Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Side 65
FÓKUS 65DV 30. DESEMBER 2020
Flest allir bíða spenntir eftir að þessu ári ljúki og sjá fyrir sér að allt verði
betra strax þann 01.01.21. Því fleiri sem sjá það fyrir sér þeim mun meiri
eru líkurnar á að það verði að veruleika. Ef við höfum ekki von þá höfum við
ekki mikið. Lúna Flórens spákona DV leggur spilin á borðið fyrir komandi ár.
Vog
23.09. – 22.10.
Vatnsberi
20.01. – 18.02.
Sporðdreki
23.10. – 21.11.
Fiskur
19.02. – 20.03.
Bogmaður
22.11. – 21.12.
Steingeit
22.12. – 19.01.
Ástin
Þetta árið vill Vogin vera óvenju sjálfselsk og velja það
sem er best fyrir hana og vanda sig í að búa til svig-
rúm fyrir sig til þess að huga betur að líkama og sál, því
þannig getur hún best gefið áfram.
Framinn
Vogin er ekki vog fyrir ekki neitt, það snýst allt um jafn-
vægi, þannig líður henni best. Þér mun ganga betur að
forgangsraða og sinna þeim störfum sem þér finnast
skemmtileg og gefandi. Þegar þú gerir það þá blómstrar
þú og tækifærin laðast að þér.
Fjármálin
Allt dettur rólega í farsælan farveg á ný, eftir að hafa
haft mjög mikið fyrir því að láta síðasta ár ganga upp, þá
fær Vogin að uppskera vinnu sína. Hlutirnir munu koma
til hennar mjög auðveldlega um miðbik árs. Gerðu þér
stóra drauma fyrir komandi ár!
Heilsan
Vogin kafar enn dýpra í andlegu heimana en þar finnur
hún best fyrir jafnvægi, andlegi þátturinn ýtir líka undir
líkamlegan styrk. Ég sé fyrir mér mikla jóga- og dans-
iðkun hjá voginni. Hún má þó gjarnan minnka kaffið.
Ástin
Það verða breytingar í þínum sambandsmálum. Breyt-
ingar eru góðar þó maður sjái það ekki alveg í byrjun.
Gefðu þér góðan tíma í að átta þig á hvað þú vilt í raun
og veru og fylgdu hjartanu, þótt það geti verið erfitt.
Framinn
Eftir að hafa aðeins fengið að hitta örfáa í einu á árinu
þá sérðu fyrir þér að byggja upp samfélag þar sem fólk
kemur saman og styður hvert við annað. Mögulega at-
vinnutækifæri sem þú munt skapa eða taka stóran þátt
í að byggja upp.
Fjármálin
Þú tekur smá áhættu í byrjun árs sem mun ekki alveg
ganga að óskum, en ekki örvænta því eitt mun leiða
af öðru.
Heilsan
Fyrirgefningin og friðurinn verða þín heilsa á árinu.
Það mun koma sjálfum þér á óvart hversu mikil framför
verður í þeim málum. En með frið í hjarta munt þú sofa
svo miklu betur, sem er mikilvægur heilsuþáttur.
Ástin
Hver hefur tíma fyrir hana? En svo öllu gríni sé sleppt
þá mætti Sporðdrekinn alveg stundum muna eftir því
að sinna ástinni aðeins meira, því þegar upp er staðið
þá er hún það eina sem skiptir máli.
Framinn
Sporðdrekinn er í stuði til þess að endurskapa sig og
þar sem hann er alltaf í viðskiptaham þá ertu mögu-
lega að hugsa um hvernig þú getir umturnað og breytt
einhverjum rekstri sem er í þinni umsjón. Fyrirtækja
„make-over” er þitt áramótaheit.
Fjármálin
Fjármálin ganga það vel að þú átt nóg til þess að gefa
það áfram, sem þú gerir því þú ert örlátur.
Heilsan
Svasana er orðið þitt fyrir 2021 og fyrir þá sem þekkja
minna til jógaheimanna, þá er það hvíldarstaðan í lok
tímans. Eftir mörg ár af kapphlaupi þarftu á því að halda.
Þú þarft ekki að skara fram úr á öllum sviðum.
