Skessuhorn - 29.01.2020, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 5. tbl. 23. árg. 29. janúar 2020 - kr. 950 í lausasölu
Icelandic
Hot Dog combo
Pylsu
tilboð
549 kr.
Tilboðið gildir út janúar 2020
Pylsa og pepsi/pepsi max
1/2 l í plasti
sími 437-1600
Öxin á Sögulofti
Landnámsetursins
Öxin - Agnes & Friðrik
Næstu sýningar
laugardagur 1. febrúar kl. 16:00
laugardagur 15. febrúar kl. 16:00
sunnudagur 16. febrúar kl. 16:00
miðasala á landnam.is/vidburdir
eða á landnam@landnam.is
Borðapantanir eftir sýningu
í síma 437-1600
Fyrirtækinu Kræsingum ehf. í Borgarnesi voru nýverið dæmdar skaðabætur úr ríkissjóði,
alls 69 milljónir króna auk vaxta og kostnaðar, vegna ónákvæmra og rangra vinnubragða
Matvælastofnunar við sýnatöku úr framleiðslu fyrirtækisins í byrjun árs 2013. Þetta sjö
ára ferli hefur tekið verulega á í rekstri fyrirtækisins eins og lesa má um í ítarlegu viðtali á
miðopnu í Skessuhorni í dag. Á meðfylgjandi mynd eru tengdafeðgarnir Magnús Níelsson
og Ágúst Örn Guðmundsson að útbúa fyrstu þorrabakkana úr húsi. Ljósm. mm.
Til stendur að setja upp nýja skurð-
stofu á Heilbrigðisstofnun Vestur-
lands á Akranesi og fjölga liðskipta-
aðgerðum þar verulega. Verkefnið
er komið á rekspöl og er í undir-
búningsferli um þessar mundir. Að
sögn Jóhönnu Fjólu Jóhannesdótt-
ur, forstjóra HVE, getur hún ekki
sagt til um hvenær taka mætti nýja
skurðstofu á Akranesi í notkun, en
vonast til að það verði hægt fyrir
næstu áramót.
Fleiri vilja í liðskipti
Málið á sér nokkurn aðdraganda,
að sögn forstjórans. Frá árinu 2016
hefur HVE tekið þátt í átaki um
styttingu biðtíma eftir liðskipta-
aðgerðum. Á síðasta ári voru 182
aðgerðir framkvæmdar og á árinu
2018 voru þær 163. „Síðastliðin
fimm ár höfum við gert 787 lið-
skiptaaðgerðir hér á Akranesi, en
fyrir þann tíma voru þær 102 til 105
á ári hverju,“ segir Jóhanna Fjóla.
„Meðaldvöl þeirra sem gangast
undir liðskiptaaðgerðir hefur styst,
því með breyttu verklagi er fólk til-
búið til að útskrifast fyrr. Sem dæmi
hefur meðaldvöl þeirra sem koma í
liðskipti á hné og mjöðm styst um
tæpa tvo sólarhringa frá 2016, farið
úr 5,48 dögum í 3,55. Það segir sig
sjálft að hverjir tveir legudagar sem
einn dvelur skemur koma til með að
nýtast öðrum sem bíður aðgerðar,“
segir hún. „En á sama tíma og lið-
skiptaaðgerðum hefur verið fjölgað
hefur það gerst að sífellt fleiri sækj-
ast eftir slíkum aðgerðum. Ásókn-
in hefur aukist verulega síðustu ár,
einkum eftir hnéaðgerðum. Hverj-
ar ástæðurnar eru vitum við ekki al-
veg,“ bætir hún við.
Þarf að fjölga aðgerðum
Jóhanna Fjóla segir enn fremur að
með endurskipulagningu á starfs-
stöð HVE á Akranesi hafi verið
búið svo um hnútana að framkvæma
megi einni aðgerð fleira á viku en
undanfarin ár. Hún sér því fram á
að hægt verði að gera um 220 lið-
skiptaaðgerðir á árinu 2020. „En
staðan er einfaldlega sú að það þarf
að fjölga aðgerðum miklu meira og
við getum ekki bætt við aðgerðum á
Akranesi nema fá auka skurðstofu,“
segir hún og bætir því við að samtal
þess efnis við ráðuneyti heilbrigð-
ismála hafi hafist síðastliðið haust.
Hún segir starfsstöð HVE á Akra-
nesi vel í sveit setta til að bæta við
skurðsstofu og fjölga aðgerðum.
„Hér eru fyrir tvær skurðstofur þar
sem öflugt starfsfólk vinnur mjög
gott starf. Við teljum að skurðstof-
unni sjálfri sé hægt að bæta við með
endurskipulagningu á húsnæði hér
innanhúss og nýta rými sem fyrir er
fyrir þá sem bíða aðgerðar og þurfa
að liggja inni eftir aðgerð. Við höf-
um mjög góðan grunn að byggja á,“
segir Jóhanna Fjóla.
Starfsfólki myndi fjölga
Forstjórinn segir of snemmt að
segja til um hvenær hægt verð-
ur að taka nýja skurðstofu í notk-
un. „Málið er í ferli og ég get ekki
gefið upp neina tímasetningu núna.
Ef allt gengur að óskum getum við
vonandi farið að leita að starfsfólki
fljótlega, en það er undirstaða þess
að hægt verði að fara af stað í þetta
verkefni. Minn draumur er að geta
opnað nýja skurðstofu fyrir næstu
áramót. Vonandi gengur það eftir,“
segir Jóhanna Fjóla. „Það yrði frá-
bært fyrir þessa stofnun að fá þessa
viðbót. En hún kallar auðvitað á
heilmiklar breytingar, en eitt er víst
í heilbrgiðisþjónustu og það er að
hún tekur stöðugum breytingum.
Nýja skurðstofu þyrfti að manna
og fullbúa. Þetta myndi kalla á all-
nokkur stöðugildi til viðbótar hér á
HVE,“ segir hún en kveðst þó ekki
geta reifað hvað þau yrðu mörg.
kgk
Ný skurðstofa á Akranesi í undirbúningi
Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir,
forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestur-
lands.
arionbanki.is
Núna getur þú sett þér markmið
í sparnaði í Arion appinu
Tíminn vinnur
með þér í sparnaði