Bændablaðið - 20.08.2020, Side 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. ágúst 202036
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Mikill fjöldi ferðamanna hefur lagt leið sína um Kjalveg í sumar þrátt fyrir ryk og mikinn barning á grófum, hörðum og holóttum niðurgröfnum vegi. Stór hluti þessara ferðamanna hefur ekið inn
í Kerlingarfjöll sem nú er búið að friðlýsa. Þessi mynd var tekin í sneiðingnum í hlíðum Innriskúta, skammt sunnan við vegamótin að Kerlingarfjallaafleggjara. Myndir / HKr.
Vegabætur á hálendinu ekki í takt
við mikla fjölgun ferðamanna
– Yfir milljón ferðamenn munu þurfa að þræða illa farinn og niðurgrafinn ýtuslóða yfir Kjöl fram til 2034
Mikill fjöldi Íslendinga hefur
lagt land undir fót, eða kannski
öllu heldur hjól, í sumar. Vakið
hefur athygli hvað víða er unnið
að endurbótum á vegum og
slitlagsviðgerðum. Mikið verk er
þó óunnið til að hægt sé að segja
að vegakerfi landsmanna standist
kröfur um öryggi til að geta talist
boðlegt fyrir þá stórauknu umferð
ferðamanna sem skipulega hefur
verið unnið að á undanförnum
árum.
Í tíð Sturlu Böðvarssonar sem
samgönguráðherra á árunum 1999
til 2007 voru fimm vegir á hálendi
Íslands í fyrsta sinn teknir út og
taldir til grunnnets samgangna. Þetta
eru Kaldidalur, Fagradalsvegur,
Kjalvegur, Sprengisandsleið og
Fjallabaksleið nyrðri. Á málþingi
sem haldið var í Bændahöllinni,
Hótel Sögu sumarið 2013 kom
fram að þessar leiðir voru þá enn
ekki annað en illa færir troðningar
með þeirri undantekningu að nokkuð
hefur verið unnið í veginum um
Kaldadal. Sú vinna hafði þá að
nokkru leyti verið unnin fyrir gýg
þar sem ekki tókst að klára að setja
bundið slitlag á veginn. Þegar ekið
er um þessa vegi sjö árum síðar, eða
árið 2020, hefur harla lítið verið
unnið þar að endurbótum.
Hálendisvegir aftarlega
á merinni í samgönguáætlun
Í nýlega samþykktri samgöngu
áætlun 2020 til 2034 eru skilgreindir
þeir vegir sem taldir eru til
stofnvegakerfis. Þar á meðal er
Sprengi sandsleið, Þjórsárdalsvegur
– Fjallabaksleið nyrðri, Uxahryggja
vegur, Kaldadalsvegur – Þing
vallavegur og Kjalvegur – Hring
vegur.
Í samgönguáætlun eru 1.850
milljónir króna eyrnamerktar
framkvæmdum á 23 km kafla sem
heitir Brautartunga – Kaldadalsvegur
á síðari hluta samgönguáætlunar. Þá
eru 1.600 milljónir króna áætlaðar
í 37 km vegagerð á Bárðardalsvegi
vestri, þ.e. það sem nefnt er
Hringvegur – Sprengisandsleið, en
ekki fyrr en undir lok samgöngu
áætlunarinnar 2034.
Yfir milljón ferðamönnum stefnt
á liðónýtan Kjalveg fram til 2034
Ekki er að sjá að gert sé ráð fyrir
einni krónu í framkvæmdir á Kjal
vegi samkvæmt útlistun í samgöngu
áætlun fram til 2034. Þar kemur ekki
heldur fram hvort fé sem skilgreint er
einhverju öðru eins og viðhaldi verði
varið í þennan veg.
Þarna er um að ræða 14 ára
tímabil. Miðað við þróun liðinna ára
má varlega áætla að á þeim tíma verði
ríflega 1,1 milljón ferðamanna búnir
að aka þennan liðónýta ýtuslóða
með tilheyrandi þjóðhagslegum
kostnaði vegna slits á ökutækjum.
