Bændablaðið - 20.08.2020, Qupperneq 27
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. ágúst 2020 27
upp í sjö til átta þúsund. Síðustu ár
hafa komið hér um 13 til 14 þúsund
manns yfir sumartímann, þ.e. frá maí
fram í september.
Ég hef verið með opið nær allt
árið, nema hvað ég hef lokað frá
miðjum desember og fram í miðjan
janúar, m.a. til að gefa starfsfólkinu
frí.
Þegar flugfélagið WOW var
og hét, var mjög áberandi að ungt
ferðafólk kæmi hér á litlum „camper“
ferðavögnum og legðu á planinu fyrir
utan húsið allt árið um kring. Þetta
fólk þurfti á þjónustu að halda, bæði
varðandi sturtuaðstöðu, netsamband
og mat. Ég sá því í hendi mér að ef
það lögðu 20 „camper-bílar“ hér á
planinu fyrir utan þá gæti ég átt von
á 40 manns í mat um kvöldið. Það var
því nauðsynlegt að hafa hér opið að
mestu allt árið.
Ég hef verið að ráðleggja kollegum
mínum úti á landi það sama og benda
á að það þurfi að vera svona aðstaða
í boði í öllum landshlutum sem opin
er allt árið. Fyrst við vorum að blása
til sóknar og hvetja ferðamenn til að
koma til Íslands allt árið, þá verðum
við líka að hafa aðstöðu fyrir þetta
unga fólk sem nýtir sér þennan
ferðamáta. Við fundum hins vegar
fyrir talsverðu höggi þegar WOW
air hætti starfsemi.“
Í harðri samkeppni
við ríki og sveitarfélög
Jón segir ekki alveg sanngjarnt að
bera saman aðstöðu á einkareknum
tjaldsvæðum sem hafa ekki annað
en innkomuna til að byggja á hverju
sinni, eða tjaldsvæðum sem rekin eru
af sveitarfélögum eða jafnvel ríkinu.
„Fólk vill eðlilega hafa allt til
alls á tjaldstæðum, eins og sturtur,
þvottavélar og annað en við erum
þar alltaf í harðri samkeppni við ríki
og sveitarfélög.
Ég hef til dæmis aldrei fengið
styrki til að byggja upp þessa aðstöðu
á Skjóli, né niðurgreiðslur á rafmagni
eða öðru. Þá þarf ég sjálfur að skaffa
sorpgám sem ég borga fyrir tæmingu
á, en ég fæ þó á þriggja ára fresti
tæmingu á rotþró, en borga sjálfur
fyrir seyrulosun. Þá verð ég einnig
að sjá um snjómokstur inn á svæðið.
Það segir sig því sjálft að í harðri
samkeppni við opinbera aðila gengur
uppbyggingin kannski örlítið hægar
en maður vildi.“
Þrátt fyrir harða samkeppni
er ekki annað að sjá en að Jóni
hafi tekist af miklum dugnaði og
eljusemi að byggja upp tjaldstæði
og veitingaaðstöðuna í Skjóli af
myndarbrag. Vaxandi vinsældir
staðarins benda reyndar til þess að
gestir kunni að meta það sem þar er
boðið upp á og margir koma þangað
aftur og aftur. Hefur staðurinn
líka verið hátt skrifaður á vefsíðu
Tripadvisor og oft skartað þar fimm
stjörnum. Það skiptir miklu máli í
því skrítna árferði sem ríkt hefur
undanfarin misseri í skugga COVID-
19 heimsfaraldursins.
Gott samstarf er lykilatriði
„Tíðarfarið var líka erfitt í vetur, en
ég hef verið svo heppinn hvað ég hef
átt í góðu samstarfi við ferðaþjón-
ustufyrirtæki eins og Mountainers og
Arctic Ventures sem hafa verið með
vélsleðaþjónustu. Hópar frá þeim
hafa komið til mín í mat á kvöldin.
Svo er River Rafting hér með að-
stöðu í nokkurra kílómetra fjarlægð.
