Bændablaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. ágúst 2020 43
Íslensk sauðfjárrækt og kolefnisspor hennar
Í Bók sinni ,,Líf og land, Um
vistfræði Íslands“ segir dr. Sturla
Friðriksson 1973 (bls. 162):
,,Sauðfjárafurðir hafa löngum
verið undirstaða í fæðu Íslendinga
og verið orkugjafi þjóðarinnar.
Til þess að maður þrífist sóma-
samlega, þarf hann 2500 kcal.
Þurfi hann að fá allt sitt viðurværi
af sauðkindinni, er því auðsætt, að
hann þarf á jafnmikilli orku að
halda og bundin er í nýtanlegum
vefjum 9 sauðkinda.“ Sturla mun
einnig hafa sagt að ,,... 10 kindur
nægðu einum fjölskyldumeðlim
til fæðis og skæðis.“
Sem sagt 10 sauðkindur á hvern
heimilismann nægðu honum til
lífviðurværis, til að fæða hann og
klæða. Okkur þótti þessi niðurstaða
dr. Sturlu merkileg, en hún sýndi
hversu mikilvæg sauðkindin var,
enda hélt hún lífi í þjóðinni um aldir.
Kolefnisspor
Skýrsla fyrirtækisins Environice
ehf. (Birna Sigrún Hallsdóttir og
Stefán Gíslason 2017), um kolefn-
isspor íslenskrar sauðfjárræktar
kom út haustið 2017. Skýrslan var
samin að beiðni Landssambands
sauðfjárbænda. Allar tölur um fjár-
fjölda og afurðir í skýrslunni eru frá
árinu 2015. Allir sem vinna að og
með tölur um búfé á Íslandi, vita
að allnokkrar sveiflur eru milli ára.
Þannig eru ásettningslömb árið 2015
88 þúsund, eða 23,8 %, en eðlilegur
ásetningur er um 20 %. Annað er
að ekki er gerður greinarmunur á
dilkakjöti og kjöti af fullorðnu.
Ekki verður gerð tilraun til að
skoða hvort þetta ár gefi óeðlilega
niðurstöðu. Ætlunin er að skoða
útreikninga Sigrúnar og Stefáns
(Environice ehf.) á kolefnisspori
,,sauðfjárræktar” og verður notast
við tölur frá árinu 2015, eins og
gert er í skýrslu þeirra. Í skýrslu
Environice er allri kolefnislosun,
sem skýrsluhöfundar
telja að sé til
komin vegna
sauðfjárræktar, deilt á framleitt
kindakjöt 2015. Það er, að okkar
mati, mjög mikil einföldun. Fleira
er matur en feitt kjöt, segir máltækið.
Má þar nefna að Íslendingar hafa
alltaf borðað innmat sauðkindarinn-
ar; hjörtu, lifur, nýru og einnig nýtt
mör og eistu, að ekki sé talað um
svið. Sömuleiðis framleiðir kindin
ull og gæru. Það er því eðlilegt að
allur matur, og aðrar afurðir, sem af
sauðkindinni kemur, taki á sig sinn
hluta af kolefnissporinu, ekki bara
kjötið. Þá eru ull og gæra hluti af
afurðum sauðfjár og á því að taka
sinn skerf af kolefnissporinu. Það
er því eðlilegt að umreikna þessar
afurðir í ,,kjötígildi“ og deila í það
kolefnisspor sem telst afleiðing af
framleiðslu sauðfjárafurða á Íslandi,
samkvæmt skýrslu höfunda.
Skýrsluhöfundar komast að því
að bein losun vegna sauðfjárræktar
á gróðurhúsalofttegundum, GHL,
sé 241 Gg eða 23,6 kg á framleitt
kg kjöts framleiðsluárið 2015.
Jafnframt kemur fram að losun
GHL á kg kjöts hefur, samkvæmt
skýrslunni, minnkað úr 29,9 kg í
23,6 frá 1990 til 2015. Minnkunin
er afleiðing af þeirri stefnu í ræktun
sauðfjár að auka afurðir með meiri
frjósemi og þyngri föllum (Sveinn
Hallgrímsson 1980).
