Bændablaðið - 20.08.2020, Qupperneq 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. ágúst 2020 49
Vestið er prjónað með stroffi og
klauf í hliðum.
Stærðir: S (M) L (XL) XXL (XXXL)
- Yfirvídd: 80 (88) 96 (106) 118 (130) cm
Garn: DROPS SKY (fæst í Handverkskúnst)
- 150 (150) 150 (200) 200 (200) g litur nr 18, dökk-
bleikur
Prjónfesta: 20 lykkjur x 26 umferðir í sléttu prjóni
= 10x10 cm.
Prjónar: Hringprjónn 80 cm nr 4,5 og hringprjónn
40 og 80 cm nr 3,5
GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.
ÚRTAKA:Til þess að reikna út hvernig fækka eigi
lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð
(t.d. 88 lykkjur), mínus kantlykkjum að framan í
garðaprjóni (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkju-
fjölda sem eftir er með fjölda úrtöku sem á að gera
(t.d. 8) = 9,8. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað
með því að prjóna ca 9. og 10. hverja lykkju slétt
saman (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur)
VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og
saumað saman í lokin. Síðan eru prjónaðar upp
lykkjur fyrir stroff í kringum handveg og háls.
BAKSTYKKI: Fitjið upp 88 (96) 104 (116) 128 (144)
lykkjur á hringprjón nr 3,5. Prjónið 1 umferð brugð-
ið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu
þannig: Prjónið 5 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá
útskýringu að ofan, *prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur
garðaprjón*, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru
eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með
5 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram í 3
cm. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um
8 (8) 8 (10) 10 (14) lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA =
80 (88) 96 (106) 118 (130) lykkjur. Prjónið 1 umferð
brugðið frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón nr 4,5.
Prjónið slétt prjón fram og til baka með 5 lykkjum
garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 34
(35) 36 (37) 38 (39) cm, fellið af fyrir handveg í
byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið
af 4 (5) 6 (7) 8 (9) lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0
(1) 2 (3) 4 (6) sinnum og 1 lykkju 2 (2) 2 (3) 5
(5) sinnum = 68 (70) 72 (74) 76 (78) lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1
kantlykkju garðaprjón í hvorir hlið. Þegar stykkið
mælist 50 (52) 54 (56) 58 (60) cm, fellið af fyrir
miðju 30 (30) 32 (32) 34 (34) lykkjur fyrir háls-
máli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið
síðan af 1 lykkju í næstu umferð við hálsmál = 18
(19) 19 (20) 20 (21) lykkjur eftir fyrir öxl. Haldið
áfram í sléttu prjóni og 1 kantlykkju garðaprjón
í hvorri hlið þar til stykkið mælist 20 (21) 22 (23)
24 (25) cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir
handveg. Fellið af með sléttum lykkjum (passið
uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur).
Stykkið mælist alls 54 (56) 58 (60) 62 (64) cm
frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina alveg eins.
FRAMSTYKKI: Fitjið upp 88 (96) 104 (116)
128 (144) lykkjur á hringprjón nr 3,5. Prjónið
1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er
prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur
í garðaprjóni, *prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur
garðaprjón*, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru
eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið
með 5 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona
áfram í 3 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu
og fækkið um 8 (8) 8 (10) 10 (14) lykkjur jafnt yfir
= 80 (88) 96 (106) 118 (130) lykkjur. Prjónið 1
umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón
nr 4,5. Prjónið slétt fram og til baka með 5 lykkjum
garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 34
(35) 36 (37) 38 (39) cm, fellið af fyrir handveg í
byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af
4 (5) 6 (7) 8 (9) lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0 (1) 2 (3)
4 (6) sinnum og 1 lykkju 2 (2) 2 (3) 5 (5) sinnum
= 68 (70) 72 (74) 76 (78) lykkjur. Haldið áfram
fram og til baka í sléttu prjóni og 1 kantlykkju
garðaprjón í hvorir hlið. Þegar stykkið mælist 44
(46) 47 (49) 50 (52) cm, setjið miðju 16 (16) 18
(18) 18 (18) lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl
er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í
hverri umferð við hálsmál þannig: Fellið af 3 lykkjur
1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 1 (1) 1 (1) 2
(2) sinnum = 18 (19) 19 (20) 20 (21) lykkjur eftir
fyrir öxl. Haldið áfram í sléttu prjóni og 1 kantlykkju
garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 20
(21) 22 (23) 24 (25) cm frá þar sem lykkjur voru
felldar af fyrir handveg.
