Skessuhorn - 29.01.2020, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 29. JANúAR 2020 11
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Þaktúður•
Hurðastál•
Áfellur•
Sérsmíði•
Viðgerðir•
Málmsuða•
www.blikkgh.is • blikkgh@blikkgh.is • Akursbraut 11b • 431-2288
Golfklúbburinn Glanni auglýsir laust starf sumarstarfs-
manns við umhirðu á Glannavelli sem er staðsettur í
Norðurárdal á móts við Hreðavatn.
Starfið er fullt starf frá byrjun maí og fram
í september. Reynsla af vélavinnu og umhirðu og
viðhaldi véla er kostur. Þá er þekking á golfíþróttinni
mikilvæg en ekki skilyrði.
Nánari upplýsingar um starfið eru veittar í síma
820-0989. Umsóknir óskast sendar rafrænt á
netfangið ggbgolf@gmail.com.
Golfklúbburinn Glanni
Um nónbil á sunnudaginn hélt
Kiwanisklúbburinn Þyrill á
Akranesi afmælis- og hátíðar-
fund sinn í Gamla kaupfélaginu á
Akranesi. Viðstaddir voru gestir,
makar félagsmanna og fulltrúar
kiwanishreyfingarinnar. Rétt 50
ár eru nú liðin frá stofnun Þyr-
ils. Stefán Lárus Pálsson forseti
setti fundinn og Sigursteinn Há-
konarson stýrði dagskrá. Ólafur
Ingi Jónsson fór yfir aðdragand-
ann að stofnun klúbbins á sín-
um tíma, en hann var einn af
þrjátíu stofnfélögum. Við þetta
tilefni var fjórum af sex stofn-
félögum veitt viðurkenning, en
fjarstaddir voru Hinrik Haralds-
son og Ásgeir Rafn Guðmunds-
son. Aðrir núlifandi stofnfélag-
ar fengu áletraðan skjöld að
gjöf; þeir Ólafur Ingi Jónsson,
Halldór Friðgeir Jónsson, Guð-
mundur Vésteinsson og Þröst-
ur Stefánsson. Að endingu gaf
Kiwanisklúbburinn veglega
gjöf, en félagið hefur látið gott
af sér leiða ýmissa mannúðar-
starfa alla tíð. Steinunn Sigurð-
ardóttir formaður Hollvinasam-
taka HVE veitti viðtöku 1.620
þúsund króna styrk sem not-
aður verður til kaupa á þrem-
ur nýjum sjúkrarúmum á spítal-
ann á Akranesi. Þakkaði Stein-
unn klúbbfélögum fyrir rausn-
arskap alla tíð. Fram kom í
ávarpi hennar að Hollvinasam-
tökin hafi nú tekið við 74 millj-
ónum króna í styrk frá stofnun
félagsins og hafi styrkirnir ver-
ið notaðir í að bæta tækjakost
á heilsbrigðisstofnunum HVE
víðsvegar um Vesturland. Gat
hún þess að Kiwanisklúbburinn
hefði þar af látið á sjöttu milljón
króna rakna til félagsins.
mm
Landsréttur hafnaði því með úr-
skurði 17. janúar síðastliðinn að
verða við beiðni Akraneskaup-
staðar um áfrýjun dóms Héraðs-
dóms Reykjavíkur frá síðasta ári
þar sem umsækjanda um starf for-
stöðumanns íþróttamannvirkja
Akraneskaupstaðar voru dæmdar
miskabætur þar sem framhjá hon-
um hafði verið gengið við ráðn-
ingu í starfið. Var umsækjandan-
um, Indriða Jósafatssyni, dæmd-
ar 700 þúsund króna miskabæt-
ur auk vaxta samkvæmt úrskurði
héraðsdóms sem Landsréttur hef-
ur nú staðfest. „Nú er endanlega
staðfest að á mér var brotið með
saknæmum hætti í ráðningarferli
um starf forstöðumanns íþrótta-
mannvirkja Akraneskaupstað-
ar og hefur nú bæði héraðsdóm-
ur og Landsréttur staðfest það,“
segir Indriði í samtali við Skessu-
horn.
Í niðurstöðu þriggja dómara í
Landsrétti segir m.a.: „Vísað er
til þess að úrslit málsins hafi veru-
legt almennt gildi þar sem í mál-
inu reyni á túlkun á meginreglum
stjórnsýsluréttar og stjórnsýslu-
laga. Þar sem reglurnar segi ekki
fyrir um með nákvæmum hætti
hvernig skuli staðið að ráðningar-
ferli séu dómar um þetta afar þýð-
ingarmiklir. Málið varði mikils-
verða hagsmuni umsækjanda þar
sem ljóst sé að dómurinn varði
mun meiri fjárhagslega hagsmuni
en þær 700.000 krónur sem um-
sækjanda var gert að greiða gagn-
aðila.“
„Það er ljóst að ég fór í þessa
málssókn til að krefjast skýringa
og fá rökstuðning á þessari ráðn-
ingu þar sem ég kom vel út úr við-
tali og var með mun meiri mennt-
un og reynslu í málaflokknum en
sá sem fékk starfið. Nú er úr því
skorið að þarna var haft rangt við
og nú þurfa væntanlega þeir sem
það gerðu að gefa skýringar á því.
Mér gekk það eitt til með þess-
ari málssókn að bæta og vanda
stjórnsýsluna og hér með er þetta
mál vonandi orðið fordæmisgef-
andi við aðrar sambærilegar ráðn-
ingar sveitarfélaga,“ segir Indriði
Jósafatsson.
mm
Steinunn Sigurðardóttir formaður stjórnar HVE tekur hér við gjafabréfi úr hendi
Stefáns Lárusar Pálssonar forseta Þyrils.
Hálfrar aldar afmælisfundur Kiwanisklúbbsins Þyrils
Stefán Lárus Pálsson forseti Kiwanisklúbbsins Þyrils ásamt stofnfélögunum Hall-
dóri, Þresti, Guðmundi og Ólafi Inga.
Indriði Jósafatsson.
Landsréttur vísar frá
beiðni um áfrýjun máls