Önnur losun
Samkvæmt skýrsluhöfundum er
önnur losun vegna ,,... notkunar
þvagefnis, kalks og eldneytis.“
Höfundar segja jafnframt:
,,Ekki eru til tölur um notkun
þessara aðfanga í sauðfjárræktinni
einni og sér, en ef gert er ráð fyrir
að helmingur þess þvagefnis og
kalks sem notað er á landsvísu sé
nýtt í sauðfjárrækt má gera ráð fyrir
að losun vegna notkunar þessara
efna hafi verið 2,2 Gg CO2-ígilda
2015. Ef einnig er gert ráð fyrir
að sauðfjárræktin hafi notað um
helming þess jarðeldneytis sem
áætlað er að hafi verið notað í
landbúnaði á Íslandi árið 2015, má
ætla að losun sauðfjárræktarinnar
vegna eldsneytisnotkunar hafi
samsvarað um 39,3 Gg CO2-ígilda
árið 2015.“
Það verður að teljast vel ílagt að
ætla sauðfjárræktinni helming af
allri eldsneytisnotkun í landbúnaði!
Annar landbúnaður: Nautgriparækt,
hrossarækt, garðyrkja, ylrækt, fisk-
eldi á landi (og í sjó?), silungsveiði,
laxveiði, heysala til útlanda og inn-
anlands, kornrækt og ræktun olíu-
jurta, ferðaþjónusta þar sem hún er
hluti búrekstrar og önnur starfsemi
sem fram fer á bújörðum! Þessi
ályktun skýrsluhöfunda stenst ekki.
Sé reiknað með að sauðfjárræktin
noti 30% þess eldsneytis, sem notað
er í landbúnaði, en ekki 50%, verður
losun vegna eldsneytis 23,6 Gg 2015
í stað í stað 39,3 Gg.
Aðrar afurðir sauðfjár
Aðrar afurðir sauðfjár verða til sem
aukaafurðir við framleiðsluna. Þær
helstu eru; ull, gærur, svið og inn-
matur: Hjörtu, lifur, nýru, mör og
eistu (hjá hrútlömbum). Hér verður
sleppt að reikna þind, ristlil og garnir
sem voru notuð til matargerðar hér
áður, t. d. í rúllupylsur. Garnir voru
til skamms tíma líka notaðar utan um
pylsur, og reyndar þóttu pylsur ekki
mannamatur nema þær væru í alvöru
görnum. Þá má ekki gleyma blóðinu
sem notað er í blóðmör, en aðeins lít-
ill hluti þess er nýttur til manneldis.
Hálsæðar hafa einnig verið nýttar til
manneldis. Hér á eftir verða þessar
afurðir umreiknaðar yfir í kjöt, eins
og heimildir segja til um. Við um-
reikning á ull og gæru yfir í kjöt, er
reiknað út frá þurrefnismagni ullar
og gæru annars vegar og kjöts hins
vegar (Hallgrímsson 1981).
Í skýrslu Ásbjörns Jónssonar
og fl. 2015 (Matra-Matvæla-
rannsóknir Keldnaholti) eru taldar
upp aðrar afurðir, sem eru hirtar
til manneldis. Þar má t d nefna
gollurshús og æðar, garnir, laka
og vinstur, vömb og kepp og þind.
Auðvitað ætti að nýta allar þess-
ar afurðir. Annað er matarsóun.
Þessar afurðir eru þó ekki taldar
með hér. Af ofannefndum afurðum
eru 3,84+ 5,50 = 9,34 kg á hvert
lamb og 3,59 kg á vetrarfóðraða
kind.
Samkvæmt skýrslu Environice
eru fullorðið fé 2015 samtals
472.461 og lömb 2015 708.080.
Til að reikna viðbótar kjötígildi
út frá vetrarfóðruðum kindum:
• Fjöldi vetrarfóðraða kinda
2015; 472.461x 3.59= 1.686,1
tonn/ kjötígilda.
• Og sama fyrir lömbin:
Lambafjöldinn 708.080X9,34
= 6.613,5 tonn kjötígilda
• Viðbótarkjöt af aukaafurðum
er því; 1.686,1 + 6.613,5 =
8.299,6 tonn
• Heildarframleiðsla kindkjöts
(kjötígilda) er þá; 10.185+
8.299,6 = 18.484,6 tonn
Á bls. 21 í skýrslu Sigrúnar og
Stefáns segir, sjá töflu 9:
,,Eins og tafla 9 gefur til kynna
nam heildarlosun gróðurhúsa-
lofttegunda frá sauðfjárrækt á
Íslandi 294,1 Gg CO2- ígilda
árið 2015 miðað við þær
forsendur sem hér er gengið
út frá.“
Enn fremur segir:
,,Árið 2015 nam framleiðsla
lambakjöts (=kindakjöts) sam-
tals 10.185 tonnum sem þýðir
að kolefnisspor greinarinnar
frá vöggu að hliði var 28,6 kg
kolefnisígilda á hvert framleitt
kg lambakjöts.“
Þegar búið er að draga frá 15,7 Gg
vegna ,,...leiðréttingar“ eldsneytis-
notkunar verður heildarlosun frá
sauðfjárrækt: 291,4- 15,7= 275,7
Gg. Þegar búið er að reikna leið-
réttingu er losunin GHL, kg/kg =
275,700/18.484,6 = 14,92, lækkar
úr 28,6 kg í 14,92 kg.
