Bændablaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. ágúst 202018
HROSS&HESTAMENNSKA
Samningur Eyjafjarðarsveitar og Funa um uppbyggingu reiðvega:
Knýjandi þröf að færa alla ríðandi umferð af og frá akvegum
– segir Valur Ásmundsson, formaður reiðveganefndar Funa
„Það er knýjandi þörf á að færa
ríðandi umferð af og frá akvegum.
Umferð um Eyjafjörð hefur aukist
mikið á liðnum árum, stór hluti
vega er nú með bundnu slitlagi og
því fylgir aukinn umferðarhraði.
Það tíðkaðist hér áður fyrr að
menn riðu eftir malarvegum um
alla sveit, en slíkt er beinlínis
hættuspil eins og staðan er nú,“
segir Valur Ásmundsson, formað
ur reiðveganefndar Hestamanna
félagsins Funa í Eyjafjarðarsveit.
Fulltrúar Funa og Eyjafjarðar
sveitar hafa skrifað undir áfram
haldandi samstarfssamning um upp
byggingu reiðvega í sveitarfélaginu.
Leggur Eyjafjarðarsveit til allt að
tvær milljónir króna á ári til ársloka
2023 gegn mótframlagi úr reiðvega
sjóði. Um er að ræða framlengingu á
samningi sem áður var í gildi.
Mikil uppbygging
og aukið umferðaröryggi
Vel hefur gengið undanfarin ár að
byggja upp reiðvegi í sveitarfélaginu
og auka með því umferðaröryggi á
svæðinu svo sem er tilgangur verk
efnisins. Funamenn eru stórhuga
þegar kemur að uppbyggingu
reiðvega, næsta verkefni þeirra er
að byggja upp reiðvegi í efri byggð
sveitarfélagsins og einnig við
Eyjafjarðarbraut Eystri.
„Við höfum síðastliðin ár gert
átak í gerð reiðvega í okkar sveitar
félagi, Eyjafjarðarsveit hefur jafn
að framlag Vegagerðarinnar til
framkvæmda,“ segir Valur, en Funi
hefur haft yfirumsjón með verkefn
inu í samstarfi við sveitarfélagið og
Vegagerðina. „Hefðin er sú hér á
landi að hesta mannafélögin hafa
borið hitann og þungann af reiðvega
gerðinni, þannig að við erum lánsöm
hér um slóðir. Hinir ýmsu verktakar
úr sveitinni hafa um árin tekið þátt í
uppbyggingunni með okkur og það
samstarf hefur verið aldeilis frábært,
það er mikilvægt að gera sem mest
úr því sem við höfum úr að moða. Þá
hafa landeigendur einnig sýnt verk
efninu mikinn skilning og hjálpað til
við að finna bestu lausnir við fram
kvæmdina hverju sinni.“
Yfir fjórar einbreiðar brýr að fara
Valur segir að hestamennska sé
talsvert stunduð í Eyjafjarðarsveit en
að auki hafi félagar í Hestamanna
félaginu Létti á Akureyri aðstöðu
á Kaupvangsbökkum, rétt
sunnan við Akureyri, sem og
einnig á Melgerðismelum. Þar
er félagsheimili Funa, hesthús,
reiðhöll, keppnissvæði, beitarhólf og
stóðréttarbygging. Melgerðismelar
séu þannig miðstöð hestamennsku í
héraði og sannkölluð vin ferðalanga
sem ferðist um á hestum.
Áhersla hefur á liðnum árum
verið lögð á að byggja upp myndar
legan reiðveg til framtíðar milli
Miðbrautar við Hrafnagil og inn á
Melgerðismela. Valur segir að sú
leið sé nú orðin góð, þó alltaf þurfi
eitthvað að laga nýframkvæmdir og
viðhalda eldri leiðum. „Nú má segja
að helstu hætturnar á þessari leið
séu hvorki meira né minna en fjórar
einbreiðar brýr sem ríðandi umferð
þarf að fara yfir á. Hestamenn og
sveitarfélagið voru með metnaðar
fulla áætlun hér á árum áður að fara
meðfram ánni að austanverðu eins
og gert er norðan Miðbrautar en því
miður náðist ekki samkomulag við
landeiganda svo þær áætlanir runnu
út í sandinn. Sú framkvæmd hefði
verið langsamlega öruggasta leiðin
og nánast engin skörun við akandi
umferð og mjög hagkvæm leið,“
segir hann.
