Skessuhorn - 29.01.2020, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 29. JANúAR 2020 9
RARIK - Febrúar 2019:
167x214mm
RARIK ohf • Dvergshöfða 2 • 110 Reykjavík • Sími 528 9000 • www.rarik.is
Deildarstjóri Framkvæmdasviðs Vesturlandi
•
•
•
•
•
•
•
Starfs- og ábyrgðarsvið
•
•
•
•
•
•
•
Menntunar- og hæfniskröfur
Atvinna
RARIK - janúar 2020:
167x241mm
Skipulags- og umhverfisráð Akra-
neskaupstaðar samþykkti á fundi
sínum 13. janúar að láta bjóða út
hönnun nýs leikskóla í Skógar-
hverfi í gegnum rammasamning
Ríkiskaupa. Ráðið samþykkti jafn-
framt að litið yrði til verðs, reynslu
og gæðakerfa hönnuða við mat á
tilboðum.
Af hverju var ákveðið að fara þessa
leið, í gegnum rammasamning Rík-
iskaupa? Ragnar B. Sæmundsson er
formaður skipulags- og umhverfis-
ráðs. „Í gegnum tíðina hafa sveitar-
félög oft haldið í lokuð útboð vegna
ýmissa verkefna. En nú hafa við-
miðanir um þau verkefni sem sveit-
arfélög mega ráðast í án þess að fara
í opin útboð lækkað. Að því leyti
eru hendur sveitarfélaga bundnari
en áður,“ segir Ragnar í samtali við
Skessuhorn. „Jafnframt felur samn-
ingurinn í sér að fyrirtæki sem eru
aðilar að honum gefa út verð fyrir-
fram. Opinberir aðilar eiga því að
geta séð að vinna við ákveðið verk
á til dæmis ekki að kosta meira en
þær X krónur á tímann sem fyrir-
tækin hafa gefið út. Síðan geta þau
gert tilboð,“ bætir hann við. „En
það sem er mest um vert er að út-
boð í gegnum rammasamninginn
felur í sér aukið gagnsæi og kem-
ur í veg fyrir að einum sé hyglað
á kostnað annars. Þarna er öllum
gefinn kostur á að bjóða í verk, all-
ir sitja við sama borð og leikregl-
urnar eru skýrar frá upphafi. Það
eina sem fyrirtæki þurfa að gera til
að taka þátt í útboðunum er að vera
aðilar að rammasamningnum,“
segir hann.
En telur hann að útboð í gegnum
rammasamning Ríkiskaupa muni
koma niður á fyrirtækjum í héraði,
þar sem fyrirtæki alls staðar að af
landinu geta boðið í verk í gegnum
samninginn? „Ég myndi frekar líta
svo á að þetta haldi þeim á tánum,“
segir Ragnar. „Vissulega geta allir
gert tilboð, en reynsla okkar er sú
að það eru fyrst og fremst fyrirtæki
héðan af svæðinu sem hafa verið
að bjóða í verk hjá Akraneskaup-
stað. Þannig virðist það vera víðast
hvar á landinu, flestir virðast hafa
haft nóg að gera á sínum svæðum,“
segir hann. „Ef við lítum á þetta til-
tekna útboð, um hönnun leikskóla í
Skógahverfi, sjáum við enn fremur
að flestar þær stofur sem við höfum
á undanförnum árum boðið að taka
þátt í lokuðum hönnunarútboðum
eru aðilar að rammasamningnum
og geta því tekið þátt,“ bætir Ragn-
ar við.
Hann segir að mörgu leyti þægi-
legt fyrir sveitarfélög að bjóða út í
gegnum rammasamninginn. Með
honum sé búið að útbúa ákveð-
ið staðlað útboðsferli sem sveitar-
félögin geta gengið inn í. „Sérstak-
lega ímynda ég mér að þetta komi
til með að nýtast minni sveitarfé-
lögum vel, sem hafa ekki mannskap
í að stilla upp öllum útboðsgögnum
Bjóða út í gegnum rammasamning Ríkiskaupa
„Allir sitja við sama borð,“ segir formaður skipulags- og umhverfisráðs
heldur þyrftu að kaupa þá vinnu
annars staðar frá,“ segir Ragnar.
Hann kveðst hins vegar ekki vita
hvort þessi leið komi til með að
lækka mikið endanlegan kostnað
sveitarfélaga vegna þeirra verka
sem boðin eru út. „En þetta hefur
í för með sér vandaðri vinnubrögð,
aukið gagnsæi og er til þess fallið að
auka traust og trúverðugleika,“ seg-
ir Ragnar B. Sæmundsson og bætir
því að fyrir liggi gögn um útboð á
hönnun við grunnskólalóðir bæjar-
ins. Þar verði sama leið farin.
kgk/ Ljósm. úr safni.