Losun glaðlofts N2O
Spyrja má hvort rétt sé að reikna
losun glaðlofts frá sauðfé til gjalda
í þessu bókhaldi, þar sem það eyðist
á 15 til 20 árum, sjá grein Þórarins
Magnússonar í Bændablaðinu í
apríl 2020. Segja má að glaðloftið
sé hluti af hringrás. Sólarljósið
bindur koldíoxíð og fleiri efni í
beitarplöntum. Sauðkindin bítur
grasið, framleiðir kjöt en glaðloft fer
út í andrúmsloftið, en minna en áður
vegna þess að framleiðni í sauð-
fjárrækt er meiri en áður. Þetta er
umhverfisvæn hringrás, sem skilar
fæðu en eykur ekki við mengun.
Er ekki hér um samskonar hringrás
að ræða eins og orkuframleiðslu
með vatnsafli? Sólarljósið leiðir til
uppgufunar vatns, sem fellur sem
rigning á hálendinu. Það er virkjað
í vatnsaflsvirkjun. Hringrás, sem
annars vegar framleiðir kjöt og hins
vegar raforku. Raforka framleidd
með vatnsafli er vistvæn, sam-
kvæmt okkar skilgreiningu. Er þá
ekki kindakjöt það líka?
Við þessar hugleiðingar má bæta
að nær öll orka sem sauðkindin
notar við framleiðsluna er sólar-
orka! Einnig er rétt að benda á að
sauðkindin ,,moltar“ grasið og skil-
ur eftir sig áburð, sem hjálpar til við
að skapa grunn fyrir afurðir næsta
árs. Þess er ekki gætt við útreikn-
inga á kolefnisspori sauðfjárafurða
að áburðurinn eykur uppskeru.
Tilvitnanir.
• Ásbjörn Jónsson, Irek
Klonowski, Elsa Dögg
Gunnarsdóttir og Hafsteinn
Hafsteinsson 2015. Aukin
nýting hliðarafurða
sauðfjárslátrunar, lokaskýrsla.
Sjá Frey 7. 99. árg. 2003
• Birna Sigrún Hallsdóttir
og Stefán Gíslason 2017.
Sauðfjárrækt og loftlagsmál.
Fjölrit 24 bls.
• Sveinn Hallgrímsson1980.
Ársrit RN 1979-80. Frjósemi
og hagkvæmni sauðfjárræktar
• Sveinn Hallgrímsson 1981:
Framleiðslukostnaður ullar.
Freyr 77; 823 - 825
• Sturla Friðriksson 1973. Líf
og land. Um vistfræði Íslands;
Varði. 263 bls.; Bls 158 og
173
• Þórarinn Magnússon 2020.
Huppa, Surtla og himinhvolfið.
Bændablaðið 23. apríl 2020
Greinarhöfundar.
Sveinn Hallgrímsson
er dr. scient í kynbótafræði og
fyrrverandi ráðunautur í
sauðfjárrækt.
Eyjólfur Kristinn
hefur Bs í líffræði frá HÍ
og er kennari við LbhÍ
Á FAGLEGUM NÓTUM
Sveinn Hallgrímsson. Eyjólf Kristinn Örnólfsson.
Meðal ullarþungi á kind er 2,3 kg /0,64 = 3,59 kg kjötígilda/á
Gæra; (16x0,22 á lamb)/0,64. = 5,50 kg kjötígilda á lamb
Aðrar afurðir
Svið = 1,30 kg kjötígilda á lamb
Hjörtu og nýru = 0,27 kg kjötígilda á lamb
Lifur = 0,42 kg kjötígilda á lamb
Mör (nýrmör og netja) = 1,25 kg kjötígilda á lamb
Eistu (1) = 0,15 kg kjötígilda á lamb
Blóð (10 %) = 0,13 kg kjötígilda á lamb
Hálsæðar = 0,32kg kjötígilda á lamb
Samtals = 3,84 kg kjötígilda á lamb
Finnsk gæði sem henta vel
fyrir íslenskar aðstæður
VETRARBÚNAÐUR
HILLTIP
Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík
551 5464 / wendel.is