Bændablaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. ágúst 2020 41
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Tökum hey- og jarðvegssýni
Það er mikilvægt að taka árlega
heysýni og senda í efnagreiningu
til að hafa í höndunum yfirlit um
efnainnihald og gæði heyjanna. Á
grunni niðurstaðnanna má svo
skipuleggja fóðrun gripanna og
sjá hvers konar kjarnfóður hent-
ar með heyjunum og annað við-
bótarfóður sem þarf til að bæta
upp það sem vantar í heyin.
Veðrátta hefur mikil áhrif á
heygæði og þegar veðráttan er
frábrugðin því sem við eigum að
venjast er sérstaklega mikilvægt að
huga að heyefnagreiningum.
RML býður upp á heysýnatöku að
vanda og hægt er panta heysýnatöku
og fóðurráðgjöf á heimasíðu RML
(hnappur á forsíðu).
Fyrir bændur sem taka sýni sjálf-
ir er gott að hafa í huga að hentug
stærð sýnis er á stærð við handbolta
og gott að reyna að lofttæma hey-
sýnapokann. Merkja sýnið vel og
frysta strax. Þegar sýni eru tekin úr
verkuðu fóðri þarf það að hafa verk-
ast í a.m.k. 4-6 vikur áður en sýni
er tekið. Á heimasíðu RML, undir
eyðublöð má finna fylgiseðil sem
fylla má út með upplýsingum sem
mikilvægt er að fylgi hverju sýni.
Efnagreiningar á jarðvegi rækt-
arlands gefa mikilvægar upplýs-
ingar um sýrustig jarðvegs og forða
hans af mikilvægustu plöntunær-
ingaerfnum. Niðurstöðurnar má
nota til að ákvarða áburðargjöf
og sýrustig jarðvegs til að ákveða
kölkun. Niðurstöður jarðvegssýna
frá undanförnum árum benda til að
sýrustig túna sé mjög víða lægra en
þau viðmiðunargildi sem æskileg
þykja í jarðrækt.
Jarðvegssýni sem ráðunautar
RML taka í haust verða send til
greiningar hjá Efnagreiningu ehf.
Þegar niðurstöður efnagreininga
liggja fyrir geta bændur óskað eftir
að ráðunautar RML túlki þær og
nýti við gerð áburðaráætlana og í
önnur verkefni er tengjast jarðrækt.
RML tryggir að niðurstöðurnar fari
inn í forritið Jörð.is þar sem þær
eru geymdar og aðgengilegar bænd-
um. Til að fylgjast með breytingum
sem kunna að verða á sýrustigi og
næringarástandi í efsta jarðvegslagi
túna og akra er æskilegt að taka úr
þeim jarðvegssýni á nokkurra ára
fresti.
Æskilegt er að taka jarðvegssýni
á haustin áður en búfjáráburður er
borinn á. Jarðvegssýnataka mun
hefjast í september. Æskilegt er
að sem flestar pantanir liggi fyrir
snemma í ferlinu til þess að auð-
velda skipulagningu heimsókna.
Hægt er að panta rafrænt á heima-
síðu rml.is, eða með því að hringja
í síma 516-5000.
Eiríkur Loftsson
ráðunautur, Rekstrar-
og umhverfissvið
el@rml.is
Uppskriftabók úr íslenskum eldhúsum eftir stríð
Á síðasta ári kom út frá Espólín-
forlagi matreiðslubókin Upp-
skriftir stríðsáranna eftir Önnu
Dóru Antonsdóttur og Kristrúnu
Guðmundsdóttur. Með bókinni
vilja þær halda á lofti merki
formæðra sinna en uppskriftir í
bókinni eru teknar úr matreiðslu-
bókum systranna Guðbjargar og
Sigurlaugar Sveinsdætra en þær
stunduðu báðar nám við Kvenna-
skólann á Blönduósi og voru upp-
skriftabækur þeirra afrakstur
matreiðslunáms við skólann.
