Bændablaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. ágúst 2020 45
Áhættumat erfðablöndunar gefið
út af Hafrannsóknastofnun árið
2017 felur í sér að horfa, gera ekki
neitt og mæla síðan tjónið. Það
gengur út á að leggja mat á hvort
atburður hafi átt sér stað og grípa
þá til aðgerða. Einu viðbrögðin
eftir að ljóst er að eldislax hefur
sloppið er að veiða við sjókvíar.
Í Noregi þar sem búið er að glíma
við áratuga langa erfðablöndun í
villtum laxastofnum er áherslan á
að koma í veg fyrir að eldislax nái
að hrygna í veiðivötnum með því að
fjarlægja fiskinn. Gróflega má skipta
veiðum á strokulaxi í fjögur þrep:
• Veiðar við eldiskvíar.
• Veiðar í sjó utan eldissvæða.
• Hindra uppgöngu á ósasvæðum.
• Fjarlægja eldislax úr veiðivatni
um haustið fyrir hrygningu.
Veiðar við eldiskvíar
Fyrstu viðbrögð eftir að eldislax
sleppur er að reyna að veiða hann
upp við sjókvíar. Að öllu jöfnu
leitar strokulax strax frá sjókvíum
og kemur því í mjög litlum mæli
fram í veiðum við sjókvíar. Veiðar
við sjókvíar eftir að uppgötvast hefur
gat á netpoka gefa því engar eða
litlar upplýsingar um hvort eða í hve
miklu mæli eldislax hefur sloppið.
Í raun er hér um að ræða hreina
sýndarmennsku og tilkynningar
um að enginn eldislax hafi sloppið
byggja á vafasömum forsendum.
Veiðar í sjó utan eldissvæða
Almennt hafa veiðar á eldislaxi í
sjó ekki skilað nægilega miklum
árangri og eru jafnframt umdeildar
og umræða er að aukast um að
hugsanlega sé skaðinn meiri en
ávinningurinn. Líkur á að veiða
eldislax í sjó er háður fiskstærð
og tímasetningu sleppingar. Lítið
veiðist af seiðum sem sleppa en
endurheimtur aukast síðan með
aukinni fiskstærð. Vegna þeirrar
hefðar að veiða ekki lax í sjó á
Íslandi þá eru ekki miklar líkur á eða
skynsamlegt að þessi aðferð verði
notuð hér á landi, sérstaklega á þeim
tíma sem laxfiskar eru í mestum mæli
í sjó.
Hindra uppgöngu á ósasvæðum
Með notkun gildru í fiskistiga eða með
því að þvergirða veiðiár er mögulegt
að hindra og flokka frá eldislax og
hleypa villtum laxi upp í ána. Þessi
aðferð er tiltölulega kostnaðarsöm
en hefur í örfáum tilfellum verið
beitt erlendis. Skv. upphaflegu
áhættumati erfðablöndunar gefið út
af Hafrannsóknastofnun árið 2017
er ekki gert ráð fyrir að koma fyrir
gildru eða öðrum búnaði við árvaka
til að fanga og flokka frá eldislax.
Það á að horfa á slysin gerast í beinni
útsendingu með upptöku í árvökum án
þess að gripið verði strax til aðgerða.
Einhverja bakþanka hafa höfundar
fengið, þar sem með nýju og uppfærðu
áhættumati erfðablöndunar er gert ráð
fyrir að hindra og fjarlægja eldislax
í tilfelli stórra slysasleppinga. Hvað
er átt við með stórri slysasleppingu
er óljóst en fjallað verður nánar um
þessa breytingu í seinni grein.
Fjarlægja eldislax úr veiðivatni
Eins og gert hefur verið grein fyrir í
fyrri greinum er það verklag viðhaft
í Noregi að fjarlægja eldislax úr
veiðiám fyrir hrygningu á haustin
og byggir á eftirfarandi:
• Þekktur uppruni: Þegar
slysaslepping á sér stað tekur
Fiskistofa ákvörðun hvort og þá
í hve miklum mæli farið verður í
aðgerðir til að fjarlægja strokulax
úr veiðiám. Laxeldisfyrirtæki
sem er eigandi strokulaxins er
gert skylt að greiða kostnaðinn
og óháður fagaðili er fenginn
til að framkvæma vöktunina og
fjarlægja eldislaxinn.
• Óþekktur uppruni: Fjarlægja
eldislax úr veiðiám af óþekktum
uppruna, framkvæmt af óháðum
fagaðila og kostað af sjóði sem
eldisfyrirtækin fjármagna.
Aðallega er farið í veiðiár
þar sem talið er að mest sé af
strokulaxi.
Af hverju eru tillögur Fiskistofu
hunsaðar?
Starfshópur um stefnumótun í fiskeldi
lagði til að áhættumat erfðablöndunar
yrði notað árið 2017 skv. tillögum
Hafrannsóknastofnunar. Í meðferð
málsins við undirbúning og gerð
breytinga á lögum um fiskeldi var
bent á og mælt með norsku leiðinni.
