Bændablaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. ágúst 202022
Nú er sala á kannabis leyfileg í
tólf ríkjum Bandaríkjanna og
spretta nú upp frumkvöðlar um
allt land til að gera því góð skil
í formi neytendavænna vara á
borð við girnilega konfektmola,
olíur og krem ásamt kannabistei
og fleiru. Frumkvöðlarnir Erin
Gore og Karli Warner reka saman
fyrirtækið Garden Society sem
þær stofnuðu fyrir fjórum árum
og framleiða og selja vörur sem
innihalda kannabis en á ári hverju
frá stofnun hefur veltan aukist um
allt að 400 prósent.
Markmið Erin og Karli með
stofnun fyrirtækisins var að verða
jákvæðasta og trúverðugasta
kannabis vörumerki fyrir konur í
Bandaríkjunum til að losa um streitu
hjá notendum þess og færa gleðina
upp á hærra plan. Reynsla notenda
á að verða óaðfinnanleg og mann-
leg eins og kostur þess verður. Þær
trúa á mátt plöntunnar og leitast
við að kaupa sjálfbær hráefni fyrir
framleiðslu sína. Með vörum sínum
leitast þær við að gera kannabis að
einföldu en lífsnauðsynlegum hluta
af hversdagsleika kvenna.
Leit að hamingju og jafnvægi
Fyrir tíu árum byrjaði Erin að nota
kannabis sem verkjastillandi lyf eftir
að hafa farið í tvær mjaðmaaðgerðir.
Hún er menntaður efnaverkfræðingur
og starfaði á þeim tíma fyrir þýskt
fyrirtæki. Eftir því sem hún komst
hærra upp metorðastigann í vinnunni
jókst stressið hjá henni og hún átti
erfitt með svefn. Þá byrjaði hún í
leyni að framleiða kannabisvörur
heima í eldhúsi og þegar hún
skipulagði fyrstu „bakstursveisluna“
sína komu 50 konur til hennar.
„Um leið og frami minn var
mjög spennandi var hann einnig
mjög taugastrekkjandi. Ég leitaði í
kannabis til að hjálpa mér að stjórna
þessum krónísku verkjum eftir
körfuboltameiðsli sem ég varð fyrir
í háskóla en einnig til að hjálpa mér
að stjórna svefnleysinu og stressinu
við hverja stöðuhækkun í vinnu. Ég
var hugfangin af því hvernig ein lítil
einföld planta gæti verið svo flókin
en gefið mér svo mikinn létti. Ég
var einnig að kljást við ófrjósemi
eins og svo margar aðrar konur á
svipuðum stað og ég var í lífinu. Mér
leið eins og ég væri að ferðast frá
einum degi til annars til að finna út
úr því hvernig ég ætti að halda öllum
þessum boltum á lofti samtímis á
meðan ég var líka að reyna að finna
tíma til að einblína á heilsu mína til
að geta eignast fjölskyldu,“ útskýrir
Erin.
Árið 2016 stofnaði hún, ásamt
Karli Warner, Garden Society í
Norður-Kaliforníu en það sama ár
var kannabis leyfilegt í ríkinu til
afþreyingarnota.
„Einn daginn fengum ég og
vinkonur mínar þá hugmynd að halda
svona „hátt uppi kökupartí“ þar sem
við bjuggum til kökur með kannabis
í sem hægt var að borða. Þar sem ég
hef vit á efnafræði fékk ég hlutverkið
sem „skömmtunar-drottningin“. Við
fengum einnig nokkra kokka til liðs
við okkur sem gerðu frábæran mat
fyrir okkur. Á þennan hátt skapaðist
vettvangur til að tala um kannabis
á skemmtilegan hátt, gera tilraunir
og að tengja við lífið okkar. Partíin
spurðust fljótt út og fleiri konur
vildu vera með svo á endanum
dugði ekki lengur að nýta einungis
garðinn minn fyrir þau. Það var þessi
neisti sem ég sá hjá þátttakendum
og ég uppgötvaði að ég var alls ekki
ein í leit minni að hamingju og að
berjast fyrir jafnvægi. Allar þessar
konur sem komu sáu eitthvað í
kannabis sem þær vildu læra um,
prófa, gera tilraunir með og að lokum
njóta. Stuttu eftir þetta varð Garden
Society að veruleika. Ég var spennt
að byrja með fyrirtæki, eða í raun
hreyfingu, þar sem tilgangurinn er
að hjálpa konum að gefa sér leyfi
til að velja kannabis sem leið til að
finna jafnvægi og gleði í gegnum
menntun og vörur sem eru hannaðar
sérstaklega fyrir þær.“
Leið til að róa sig niður
Vörur Garden Society er nú að finna
á yfir 120 útsölustöðum í Kaliforníu
en viðskiptavinir sem búa í norður-
hluta ríkisins geta pantað í gegnum
vefsíðu fyrirtækisins og fengið sent
heim.