Eins hafa strákar sem hafa verið að
bjóða upp á akstur á „Buggy“ bílum
verið með aðstöðu hér þar til nú í
sumar.“
Kappkostar að bjóða íslenskt
hráefni úr héraðinu
„Ég hef boðið hér upp á tiltölulega
einfaldan mat, hamborgara, pitsur,
fisk og franskar, grænmetisbar og
súpu. Þar er ég mjög heppinn með
að fá mest allt hráefni frá bændum
hér á svæðinu. Bjarki Long í
Mjólkursamsölunni kemur svo með
ostinn til mín. Ég fer með um 75 kg
af pitsuosti á viku fyrir utan annan
ost sem ég kaupi.“
Gestir sem gista á Skjóli fá svo
afslátt af aðgangi í Gömlu laugina
á Flúðum (Secret Lagoon). Í
nágrenninu eru svo hestaleigur og
ekki má gleyma hinum glæsilega
Haukadalsvelli fyrir kylfingana sem
er í tveggja kílómetra fjarlægð. Þá er
stutt í Haukadalsskóg fyrir lengri eða
styttri gönguferðir.
Góð samvinna
rekstraraðila á svæðinu
„Við verðum þá líka að passa okkur
að bjóða upp á sanngjarnt verð. Það
er mikilvægt, ekki síst vegna þess að
Ísland hefur legið undir ámæli vegna
þess hversu dýrt sé að koma hingað.
Ef fólk hefur viljað gera enn betur við
sig í góðum steikum eða öðru, þá hef
ég bent okkar gestum á Hótel Geysi
og veitingaaðstöðuna sem þar er.
Góð samvinna skiptir öllu máli
í svona rekstri og við höfum verið
mjög dugleg að benda hvert á annað.
Það hefur komið mjög vel í ljós hin
síðari ár hvað veitingaþjónustan og
gistingin er að vinna vel saman með
afþreyingunni. Ég hef notið þess að
eiga mjög ánægjuleg samskipti við
þessi ferðaþjónustufyrirtæki.“
Jón segist telja að sanngjörn
verðlagning skili sér alltaf til baka.
Þó margir vilji helst fá fleiri vel stæða
ferðamenn til landsins, þá séu þeir
ekkert frekar tilbúnir að greiða hvað
sem er fyrir þjónustuna. Þarna gildi
orðsporið sem af staðnum fer vegna
upplifunar ferðamanna, en fátt er
dýrmætara en gott orðspor þegar til
lengdar lætur.
Erfitt og skrítið rekstrarár
„Rekstrarárið 2020 er búið að vera
mjög erfitt og skrítið fyrir flesta í
þessum bransa. Ég þakka því fyrir að
vera hér á Suðurlandinu og staðsettur
við fjölförnustu ferðamannaleiðina.
Mér heyrist að staðan hafi verið mun
erfiðari víða annars staðar.
Hér er rúnturinn allt árið um kring,
en þar var ég líka heppinn að vera
í samstarfi við kínverska konu og í
gegnum hana fékk ég daglega til mín
Asíubúa í norðurljósaferðir frá miðj-
um janúar og fram í apríl. Í desember
á síðasta ári fór þessi kona að tala um
gríðarlegar afbókanir út af einhverri
flensu. Þessi flensa reyndist svo vera
COVID-19.
Fram að því voru um 80% af
mínum gestum útlendingar og því
þurfti ég að fara að vekja meiri
athygli á staðnum meðal Íslendinga.
Þrátt fyrir þennan faraldur er ég því
mjög þakklátur fyrir hvað Íslendingar
hafa verið duglegir að koma til mín
og þá sérstaklega í júlí. Helgarnar í
júní voru líka fínar, en þetta fór aðeins
af stað í maí. Vegna faraldursins var
maður þó svolítið á báðum áttum
hvernig maður ætti að gera þetta og
nú spyr maður sig að því á hverjum
einasta degi. Þar er að mínu mati
ekkert annað í stöðunni en að fara
eftir öllum þeim tilmælum sem
yfirvöld beina til okkar.“
Útilegukortið mikilvægt og gefur
fleirum kost á að ferðast ódýrt
– Nú eruð þið aðilar að útilegukortinu,
hefur það skipt ykkur máli?
