Bændablaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. ágúst 202014
HLUNNINDI&VEIÐI
FRÉTTIR
Með lagabreytingu nýverið var
stjórnsýsla einfölduð og dregið úr
tilkynninga- og skráningaskyldu
varðandi fóður.
Samkvæmt upplýsingum á vef
Matvælastofnunar er nú aðeins skylt
að tilkynna til Matvælastofnunar
framleiðslu, pökkun og innflutning á:
Lyfjablönduðu fóðri
Fóðuraukefnum
Forblöndum aukefna
Allt innflutt fóður frá ríkjum utan
Evrópska efnahagssvæðisins
Fóður sem skylt er að tilkynna
skal vera búið að skrá hjá Mat
væla stofnun áður en það er flutt
inn til landsins. Jafnframt eiga
þeir sem flytja inn fóður að vera
skráðir hjá Matvælastofnun sem
fóðurinnflytjendur.
Fyrir 1. febrúar ár hvert er
öllum framleiðendum og innflytj
endum fóðurs skylt að tilkynna til
Matvælastofnunar heildarmagn
innflutts og framleidds fóðurs á
undangengu ári. /VH
Matvælastofnun:
Tilkynningaskylda vegna fóðurs
Arion banki:
Umsóknir um stuðningslán
Miðlægur umsóknarvefur stjórn-
valda vegna stuðningslána til
fyrirtækja hefur verið opnaður á
Ísland.is. Samkomulag um tíma-
bundinn greiðslufrest á lánum fyr-
irtækja vegna COVID-19 hefur
verið framlengt til 30. sept. 2020
en það rann út 30. júní síðast-
liðinn.
Stuðningslán eru ætluð til að
styðja við lítil og meðalstór fyrir
tæki sem glíma við erfiðleika vegna
samdráttar í rekstri vegna COVID
19 faraldursins. Stuðningslánin
geta numið allt að 10% af tekjum
fyrirtækis á rekstrarárinu 2019, að
hámarki 40 milljónir króna. 1%
breytilegir vextir eru fyrir lán að 10
milljónum.
Fyrirtæki sem sækja um frestun
greiðslna geta fengið frystingu að
hámarki í allt að sex mánuði en þó
ekki lengur en út árið 2020 (síðasti
gjalddagi er 1. desember 2020).
Þau fyrirtæki sem eru nú þegar með
frestun greiðslna á sínum lánum geta
ekki sótt um áframhaldandi frestun
umfram þessa sex mánuði, sem
er hámark frystingar samkvæmt
samkomulaginu.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá
Arion banka er bankinn tilbúinn að
taka á móti umsóknum sem fara í
gegnum vefinn og hefur verið unnið
að því að gera ferlið við úrvinnslu
þeirra einfalt og skilvirkt með það
að markmiði að veita fyrirtækjum
sem eru í viðskiptum góða og skjóta
þjónustu.
Nánari upplýsingar um
umsóknarferlið fyrir stuðningslán
fyrirtækja er að finna á island.is. /VH
Vínlandssetur opnað í Búðardal
Sýning um landnám norrænna
manna á Grænlandi og fund
Ameríku löngu fyrir daga
Kristófers Kólumbusar hefur
verið opnuð í Búðardal. Hún
er til húsa á efri hæð í Leifs-
búð, gömlu vöru- og verslun-
arhúsi í námunda við höfnina
í Búðardal.
Katrín Jakobsdóttir for
sætisráðherra opnaði sýning
una. „Öll þessi saga getur sagt
okkur margt um hver við erum
því maður kynnist einmitt
sjálfum sér best í samskiptum
við aðra. Eiríks saga rauða
og Grænlendinga saga snúast
einmitt öðrum þræði um sam
skipti norrænna manna við þá
sem bjuggu í þessum löndum,“
sagði forsætisráðherra við opn
unina. /MÞÞ
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
opnaði sýninguna á Vínlandssetri.
Ný kjörbúð fyrir íslenskar matvörur
Stöllurnar Sveinbjörg Jónsdóttir,
Jóhanna Björnsdóttir og Anna
Júlíusdóttir fara á næstu dögum
af stað með nýja vefverslun, Gott
og blessað, sem selur íslenskar
matvörur frá íslenskum smáfram-
leiðendum. Þar verður neytendum
tryggður aðgangur að fjölbreyttu
úrvali af íslenskum gæðavörum
frá öllum landshlutum.
„Við höfum um allnokkurt
skeið haft áhuga á íslenskri
matvælaframleiðslu og þá sérstaklega
framleiðslu smáframleiðenda úti um
allt land. Í raun má segja að bændur
og smáframleiðendur séu í hópi
okkar bestu og virkustu frumkvöðla.
