Bændablaðið - 20.08.2020, Síða 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. ágúst 202010
Hálf öld er liðin frá því að Mið
kvíslarstífla var sprengd. Miðkvísl
er ein þriggja kvísla Laxár þar
sem áin fellur úr Mývatni. Hópur
manna í sveitinni tók sig til, þann
25. ágúst árið 1970, og sprengdi
stífluna með dýnamíti eftir deilur
um hvort nýta bæri Mývatns og
Laxársvæðið til raforkufram
leiðslu.
Í framhaldinu var fallið frá
áformum um frekari virkjanir og lög
sett um verndun Laxár og Mývatns.
Atburðarins verður minnst með
veglegum hætti. Heimildarmyndin
Hvellur verður sýnd í Skjólbrekku
mánudaginn 24. ágúst en daginn
eftir, þann 25., hittist fólk við
Miðkvísl. Eftir það verður
hátíðarsamkoma í Skjólbrekku með
ræðum og tónlistaratriðum.
/MÞÞ
FRÉTTIR
Styrkir voru veittir til 15 verkefna út frumkvæðissjóði Brothættra byggða til verkefna innan verkefnisins Betri
Borgarfjörður, samtals 14,4 milljónir króna. Á myndinni eru styrkþegar við úthlutun styrkjanna.
Mynd / Kristján Þ. Halldórsson
Þrjú ný fyrirtæki hafa hafið starf
semi eða flutt starfsemi sína á
Borgar fjörð eystri á undanförnum
tveimur árum, eða á þeim tíma sem
verkefnið Betri Borgarfjöður hefur
staðið yfir. Mörg af þeim verkefnum
sem íbúar settu sér þegar verkefn
inu var ýtt úr vör árið 2018 hafa
náðst eða eru vel á veg komin.
Eitt fyrirtækjanna er Íslenskur
dúnn ehf., sem sérhæfir sig í full
vinnslu á afurðum úr íslenskum
æðardúni. Eitt stærsta æðarvarp á
Íslandi er innan seilingar, í Sævarenda
í Loðmundarfirði. Fyrirtækið
Fjarðarhjól ehf. var stofnað á liðnu
ári, en hjá félaginu er hægt að leiga
fjallahjól og fá leiðsögn með reyndu
leiðsögufólki um Borgarfjörð og
nágrenni. Þá keypti borgfirskt
athafnafólk harðfiskverkunina Sporð
hf. frá Eskifirði á liðnum vetri og
framleiðir nú bitafisk úr ýsu og steinbít
sem rennur ljúflega ofan í landann.
Heilbrigðisþjónusta í heimabyggð
Eitt af þeim atriðum sem Borgfirð ingar
settu sér þegar verkefnið fór af stað var
bætt heilbrigðisþjónusta í heimabyggð.
Þeim áfanga var fagnað á liðnu hausti
að hjúkrunarfræðingur tók til starfa í
hálfri stöðu með aðsetur á staðnum en
hefur til umráða fjarlækningatæki sem
er bylting í þjónustu við íbúa. Í vor
fékk vettvangsliðahópur sjúkrabíl til
vörslu frá Slökkviliði Fjarðabyggðar
svo viðbragðstími styttist til muna.
Búðin tveggja ára
Búðin í Borgarfirði fagnar nú tveggja
ára afmæli en áður en hún var opnuð í
júlí 2018 höfðu Borgfirð ingar verið án
matvöruverslunar í um eitt ár. Þá hafa
verið stigin stór skref í vegagerð og
bættum fjarskiptum á liðnum tveimur
árum og öryggi á Borgarfjarðarvegi
hefur stórbatnað.
Bættar samgöngur
og betri fjarskipti
Vegurinn um Njarðvíkurskriður
og hluta Vatnsskarðs var klæddur
haustið 2019 og lýkur því verki nú á
komandi hausti. Þá er forhönnun hafin
á veginum frá Eiðum að Laufási en
því verki var flýtt í átaki stjórnvalda
vegna COVID19 og eru verklok
áætluð 2022. Lagður var ljósleiðari
um sveitir Borgarfjarðar 2018 og
til Njarðvíkur 2019. Vegur hefur
verið lagður út í Höfn og útskotum
bætt við. Þá er símasamband nú
komið á á Vatnsskarði, Njarðvík og
í Njarðvíkurskriðum.
Tvö ný parhús hafa verið byggð
í Borgarfirði eystri og þá sótti
Borgarfjarðarhreppur um stofnframlag
til byggingar almennra leiguíbúða
í fyrravor og var hún staðfest
síðastliðið haust en byggðar verða
alls fimm íbúðir. /MÞÞ
Borgarfjörður eystri:
Glimrandi góður gangur í verkefnum
– Þrjú ný fyrirtæki hefja starfsemi á svæðinu
Birna Þórarinsdóttir frá UNICEF, Björg Erlingsdóttir og Ásmundur Einar
Daðason við undirritun samkomulagsins. Mynd / Félagsmálaráðuneytið
Svalbarðsstrandarheppur
barnvænt samfélag
Svalbarðsstrandarhreppur verð
ur barnvænt samfélag. Björg
Erlingsdóttir sveitarstjóri Sval
barðs strandarhrepps, Ásmundur
Einar Daðason félags og barna
málaráðherra og Birna Þórarins
dóttir hafa undirritað samstarfs
samning þess efnis.
