Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 2020, Qupperneq 18

Sveitarstjórnarmál - 2020, Qupperneq 18
18 SVEITARSTJÓRNARMÁL Sveitarfélögin bera mikla ábyrgð og eru í lykilhlutverki hvað varðar að setja sér markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og aukna bindingu kolefnis. Ein mikilvægasta leiðin til að binda kolefni er skógrækt. Nýtt í verkfærakassa sveitarfélaganna Lands- og landshlutaáætlanir í skógrækt Í nýlegum lögum um skóga og skógrækt nr. 33/2019 segir að eigi sjaldnar en á fimm ára fresti skuli gefa út landsáætlun í skógrækt, sem gildi til tíu ára í senn. Landsáætlunin skal kveða á um stefnu stjórnvalda þar sem fjallað er um stöðu og framtíð skóga í landinu, ásamt tölusettum markmiðum um árangur í skógrækt. Í samræmi við ofangreind lög skipaði Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, verkefnisstjórn landsáætlunar í skógrækt í júní á sl. ári. Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri er formaður verkefnastjórnarinnar. Einn fulltrúi er tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs Reykjavíkur. Við gerð landsáætlunar í skógrækt skal horft til þess að ná fram hagkvæmri notkun fjármagns og mannafla og samþættingu við aðrar áætlanir ríkis og sveitarfélaga. Nánar tiltekið skal í áætluninni gerð grein fyrir: • forsendum fyrir vali á landi til skógræktar með tilliti til náttúruverndar, minjaverndar og landslags • vernd og endurheimt náttúruskóga • ræktun skóga til uppbyggingar skógarauðlindar og umfangi og horfum hvað varðar nýtingu • sjálfbærri nýtingu skóga • áhrifum skógræktar á atvinnuþróun og byggð • aðgengi fólks að skógum til útivistar • skógrækt í samhengi líffræðilegrar fjölbreytni • skógrækt í samhengi loftslagsbreytinga • öflun þekkingar á skógum og skógrækt og miðlun hennar

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.