Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Síða 55
FÓKUS 55
SVALA BJÖRGVINS OG GAUTI
Tónlistarkonan og tískudívan Svala Björgvinsdóttir og
Guðmundur Gauti Sigurðarson, alltaf kallaður Gauti,
hættu saman í sumar eftir tveggja ára samband.
BRÍET OG DÓRI
Bríet Ísis Elfar, ein efnilegasta söngkona landsins, hætti
með kærasta sínum, Halldóri Karlssyni, eða Dóra eins
og hann er kallaður, fyrri hluta árs. Þó að sambands
slitin sjálf hafi ekki vakið gífurlega athygli á sínum tíma,
þá ættu flestir landsmenn að vita af þeim nú, þar sem
Bríet söng um ástarsorgina á nýjustu plötu sinni, Kveðja
Bríet. Platan hefur vakið mikla lukku hjá hlustendum,
sérstaklega fyrir hversu einlæg og falleg hún er.
SAGA SIG OG VILLI
Einn vinsælasti tískuljósmyndari
landsins, Saga Sigurðardóttir, og
tónlistarmaðurinn Vilhelm Ant
on Jónsson, betur þekktur sem
Villi Naglbítur, hættu saman eftir
rúmlega árs samband. Saga þykir
ein eftirsóttasta einhleypa kona
landsins.
ÁSDÍS RÁN OG JÓHANN WÍUM
Fyrirsætan og athafnakonan Ás
dís Rán varð einhleyp á ný í ár.
Hún var áður í sambandi með at
hafnamanninum Jóhanni Wium,
en það slitnaði upp úr því í vor.
BJÖRG OG TRYGGVI
Sjónvarpsstjarnan og handrits
höfundurinn Björg Magnús
dóttir og auglýsingahönnuðurinn
Tryggvi Þór Hilmarsson byrjuðu
saman í ár.
LINDA PÉ Á LAUSU
Alheimsfegurðardrot tningin,
frumkvöðullinn og markþjálfinn
Linda Pé varð einhleyp seinni
hluta árs.
KOLBEINN SIGÞÓRS OG HILDUR
Landsliðskappinn Kolbeinn Sigþórsson varð einhleypur á ný í ár. Hann var
í sambandi með fyrrverandi flugfreyju WOW air, Hildi Hilmarsdóttur.
SVALA BJÖRGVINS
OG KRISTJÁN EINAR
Í lok sumars var Svala komin með
nýjan kærasta, Kristján Einar Sig
urbjörnsson sem er 22 ára faðir og
sjómaður frá Húsavík. Samband
þeirra vakti mikla athygli vegna
aldursmunarins, sem er 21 ár. Þau
trúlofuðu sig núna í desember.
BRÍET OG RUBIN
Bríet varð ástfangin í ástarsorg.
Hún byrjaði með Rubin Pollock,
gítarleikara Kaleo, í sumar.
SNÆFRÍÐUR OG HÖGNI
Snæfríður Ingvarsdóttir, ein efni
legasta leikkona landsins, og
hinn hæfileikaríki Högni Egilsson,
söngvari Hjaltalín, hættu saman í
byrjun sumars eftir sex ára sam
band. Það leið þó ekki á löngu þar
til leiðir þeirra lágu saman aftur
og þau fundu ástina á ný. Þau hafa
sést geislandi af ást, hönd í hönd í
miðborginni.
MYND/HAN
N
A
MYND/STEFÁNMYND/INSTAGRAM
MYND/SAMSETT DV
MYND/SAMSETT DV
MYND/HANNA MYND/INSTAGRAM
MYND/ÁSTA KRISTJÁNSDÓTTIR
MYND/AÐSEND
MYND/AÐSEND MYND/ERNIR
DV 30. DESEMBER 2020