Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 2020, Síða 35

Sveitarstjórnarmál - 2020, Síða 35
SVEITARSTJÓRNARMÁL 35 AR-217:054 TÓ FT - þarf að vernda Asparlundur Greni- og furulundur Núv. sleðabrekka ný brettabrekka handrið - "rail" áætluð gönguleið skv. deiliskipulagi Núv. greni- og furulundur Nýr gróður ný b re tta br ek ka ha nd rið - "ra il"1:8 1:7 Nýr gróður L A N D S L A G S A R K I T E K T A R F Í L A LANDFORM e h f AUSTURVEGI 6 800 SELFOSS sími: 482 4090 faxnr: 482 3542 netfang: landform@landform.is veffang: www.landform.is VERKNR: DAGS. TEIKN: TEIKN. BREYTT: TEIKNAÐ AF: HANNAÐ AF: MKV: TEIKNING NR: YFIRL. / UNDIRSKRIFT: HEITI TEIKNINGAR: HEITI VERKS: Snjóbrettabrekka - DRÖG 18.11.2019gkogko 0011:750 í A3219-032 Íþróttavallarsvæði v/ Engjaveg, mót Langholti Framkvæmda- og veitusvið SVEITARFÉLAGIÐ ÁRBORG hæðarlínur - 1.0 m núv. gróður skráðar fornminjar rennslisstefna brekku handrið - ,,rail" o.fl. hindrun v/ akveg STUTT GREINARGERÐ: Meðfylgjandi er einföld tillaga á breyttri suðurhlið ,,Fjallsins eina" á Selfossi. Tillagan sýnir útfærslu á tveimur brekkum fyrir snjóbretti. Í tillögunni eru útbúnar tvær brekkur. Önnur liggur til suðurs út úr miðri suðurhlíð núverandi hóls og sveigir til austurs, en hin liggur að nokkru leyti samhliða núverandi sleðabrekku, en sveigir svo til vesturs og mætir þar hinni brekkunni. Á milli brekknanna er um 30m langt slétt svæði. Á, og við, slétta svæðið verður komið fyrir útbúnaði sem bjóða upp á ýmsa fleiri möguleika á nýtingu svæðisins. Brekkurnar hafa jafnan halla, 1:8 og 1:7. Mikilvægt er að rennslisstefna beggja brekka beini iðkendum ekki beint að Langholti. Til viðbótar er nauðsynlegt að koma fyrir hindrunum meðfram Langholti, svo sem háu grindverki svo að skíða- og sleðafólk renni ekki út af svæðinu. Lagt er til að komið verði fyrir sérsmíðuðum handriðum við enda brekknanna sem bjóða uppá ýmsa viðbótarmöguleika á nýtingu svæðisins. Vinsælt er að stökkva uppá handriðin og eins mætti útbúa lítinn varanlegan stökkpall úr jarðvegi sem vísar niður brekkuna með aðstöðu til að æfa stökk og annars konar skíðaloftfimi. Snjóbrettasport felst að miklu leyti í tækni og trixum frekar en eiginlegu bruni. Þegar braut er gerð í lítilli brekku er betra að hafa lítinn halla og bjóða frekar upp á búnað til að æfa ýmis trix og tækni. Með slíkum búnaði ásamt stökkpalli, mætti auka gæði svæðisins til muna og auka líkur á að svæðið verði vinsælt. Tillagan krefst þess að nokkuð af núverandi gróðri, mestmegnis Birki, upp við suðurhlíð hólsins verði fjarlægður en einnig má ímynda sér að hann verði einfaldlega færður innan svæðis. Til þess að sporna gegn bruni niður brattasta hluta hlíðarinnar og til yndisauka á svæðinu er lagt til að gróðursett verði einnig aukalega í lautina sem myndast á milli nýrra brekkna. Útfærsla á gróðri yrði í samræmi við heildargróðurplan íþróttasvæðisins. Tillaga að snjóbrettabrekku. mkv. 1:750 nýr gróður AR-999:999 Tillaga að snjóbrettabrekku og endurmótun á ,,Fjallinu eina" á Selfossi N Kúfur í útgjöldum Hann bendir á að tekjur sveitarfélagsins hafa aukist talsvert með fjölgun íbúa svo sveitarfélagið er betur en áður í stakk búið til að takast á við kostnaðarsamar framkvæmdir og uppbyggingu. Þessi hraða uppbygging reyni vissulega á fjárhag sveitarfélagsins en það sé tímabundið ástand. „Áætlanir okkar miða við að skuldahlutfall Árborgar verði svipað í lok kjörtímabilsins 2022 og það var þegar núverandi meirihluti tók við 2018. Það verður kúfur í útgjöldum á þessu ári og því næsta en svo hægist um og skuldahlutfallið ætti ekki að vera hærra en um 134 prósent við lok kjörtímabilsins ef ekkert óvænt kemur upp á. Það var mikil vinna og vönduð lögð í síðustu fjárhagsáætlunargerð af hendi starfsmanna og bæjarfulltrúa enda höfum við fengið hrós fyrir hana hjá lánastofnunum. Við fórum líka þá leið í stærri framkvæmdum að skrifa inn í útboðsgögnin að greiðslur til verktaka myndu dreifast jafnt yfir framkvæmdatímann og fram yfir lokaúttekt í stað þess að fylgja framvindu verksins eins og venjulega er gert. Þannig getum við dreift greiðslum jafnar og yfir lengra tímabil en ella,“ segir hann. Í Árborg standa einnig fyrir dyrum kostnaðarsamar framkvæmdir sem eru ekki endilega bein afleiðing af fjölgun íbúa heldur hefði þurft að ráðast í hvort sem var. Þegar Sveitarstjórnarmál ræddu við Tómas Ellert var fyrirhuguð tveggja þrepa skolphreinsistöð í umhverfismati og athugasemdaferli sem ljúka átti 4. mars. Skolpið hreinsað „Skolp rennur nú óhreinsað út í Ölfusá og við teljum að við svo búið megi ekki standa öllu lengur. Áætlaður kostnaður vegna hreinsistöðvar og annarra veituframkvæmda í sveitarfélaginu hleypur á fimm til sex milljörðum króna svo það væri mikið hagsmunamál fyrir okkur ef stjórnvöld sæju sér fært að afnema virðisaukaskatt af veituframkvæmdum eins og rætt hefur verið um. Við höfum verið að fækka verulega útrásum í Ölfusá á undanförnum árum og stefnum á að sameina þær í eina sem myndi þá tengjast hreinsistöðinni. Við höfum jafnframt verið að endurnýja fráveitu og aðrar lagnir í götum en höfum hugsað okkur að spýta í lófana þar, tvöfalda fjármagnið og endurnýja tvær götur á ári á næstu árum auk þess sem við erum að fara að setja af stað vinnu við að greina ástand fráveitu og leggja fram aðgerðaáætlun með lausnum til úrbóta á Eyrarbakka og Stokkseyri. Í raun ætlum við að gera meira en að byggja tveggja þrepa hreinsistöð á Selfossi því við ætlum jafnframt að drepa saurgerla í skolpinu með UV-ljósi og þá fer ekkert í ána nema köfnunarefni og nitur sem skaða engan, nema síður sé. Ölfusá er gríðarlega vatnsmikil og næringarsnauð. Meðalrennsli á sekúndu Teikning af snjóbrettasvæði sem verið er að útbúa við íþróttasvæðið á Selfossi.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.