Skessuhorn - 29.01.2020, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 29. JANúAR 20202
Hryllingsmyndahátíðin Frostbiter
verður haldin í fjórða sinn á Akra-
nesi um komandi helgi. Þar verða
sýndar um 25 myndir og er frítt
á alla viðburði. Þá verða fjölmörg
þorrablót haldin í landshlutanum
um næstu helgi.
Á morgun er spáð norðaustanátt
8-13 m/s á Vestfjörðum en hæg-
ari austlæg átt annarsstaðar. Dá-
lítil él norðvestanlands en annars
þurrt víða og bjart. Frost víða 1-10
stig, mest inn til landsins. Á föstu-
dag er útlit fyrir norðlæga átt 5-15
m/s, hvassast norðvestanlands. Él
einkum norðvestantil á landinu
en víða bjart sunnanlands. Frost
um allt land. Á laugardag verð-
ur norðvestlæg átt 3-10 m/s og
hvassast við norðausturströndina.
Skýjað og lítilsháttar él, en bjart-
viðri sunnantil á landinu. Kalt í
veðri. Á sunnudag snýst í suðlæga
átt með dálítilli snjókomu eða élj-
um á Suður- og Vesturlandi, en
víða bjart norðan- og austanlands.
Áfram kalt í veðri. Á mánudag er
útlit fyrir norðlæga eða breytilega
átt og stöku él. Frost um land allt.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns hvaða náttúruvá
lesendur óttast mest. Flestir, eða
31%, óttast ofsaveður mest. 23%
óttast jarðskjálfta, 16% eldgos,
10% þurrka, 9% flóð/flóðbylgjur,
4% óttast eitthvað annað mest,
4% óttast hita/elda mest en fæstir,
eða 2% óttast mest kuldann.
Í næstu viku er spurt:
Borðar þú súrmat?
Aðalgeir Vignisson, kvikmynda-
gerðarmaður í Grundarfirði, lætur
drauminn um starf í kvikmynda-
geiranum rætast þó oft reynist
erfitt að komast inn í stéttina og
lifa á starfinu. Aðalgeir er Vest-
lendingur vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Fráfarandi
sveitarstjóri
tilkynnir máls-
sókn
BORGARBYGGÐ: Lög-
maður Gunnlaugs A Júlí-
ussonar, fráfarandi sveitar-
stjóra í Borgarbyggð, hefur
tilkynnt lögmanni sveitar-
félagsins að hann muni leita
til dómstóla til þess að fá
kröfur Gunnlaugs um bæt-
ur vegna uppsagnar hans
hjá sveitarfélaginu viður-
kenndar og dæmdar. Í bréfi
lögfræðings Borgarbyggð-
ar 20. janúar sl. til lögfræð-
ings Gunnlaugs sagði m.a.
„Hagsmunir umbjóðanda
þíns voru tryggðir með ríf-
legum biðlaunarétti sam-
kvæmt ráðningarsamningi.
Verður sá biðlaunaréttur
vitaskuld virtur. Allri frek-
ari greiðsluskyldu er hafn-
að. Kjósi umbjóðandi þinn
að gera ágreining um þá af-
stöðu umbjóðanda míns er
allur réttur áskilinn.“ Í til-
kynningu til Skessuhorns
segir Gunnlaugur: „Miðað
við viðbrögð sveitarfélags-
ins er fátt annað í stöðunni
en að leita réttar síns fyrir
dómstólum. Þegar ekki er
ljáð máls á að ræða uppgjör
á óteknu sumarfríi og túlk-
un annarra ákvæða í ráðn-
ingarsamningi, þá er ekkert
annað í stöðunni en að leita
réttar síns. Fyrst farið er í
þessa vegferð á annað borð
þá verða fleiri atriði einnig
tekin með.“ -mm
Leit hefst
brátt aftur
VESTURLAND: Lög-
reglan á Vesturlandi hefur
unnið að rannsókn á hvarfi
manns í Hnappadal 30.
desember. Veðurskilyrði
undanfarið hafa gert erfitt
um vik að leita hans en að
sögn lögreglu stendur til að
hefja hana af fullum krafti
að nýju innan tíðar. Lög-
reglan á Vesturlandi fær
aðstoð frá tæknideild sér-
sveitar Ríkislögreglustjóra.
