Bændablaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. ágúst 20202
FRÉTTIR
Starfsmenn Garðyrkjuskólans á
Reykjum líta ekki á stofnun nýs
garðyrkjuskóla sem vantraust á
þeirra störf. Guðríður Helgadóttir,
fyrrverandi staðarhaldari á
Reykjum, segir að starfsmenn
þar hafi átt mjög gott samstarf við
atvinnulífið í garðyrkju í gegnum
tíðina.
„Hins vegar hefur atvinnulífið
haft verulegar áhyggjur af nýrri
stefnu og skipulagi skólans hvað
garðyrkjunámið varðar og þeir
starfsmenn sem sinna kennslu í
garðyrkjugreinum hér á Reykjum
verið sammála atvinnulífinu í öllum
aðalatriðum,“ segir Guðríður,
sem er garðyrkjufræðingur og í
kennarahópi skólans.
Garðyrkjunám á Reykjum í
uppnámi
„Við starfsmenn teljum að garð
yrkju n ámið verði aldrei rekið
nema í góðu samstarfi við at
vinnulífið í garðyrkju og þar sem
atvinnulífið hefur lýst því yfir að
það sjái ekki samstarfsgrund
völl við núverandi stjórn Land
búnaðar háskóla Íslands að þá sé
garðyrkjunámið hér við skólann
í miklu uppnámi.
Við höfum verulegar áhyggjur
af stöðu námsins en vonum að
stjórnvöld og atvinnulífið finni
góða og farsæla lausn á framtíð
garðyrkjumenntunar á framhalds
skólastigi í landinu, það bráð
vantar fólk með þessa menntun
til starfa. Stofnun Garðyrkjuskóla
Íslands gæti verið lausnin á þeim
vanda sem steðjar að garðyrkju
náminu við núverandi aðstæð
ur,“ segir Guðríður og bætir við
að þetta sé almenn skoðun starfs
manna á Reykjum.
Stofnun nýja skólans
til marks um vaxandi áhuga
Í svari Ragnheiðar I. Þórar ins
dóttur, rektors Landbúnaðar
háskóla Íslands (LbhÍ), við
fyrirspurn um viðbrögð hennar við
stofnun hins nýja garðyrkjuskóla,
kemur fram að LbhÍ telji að
stofnun þessa félags sé merki um
það hversu vaxandi atvinnugrein
garðyrkja er.
„Það sýnir að það starf sem
Landbúnaðarháskólinn hefur innt
af hendi er að skila sér í auknum
áhuga á garðyrkjunni,“ segir í
svari Ragnheiðar.
„Landbúnaðar háskólinn von
ast til að stofnun félagsins efli
aðsókn í námið enn frekar. Það
þarf að efla nýliðun í greininni og
þörf á því að ná til unga fólksins
sérstaklega. Metaðsókn er í garð
yrkjunám Landbúnaðar háskólans
á Reykjum þetta árið, alls bárust
144 umsóknir og hafa þær aldrei
verið jafn margar í sögu skólans,“
bætir hún við.
/smh
Guðríður Helgadóttir er fyrrverandi
staðarhaldari Garðyrkjuskólans á
Reykjum. Hún er nú í kennarahópi
skólans. Mynd / smh
Ragnheiður I. Þórarinsdóttir er rekt-
or Landbúnaðarháskóla Íslands.
Mynd / Aðsend
Hart tekist á um garðyrkjunám í landinu og vaxandi ágreiningur eftir skipun nýs rektors við LbhÍ á Hvanneyri 2019:
Starfandi fagfólk í garðyrkju
stofnar Garðyrkjuskóla Íslands
Þann 12. ágúst var tilkynnt um
stofnun félagsins Garðyrkjuskóli
Íslands. Félagið er stofnað af
starfandi fagfólki í garðyrkju
sem flest hefur verið eða er í
forsvari fyrir hagsmunafélög í
greininni. Tilgangur félagsins er
að standa að faglegri og vandaðri
fræðslustarfsemi á sviði garðyrkju
og tengdra greina.