Í greinargerð Fiskistofu vegna
beiðni um upplýsingar í tengslum
við stefnumótun starfshóps í fiskeldi
sem fylgdi með í umsögn Fiskistofu
með fiskeldisfrumvarpinu vorið
2018 kemur eftirfarandi fram: ,,Ef
eldisfiskar finnast í veiðivötnum má
skipuleggja aðgerðir til að fjarlægja
þá, ef það er mögulegt, eða koma í
veg fyrir að fleiri eldisfiskar komist í
viðkomandi veiðivatn. Slíka vöktun
gæti Hafrannsóknastofnun annast í
samráði við Fiskistofu,“ Af hverju
voru tillögur Fiskistofu og annarra
fagaðila hunsaðar? Einnig er spurt;
af hverju er gert ráð fyrir að fjarlægja
eldislax í tilfelli stórra slysasleppinga
í nýju og uppfærðu áhættumati
erfðablöndunar sem gefið var út á
þessu ári?
Tvö verkfæri
Í áhættumati erfðablöndunar er lagt
til að nota tvö viðmið til að virkjuð
verði viðbrögð sem eru:
i. Hlutfall eldislaxa í veiðivötn-
um og er miðað við 4%.
ii. Erfðablöndun, en þar er við-
miðið óskilgreint og óljóst.
Ofangreind viðmið þarf stofnunin að
styðjast við þegar tillögur eru lagðar
fram um viðbrögð. Þau mynda grunn
að ákvarðanatöku um aðgerðir til að
draga úr umhverfisáhrifum og því
grunnurinn að því að áhættumat
erfðablöndunar skili sínu hlutverki.
Vandamálið er að viðmiðin byggja
á mjög veikum grunni eins og áður
hefur komið fram og stofnunin hefur
ekki gert grein fyrir framhaldi eða
frekari útfærslum.
Hvernig á að vinna?
Hafrannsóknastofnun stendur frammi
fyrir eftirfarandi viðfangsefnum
í sinni ráðgjöf til stjórnvalda sem
þýðir að það:
• Verður ekki hægt að reikna út
hlutfall eldislaxa nema í örfáum
veiðivötnum, ef fylgt er tillögum
áhættumats erfðablöndunar.
• Er ekki alltaf samhengi á milli
hlutfalls eldislaxa í veiðivatni
og erfðablöndunar.
• Er ekki til neitt viðmið fyrir
erfðablöndun.
Hvernig ætlar Hafrannsóknastofnun
að veita stjórnvöldum ráðgjöf
þegar grundvallar forsendur fyrir
viðmið til ákvörðunartöku vantar?
Verða ráðleggingar byggðar á
geðþóttarákvörðunum?
Valdimar Ingi Gunnarsson
Höfundur er sjávarútvegs-
fræðingur og hefur m.a. unnið
við ýmis mál tengd fiskeldi í
rúm þrjátíu ár.
Áhættumat erfðablöndunar og viðbrögð við slysasleppingum
Valdimar Ingi Gunnarsson.
Syðri-Ófæra.
FISKNYTJAR&NÁTTÚRA
Óskum e�ir landi sem hentar vel �l ræktunar e�irfarandi skógargerða:
- Asparskóga; ríkt graslendi og annað frjósamt land, t.d. framræst land og
lúpínubreiður
- Birkiskóga; flestar landgerðir
- Greni- og furuskóga; mólendi og melar
- Lerkiskóga; mólendi og melar norðan- og austanlands
Óskað er e�ir löndum með viðunandi aðgengi �l plöntunar, að veðurfar hen�
trjárækt, að hægt sé að koma við jarðvinnslu og að ekki sé hæ�a á ágangi bú�ár.
Lönd um allt land eru áhugaverð. Stærð samhangandi ræktunarlands helst yfir
100 hektara og það þarf að liggja fyrir að það fáist samþykkt í skipulagi sem
skógræktarland og að framkvæmdarleyfi fáist.
Það er markmið Kolviðar að gróðursetning í samhangandi ræktunarland eigi sér
stað innan fimm ára.
Óskað er e�ir að áhugasamir landeigendur sendi tölvupóst á kolvidur@kolvidur.is
eða hafi samband í síma 551-8150.
Markmið Kolviðar er binding kolefnis í gróðri og jarðvegi í þeim tilgangi að draga úr styrk koltvíoxíðs
(CO2) í andrúmslofti. Sjóðurinn vinnur að þessu markmiði með því m.a. að:
a. Gefa fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum tækifæri til þess að binda kolefni er vegur á
móti losun þeirra.
b. Fjármagna aðgerðir til bindingar kolefnis með landgræðslu og skógrækt.
c. Stuðla að verndun jarðvegs og gróðurs.
d. Stuðla að aukinni vitund almennings og fyrirtækja um losun gróðurhúsalofttegunda.
e. Draga úr heildar losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi.
Kolviður óskar e�ir leigu á landi �l skógræktar
Bænda
10. september
Sími: 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
41,9% fólks
á landsbyggðinni
les Bændablaðið
21,9% 41,9%
á landsbyggðinni
á höfuðborgarsvæðinu
29,2%
landsmanna lesa
Bændablaðið
Lestur Bændablaðsins: BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND
EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
Heimild: Prentmiðlakönnun Gallup, okt.-des. 2019. Aldur 12-80 ára.
Hvar auglýsir þú?