Búið er að kortleggja staði
sem lögregla telur að skoða
þurfi betur og stendur til
að fljúga yfir þau svæði
með dróna. -kgk
Veðurhorfur
„Hjartans þakkir kæru Skaga-
menn,“ eru upphafsorð félaga í
Club71 á Akranesi í tilkynningu
sem þeir sendu frá sér að loknu
þorrablóti Skagamanna síðastliðin
laugardag. „Þið eigið heiður skilinn
fyrir að mæta á Þorrablót Skaga-
manna og gera þennan magnaða
menningarviðburð jafn stórkost-
legan og raun ber vitni. Því án já-
kvæðra og fjörugra gesta verður
engin veisla.“
Eftir tíu ár verða nú breytingar á
Þorrablóti Skagamanna. „Hópur úr
árgangi ´71 keyrði þessa hugmynd
í gang fyrir áratug og hefur haldið
utan um málin síðan þá í samvinnu
við fjöldann allan af góðu fólki.
Umfram allt er að Skagamenn og
góðir gestir komi saman, njóti sam-
verunnar og njóti lífsins og það
hefur tekist ljómandi vel. Ekki er
nú verra þegar allt þetta fer saman
í þágu góðra málefna en á þessum
tíu árum hafa safnast milli 20 og 30
milljónir króna sem runnið hafa til
góðgerða- og íþróttamála á Akra-
nesi.
Félagar í Club 71 vilja þakka
kærlega öllum þeim fjölmörgu sem
lagt hafa hönd á plóg með okkur
til að gera þetta allt að veruleika
í gegnum árin en ekki síður þeim
sem hafa komið og notið með okk-
ur á blótinu sjálfu - og styrkt þann-
ig gott málefni. Árgangur ´79 tek-
ur nú við boltanum og mun án efa
gera það með glæsibrag.“
mm
Leigufélagið Heimavellir sagði ný-
verið upp húsaleigu allra þeirra sem
leigja af þeim íbúðir í fjölbýlishús-
inu Holtsflöt 4 á Akranesi, alls 18
fjölskyldum. Það er gert í kjölfar
þess að fyrirtækið seldi húsið í byrj-
un árs. Í tilkynningunni frá Heima-
völlum kemur fram að leigusamn-
ingar hafi verið seldir með húsinu,
en nú hefur komið í ljós að nýju
eigendurnir hafa ekki í hyggju að
Íbúum í fjölbýlishúsum sagt upp húsnæði
leigja íbúðirnar áfram heldur fara
þær allar í sölu. Lítið framboð er af
leiguhúsnæði á Akranesi og því sjá
íbúar í húsinu fram á veruleg vand-
ræði þegar leigusamningar þeirra
renna út. Þeir fyrstu renna út í lok
mars og aðrir nokkrum mánuðum
síðar. Heimavellir hafa selt fleiri
fjölbýlishús á Akranesi, en húsið
við Holtsflöt 4, á liðnum misserum
og snertir því kúvending fyrirtæk-
isins í leigumiðlun afar marga íbúa
á Akranesi, enda hefur fyrirtækið
verið umsvifamikið á markaði eftir
að það fékk þessar fasteignir keypt-
ar á afar góðum kjörum af ríkinu
í gegnum Íbúðalánasjóð fyrir um
fjórum árum.
Vilhjálmur Birgisson formað-
ur Verkalýðsfélags Akraness vakti
athygli á málinu á Facebook síðu
sinni fyrir helgi og uppskar mikla
athygli fjölmiðla. „Það er óhætt
að segja að pistill minn hafi vakið
gríðarlega athygli, en þar fjalla ég
um ótrúlega og siðlausa framkomu
leigufélagsins Heimavalla í garð
leigjenda að Holtsflöt 4 á Akra-
nesi. Það er í raun rannsóknarefni
að Heimavellir sem keyptu þessar
íbúðir á sérstökum sérkjörum af
Íbúðalánasjóði árið 2016 skuli geta
einungis fjórum árum eftir kaupin
komist upp með að selja allar eign-
irnar og skilja um leið 18 fjölskyld-
ur eftir í fullkominni óvissu,“ skrif-
ar Vilhjálmur.
Meðal þeirra viðbragða sem orð-
ið hafa við skrifum Vilhjálms er að
Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á
Akranesi hefur heitið því að brugð-
ist verði við stöðunni og að reynt
verði að koma til móts við íbúa sem
standa frammi fyrir að verða hús-
næðislausir. Þær hugmyndir eru á
byrjunarstigi en samkvæmt frétt
mbl.is um liðna helgi er stefnt að
því að fá Bríet, opinbert leigufélag
í eigu ríkisins, til að fjölga íbúðum
á svæðinu. Eitt af markmiðum með
stofnun félagsins er að stuðla að
virkum leigumarkaði á landsbyggð-
inni í samstarfi við sveitarfélög.
mm
Fjölbýlishúsið við Holtsflöt 4 á Akranesi.
Hluti hóps Club71 á Akranesi.
Club71 sendir þakkir til Skagamanna