAMSETT DV MYND/HANNA MYND/INSTAGRAM MYND/ÁSTA KRISTJÁNSDÓTTIR MYND/AÐSEND MYND/AÐSEND MYND/ERNIR DV 30. DESEMBER 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.