Bændablaðið - 20.08.2020, Side 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. ágúst 202012
FRÉTTIR
Sigurbjörn Óli Ágústsson, framkvæmdastjóri Einingaverksmiðjunnar ehf.,
og Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, við undirritun samninga um lóð í
Ölfusi fyrir félagið. Mynd / Sveitarfélagið Ölfus
Einingaverksmiðjan ehf.
flytur til Þorlákshafnar
– Með henni flytjast 40 til 50 störf frá Reykjavík
Einingaverksmiðjan og Sveitar
félagið Ölfus komust nýlega að
samkomulagi um að starfsemi
Einingaverksmiðjunnar ehf.
flytjist úr Reykjavík í Ölfus. Til
þess að það verði mögulegt verður
ráðist í byggingu á allt að 4.000
fermetra iðnaðarhúsum, gerð
efnissílóa og fleira á Nessandi,
nýskipulögðu iðnaðarsvæði í
útjaðri Þorlákshafnar.
Einingaverksmiðjan hefur í hátt
í 30 ár sérhæft sig í fram leiðslu for-
steyptra eininga til byggingafram-
kvæmda. Hjá fyrirtækinu starfa milli
40 og 50 starfsmenn, sem flytjast nú
í Ölfusið.
„Við hjá Einingaverksmiðjunni
höfum frá upphafi lagt metnað
okkar í að veita húsbyggjendum
fjárhagslegt svigrúm til að njóta
lífsins. Það gerum við meðal
annars með því að bjóða gæðavöru
á hagstæðu verði. Til þess að það
sé hægt þurfum við ætíð að leita
að hagkvæmum og heppilegum
leiðum til að þróa rekstur okkar.
Sú ákvörðun að staðsetja okkur
í Ölfusi er tekin með það að
leiðarljósi. Hér hefur okkur verið
úthlutað lóð sem gerir okkur
mögulegt að taka næstu skref með
hagsmuni okkar þjónustuþega í
huga. Ölfus er að okkar mati ekki
eingöngu eitt helsta vaxtarsvæði
á landinu með skýra sýn á
innviðauppbyggingu heldur er þar
skilningur á hagsmunum fyrirtækja
eins og okkar. Við höfum fulla trú
á komandi samstarfi og stefnum
að því að hefja framkvæmdir á
næstu dögum,“ segir Sigurbjörn
Óli Ágústsson, framkvæmdastjóri
Einingaverksmiðjunnar. /MHH
Sveitarfélagið Skagafjörður:
Sólgarðaskóla breytt
í fimm leiguíbúðir
Sveitarfélagið Skagafjörður sótti
um stofnframlög til Húsnæðis og
mannvirkjastofnunar til breytinga
á Sólgarðaskóla í Fljótum í fimm
leiguíbúðir.
Var það gert í kjölfar niðurstöðu
starfshóps um framtíð Sólgarðaskóla
sem lagði til við byggðarráð að leita
eftir samstarfi við stjórnvöld um
breytingu á húsnæðinu í hagkvæmt
leiguhúsnæði. Sömu áherslur komu
sterkt fram á íbúafundi í Ketilási í
desember sl.
Niðurstaða umsóknar um stofn-
framlög er að HMS hefur samþykkt
að veita stofnframlag að upphæð ríf-
lega 37 milljónir króna.
Byggðarráð Sveitarfélagsins
Skagafjarðar fagnar stuðningi rík-
isvaldsins við uppbyggingu hag-
kvæmra leiguíbúða á landsbyggð-
inni. /MÞÞ
Jón Guðmundsson við eitt af eplatrénu sínu, sem gefur greinilega vel af sér enda fullt af eplum á því. Myndir / einkasafn
Jón Guðmundsson, eplabóndi á Akranesi:
Reiknar með að fá 50 kíló af eplum
í haust af trjánum sínum
„Útlitið með uppskeru er almennt
gott en hún gæti verið seinni en í
góðum árum vegna kuldakaflans í
vor en margir eru að fá uppskeru í
haust og sumir í fyrsta skipti. Þetta
veltur svo líka á veðurfarinu næstu
vikurnar en fyrstu aldinin ættu að
verða þroskuð um 10.–15. sept
ember,“ segir Jón Guðmundsson,
garðyrkju fræðingur og eplabóndi
á Akranesi.
Sjálfur segist hann fá nokkur
hundruð aldin, eða kannski 30–50
kíló af eplum, sem hann er mjög
sáttur við. Jón er með um 70 ávaxta-
tré í garðinum, mest af epla trjám,
og eru margar uppskerur miklar en
hann leyfir hverju tré bara að bera
20–30 epli. „Trén mín eru flest
á klipptu súluformi og bera ekki
meira en 3 kg hvert tré. Mörg gefa
reglulega og góða uppskeru eins og
„Melba“, „Close“, „Langballe“ og
„Ålingsepli“. „Close“ gefur yfirleitt
mest en öll yrki hafa sérheiti,“ segir
Jón.
Sætsúr epli
Jón segir að fjölskyldan sín nýti
mest af eplunum sjálf en þau gefa
þó alltaf eitthvað til vina og vanda-
manna. Hægt er að geyma sum eplin
nokkrar vikur og önnur er hægt að
þurrka eða vinna eitthvað úr. Eplin
eru mjög mismunandi á bragðið og
litinn líka, sum alveg gul en
önnur rauð en flest þarna
mitt á milli hálf rauð og hálf
gul. „Já, sum þeirra eru súr
en önnur sæt en þau bestu
eru þarna mitt á milli, svona
sætsúr eins og stundum er
sagt,“ segir Jón.
