Skessuhorn - 29.01.2020, Side 21
MIÐVIKUDAGUR 29. JANúAR 2020 21
Fimmtudaginn 30. janúar verður
boðið upp á heilsunámskeið með
Röggu Nagla og Ásdísi Grasa á Hót-
el B-59 í Borgarnesi. „Í aragrúa nú-
tímans þar sem hver samfélagsmið-
illinn keppist um athygli okkar eru
skilaboðin um hvað megi borða,
hvað sé óhollt, hvað sé fitandi, oft
eins og ærandi rokktónlist á nætur-
klúbbi. Er það Ketó eða kolvetni,
Fasta eða ekki fasta eða bananar eða
bernessósa,“ segja þær Ragga og Ás-
dís. „Við hættum að geta hugsað
skýrt fyrir öllum þessum hávaða og
hendum því oft peningum í snáka-
olíur og sitjum eftir með sárt enni
og tóman sparibauk þegar árangur-
inn lætur á sér standa.
Á Heilsunámskeiðinu munu þær
reyna að greiða úr þessari flækju og
hjálpa fólki til að öðlast heilbrigðari
sýn á mat, bætiefni, vítamín, mat-
aræði og máltíðamynstur. „Hvaða
fæðubótarefni hjálpa til að ná ár-
angri, hvað er gott fyrir þarmaflór-
una, hvað er gott fyrir tíðahvörf,
hvað hjálpar við æfingar, hvað byggir
upp vöðva, hvað er gott fyrir streitu
og hvað hjálpar til við betri svefn.“
Þessum spurningum verður svarað á
námskeiðinu. Ragga nagli og Ásdís
Grasa vonast til að sjá sem flesta.
Sjá nánar um viðburðinn hér:
https://tix.is/is/event/9446/heils-
unamskei-roggu-nagla-og-asdisar-
grasa/
Grái herinn er baráttuhópur inn-
an Félags eldri borgara í Reykja-
vík og nágrenni og berst hópurinn
fyrir bættum kjörum allra. Hóp-
urinn hefur nú ákveðið að höfða
mál á hendur ríkinu vegna meintra
óheimilla skerðinga á lífeyri frá
Tryggingastofnun ríkisins til eftir-
launafólks og verður málið vænt-
anlega þingfest á næstu vikum.
„Sjálfboðaliðar hafa unnið hörð-
um höndum að undirbúningi mál-
sóknarinnar og 33 félög eldri borg-
ara í landinu eru stofnaðilar að mál-
sóknarsjóðnum,“ segir í tilkynn-
ingu á Facebook síðu Gráa hers-
ins. Þar er biðlað til fólkst að leggja
málsókninni lið með fjárframlagi,
en gera má ráð fyrir að kostnaður
við hana geti orðið verulegur. Einn
þeirra sem hefur lagt málefninu lið
er Gunnar Ásgeir Gunnarsson á
Felli í Borgarfirði. Gunnar ætlar að
leggja 5000 krónur mánaðarlega út
þetta ár í málsóknarsjóð Gráa hers-
ins.
Allar bjargir bannaðar
„Fyrir mér er þetta eitt mesta rétt-
lætismál sem brennur á samfé-
laginu í dag,“ segir Gunnar Ásgeir
í samtali við Skessuhorn. Hann
segir erfitt að horfa upp á hvernig
kerfið kemur fram við eldra fólk-
ið í samfélaginu. Gunnar segist
hafa kynnst því hvernig kerfið virk-
ar þegar hann fór að vinna í mál-
um móður sinnar þegar hún flutti
á dvalarheimili. „Eldra fólki eru all-
ar bjargir bannaðar. Mamma sagði
mér að gæta þess að aurarnir væru
alltaf á góðum vöxtum, eðlilega.
En svo þegar hún fékk þessar ör-
fáu þúsundkalla í vexti á reikning-
inn sinn var það umsvifalaust tek-
ið af henni í hærri leigu á dvalar-
heimilinu,“ segir Gunnar. „Þegar
eldra fólk talar um að það sjái eft-
ir að hafa borgað í lífeyrissjóði er
eitthvað ekki í lagi. Fólk sem hélt í
góðri trú að það væri að sýna fyrir-
hyggju og safna til efri áranna fær
svo ekkert því ríkið tekur það allt.