„Sem kannabisfrumkvöðull en
einnig móðir sem notar og er tals-
maður kannabisnotkunar þá hef ég
fundið á eigin skinni hvernig þetta
stigmagnast. Fyrir meðeiganda
minn, Karli Warner, og mig hefur
það alltaf verið mikilvægt að hafa
áreiðanlegt verkefni og stofnuðum
við Garden Society fyrir konur þar
sem við höfum bókstaflega geng-
ið í þeirra sporum. Það hefur alltaf
verið okkar von að konur geti fundið
heildrænni leiðir til að endurnýja sig
frá hinu daglega stressi en einnig að
hjálpa þeim við að líða þægilega með
kannabis. Það að þær gefi sjálfum
sér leyfi til að slaka á með kannabis
er dásamlegt. Þó að við höfum lagt
áherslu á að markaðssetja okkur fyrir
konur þá eru margir viðskiptavina
okkar karlmenn,“ segir Erin og bætir
við:
„Við bjóðum upp á súkkulaði-
molana okkar og jónur sem innihalda
kannabis, ýmist með CBD eða THC
í. Undanfarið höfum við séð aukna
eftirspurn eftir vörum með háu CBD-
magni og skýrist það sennilega af
óvissu- og stresstímum svo fólk
finnur leiðir til að róa sig niður og
lífið almennt.“
Einstaklingsbundin áhrif
Í Bandaríkjunum eru kannabisvörur
sem hægt er að borða mældar í milli-
grömmum en í jónum í grömmum. Í
súkkulaðimolunum frá Garden Society
eru á bilinu 5–10 milligrömm af THC-
efninu í hverjum mola. Í hverri jónu,
sem þær kalla Rosettes, eru 0,000375
kílógrömm í hverri þeirra.
„Kannabisplantan er ein sú elsta
sem ræktuð hefur verið í heiminum.
Hún inniheldur kannabisefni sem
verka á víxl með endókannabínói
líkamans og taugakerfisins sem getur
haft mismunandi áhrif sem getur
hjálpað til við stresssvörun, slökun
og svefn. Fyrir þá sem eru að nota
kannabis í fyrsta sinn er mikilvægt
að muna að áhrif hvers og eins eru
einstaklingsbundin. Ég mæli alltaf
með að byrja með litla skammta á
meðan fólk gerir tilraunir og finnur
út hvað sé best fyrir það. Síðan er líka
mikilvægt að kaupa vöruna af viður-
kenndum aðila og að hafa gaman,“
segir Erin brosandi og bætir við:
„Hjá Garden Society skuldbindum
við okkur til að fara fram úr vænting-
um viðskiptavinanna í öllu sem við
gerum. Því er okkur mikið í mun að
nota eingöngu sjálfbært gæðahrá-
efni og við leggjum mikið upp úr
fagurfræðilegri áferð og fallegum
umbúðum. Kannabis sem við notum
kemur frá sjálfbærum sveitabæjum
í Mendocion- og Sonomasýslunum.
Hver einasta vara fer í gegnum rann-
sóknarstofu í gegnum allt ferlið, allt
frá hráu hráefni til lokavöru áður en
við sendum hana frá okkur.“
Úr Tupperware í kannabis
Nú hafa þær stöllur sett 15 vöru-
tegundir á markað þar sem áferðar-
falleg hönnun umbúða og varanna
er í fyrirrúmi. Hver vara er handgerð
og prófuð á rannsóknarstofu áður en
hún fer í sölu.