Fjölbreytnin og vöruþróunin er
ótrúleg en því kynnast þeir best sem
eru duglegir að ferðast um landið
og gefa sér tíma til þess að stoppa
við og kaupa vörur beint af bændum
eða beint af býli. Vandamálið er hins
vegar að það getur verið erfitt að
nálgast þessar vörur og fjölmargir
hafa ekki fundið lausn á því hvernig
þeir geta selt framleiðslu sína hér
á höfuðborgarsvæðinu. Eitt er að
framleiða, annað er að markaðssetja
og dreifa vörunum. Það má kannski
segja að þessi staðreynd sé kjarninn
á bak við hugmyndina okkar. Við
höfum brennandi áhuga á því að færa
smáframleiðendur nær neytendum
og að kynna smáframleiðendur
og þeirra vörur fyrir neytendum,“
útskýrir Jóhanna en í Forðabúrinu,
eins og þær kalla það, sem er vottað
húsnæði og staðsett við Flatahraun
27 í Hafnarfirði, er kjöraðstaða fyrir
framleiðendur til að geyma ferskar
vörur ásamt frystivörum.
Íslenskt á alla staði
Gott og blessað verður lítil kjörbúð
á netinu eða bændamarkaður sem
verður opinn allt árið. Viðtökurnar
hjá framleiðendum hafa verið mjög
góðar og hafa Jóhanna og Sveinbjörg
ferðast um landið til að reyna að hitta
sem flesta.
„Önnur okkar er flugfreyja en hin
er grafískur hönnuður með reynslu
af því að vera smáframleiðandi. Sú
reynsla var reyndar ein ástæða þess
að við áttuðum okkur á nauðsyn þess
að setja á laggirnar fyrirtæki sem
ynni náið með smáframleiðendum
til þess að tryggja sölu og dreifingu
á þeirra vörum. Við byrjuðum við
kaffiborðið heima en nú hefur þetta
hægt og rólega vaxið og það er í
raun ótrúlegt hvað við höfum mætt
miklum velvilja. Íslenskt á alla staði
er okkar slagorð og það er svo margt
sem mælir með því. Með því að
velja íslenskar vörur, og þá vörur frá
smáframleiðendum, þá erum við að
styðja við jákvæða byggðastefnu, við
erum að draga úr kolefnisfótsporinu,
við erum að tryggja heilbrigði og góða
hollustuhætti, við erum að tryggja
matvælaöryggi, við erum að tryggja
atvinnu í landinu en umfram allt þá
erum við að gera lífið svo miklu
skemmtilegra,“ segir Sveinbjörg og
bætir við:
„Við stofnuðum fyrirtækið
tvær en höfum nú fengið til liðs
við okkur vini og vandamenn með
margvíslega þekkingu. Þar má finna
matreiðslumeistara, vefsíðuhönnuð,
myndasmið, sérfræðing í rafrænni
markaðssetningu og sölufulltrúa.
Allt frábærir einstaklingar sem hafa
sama brennandi áhuga og við á því að
kynna þessar frábæru og fjölbreyttu
vörur fyrir neytendum. Allir þessir
frumkvöðlar úti um allt land sem eru
að framleiða þessar frábæru vörur
hafa margir engan tíma eða jafnvel
þekkingu á að sinna markaðs og
sölustarfi, hvað þá að byggja upp
netsölu sem tryggir örugga og ódýra
afhendingu. Þar viljum við taka við.
Við störfum með aðilum sem hafa
góða reynslu af því að starfrækja
netsölu og afhenda vörur. Við erum
með góða kæla og frysta þar sem við
getum geymt vörur smáframleiðenda
og selt síðan eftir þörfum. Þannig
getum við fært stærsta markaðssvæðið
til smáframleiðenda ef þannig má að
orði komast.“
Sjá má nánari upplýsingar um
hina nýja kjörbúð undir merkjum
hennar á Facebook ásamt vefsíðunni
gottogblessað.is um leið og hún fer
í loftið. /ehg
Fljótlega fer ný vefverslun í loftið undir merkinu Gott og blessað, sem Sveinbjörg Jónsdóttir, Jóhanna Björnsdóttir
og Anna Júlíusdóttir standa að en þeim fannst vanta svæði fyrir íslenska framleiðendur til að selja sínar vörur.
Hér má sjá örlítið brot af því sem
selt verður í vefversluninni, Geita
parmesan-ostur frá Háafelli og
nautahakk frá Huldubúð.
Loftgæðamælir hefur verið settur
upp í Reykholti í Biskupstungum
Umhverfisstofnun hefur sett upp
loft gæðamæli í Reykholti í Biskups-
tungum í Bláskógabyggð.
Fyrir um ári síðan ályktaði sveitar
stjórn að nauðsynlegt væri að koma
upp slíkum mæli í sveitarfélaginu en
síðustu ár og áratugi hafa loftgæði í
sveitarfélaginu verið mjög slæm við
vissar aðstæður en engar mælingar
hafa verið til staðar.
„Í miklu þurrviðri hefur mikið
magn jarðefna borist ofan af hálendi
og þá sérstaklega af svæðinu í kringum
Hagavatn. Því er fagnaðarefni að
loftgæðamælir skuli hafa verið settur
upp svo hægt sé að fylgjast með
loftgæðum og áhrifum þess á heilsu
fólks,“ segir Ásta Stefánsdóttir,
sveitarstjóri Bláskógabyggðar. Hægt
er fylgjast með loftgæðamælinum með
því að fara inn á www.loftgaedi.is og
leita að Reykholti. /MHH
Þorsteinn Jóhannsson hjá Umhverfisstofnun við loftgæðamælinn, sem var
nýlega settur upp í Reykholti. Mynd / Bláskógabyggð