Sigurlaug frá Tjörn (f.1924)
stundaði nám við Kvennaskólann
á Blönduósi veturinn 1943-1944 en
Guðbjörg (f.1919 d. 2013) veturinn
1939-1940. Báða þessa vetur voru
Sigurlaug Björnsdóttir frá Kornsá
matreiðslukennari og Sólveig Sövik
skólastýra. Í matreiðslubókinni
Uppskriftir stríðsáranna segir:
„Kvennaskólinn á Blönduósi
var lyftistöng í lífi húnvetnskra og
skagfirskra kvenna í lok nítjándu
aldar og fram eftir þeirri tuttug-
ustu. Húsmæðurnar skynjuðu það
og skildu. Þær sendu dætur sínar í
þessa menntastofnun sem þær höfðu
sjálfar trú á. Bækurnar (systranna)
bera þess menjar að hafa verið í
mikilli notkun en uppskriftirnar
voru, þegar grannt var að gáð, hluti
daglegs mataræðis eftirstríðsáranna
og lengur, á alþýðuheimilum þessa
lands.“
Höfundar bókarinnar Uppskriftir
stríðsáranna flétta skemmtilega
saman hinum gömlu uppskriftum
með textum dagsins og hugleiðing-
um um það sem er efst á baugi í sam-
tímanum, rifja upp þætti úr kvenna-
fræðslu og krydda síðan með heil-
ræðum úr smiðju Kvennaskólans.
Hér fylgja tvær uppskriftir úr bók-
inni:
Prinsessusúpa
1 ½ l kjötsoð
1 ¼ hvítkálshöfuð
Gulrófa – gulrætur
40 g smjör
40 g hveiti
2 msk. rjómi
1 eggjarauða – gott kjötsoð
Aðferð:
Konan sker þvegið grænmeti í
smábita og hitar á pönnu. Lætur
sjóða í tíu til fimmtán mínútur.
Þá er grænmetið tekið upp úr og
látið í súpuskál. Bakar saman
smjör og hveiti og hræri smám
saman út með soðinu, lætur
sjóða. Rjóminn og eggin hrærð
saman og jafnað síðan út í súp-
una, má ekki sjóða! Og úr verður
prinsessusúpa.
Snjóbúðingur
1-2 dl rjómi
2 msk. sykur
3 bl. matarlím
2 msk. heitt vatn
1 tsk. vanilludropar
Berjasulta, makkarónur eða
smákökur
Aðferð:
Matarlímið lagt í kalt vatn og látið
liggja í stund. Rjóminn þeyttur og
droparnir og sykri hrært saman
við. Matarlímið hrært út í heita
vatninu og látið renna og hrært
gætilega saman við rjómann. Og
síðan sett í mót sem er bleytt og
sykri stráð. Og látið í lögum svo
sultan og smákökurnar séu innan
í og þær þurfa að vera brotnar í
smábita. Rjóminn skal vera allt
í hring. /ehg
BÆKUR&MENNING
Anna Dóra Antontsdóttir og Kristrún Guðmundsdóttir gáfu út matreiðslu-
bókina Uppskriftir stríðsáranna á síðasta ári en í henni má finna uppskriftir
úr matreiðslubókum systranna Guðbjargar og Sigurlaugar Sveinsdætra.
Matreiðslubækur Guðbjargar og Sigurlaugar Sveinsdætra frá því upp úr 1940 hafa varðveist vel og voru efniviður
í bókina Uppskriftir stríðsáranna.
Prinsessusúpan samanstendur af kjötsoði, grænmeti og eggi.
Ábætisréttur sem lítur út eins og
snjóhús, Snjóbúðingur, er tilvalinn
að búa til með haustinu.
TUDOR rafgeymar
TUDOR TUDOR
Er fjórhjólið tilbúið
fyrir fjallaferðina?
Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is
Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta
Veldu
öruggt
start með
TUDOR
Stærðir: XS-4XL
Efni regnsett: 310gr PU/PVC
Efni vesti: 100% pólýester
Verð:
kr. 10.500,-
Verð:
kr. 1.190,-
KH Vinnuföt • Nethyl 2a • 110 Reykjavík • Sími: 577 1000 • info@khvinnufot.is • www.khvinnufot.is
Göngum þurr og örugg til alla!
Regnsettið er slitsterkt 310 g/m²,
með hettu, vösum og stillanlegri
teygju í mitti. Bjóðum upp á merkingar
á hóegu verði og sendingarkostnaður
er innifalinn í verði.
Smalamennska 2020