„Það sem hefur verið helsta
hindrunin við vöruþróunina er að
setja upp áreiðanlega virðiskeðju. Í
Kaliforníu, þar sem við störfum innan
leyfilegra kannabismarka, verðum við
að vinna með viðurkenndum aðilum
í öllu ferlinu. Kannabisiðnaðurinn
hér er enn ungur, aðeins nokkurra ára
gamall, og þá er enn verið að fínpússa
þetta allt á sama tíma og við erum að
byggja upp okkar fyrirtæki svo það
hefur verið áskorun.“
Stór hluti sölunnar fer fram í gegn-
um garðpartí eða heima kynningar og
er nú talað um byltingu í þeim efnum
vestanhafs þar sem Tupperware-
plastvörukynningar lúta nú víða í
lægra haldi fyrir kannabisheima-
kynningum. Í garðpartíunum er 21
árs aldurs takmark þar sem gestir
fræðast um plöntuna, spyrja spurn-
inga og fá að prófa hinar ýmsu vöru-
tegundir. Vert er þó að hafa í huga að
í slíkum garðkynningum eru vörur
ekki til sölu heldur er um fræðslu-
viðburði að ræða.
„Við erum gríðarlega stoltar
af garðpartíunum okkar og það er
alveg ótrúlegt að sjá hvað þau hafa
fært mörgum konum mikla gleði.
Við byrjuðum með þau í byrjun árs
2017 og þau eru einstök fræði- og
upplifunarferð fyrir konur til að
læra um kannabis og þær vörur
sem við bjóðum upp á. Þetta er
persónuleg leið fyrir konur til að
taka þátt í samræðum um hvernig
kannabis getur styrkt þær til að
endurheimta og hlaða sjálfar sig.
Það er líka mikilvægt að hafa í huga
að garðpartíin eru ekki hugsuð til
neyslu á kannabis heldur sem
fræðslustundir. Þetta hefur verið
gríðarlega vinsælt og vel tekið. Eftir
að kórónakrísan skall á hefur ekki
verið mögulegt að halda garðpartíin
en í staðinn höfum við boðið upp á
rafrænar uppákomur með til dæmis
jóga og kennslustund í notkun á
kannabis. Við sjáum mikilvægi
þess að vera í góðu sambandi við
okkar viðskiptavini og hvað fræðsla
til þeirra og samstaða gerir mikið
fyrir okkar vörur.“ /ehg
UTAN ÚR HEIMI
Frumkvöðlarnir Erin Gore og Karli Warner:
Kýla kannabis upp á hærra plan
Staðreyndir um kannabis:
• Kannabis hefur verið notað í lækningaskyni í þúsundir ára, meðal
annars í Kína milli 2000 og 3000 árum fyrir Krist.
• Það eru yfir 400 efnafræðilegar samsetningar í kannabis og um 113
þeirra eru svokölluð kannabisefni, sem hafa ólík áhrif á fólk.
• THC (tetrahydrocnnabinol) og CBD (cannabidiol) eru tvö mest þekktu
kannabisefnin. THC er í aðalatriðum efnið sem gefur vímu á meðan
CBD er einnig notað í kannabis í lækningaskyni.
• Það eru fleiri kannabisefni sem sagt er að hafi ólík áhrif en minna er
búið að rannsaka þau.
• Líkaminn bregst við kannabisefnum á tvo ólíka vegu en fyrri tegundin
viðtaka er aðallega að finna í heilanum og gefur upphaf til geðáhrifa
á meðan hin finnst aðallega í ónæmiskerfinu og gefur eitthvað af
upphafinu á þeim áhrifum sem kannabis getur haft til dæmis á MS-
sjúkdóminn.
(Heimild: Magasinet – Dagbladet)
Frumkvöðlarnir Erin Gore og Karli Warner reka saman fyrirtækið Garden Society í Kaliforníu í Bandaríkjunum sem
framleiðir og selur vörur sem innihalda kannabis. Þær stofnuðu fyrirtækið fyrir fjórum árum en frá stofnun hefur
veltan aukist um allt að 400 prósent.
Mikið er lagt upp úr að útlit og umbúðir varanna séu fallegar og aðlaðandi
og telja forsvarsmenn Garden Society það hafa mikið að segja fyrir
markaðssetninguna.
Vörur Garden Society er nú að finna á yfir 120 útsölustöðum í Kaliforníu og
eru vörutegundirnar orðnar 15 talsins en súkkulaðimolarnir og jónurnar eru
vinsælustu vörur fyrirtækisins.