Ástin
Mikil og endalaust ást. Þú ert ástfanginn af öllu og öll-
um. Ef þú ert í sambandi mun það vera mjög farsælt og
fallegt. Ef þú ert ekki í sambandi þá munt þú ekki finna
það sem þú ert að leita að fyrr en þú hættir að leita...
Framinn
Fiskurinn hefur sjaldan séð hlutina jafn skýrt, hann er
óvenju tilbúinn í breytingar og áhættu. Hann vill koma
sér í aðstæður sem munu koma honum á óvart og ekki
bara festast í flæðinu. Þetta ár hefur reynst fiskinum
andlega erfitt og nú vill hann fá að hafa GAMAN.
Fjármálin
Gamlir draumar munu rætast hjá Fiskinum og mikil lukka
flæðir allt um kring. Þú munt eiga einn einstakan dag
sem mun breyta öllu fyrir þig og opna nýjar dyr. Einn
örlagaríkan og sannkallaðan happadag, eitthvað til að
hlakka til.
Heilsan
Þú ferð inn í árið með ýmsa kvilla frá líðandi ári en munt
svo fljótt byrja að finna fyrir betri líðan eftir hvern mán-
uð sem líður og smátt og smátt byggirðu þína heilsu upp
á nýtt. Með smá þolinmæði muntu finna styrk þinn á ný.
Ástin
Þú verður eins og unglingur á ný, ástsjúkur með fiðrildi í maganum. Enda
hefur þú svo mikla ást að gefa. Breyttar aðstæður gefa þér meira svigrúm
til þess að sinna þeim málum.
Framinn
Það verða einhverjar breytingar sem eru svo sem ekki neitt nýtt fyrir þetta
uppátækjasama kamelljón. Breytingarnar verða hins vegar þannig að það
mun létta verulega á álaginu sem hefur verið hingað til.
Fjármálin
Þú veist vel að það þarf að eyða peningum til þess að búa til peninga. Það
getur tekið á taugarnar en þú veist hvað þú ert að gera og ert á réttri braut
með það.
Heilsan
Á þessu ári mun Bogmaðurinn styrkja magavöðvana með hláturskasti. Það
birtir mikið til hjá honum, hann fær þau tól og svigrúm sem þarf til að byggja
sig upp og sinna heilsunni, til þess að verða besta útgáfan af sjálfum sér.
Þetta verður hlaupaárið mikla!
Ástin
Steingeitin er mjög sjálfstæð og nýtur sín vel þannig. Þetta ár munt þú annað
hvort nýta þér vel að vera einstæð, eða finna á ný þitt sjálfstæði í núverandi
sambandi.
Framinn
Steingeitin þráir fátt heitara en að finna tilgang sinn á ný. Eftir alla þessa
ringulreið þá vill hún rútínu, hún vill finna sér áhugamál eða starf sem hún
brennur fyrir. Markmið ársins er að leiðast ekki heldur að finna sér ástríðu-
verkefni sem mun fylla hjarta hennar og efla sjálfstraustið.
Fjármálin
Þú ert enn þá að byggja þig upp fjárhagslega, en klárlega á réttri braut hvað
það varðar, þrátt fyrir að sumar skuldir eða peningaleysi virðist óleysanlegt
í byrjun árs. Þú finnur fjárhagslegt öryggi á ný þegar sem líða fer á árið.
Heilsan
Þú hefðir gott af því að tileinka þér aðeins hollari lífsstíl. Þú veist svo sem
hvað þarf til, en oft er erfitt að finna hjá sér agann. Gerðu þér lítil og raunhæf
markmið og þá muntu finna réttu leiðina.
21. júní
Nýtt tungl
Sólmyrkvi - hringmyrkvi
5. júlí
Fullt tungl
Tunglmyrkvi - hálfskuggi
20. júlí
Nýtt tungl
3. ágúst
Fullt tungl
19. ágúst
Nýtt tungl
2. september
Fullt tungl
17. september
Nýtt tungl
21. desember
Vetrarsólstöður
30. desember
Fullt tungl
22. september
Haustjafndægur
1. október
Fullt tungl
16. október
Nýtt tungl
31. október
Blátt tungl
14. desember
Nýtt tungl
Sólmyrkvi - almyrkvi