Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Side 69
SPORT 69DV 30. DESEMBER 2020
HJÖRVAR HAFLIÐASON DR. FOOTBALL
„Stærsta augnablikið árið 2020 var þegar
HK vann sinn fyrsta deildarsigur í Vestur-
bænum á KR, 0-3. Á fallegum júnídegi, ekki
bara það að þeir hafi unnið leikinn heldur
rúlluðu þeir yfir KR. Ungstirnið, Valgeir Val-
geirsson, var frábær. Þetta var magnaður
dagur og allt sem maður vildi sjá í fótbolta,
skemmtilegur leikur. Það sem mikilvægast
var, það voru áhorfendur. Annar hápunktur
er að stórt lið í Englandi keypti fullorðinn ís-
lenskan leikmann, þegar Arsenal fékk Rúnar
Alex Rúnarsson.“
GUNNAR BIRGISSON
ÍÞRÓTTAFRÉTTAMAÐUR Á RÚV
„Það sem stendur upp úr á þessu knattspyrnusumri
er í raun og veru bara þessi fordæmalausa staða
sem að myndaðist nánast í hverri einustu viku. Lið í
sóttkví, einstaka leikmenn í sóttkví, smitaðir leikmenn,
frestaðir leikir og allt endar þetta með að tímabilið hér
heima er blásið af. Auðvitað er erfitt líka að komast hjá
því að nefna frábæran árangur íslenska kvennalands-
liðsins, en aftur á móti súmmeruðu síðustu tíu mínút-
urnar í leik íslenska karlalandsliðsins gegn Ungverja-
landi ytra, í raun og veru þetta ár bara í heild sinni.“
SVAVA KRISTÍN GRÉTARSDÓTTIR
ÍÞRÓTTAFRÉTTAKONA Á STÖÐ2
„Íslensk kvennaknattspyrna stóð að mínu mati upp
úr á árinu. Að fá að fylgjast með okkar bestu konu,
Söru Björk Gunnarsdóttur, verða Evrópumeistara
með Lyon og skora í úrslitaleiknum, var stórkostlegt.
Elísabet Gunnarsdóttir náði langþráðu markmiði sínu
sem þjálfari, að koma Íslendingaliði Kristianstad í
Meistaradeildina. Sveindís Jane Jónsdóttir vann hug
og hjörtu knattspyrnuáhugamanna, óþekkt nafn í upp-
hafi árs, varð markadrottning í Pepsí Max deildinni og
lauk árinu sem lykilmaður í íslenska landsliðinu. Berg-
lind Björg Þorvaldsdóttir skoraði 5 mörk í jafnmörgum
leikjum fyrir AC Milan, Ingibjörg Sigurðardóttir best í
Noregi. Ísland á EM. 2020 var geggjað ár fyrir íslenska
kvennaknattspyrnu og við getum verið stolt af Stelp-
unum okkar.“
BÁRA KRISTBJÖRG RÚNARSDÓTTIR ÞJÁLFARI Í SVÍÞJÓÐ
„Þrátt fyrir ótrúlega skrítið fótboltaár voru
nokkur atriði sem stóðu upp úr fyrir mig. Eitt
af því var að Liverpool skyldi verða enskur
meistari. Þrátt fyrir að stuðningsmenn ann-
arra liða vilji setja stjörnu fyrir aftan þennan
titil, þá er hann alveg jafn sætur fyrir okkur
stuðningsmenn Liverpool, enda langþráður.
Þegar Sara Björk skoraði í úrslitaleik Meist-
aradeildarinnar fyrst Íslendinga er svo annað
sem stóð upp úr á árinu að mínu mati. Eiður
Smári hefur náttúrulega unnið Meistara-
deildina með Barcelona, en þetta mark
hennar í þessum úrslitaleik gegn hennar
gamla félagi sem hún spilaði með framan
af í keppninni, var ótrúlega magnað augna-
blik. Þetta mark og þessi Meistaradeildar-
titill Lyon tekur verðskuldað pláss í íslenskri
knattspyrnusögu.“
ELVAR GEIR MAGNÚSSON
RITSTJÓRI FÓTBOLTA.NET
„Þrátt fyrir nokkrar, stórar stundir
verður fótboltaárinu 2020 þegar
upp verður staðið því miður helst
minnst sem tímabilinu þar sem
COVID-19 setti allt í rugl. Sífelldar
stöðvanir, áhorfendabann, heilu
liðin í sóttkví, leikir Íslandsmóts-
ins ekki kláraðir og kærumál í kjöl-
farið. Hverjir urðu bikarmeistarar
2020? Þessi spurning verður lík-
lega ofnotuð í spurningaleikjum
framtíðarinnar.“
EINAR ÖRN JÓNSSON
ÍÞRÓTTAFRÉTTAMAÐUR
Á RÚV
„Mér finnst standa upp úr að
kvennalandsliðið okkar tryggði
sig inn á EM án þess að þurfa í
umspil. Það er meira en að segja
það að halda sér á þessu leveli og
virkilega vel gert hjá þeim. Auð-
vitað líka gaman að sjá guttana í
U21 gera það sama og sem Valsari
var titillinn sætur, þó hann sé spes
þetta árið.“
MYND/KSÍ
MYND/AÐSEND