Nokkur styr hefur staðið um
rekstur Garðyrkjuskólans á Reykjum
í Ölfusi eftir að hann var settur undir
stjórn Landbúnaðarháskóla Íslands
(LbhÍ). Virðist ágreiningur um
skólann hafa aukist verulega eftir
að dr. Ragnheiður I. Þórarinsdóttir
tók við starfi rektors þann 1. janúar
2019. Hún var skipuð í embættið
til fimm ára af Lilju Alfreðsdóttur
menntamálaráðherra.
Garðyrkjuskólanum á Reykjum
lokað tímabundið
Þann 14. ágúst sendi rektor frá sér
tilkynn ingu um að tekin hafi verið
ákvörðun um að loka starfsstöð LbhÍ
á Reykjum í Ölfusi tímabundið.
Í tilkynn ingunni kemur fram að
mikið tjón hafi orðið á Reykjum
vegna vatnsleka og miklar skemmdir
hafi orðið á veggjum, hurðum og
innanstokks munum skólans. Þá segir:
„Það er mat framkvæmdastjórnar
að út frá heilbrigðissjónarmiðum sé
ekki hægt að halda úti kennslu né
hefðbundnu starfi meðan á endur
bótum stendur. Því hefur verið tekin
ákvörðun um að loka starfsstöðinni
á Reykjum tíma bundið meðan unnið
verður að viðgerðum og mati á þeim
skaða sem orðinn er. Búið er að
setja upp skrifstofur sunnan megin
á fyrstu hæðinni á Keldnaholti fyrir
starfsmenn. Nemendur sem eiga að
hefja nám á Reykjum verða boðaðir
á Keldnaholt þar sem kennsla þeirra
mun fara fram í fyrstu. Farið verður
nánar yfir fyrirkomulagið á nýnema
kynningum.“
Óskað eftir viðræðum við
menntamálaráðherra
Forsvarsfólk Garðyrkjuskóla
Íslands óskuðu eftir viðræðum við
menntamálaráðherra í því skyni
að leita samninga um grunnnám í
garðyrkju á framhaldsskólastigi með
svipuðum hætti og gert hefur verið
varðandi nám á framhaldsskólastigi,
svo sem í Kvikmyndaskóla
Íslands, Ljósmyndaskóla Íslands,
Fisktækniskóla Íslands og Tækni
skóla Íslands. Ekkert hefur frést af
þeim viðræðum.
Fjaraði undan náminu í
háskólaumhverfinu
Einn af stofnendum félagsins er
Gunnar Þorgeirsson garðyrkju
bóndi sem jafnframt er formaður
Bænda samtaka Íslands. Hann segir
að þegar Garð yrkjuskóli ríkisins
var sameinaður inn í Landbún
aðar háskólann fyrir 15 árum síðan
hafi mörgum sem starfa á vettvangi
garðyrkju fundist hafa fjarað undan
umgjörð námsins þegar það færðist
inn í háskólaumhverfið.
„Eðlilega eru áherslur í háskóla
starfi með öðrum hætti en í fram
halds skólum, enda gilda önnur lög
um nám á framhaldsskólastigi. Þó
að hópurinn sem stendur að félaginu
telji mikilvægt að feta veginn fram
á við, þarf nú að stíga skref til baka
og gera framhaldsskólanám í garð
yrkju að sjálfstæðri rekstrareiningu
á ný, þar sem megináherslur verða
á starfsmenntanámið í samræmi við
gildandi námskrár.
Þessi vinna er í raun í samræmi
við ályktanir hagsmunafélaga í
garðyrkju sem ályktað hafa um
nauðsynlegar breytingar.
Mörg fordæmi eru fyrir því hér
lendis og víðar að nám á framhalds
skólastigi sé starfrækt á vettvangi
félagasamtaka með samningi við
ríkið, ekki síst þegar um sérhæft nám
er að ræða.“
Námið verði í sem bestu samstarfi
við atvinnulífið
Gunnar segir að áherslan í Garðyrkju
skóla Íslands verði á að námið sé
framkvæmt í sem bestu samstarfi við
atvinnulífið og þá sem menntast hafa
í faginu.