„Já, það hefur skipt miklu máli
og trekkir til mín fólk. Ég sé að
sveitarfélög eru að sækjast meira og
meira eftir að fá útilegukortið vegna
þess að sá fjöldi sem með það er sækir
líka í aðra þjónustu á svæðunum fyrir
utan tjaldstæðin.
Útilegukortið gefur fleira fólki
kost á að ferðast á ódýran hátt og nýta
sér þá um leið niðurgreiðslur sinna
stéttarfélaga. Það skiptir líka miklu
máli þegar fólk er með mörg börn,
því þarna er allt frítt fyrir börn undir
16 ára aldri og það á bæði við sturtur
og aðra þjónustu. Þetta er mikil
kjarabót. Á sama hátt er sérkennilegt
að ferðagjöf ríkisins skuli ekki gilda
á tjaldsvæðum.“
Tjaldstæði njóta
ekki ferðagjafar ríkisins
„Ferðagjöfin gildir ekki á tjald-
svæðum vegna þess að þau flokk-
ast ekki undir staði sem bjóða upp á
gistiherbergi. Fram yfir síðustu ára-
mót hafði ég samt verið að rukka hér
gistináttagjald á tjaldsvæðinu. Þá var
rukkað fyrir hverja ferðaeiningu og
skipti engu máli hvort um var að ræða
einn Ítala á hjóli með lítið tjald, eða
fimm Asíubúa í húsbíl. Það kostaði
það sama fyrir eininguna.“
Margir hafa einnig bent á að
það sé sérkennilegt að hægt sé að
nota ferðagjöfina á veitingastöðum
í Reykjavík en ekki á tjaldstæði í
höfuðborginni og víðar um land sem
mikið eru nýtt af fjölskyldufólki. Jón
telur að kannski hafi þetta ekki verið
ígrundað nógu vel þegar ákvörðunin
var tekin.
Skattur á skatt ofan
„Reyndar var ég alltaf á móti því að
við værum að rukka gistináttagjald
á tjaldsvæðum þar sem ekki var
verið að leigja neitt gistihúsnæði.
Þá var annað undarlegt við þetta að
gistináttagjaldið var 300 krónur og
síðan lagðist virðisaukaskattur þar
ofan á sem var 33 krónur. Þannig var
verið að innheimta skatt ofan á skatt.
Nú er búið að leggja þennan skatt
af, allavega til apríl 2021, en ég trúi því
ekki að þeir haldi áfram með þennan
skatt eftir það á tjaldsvæðagesti.“
Á „köldu“ svæði mitt á
þekktasta háhitasvæði landsins
Þó einkennilegt mætti virðast þá
er ekki jarðhiti svo heitið geti í landi
Kjóastaða þó örstutt sé í eitt þekktasta
háhitasvæði veraldar við Geysi. Því
hefur raforkukostnaðurinn verið
drjúgur í rekstrinum hjá Jóni.
„Þó staðsetningin sé hér góð til
reksturs með Gullfoss og Geysi hvort
sínum megin, þá er það viss kald-
hæðni að hér skuli ekki vera jarðhiti
í næsta nágrenni við Geysi. Þá eru
ekki nema um 20 km í Efri-Reyki,
þar sem maður sér gufustrókinn stíga
upp af hitaveitunni alla daga. Þetta
háði okkur strax í byrjun, m.a. við
að skaffa heitt vatn í sturturnar fyrir
gestina.
Vegna þessa lét ég bora hér í
landinu niður á 80 metra dýpi og
náði þar í 20 gráðu heitt vatn. Það
er sjálfrennandi og dæli ég því inn
á varmadælu sem sér mér fyrir heitu
vatni í dag, fyrir sturtur, eldhús og
annað.“
Jón leiddi einnig heitt vatn í
vaskaðstöðu fyrir tjaldstæðisgesti sem
er við austurgafl veitingastaðarins.
„Maður sá það fljótt að
Íslendingar kunna ekki að spara
vatn og því kláraðist heita vatnið
fljótt í uppvaskinu hjá gestunum á
tjaldstæðinu og sturturnar urðu kaldar.
Því skrúfaði ég fljótt þar fyrir heita
vatnið í vaskana úti. Nú safna ég heita
vatninu frá varmadælunni í tank og
nota það fyrir sturturnar og eldhúsið
og það hefur dugað ágætlega.