Vart þarf mikið ímyndunarafl til geta
sér til að öll sú umferð muni valda
náttúruspjöllum þegar ferðamenn
neyðast til að aka út fyrir vegslóða
þegar slóðinn fyllist af vatni og aur.
Mikilvægar lagfæringar
á hálendisvegum
Trausti Valsson, þáverandi prófessor,
benti á það á málþinginu 2013
að mikill hugur hafi þá verið
í ferðaþjónustuaðilum að efla
ferðamennsku á þessum slóðum,
ekki síst inn í Kerlingarfjöll og líka
norður í land. Þá var talið að um 30
þúsund ferðamenn færu um Kjalveg
á hverju ári. Varlega áætlað mætti
telja að um 60–70% af þeim hafi
verið erlendir ferðamenn, eða hátt
í 20.000. Ástand vegarins er hins
vegar þannig að rútufyrirtæki voru
farin að veigra sér við að senda bíla
sína inn á Kjalveg vegna skemmda
og mikils viðhaldskostnaðar á
bílunum. Árið 2012 var heildarfjöldi
ferðamanna til landsins með flugi
og Norrænu samtals tæplega 673
þúsund. Miðað við það voru um
3% erlendra ferðamanna að fara um
Kjalveg.
Litlar vegabætur en fjöldi
ferðamanna hefur margfaldast
Frá því þetta var sagt sumarið 2013
hefur fátt annað gerst nema að
ferðamönnum um þessar slóðir hefur
stórfjölgað með tilheyrandi auknum
kostnaði vegna slits á ökutækjum.
Í dag er vegurinn nánast allur eitt
þvottabretti.
Árið 2005 komu 378 þúsund
erlendir ferðamenn til landsins. Árið
2015 voru erlendir ferðamenn orðnir
tæplega 1, 3 milljónir og rúmlega
2,3 milljónir þegar mest var 2018.
Miðað við þær tölur má gera ráð
fyrir að þeir erlendu ferðamenn
sem hafa farið um Kjalveg og upp
í Kerlingarfjöll, inn á Sprengisand,
eða norður í land, hafi verið nær
70 þúsund talsins. Ferðamönnum
fækkaði aðeins 2019, eða í rúmar
tvær milljónir og þrettán þúsund.
Þannig að það ár má áætla að fjöldi
erlendra ferðamanna um Kjalveg
hafi verið um 60 þúsund. Varla er
þá ofáætlað að því til viðbótar hafi
íslenskir ferðamenn verið á bilinu 15
til 20 þúsund og heildarfjöldinn þá
kominn í 75 til 80 þúsund.
Hóflega byggt upp úr
niðurgröfnum ýtuslóða
Kjalvegur er um 165 km frá
Gullfossi norður að Eiðsstöðum í
Blöndudal. Þrátt fyrir gríðarlega
aukningu ferðamanna, þar sem
stöðugt vaxandi straumi þeirra er
Kjalvegur er um 165 km frá Gullfossi norður að Eiðsstöðum í Blöndudal. Á um níu kílómetra kafla frá brúnni yfir
Hvíta rétt ofan við Hólmavað og að veitingaskálanum Hrefnubúð Café hafa Vegagerðarmenn sýnt fram á hvað hægt
er að gera á hagkvæman og snyrtilegan hátt með hófstilltri uppbyggingu til að ná veginum upp úr niðurgröfnum
ýtuslóða. Þó þetta sé engin hraðbraut, þá kemur slíkur vegur í veg fyrir utanvegaakstur og náttúruspjöll og auðvelt
er að margfalda endingu hans og koma í veg fyrir tjón á ökutækjum með því að leggja á hann slitlag.
Við brúna yfir Hvítá ofan við Hólmavað er haugur af möluðu efni sem nýta
má í slitlag.
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is