Bændablaðið - 20.08.2020, Page 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. ágúst 202042
Á þessum merkilegu tímum
þegar smitgát er á allra vörum
leiðir það hugann að smitgát á
kúabúum, sem allt of víða má
bæta verulega. Eftir rúmlega
tveggja áratuga starf með kúa-
bændum víða um heim hefur
safnast vel í reynslubankann og
eitt af því sem kúabændur í flest-
um löndum eiga sameiginlegt er
að of margir færa ábyrgðina á
smitvörnum eigin kúabúa yfir
á þá sem þjónusta búin eins
og t.d. dýralækna, ráðunauta,
frjótækna, gripa- , fóður- eða
mjólkurbílstjóra, þjónustuað-
ila mjaltakerfis og fleiri mætti
nefna.
Smitvarnir eiga að sjálfsögðu
að vera á ábyrgð bændanna sjálfra
og þeir eiga að setja reglurnar fyrir
eigin bú sem svo aðrir eiga að
fara eftir. Svona reglur eru víða
aðgengilegar og auðvelt að finna
og fara eftir. En smitgát er líka eitt-
hvað sem þarf að viðhafa innan
bús og í því sambandi er talað um
ytri smitgát og svo innri smitgát.
Ytri smitgát er þá að koma í veg
fyrir að smit berist inn á viðkom-
andi kúabú með t.d. einhverjum
þjónustuaðila en innri smitgát eru
góðir búskaparhættir viðkomandi
bús við að koma í veg fyrir, eða
draga úr, að smit geti borist um
innan viðkomandi bús.
Ytri smitgát
Eins og áður segir eru til margar
aðgengilegar reglur og viðmiðanir
varðandi það hvernig kúabú geta
sett upp eigin reglur varðandi það
hvernig búið vill að þeir aðilar
sem þangað koma hagi sér. Þetta
geta verið reglur eins og að ekki
sé gengið inn í fjósið í stígvélum
sem notuð hafa verið í öðru fjósi
nema þá að sýnt hafi verið fram
á fullnægjandi sótthreinsun. Ekki
sé farið inn í fjósið í vinnufötum
sem hafa verið notuð í öðru fjósi
nema þau hafi verið þvegin á milli
o.s.frv. Þessar reglur eru allar til og
má benda á LK eða RML varðandi
frekari upplýsingar.
Mín reynsla er þó sú að þó svo
að svona einfaldar og sjálfsagðar
umgengnisreglur hafi verið til og
í notkun í jafnvel áratugi þá veigra
bændur sér oft við að fylgja þeim
eftir.
Kúabóndi í einu landi í Asíu
nefndi t.d. við mig að honum þætti
óþægilegt og óviðeigandi að biðja
dýralækninn sinn að skipta um föt
og stígvél við komuna á búið! Að
ákveðnu leyti skiljanlegt en um
leið óskiljanlegt! Allir vilja auð-
vitað og gera ráð fyrir að þeir sem
koma inn á búin viðhafi smitgát en
ábyrgðin á því er þó kúabóndans
og hún/hann á að sjá til þess að
smitvörnum sé fylgt og sinnt.
Víða pottur brotinn
Ég hef á ferlinum upplifað allskonar
undarleg brot á smitvörnum frá
öllum þjónustuaðilum, allt frá því
að dýralæknir ók bíl sínum beint inn
á fóðurgang í fjósi í Danmörku, frjó-
tæknir var með haugskítuga svuntu
framan á sér sem hann rúllaði upp
á milli bæjarheimsókna, ráðunautar
sem óðu inn í fjós á skóm sem þeir
höfðu verið í skömmu áður í öðru
fjósi og mörg fleiri dæmi mætti
tína til.
Hreinar línur
Spyrja má hvað er til ráða? Svarið
er einfalt, kúabóndinn sjálfur þarf
að vera afar skýr varðandi það
hvaða kröfur hann/hún gerir og
svo fylgja þeim eftir.
Sem stendur starfa ég í Kína við
ráðgjöf til þarlendra kúabænda og
þar er ekki síður en annarsstaðar
víða pottur brotinn í þessu sam-
bandi. Þó er það svo að stærri búin
eru með fullkomnar smitvarnir, allt
frá því að eiga einnota klæði fyrir
alla gesti og þá bæði plastskó og
sloppa og upp í að skikka gest-
komandi í að fara í gegnum bún-
ingsklefa, fara í sturtu og klæðast
svo eingöngu fötum búsins og það
allt frá innstu spjör! Þetta er líkt
og gert er á einangrunarbúum hér
á landi!
Nýr galli á hverjum stað
Að mínu mati er afar vel staðið
að smitgát meðal mjólkurgæðaráð-
gjafanna í Danmörku en þeir hafa
að atvinnu að fara á milli kúabúa
og veita ráðgjöf og fara oft inn á
nokkur bú á degi hverjum. Hjá
þeim er kerfið þannig að hver
ráðunautur er með 15-20 heilgalla
hver og tvö sett af stígvélum. Fyrir
hverja heimsókn er farið í hreinan
galla og stígvél auk þess sem
einnota hanskar eru alltaf notaðir.
Eftir hverja heimsókn fer notaður
galli, jafnvel þó hann virðist hreinn
og ónotaður, í þar til gerðan kassa
sem er fyrir óhreint tau og stígvélin
eru þvegin með heitu vatni, sápu og
burstuð í bak og fyrir. Þau eru svo
sett í ílát sem inniheldur sterkan
sótthreinsilög og ílátinu lokað.