Tengja Efri-byggðina
við reiðvegakerfið
Núverandi áætlanir miðast
fyrst og fremst við að vera á
veghelgunarsvæði sem Valur segir
vissulega hafa sína kosti. Þær leiðir
þjóni vel þeim sem búa nærri þeim
og eins þeim sem stunda útreiðar út
af bæjum sínum.
Nú í sumar var hafist handa við
að leggja reiðveg í svokallaðri „Efri
byggð“ sem tengist svo reiðvegi sem
liggur fram að Melgerðismelum.
Þannig tengjast bæirnir á því
svæði reiðvegakerfi sem tengist
Melgerðismelum, til Akureyrar og
þaðan austur í Þingeyjarsýslur og
norður eftir Eyjafirði.
Þá segir Valur að meðal verkefna
á dagskrá næstu ára sé að byggja
upp reiðvegi í veghelgunarsvæðinu
meðfram Eyjafjarðarbraut Eystri en
þar er víða nánast ófært fyrir ríðandi
umferð um sveitina nema þá að fara
eftir vegkanti sem sums staðar er
malbikaður. Hið sama megi segja um
sveitina inna við Melgerðismela og
leiðina upp á hálendið. Þar sé langur
kafli þar sem ríðandi umferð þurfi
að fara eftir akvegi eða um illfært
land meðfram honum. „Það væri
sannarlega ánægjulegt ef hestamenn
gætu farið að ríða niður í Eyjafjörð
af hálendinu á góðum og öruggum
stíg,“ segir hann.
Skortur á reiðvegasamgöngum
stendur ferðaþjónustu fyrir
þrifum
Valur nefnir að hestatengd starf
semi hafi þróast mjög á síðustu
árum, hvort sem um er að ræða
ferðaþjónustu eða faglegt starf við
þjálfun hesta eða reiðkennslu. Í
Eyjafjarðarsveit hefur Funi haldið
Valur Ásmundsson, for maður reið-
veganefndar Hesta manna félagsins
Funa, segir ánægjulegt að Eyja-
fjarðarsveit og Vegagerðin taki
höndum saman um uppbyggingu
reiðvegakerfis í sveitarfélaginu,
öryggismál og framþróun hesta-
mennsku sé háð uppbyggingu reið-
veganna.
Mynd / Valur Ásmundsson
Fulltrúar Funa og Eyjafjarðarsveitar hafa skrifað undir áframhaldandi samstarfssamning um uppbyggingu reiðvega
ísveitarfélaginu.Hérerunniðaðreiðvegagerðísveitarfélaginu.
Fulltrúar Funa og Eyjafjarðarsveitar
handsala undirritaðan samning um
uppbyggingureiðvegaísveitarfé-
laginu. Eyjafjarðarsveit leggur til
allt að tvær milljónir króna á ári til
ársloka 2023 gegn mótframlagi úr
reiðvegasjóði. Um er að ræða fram-
lenginguásamningisemáðurvarí
gildi. Mynd / Eyjafjarðarsveit
ValurÁsmundssonogElvaDíanaDavíðsdóttir,HaukurSkúli,HafþórBjarki,ÓlöfMillaogKristjánAtlitakaþáttí
ratleikáÆskulýðsdögumNorðurlandsáMelgerðismelum. Mynd / Valur Ásmundsson
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
Opnar stöðvar
Stöðvar í húsi
Stöðvar í gám
Aukabúnaður eins og sjálfvirkur
skiptirofi og fleira
Öflug og góð þjónusta
Gerðu kröfur — hafðu samband við
Karl í síma 590 5125 eða sendu línu
á kg@klettur.is og kynntu þér þína
möguleika.
Allar stærðir
af AJ Power
rafstöðvum: