Bændablaðið - 20.08.2020, Page 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. ágúst 202044
Afurðaverð til sauðfjárbænda 2020
Árin 2016 og 2017 varð algjört
hrun á afurðaverði sauðfjár-
bænda. Ástæðurnar voru af
ýmsum toga. Einkum verðfall á
erlend um mörkuðum og óhagstæð
gengis þróun. Afleiðingin kom m.a.
fram í óhóflegri birgðasöfnun
hjá sláturleyfishöfum og hruni í
afurðaverði til bænda.
Haustið 2016 lækkaði afurða
verð á lambakjöti um 9,1% og öðru
kindakjöti um 33,4%. Árið eftir
lækkaði afurðaverðið aftur um 30%
og verð á öðru kindakjöti stóð í stað.
Hrun í afkomu á erlendum mörkuð
um fyrir kindakjöt og hliðarafurðir
þeirra samhliða óhagstæðri geng
isþróun var meginástæðan fyrir
þessari þróun. Landssamtök sauð
fjárbænda beittu sér fyrir aðgerð
um sem myndu leiða greinina sem
fyrst út úr þessari stöðu. Einkum
var horft til aðgerða sem myndu
draga úr framleiðslu og jafnframt
taka á vandamálum í birgðasöfnun.
Ríkisstjórnin kom til móts við hluta
kjaraskerðingar bænda í upphafi árs
2018 og farið var í sérstök átaks
verkefni í útflutningi 2016–2017
og 2017–2018. Eigin legar aðgerð
ir vegna stöðunnar komu ekki til
framkvæmda fyrr en endurskoðun
sauðfjársamnings lauk í janúar
2019. Inn í þann samning sóttust
sauðfjárbændur eftir verkfærum
sem gætu til framtíðar hjálpað til
við að takast á við ófyrirséða mark
aðsbresti. Fullyrða má að nær öll
landbúnaðarkerfi í heiminum eru
byggð upp með slíkum hætti.
Krafa um leiðréttingu á
afurðaverði
Stjórn Landssamtaka sauðfjár
bænda gaf út viðmiðunarverð
fyrir dilkakjöt haustið 2020. Þess
er krafist að bændur fái að lágmarki
132 kr/kg hækkun frá reiknuðu
meðalverði haustið 2019 að við
bættum þeim viðbótargreiðslum
sem greiddar hafa verið. Það
gerir reiknað meðalverð um
600 kr/kg.
Í tillögu Landssamtaka sauð
fjárbænda er gert ráð fyrir að það
fari fram leiðrétting á afurða
verði á næstum tveimur árum
þannig að haustið 2021 verði hér
greitt sambærilegt afurðaverð
og var haustið 2013 að teknu
tilliti til verðlagsbreytinga.
Samkvæmt 8. grein búvöru
laga (99/1993) er Lands
samtökum sauðfjárbænda heim
ilt að gefa út viðmiðunarverð á sauð
fjárafurðum. Viðmiðunarverðið
er hins vegar ekki bindandi fyrir
kaupendur afurða. Verðlagning
sauðfjárafurða er frjáls á öllum
sölustigum.
Hefði afurðaverð fylgt almennri
þróun verðlags frá árinu 2014 þá
ætti afurðaverð nú í haust að vera
690 kr/kg.
Lægsta afurðaverð í Evrópu
Landssamtök sauðfjárbænda hafa
tekið saman gögn sem sýna að það
afurðaverð sem íslenskir sauðfjár
bændur fengu greitt á síðasta ári er
það lægsta sem finnst í Evrópu.
Evrópusambandið gefur vikulega
út yfirlit yfir afurðaverð allra aðildar
landa í skýrslu sem nefnist. Weekly
price report on Heacy Lamb and
Light Lamb price in the EU. Um er
að ræða afurðaverð til bænda (farm
gate price).
Lægsta afurðaverð er greitt til
bænda í Rúmeníu sem fá 3,03 evrur/
kg sem er um 485 kr/kg (miðað við
að gengi evru sé 160). Hæsta afurða
verð er greitt til bænda í Frakk landi
sem fá 6,55 evrur/kg sem er um
1.048 kr/kg. Afurðaverð til íslenskra
sauðfjárbænda haustið 2019 með
viðbótargreiðslum var 468 kr/kg.
Lambakjöt hefur ekki fylgt
almennri verðþróun
Landssamtök sauðfjárbænda hafa
tekið saman gögn sem sýna það að
verð á lambakjöti til neytenda hefur
ekki fylgt almennri verþróun. Frá
árinu 2014 hefur verðlag hækkað
um 12,7% á meðan smásöluverð á
lambakjöti hefur aðeins hækkað um
2,7%.
Samkvæmt verðlagseftirliti ASÍ
kostaði stöðluð matarkarfa í sept
ember 2019 að meðaltali 24.360
kr. Þar af voru 2 kg af lambalæri
sem kostaði 2.607 kr., eða 1.303 kr/
kg. Þessi sama matarkarfa hefði við
upphaf árs 2016 kostað 22.181 kr
og lambalærið kostað 1.348 kr/kg
miðað við þróun vísitölu og að sama
skapi hefði í júlí 2020 matar karfan
kostað 24.999 kr. og lambalæri
kostað 1.385 kr/kg. Raunhækkun
á lambalærinu er 36 kr/kg en hefði
verð á lambalæri fylgt verðlagsþró
un þá ætti það að kosta 1.520 kr/
kg, sem væri hækkun um 171 kr/kg.
Mismunurinn er um 135 kr/kg sem
er gott betur en sú krónutöluhækk
un sem Landssamtök sauðfjárbænda
hafa lagt fram í viðmiðunarverði
haustsins.
Bændur vilja sanngjörn viðskipti
Samkvæmt greiningu Landssamtaka
sauðfjárbænda er hluti bænda af
smásöluverði aðeins 37%. Í ná
grannalöndum okkur er hlutur
sauðfjárbænda að jafnaði 45–50%
af smásöluverði.
Landssamtök sauðfjárbænda
fylgjast með þróun smásöluverðs
með verðlíkani sem samtökin
hafa þróað. Samkvæmt verðlíkani
Landssamtaka sauðfjárbænda er
smásöluverð á lambakjöti miðað við
kaup á heilum skrokk 1.264 kr/kg.
Meðalafurðaverð haustið 2019 með
viðbótargreiðslum var 468 kr/kg. Því
er hlutur bóndans af smásöluverði
37%. Ef hlutur íslenskra sauðfjár
bænda af smásöluverði væri t.d. 47%
þá væri afurðaverð 607 kr/kg miðað
við að meðal smásöluverð á heilum
skrokk sé 1.264 kr/kg.
Á FAGLEGUM NÓTUM
Unnsteinn Snorri Snorrason
framkvæmdastjóri
Landssamtaka sauðfjárbænda
unnsteinn@bondi.is
Á myndinni hér fyrir ofan má sjá þróun afurðaverðs allt frá árinu 2007. Landssamtök sauðfjárbænda reikna árlega
út meðal afurðaverð hvers árs. Útreikningarnir byggja á landsmeðaltali í vikum 34–45. Vægi einstakra vikna í
verðinu byggir á sláturmagni á landinu öllu og sömuleiðis kjötmati á landinu öllu eftir einstökum vikum hvers
árs. Vægi afurðastöðva í landsmeðaltali er síðan eftir hlutdeild þeirra í slátrun á tímabilinu í heild. Raunverð sem
einstakar afurðastöðvar greiða er síðan breytilegt, enda er niðurstaða kjötmats hjá hverri fyrir sig ekki sú sama og
landsmeðaltalið, né heldur sláturmagn í einstökum vikum. Af sömu ástæðum er meðalverð sem einstakir bændur
fá líka breytilegt.
Myndin sýnir reiknað meðal afurðaverð fyrir dilkakjöt á árunum 2013–2019 og útgefið viðmiðunarverð Landssamtaka
sauðfjárbænda fyrir árin 2020–2021. Tómi hluti stöplanna sýnir mun á afurðaverði hvers árs og framreiknuðu
afurðaverði haustsins 2013 miðað við verðlagsþróun mælda af Hagstofu Íslands.
Myndin sýnir afurðaverð innan aðildarlanda Evrópusambandsins í viku 27 (28.6-4.7).
Hagstofa Íslands notar vísitölur til þess að fylgist með þróun verðlags. Á
myndinni hér fyrir ofan má sjá þróun á vísitölu neysluverðs frá árinu 2016 borið
saman við vísitölu lambakjöts, nýtt eða frosið, sem er ein af þeim fjölmörgu
undirvísitölum sem vísitala neysluverðs byggir á.
Hér má sjá hvernig verðlíkan LS greinir smásöluverð á heilum skrokk í júlí
2017. Skrokkhlutföll eru byggð á eftirfarandi heimild: Ólafur Reykdal & Guðjón
Þorkelsson, 1994. Efnasamsetning og nýting lambakjöts. Fjölrit Rala nr. 176.
Verðhlutföll milli skrokkhluta eru byggð á verðkönnun í smásölu. Smásöluverð
á heilum skrokk er þannig reiknað úr frá þróun á smásöluverði á læri.