Svo ef þetta fólk vill búa sér til að-
eins betra líf með að vinna inn smá
aur er því strax refsað því upphæð-
in sem það vinnur sér inn er bara
tekin aftur í gegnum skerðingu frá
ríkinu.“
Verðum að standa
saman
Gunnar vill hvetja yngra fólk til að
standa með eldri borgurum í þess-
ari baráttu. „Við yngra fólkið þurf-
um að bakka þessa baráttu upp. Hjá
mér er þetta eigingirni því ég vil að
þessi mál verði afgreidd áður en ég
þarf sjálfur að fara á lífeyri,“ seg-
ir Gunnar. „En án gríns þá verð-
um við öll að standa saman því fólk
sem hefur unnið allt sitt líf, borgað
skatta og lífeyri, á að geta haft það
betra en þetta þegar það hættir að
vinna. Fólk á líka að hafa möguleika
til að bæta hag sinn með að vinna
sér kannski inn auka pening í hluta-
starfi. En við erum með kerfi sem
dregur niður allan hvata til að bæta
eigin stöðu,“ segir Gunnar en bætir
því við að auðvitað þurfi kerfið að
aðstoða þá sem ekki hafi getað safn-
að sér lífeyri. „Að sjálfsögðu eigum
við að hjálpa þeim sem einhverra
hluta vegna gátu ekki sýnt þessa
fyrirhyggju en það þýðir ekki að við
eigum að refsa þeim sem gátu lagt
fyrir,“ segir Gunnar.
Kjarabarátta
Þá segir Gunnar það undarlegt að
sjá fréttir af góðri afkomu lífeyris-
sjóðanna þegar ekkert af þeirri af-
komu skili sér til fólksins sem hafi
borgað í sjóðina alla tíð. „Ríkið tek-
ur þetta allt í eigin vasa. Ef fólk fær
meira frá lífeyrissjóðnum fær það
minna frá ríkinu svo það koma all-
ir út á sama,“ segir Gunnar. „Ef
fólk hefur kannski einhverra hluta
vegna ekki getað borgað í lífeyris-
sjóð, en á eign sem það getur selt til
að eiga smá lífeyri, þá er það sama
sagan. Fólk borgar fullan skatt af
þeirri sölu og svo skerðir hagnað-
urinn upphæðina sem viðkomandi
fær frá ríkinu. Það er sama hvernig
fólk reynir að bjarga sér, því er allt-
af refsað um leið.“
Gunnar segir það slæmt að leita
þurfi til dómstóla með þetta mál.
„En þetta er það sem við þurfum
að gera því þessu þarf að breyta, því
ákvað ég að styrkja þessa málssókn.
Við verðum vonandi flest í þessum
sporum einn daginn, að fara á líf-
eyri og þetta er því hagsmunamál
okkar allra. Við eigum að koma bet-
ur fram við fólkið sem hefur byggt
þetta samfélag upp og við þurfum
að sýna því stuðning. Ég vona að
fleiri leggi málefninu lið því þetta
kostar. Verkalýðsfélögin hafa sýnt
einhvern stuðning en að mínu mati
ættu þau að koma inn í þetta af
meiri krafti. Þetta er ekkert annað
en kjarabarátta sem snertir okkur
öll,“ segir Gunnar að endingu.
Þeir sem vilja geta lagt málefninu
lið með að leggja inn á Málsóknar-
sjóð Gráa hersins. Reikningsnúm-
erið er 515-26-007337 kt. 691119-
0840. arg/ Ljósm. úr einkasafni
Bjóða upp á heilsunám-
skeið í Borgarnesi
Gunnar Ásgeir ásamt fjölskyldu sinni.
„Eitt mesta réttlætismál
sem brennur á
samfélaginu í dag“
-Vill að ríkið hætti að skerða lífeyri frá TR vegna lífeyrissjóðstekna
Gunnar Ásgeir Gunnarsson leggur
Gráa hernum lið í málsókn á hendur
ríkinu um meinta óheimila skerðingu á
lífeyri frá Tryggingastofnun.
Gunnar Ásgeir ásamt
fjölskyldu sinni.