Bændablaðið - 20.08.2020, Page 1
16. tölublað 2020 ▯ Fimmtudagur 20. ágúst ▯ Blað nr. 569 ▯ 26. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Viðbrögð við COVID-19 munu setja mjög óvenulegan svip á göngur og réttir í haust:
Ferðamönnum og almenningi
meinaður aðgangur að réttum
– Hlið verða við aðkeyrslur og engum óviðkomandi hleypt í gegn – Mælst er til að áfengi verði ekki haft við hönd
Miklar breytingar verða á aðgengi
fólks að réttum landsmanna nú
í haust, en fyrstu fjárréttir eru
áætlaðar 30. ágúst. Verður ferða
mönnum og almenningi meinað
ur aðgangur að réttum. Vegna
COVID19 er einungis þeim sem
eiga von á fé af fjalli, eða eru þar
til að aðstoða við réttarstörf, heim
ilt að koma í réttirnar.
Embætti landlæknis, Almanna
varnar deild ríkislögreglustjóra,
Bænda samtök Íslands, Landssamtök
sauðfjárbænda og Samband íslenskra
sveitarfélaga, hafa komið sér saman
um leiðbeiningar vegna gangna og
rétta í haust samkvæmt hættustigi
Almannavarna.
Engir óviðkomandi verði í réttum
Almenna reglan fyrir árið 2020 er að
aðeins þeir sem hafa hlutverk mæti
í göngur og réttir og er það vegna
100 manna hámarksreglu. Börn
fædd 2005 eða síðar eru undanskilin
fjöldatakmörkun.
Hliðvarsla verður við aðkeyrslu
að réttum og þangað inn verður
aðeins hleypt þeim sem þar eiga
erindi. Þeir sem mæta í réttir og hafa
nýlega dvalið erlendis þurfa áður
að hafa fylgt landamærareglum um
sóttkví og sýnatöku.
Áfengi verði ekki haft um hönd
Gleðskapur og kátína hafa jafnan
einkennt mannamót í stærstu réttum
landsmanna. Þar hefur gjarnan verið
sungið við raust og brennivínspyttlan
gengið á milli manna um leið og
dregið hefur verið í dilka. Vegna
smitvarna er nú mælst til þess að
áfengi verði ekki haft um hönd.
Smalar hafi með sér handspritt
Sveitarstjórn er ábyrg fyrir því að
reglum um smitvarnir sé fylgt eftir.
Sé þess þörf skal sveitarstjórn gefa
út frekari leiðbeiningar.
Almenna reglan er að eins fáir
fari í göngur og hægt er. Liggja þarf
fyrir listi um hvaða einstaklingar
fari í göngur með upplýsingum
sem nota má til að hafa samband
við viðkomandi einstakling gerist
þess þörf.
Fjallaskálar/húsnæði er aðeins
opið fyrir gagnamönnum. Aðrir
gestir mega ekki vera í húsnæðinu
á sama tíma.
Allir einstaklingar, sem taka
þátt í göngum og réttum, eru
hvattir til að viðhalda 2 metra
fjarlægðarreglu í samskiptum við
aðra eftir því sem aðstæður leyfa
(einstaklingar sem ekki deila
heimili). Fjallskilanefnd skal leitast
við að bjóða einstaklingum að halda
persónulegum nándar mörkum eins
og kostur er. Reynist það ekki unnt
ber viðkomandi að nota viðurkennda
andlitsgrímu sem hylur nef og munn.
Allir smalar skulu hafa hand spritt
meðferðis.
Þeir sem taka þátt í göngum
og réttum skulu hlaða niður smit
rakningarappi almannavarna
Takmarka skal samskipti milli
ólíkra smalasvæða eins og kostur er.
Gátlisti fyrir réttir
Tryggt skal að þeir sem taka þátt
í réttarstörfum hafi verið upplýstir
um ábyrgð einstaklinga gagnvart
eigin smitvörnum, myndbönd t.d.
og upplýsingar um hvar finna megi
viðkomandi efni.
Skipa skal einn smitvarnar
fulltrúa í hverri rétt. Hann ber ábyrgð
á smitvörnum og tryggir að farið
sé að fyrirmælum. Þetta getur hvort
sem er verið leitarstjóri/fjallkóngur,
réttarstjóri eða aðili skipaður af
sveitarstjórn.
Koma skal upp aðstöðu til hand
þvottar við hverja rétt. Einnig skal
vera gott aðgengi til sótthreinsunar
(vatnsbrúsar, sápa, handspritt og
bréfþurrkur).
Einungis þeir sem eiga fjárvon
í réttum eða eru þar til að aðstoða
við réttarstörf er heimilt að koma
í réttina.
Við innkeyrslu að rétt þarf að
telja alla sem þangað koma. Tryggja
skal að fjöldi fari ekki umfram
hámarksfjölda samkvæmt reglum
heilbrigðisráðuneytis (HRN) um
hámarksfjölda einstaklinga í sama
rými á hverjum tíma.
Börn fædd 2005 og síðar eru ekki
talin með í hámarksfjölda.
Á þeim smalasvæðum þar sem
allar líkur eru á að það þurfi fleiri
en 100 manns til réttarstarfa þarf að
skipuleggja hverjir koma í réttina.
Mikilvægt er að velja til réttar
starfa einstaklinga sem eru öflugir
til þess verks og ganga þannig til
réttarstarfa að allir hjálpist að við
að draga. /HKr.
Berglind Hilmarsdóttir, bóndi á Núpi undir Eyjafjöllum, er með blómlega vínberjaræktun í garðskála við heimili sitt. Þar ræktar hún tvær tegundir vínþrúga,
græn og blá yrki, ásamt kryddjurtum og ýmsu grænmeti. Fyrir rúmum áratug keypti Berglind litla plöntu í Hveragerði sem óx vonum framar og gefur ber
á hverju ári. Í dag fær hún um 50 kílóa uppskeru sem eru tínd og borðuð á staðnum af heimilisfólki, vinum og vandamönnum. Mynd / Erla Hjördís Gunnarsdóttir
Bændablaðið tekur að venju saman
og birtir yfirlit um fjár og stóðréttir
í blaðinu; stóðréttirnar á blaðsíðu
8 en fjár réttirnar á opnu síðunum
28–29.
Í ár verður gestum ekki heimilt
að koma í réttir eins og síðustu ár.
Ástæðan er varúðarráðstafanir og
fjöldatakmarkanir vegna kórónu
veirufaraldursins.
Því verður fylgt eftir að ekki séu
fleiri en 100 manns við störf í einu.
Sveitastjórnir bera ábyrgð
Sveitar stjórnir bera ábyrgð á fram
kvæmd gangna og rétta og ber að
tryggja að reglum um sóttvarnir sé
fylgt eftir.
Allir sem taka þátt í göngum og
réttum skulu hlaða niður smitrakn
ingarappi almannavarna.
Réttalistinn birtur
að venju í blaðinu
26–274 32–33
„Búið að stela
Landgræðsluskólanum”
Tjaldsvæðið SKJÓL með sögufrægan
bar úr Pálmasal Hótel Borgar
Leikur sér við að silkiprernta fjölbreytt
og falleg mynstur náttúrunnar