Fellið af með sléttum lykkjum (passið uppá að affell-
ingarkanturinn verði ekki stífur). Stykkið mælist alls
54 (56) 58 (60) 62 (64) cm frá öxl og niður. Prjónið
hina öxlina alveg eins.
FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við
affellingarkantinn. Byrjið undir ermi og hliðarsaum
niður í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði
flatur – skiljið eftir ca 18 cm fyrir klauf. Endurtakið
á hinni hliðinni.
KANTUR Í HÁLSI:
Byrjið frá réttu við annan axlasauminn. Prjónið upp
með stuttum hringprjón nr 3,5 ca 100 til 120 lykkjur
(meðtaldar 16 (16) 18 (18) 18 (18) lykkjur af þræði)
innan við 1 lykkju í kringum allt op fyrir hálsmál
(lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4).
Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í
2½-3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar
lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
KANTUR Í KRINGUM HANDVEG:
Byrjið frá réttu við hliðarsaum undir handveg. Prjónið
upp með stuttum hringprjón nr 3,5 ca 96 til 120
lykkjur í kringum allan handveginn (lykkjufjöldinn
verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff (=
2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 2 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og
brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hinn
kantinn á ermi alveg eins.
Prjónakveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst, www.garn.is
Rose Blush-vesti
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
1 4 9 2
9 6 3 8
4 7 5 6
3 8 1
8 5 4 6 9 3
2 5 7
9 8 7 1
6 3 8 2
5 7 1 4
Þyngst
6 8 2 4 9
5 7 4 3 6
9 7 5
1 9 5 6
8 2
8 3 1 7
5 4 1
8 4 1 2 3
3 1 9 7 4
3 7 8 5
4 3
5 9 2
3 6 9 7 4 2
4 2
8 2 6 5 7 9
7 4 1
6 8
1 8 6 2
7
3 1
8 5 4
2 1
5 9 6
7 8
6 1 3
7 4
2
Fór á kajak
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Tara Kristín er 11 ára fótbolta
stelpa sem fæddist á Ísafirði í
maí árið 2009. Tara Kristín bjó
á Patreksfirði fyrstu 7 árin en
hefur síðan búið á Bifröst, í Kaup
mannahöfn og er nú nýflutt til
Reykjavíkur.
Tara Kristín er listræn og hefur
gaman af því að teikna og mála og
eru ófá verkin eftir hana á heimilinu.
Hún er elst fjögurra systkina sem
getur stundum tekið á en að hennar
sögn er það nú samt oftast gaman.
Nafn: Tara Kristín Aronsdóttir.
Aldur: 11 ára.
Stjörnumerki: Naut.
Búseta: Reykjavík.
Skóli: Háteigsskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Íþróttir, sund og frímín-
útur.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Köttur.
Uppáhaldsmatur: Grjónagrautur.
Uppáhaldshljómsveit: Hatari.
Uppáhaldskvikmynd: Mean Girls.
Fyrsta minn
ing þín? Þegar
við fjölskyldan
og amma
Stína gistum
á Laxárbakka
á meðan við
biðum eftir því
að Emil Tindri,
yngri bróðir
minn, fæddist.
Æfir þú
íþróttir eða
spilarðu á
hljóð færi? Ég æfi fótbolta og spilaði
einu sinni á píanó.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Ég ætla að vinna í fata-
búð þegar ég verð stór.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Það er að fara í stærstu
vatnsrennibrautina í Lalandia í
Danmörku.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt
í sumar? Ég er búin að gera margt
skemmtilegt. Ég fór vestur á Patró
en þar fór ég til dæmis á kajak, í sund
og fékk síðan að vera ein hjá Diddu
frænku í nokkra daga.
Næst » Ég skora á vin minn, Guðna
Geir, að svara næst.