Þegar ekið er á næsta bæ er svo
annað stígvélapar tekið í notkun
og hreinn galli o.s.frv. Ég var
oft spurður af bændum út í þessi
tvennu pör af stígvélum en þetta
verklag tókum við upp þegar við
fundum, með stroksýnum, að þó
svo að stígvél hafi fengið „gusu“ af
sótthreinsandi við brottför frá einu
búi, þá drápust ekki allar örverur
og hefðu getað borist inn á næsta
bú. Þá var tekin upp reglan um að
láta stígvél liggja í sótthreinsilegi í
amk. 20 mínútur og þar sem oft er
stutt á milli bæja þá var ljóst að það
þyrfti að vera með tvö sett af stíg-
vélum svo hægt væri að gera þetta
vel. Það má vera að sumum finnist
þetta heldur róttækar aðgerðir en
þá er rétt að minna á að mjólkur-
gæðaráðgjafar vinna oft með afar
viðkvæmar kýr og oft veikar líka
og því meiri hætta en ella til staðar.
Innri smitgát
Þegar rætt er um innri smitgát
þekkja flestir vel hvað gera þarf.
Algengasta ráðstöfunin sem flestir
þekkja er að nota spenadýfu til að
hindra bakteríusmitt, skipta um
undirburð, halda svæðum hreinum
og fleira slíkt. Það er þó víða hægt
að gera miklu betur og of oft ná
smitefni að fjölga sér og dreifa sér
innan kúabúa að óþörfu. Staðan á
Íslandi er reyndar einstaklega góð
enda er miklu minna um smitefni
en víða erlendis. Þetta getur þó
breyst mjög hratt og ástæðulaust að
bíða eftir því. Við erum t.d. vön því
að skepnur smiti varla hver aðra
þegar og ef þær veikjast en það
ætti þó alltaf að hafa varann á sér.
Stöðvun útbreiðslu
Júgurbólga er líklega algengasta
vandamálið á kúabúum hérlendis
og eins og flestir kúabændur vita
þá getur uppruni júgurbólgu verið
afar mismunandi. Sum smitefnin
geta borist á milli kúa og önnur
geta leynst í umhverfinu og fer
það eftir því hvaða smitefni er í
gangi, hvaða aðgerðaráætlun er sett
af stað til að útrýma viðkomandi
smitefni. Innri smitgátaráætlun
kúabús tekur einmitt á þessu at-
riði. Þannig gæti þurft að viðhafa
allt öðruvísi vinnubrögð á kúabúi
sem er að slást við Kólí, Klebsíella
eða Úberis sýkingar en á búum sem
eru oftast með Áreus sýkingar svo
dæmi sé tekið. Það er þó afar góð
vinnuregla að halda umhverfinu vel
hreinu og lausu við skít, það hjálpar
flestum langt á þessari vegferð. Ég
hef oft séð kínverska bændur með
einhver „töfraefni“ sem eiga að geta
komið í veg fyrir vöxt á örverum
og smitefnum en þessi efni virka oft
ekki þar sem verið er að reyna að
nota þau í óhreinu umhverfi þrátt
fyrir að tunguliprir sölumenn haldi
oftast öðru fram.
Gullskítur er líka skítur
Við þessa bændur hef ég oft sagt
að gullskítur er líka skítur þ.e.
kúadella er kúadella alveg sama
þó maður máli hana með gull-
málningu! Þetta tengja kínverskir
bændur vel við en gull er þar í
miklu uppáhaldi. Með öðrum
orðum þá er ekki hægt að sótt-
hreinsa skít eða óhreinindi. Fyrst
þarf að fjarlægja skítinn með vatni
og etv. hreinsiefnum og svo sótt-
hreinsa, það væri óskandi að það
þyrfti ekki að gera þetta svona því
það er töluverð vinna en svona er
þetta og það sem meira er, þetta
skilar sér! Mín reynsla er líka sú
að á þeim búum þar sem nærum-
hverfi kúa er haldið afar hreinu og
snyrtilegu þar er miklu minna um
vandamál heldur en á þeim búum
þar sem góð vinnubrögð eru ekki
viðhöfð.
Á FAGLEGUM NÓTUM
Snorri Sigurðsson
snorri.sigurdsson@outlook.com
Smitgát
Misjafnt er hvað menn taka smitvarnir alvarlega í landbúnaði. Þegar alvarleg
tilfelli koma upp má þó oft sjá viðbragðsteymi í fullum skrúða eins og á
þessari mynd sem tekin var í Malasíu.
Til ýmissa ráða er gripið til við að
tryggja sóttvarnir. Plasthlífar utan
um stígvél er eitt, en hætt er þó við
að slíkar hlífar rifni auðveldlega í
ati sem skapast getur í kringum
nautgripi. Fyrir hverja heimsókn
mjólkurgæðaráðgjafa í Danmörku
er farið í hreinan galla og stígvél
auk þess sem einnota hanskar eru
alltaf notaðir. Eftir hverja heimsókn
fer notaður galli, jafnvel þó hann
virðist hreinn og ónotaður, í þar til
gerðan kassa sem er fyrir óhreint tau
og stígvélin eru þvegin með heitu
vatni, sápu og burstuð í bak og fyrir.
Sótthreinsun á skófatnaði áður en
gengið er inn í gripahús er víða
viðhöfð í Danmörku.
Blaðið Jamestown Sun í Norður-Dakota í Bandaríkjunum birti þessa ágætu
skýringarmynd af því hvernig nautgripabændur gætu metið heppilega
nálgunarfjarlægð á tímum COVID-19 faraldursins.
Handþvottur er eitt af lykilatriðunum til að verjast útbreiðslu COVID-19.
Of oft ná smitefni að fjölga sér og dreifa sér innan kúabúa að óþörfu. Staðan
á Íslandi er reyndar einstaklega góð enda er miklu minna um smitefni en víða
erlendis. Þetta getur þó breyst mjög hratt og ástæðulaust að bíða eftir því.