Það er reyndar með ólíkindum
að við skulum vera komin fram á
2020 og það skuli ekki vera komið
heitt vatn á bæina hér í kring frá
jarðhitasvæðunum í næsta nágrenni.
Enda eru íslenskir gestir sem hingað
koma mjög hissa á þessari stöðu. Það
hefur þó verið reynt að bora hér víða
á svæðinu en árangurinn hefur ekki
orðið eins og menn vonuðust til.“
Skemmtilegur og gefandi rekstur
Jón segir að þó hann sé að tuða
yfir ákveðnum hlutum er varða
rekstrarskilyrði tjaldsvæða, þá sé
ákaflega gaman að starfa í þessari
grein.
„Maður verður þó að hafa gaman
af fólki og vera þjónustulundaður
til að finnast þetta gaman. Þetta er
því ekki fyrir hvern sem er. Það
hafa komið margir hér inn sem
hafa haft áhuga á þessum bransa.
Á árunum 2014, 2015 og 2016 var
mikill uppgangur og marga langaði
að spreyta sig á ferðaþjónustu. Þetta
varð svolítið „trend“, en maður fann
það samt fljótt að fólk þurfti að hafa
ákveðinn karakter til að þrífast vel í
þessari grein.“
Hagsýni skiptir miklu
máli á óvissutímum
Jón segir að nú sé ferðaþjónustan að
upplifa mjög skrítna tíma sem muni
eflaust knýja mörg fyrirtæki í þrot.
Því sé eina ráðið að vera eins hagsýnn
og hægt er, bæði í innkaupum og
daglegum rekstri. Sjálfur er hann
að alla daga en hefur auk þess tvær
stúlkur sér aðstoðar í fullu starfi. Til
að reksturinn gangi upp á svo litlum
mannskap ákvað Jón að hætta að vera
með opna veitingaaðstöðu í hádeginu
sem útheimti meiri mannskap. Hann
segir að starfsstúlkurnar verði þó
bara við störf út ágústmánuð og
eftir 1. september ríki algjör óvissa
vegna COVID-19. „Það er samt
ekkert annað í stöðunni hjá mér en
að halda þessu áfram.“
Jón segist líka vonast til að
Íslendingar, sem hafa verið að
fjárfesta grimmt í hjólhýsum og
húsbílum á þessu ári, reyni að nýta
þá eign sína allavega fram á haustið.
Margir séu að upplifa þennan
ferðamáta í fyrsta sinn og líki vel.
„Þetta fólk er að kynnast
landinu sínu á nýjan hátt sem er
mjög gaman. Því er vonandi að
fólk nýti sér þetta áfram,“ segir
Jón Örvar Baldvinsson, sem hefur
notið ómetanlegrar aðstoðar frá
fjölskyldu sinni við uppbygginguna
í Skjóli.
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Tjaldstæðið Skjól í Bláskógabyggð er 3,5 km austur af Geysi í Haukadal. Hér sést 500 fermetra þjónustuhús tjaldsvæðisins þar sem eru íbúðir starfsmanna, veitingasalur sem tekur allt að 180
manns í sæti, eldhús, bar, salerni og sturtur.
Jón við tjaldstæðið sem er stórt og rúmgott. Þar hefur hann verið að planta skjólbeltum og hefur í huga að byggja
nýtt aðstöðuhús fyrir gesti tjaldsvæðisins til að auka þægindi gesta. Í dag er klósett, þvotta- og sturtuaðstaða, sem
er reyndar góð, í sömu byggingu og veitingasalurinn.
Í Skjóli má sjá peningaseðla hengda upp á snúrur í stafrófsröð yfir barnum.
Eigandinn segir að þetta hafi byrjaði með nafnspjöldum en smám saman
hafi það undið upp á sig og gestir skilið eftir áritaða seðla með kveðju
fyrir góða þjónustu. Þarna getur að líta marga merkilega seðla og suma
sjaldgæfa. Jón Örvar segir þó að tíkall með mynd af Jóni Sigurðssyni sé í
mestu uppáhaldi hjá sér.