Töluverður áhugi
á eplarækt
Áhugi Jóns á eplarækt
kviknaði fyrst þegar
hann frétti af gömlum
eplatrjám í Reykjavík,
sem voru að gefa uppskeru reglu-
lega. „Ég byrjaði því að viða að mér
upplýsingum og efniviði víða að og
prófa mismunandi yrki. Sæmundur
Guðmundsson á Hellu var nýfarinn
af stað með svipaðar hugmyndir og
við höfum átt í samvinnu í gegnum
árin. Það er tölverður áhugi á þessari
ræktun og margir að spreyta sig en
þetta er nokkur þolinmæðisvinna og
það tekur tré allt upp í 10 ár að fá
fyrstu uppskeru en oft er það líka
bara 3–5 ár eftir atvikum, eplarækt
gefur fólki mikið þegar vel gengur,“
segir Jón.
Nokkur heillaráð
Jón var að lokum beðinn að nefna
nokkur heillaráð, sem þarf að hafa
í huga við eplaræktun.
„Já, það þarf að hafa nokk-
ur atriði í huga. Í fyrsta lagi þarf
að velja sólríkan vaxtarstað fyrir
tréð, öðru lagi þar af nota sérvalin
yrki fyrir íslenskar aðstæður og í
þriðja lagi þarf að hugsa um tréð
með tilliti til næringarástands og
meindýravarna. Það er of mikið um
innflutt tré sem ekki henta hér vel
og umhirðan er oft af skorn-
um skammti og ef þetta tvennt
kemur saman er enginn árang-
ur,“ segir Jón, sem sjálfur segist
hafa verið að prófa mismunandi
yrki í 20 ár. Þar hefur komið í
ljós að 10 til 20 þeirra eru að skila
árangri í flestum árum og jafnvel
köldustu sumrum.
„Samhliða því hef ég verið af
útvega fólki tré sem eru líkleg og
veita fólki ráð eftir bestu getu og eru
margir farnir að sjá árangur en aðrir
þurfa að bíða eitthvað lengur. Ég er
líka með slatta af perum, plómum og
kirsuberjum ásamt fleiri spennandi
trjám, sem verður gaman að sjá hvað
gerist með næstu árin,“ segir Jón.
/MHH
Eplin eru misjöfn á bragðið, sum súr og önnur sæt, en flest eru þau þarna
einhvers staðar á milli, eða súrsæt.
Jón er mjög samviskusamur
og heldur bókhald á hverju
ára yfir uppskeruna og ár-
angurinn þar sem fara fram
mælingar og mat á gæðum
aldina, ásamt skráningu.
Betri Bakkafjörður:
Níu styrkir til fjölbreyttra verkefna
Styrkjum úr verkefninu Betri
Bakkafjörður vegna ársins 2020
hefur verið úthlutað. Alls voru
veittir níu styrkir að þessu sinni,
samtals 13,5 milljónir króna.
Styrkir eru hluti af verkefni
Byggðastofnunar, Brothættar byggðir,
en það miðar að víðtæku samráði og
því að virkja þekkingu og getu íbúa
byggðarlaga til að móta framtíðarsýn,
markmið og lausnir. Enn fremur að
virkja frumkvæði og samtakamátt
íbúa og auka vitund þeirra um eigin
þátt í þróun samfélagsins.
Verkefnin eru fjölbreytt og snúa
m.a. að uppbyggingu og endurreisn
atvinnufyrirtækja, framleiðslu á
matjurtum og markaðsátak fyrir
Bakkafjörð, fornleifarannsóknir og
endurbætur á eldra húsi.
Bragginn fékk stærsta styrkinn
Stærsta styrknum að þessu sinni
var úthlutað til uppbyggingar á
Bragganum, sem stendur á tanganum
ofan við gömlu höfnina. Þar er gert
ráð fyrir fjölbreyttri listastarfsemi,
auk þess verður íbúð í húsnæðinu
sem getur hýst listamenn sem dvelja
tímabundið á Bakkafirði. Bjargið
ehf., fiskvinnsla fékk eina milljón
króna í styrk vegna endurbóta á
starfsmannarými og 2 milljónir
vegna endurbóta á vinnsluhúsnæði.
Bakkafiskur fékk 5 milljónir
króna vegna verkefnis sem nefnist
Bragginn menningarhús. Baldur
Öxndal Halldórsson fékk styrki að
upphæð ein milljón vegna endurbóta
á Halldórshúsi sem byggt var árið
1906.
Langanesbyggð fékk 650
þúsund krónur vegna endurbóta á
tjaldstæði á Bakkafirði og Þórir Örn
Jónsson fékk 1,5 milljónir króna
vegna markaðsátaks Bakkafjarðar.
Malgorzata Bluszko fékk 550
þúsund vegna ræktunar matjurta til
endursölu og N4 fékk 1,5 milljónir
vegna verkefnis sem nefnist Uppskrift
að góðum degi á Bakkafirði. Loks
fékk Fornleifastofnun 370 þúsund
krónur vegna verkefnis sem tengist
fornminjum við Skeggjastaði.
/MÞÞ