„Grunnnámi á framhaldsskóla
stigi er ætlað að undirbúa nemend
ur sem best til starfa í atvinnulífinu
en einnig til áframhaldandi náms.
Garðyrkjuskólinn horfir líka til þess
að bjóða aukinn sveigjanleika varð
andi styttri námsleiðir fyrir almenn
ing og þjónustu við fólk sem starfar í
garðyrkju eða hefur áhuga á að bæta
við sig þekkingu á því sviði. Þetta
verður gert með námskeiðahaldi,
vefnámskeiðum, samstarfi við ýmsar
aðrar rekstrar einingar og fleiru. Við
teljum að það muni verða mikil eftir
spurn eftir fólki sem kann raunveru
lega til verka í ræktun og framleiðslu
og viljum tryggja að námið verði í
takti við það.“
Reykir eru mjög ákjósanlegur
kostur fyrir garðyrkjunám
– Hvað með framtíð skólans á
Reykjum?
„Ríkið er eigandi að Reykjum í
Ölfusi og þar er rúmlega áttatíu ára
saga garðyrkjunáms á Íslandi. Það
er ekki launungarmál að óskastaðan
væri sú að garðyrkjunámið yrði
áfram vistað þar. Garðyrkjufólki
er staðurinn mjög kær og ýmislegt
sem hefur verið nýtt við kennslu
og starfsemina þar í gegnum tíðina
hefur komið þangað sem gjöf frá
garðyrkjufólki.“
Horft á samstarf við aðrar
menntastofnanir?
„Forsvarsmenn félagsins líta mjög
til þess að eiga gott samstarf við
fyrirtæki, félög og menntastofnanir
á öllum skólastigum. Það er mjög
mikilvægt að greiða götu þeirra sem
vilja menntast og starfa í garðyrkju.
Með auknum áherslum á garðyrkju
afurðir, umhverfismál, lýðheilsu og
sjálfbærni eykst þörfin fyrir fólk sem
kann til verka við ræktun og skyld
störf. Þetta þýðir að við þurfum að
byrja fyrr að kynna garðyrkju og
ræktun fyrir fólki, styðja vel við þá
sem starfa á vettvangi garðyrkjunnar
og auka möguleika þeirra sem vilja
halda áfram í námi, innan lands og
utan. Við horfum á námið og at
vinnulífið sem sterka heild sem vinni
samhent að sameiginlegum mark
miðum. Það er gaman að segja frá
því að síðan tilkynnt var um stofnun
félagsins hafa fjölmargir haft sam
band og lýst yfir vilja til samstarfs
við Garðyrkjuskóla Íslands með
ýmsu móti,“ segir Gunnar.
Tilkynnt um samstarf LbhÍ
við tvær stofnanir
Í kjölfarið af fréttum af stofnun Garð
yrkjuskóla Íslands vakti athygli að
Ragnheiður I. Þórarins dóttir, rektor
LbhÍ, sendi út tvær tilkynningar með
skömmu millibili um samstarf LbhÍ
við aðrar stofnanir er varðar garð
yrkjunám. Annars vegar var um að
ræða undirritun samstarfs samninga
Fjölbrautaskóla Suðurlands og
Landbúnaðarháskóla Íslands um
sameiginlega náttúru fræðibraut
og búfræði/garðyrkjusvið til stúd
entsprófs. Hin tilkynningin er um
þjónustusamning sem undirritaður
var á milli GRÓ Þekkingarmiðstöðvar
þróunarsam vinnu og Landbúnaðar
háskóla Íslands í síðustu viku.
Landgræðsluskóli GRÓ er ætlaður
fyrir nemendur frá þróunarlöndum
sem hluti af þróunaraðstoð íslenskra
stjórnvalda. –Sjá nánar á bls. 4.
/HKr.
Nám í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í uppnámi og starfsmenn uggandi um framtíð skólans:
Telja að Garðyrkjuskóli Íslands gæti
verið lausn á aðsteðjandi vanda
– Rektor LbhÍ telur stofnun nýs skóla til marks um aukinn áhuga á garðyrkju
Garðyrkjuskólinn á Reykjum í Ölfusi. Myndir / HKr.
Gunnar Þorgeirsson.