Með undirskriftinni bætist Sval
barðsstrandarhreppur í ört stækk
andi hóp sveitarfélaga sem hefja nú
vinnu við að innleiða Barnasáttmála
Sameinuðu þjóðanna í stjórnsýslu
sína með stuðningi félagsmálaráðu
neytisins og UNICEF á Íslandi.
Mikill áhugi
Þátttaka Svalbarðsstrandarhrepps
í Barnvænum sveitarfélögum er
liður í að byggja upp breiðfylkingu
sveitarfélaga á Íslandi sem láta
sér mannréttindi barna varða, með
Barnasáttmálann að leiðarljósi
og auknu samstarfi milli ríkis og
sveitarfélaga.
Akureyrarbær hóf vinnu við
að verða Barnvænt sveitarfélag
árið 2016, og varð í lok maí
fyrst sveitarfélaga á Íslandi til að
hljóta þá viðurkenningu. Áhugi á
þátttöku í verkefninu hefur verið
mikill og biðlistar myndast þar
sem UNICEF hefur hingað til ekki
getað annað eftirspurn áhugasamra
sveitarfélaga. Þetta kemur fram á vef
félagsmálaráðuneytisins.
Hlakka til
Björg Erlingsdóttir, sveitarstjóri
Svalbarðs strandarhrepps, segir þar
að íbúar hlakki til að hefja samstarfið
um innleiðingu sáttmálans og nýta
þá verk færakistu sem þau fái að
gang að. Í Svalbarðsstrandarhreppi
er rekinn leikskóli, Álfaborg, fyrir
börn frá 9 mánaða aldri og grunn
skóli með kennslu út 10. bekk.
Markvisst sé unnið að því að styrkja
nemendur þannig að þeir verði hæf
ari til að takast á við verkefni fram
tíðarinnar.
/MÞÞ
SLÁTTUTRAKTORAR
Mótorstærð: 382 cc, afl: 6,8 kW, sláttubreidd: 76 cm,
safnkassi: 200 l., rafstart, beygjuradíus aðeins 46 cm.
SMART RC125
með vsk
456.000
Verð kr
Mótorstærð: 500 cc, afl: 8,9 kW, sláttubreidd: 105 cm,
safnkassi: 240 l., rafstart, beygjuradíus aðeins 46 cm.
SMART RN145
með vsk
585.000
Verð kr
Austurvegi 69 // 800 Selfoss // 480 0400 // jotunn.is // jotunn@jotunn.is
LANDBÚNAÐARDEILD AFLVÉLA
Hálf öld frá sprengingu Miðkvíslarstíflu
Byggðaráð Langanesbyggðar:
Mótmæla lokun skoðunar-
stöðvar á Þórshöfn
Byggðaráð Langanesbyggðar
hefur öðru sinni ályktað um lokun
Frum herja á bifreiðaskoðunar
stöð fyrirtækisins á Þórshöfn.
Í ályktun er bent á að Frumherji
sé með samning við ríkið um lög
bundna skoðun bifreiða sem allar
bifreiðar verði að undirgangast og
að fyrirtækið hafi verið einkavætt
á þeim forsendum að það sinnti
þessari þjónustu við íbúa.
Kostnaður bifreiðaeigenda
við akstur til Vopnafjarðar eða
Húsavíkur á opnunartíma Frumherja
er talsverður, sérstaklega fyrir
atvinnubíla, sem jafnvel þurfa að
fara fleiri ferðir vegna tengivagna og
annars búnaðar. Til viðbótar kemur
að bifreiðaeigendur þurfa flestir að
taka sér frí úr vinnu heilan dag til
að komast með bifreiðar sínar til
skoðunar.
Frumherji hefur verið með
aðstöðu á svæðinu til skoðunar bif
reiða og það gengið vel. Bæjarráð
hafnar því þeim fullyrðingum að um
„fábrotnar“ aðstæður sé að ræða.
„Rauntilgangur Frumherja virðist
því fyrst og fremst vera að draga
úr þjónustu við bifreiðaeigendur
til að lækka eigin rekstrarkostn
að,“ segir í ályktun byggðaráðs
Langanesbyggðar.
Ráðið bendir einnig á að það sé
gagnstætt byggðastefnu stjórnvalda
að skerða þjónustu ríkisins í hinum
dreifðari byggðarlögum landsins
eins og Frumherji gerir með þessari
ákvörðun sinni. Krefst ráðið þess
að Frumherji og ríkisvaldið tryggi
að skoðun bifreiða verði áfram á
Þórshöfn og öðrum nærliggjandi
byggðarlögum eins og verið hefur.
/MÞÞ
Hópur manna í Mývatnssveit fóru í skjóli nætur og sprengdu upp stíflu í
Miðkvísl við Mývatnsósa þann 25. ágúst 1970.
Bænda
10. september