Morgunblaðið - 01.08.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 01.08.2020, Blaðsíða 6
NÝTT Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is GÁMAFESTINGAR Einföld lausn til að tryggja að gámar fjúki ekki. Gámafestingar og undirstöður fyrir flutningagáma Tryggðu gámnum þínum góða festu á undirstöðu eða steypt plan 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 2020 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Sigurður G. Guðjónsson hæsta- réttarlögmaður segir lög nr. 57/2020 um tímabundnar heimildir til fjár- hagslegrar endurskipulagningar hafa mikla þýðingu fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu sem þegar hafi orðið fyrir miklu tekjutapi og verði enn um ókomna tíð. „Nú höfum við fengið lagaramma til þess að koma ferðaþjónustufyrir- tækjum, eða þeim sem tapa miklu fé [vegna faraldurs- ins] í skjól til þess að endurskipu- leggja fjárhaginn. Ég tel að þetta framtak Fyrir- tækja í hótel- og gistiþjónustu (FHG) að fá gott álit á réttarstöðu þeirra í kjölfar faraldursins hafi gert það að verkum að það eru almennt miklu rólegri samskipti milli ferðaþjónustufyrir- tækja og fjármálafyrirtækja,“ segir Sigurður. Vísar hann til álitsgerðar sem Við- ar Már Matthíasson, fyrrverandi hæstaréttardómari og rannsóknar- prófessor við lagadeild Háskóla Ís- lands, vann fyrir FHG, en Viðar Már er einn helsti sérfræðingur landsins í kröfurétti. Lögbann á Íslandsbanka „Ég held að menn séu, að minnsta kosti í hluta þess geira sem ég þekki, að vinna miklu meira saman á flest- um vígstöðum. Einstaka leigusali var þó með tilburði til þess að ganga í ábyrgðir sem bankarnir höfðu veitt til tryggingar réttum efndum á leigusamningum. En það tókst að stöðva það, þá m.a. með lögbanni á hendur Íslandsbanka,“ segir hann. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins vísar hann til þess að fast- eignafélagið Íþaka hafi sem leigusali viljað ganga að ábyrgð Íslandsbanka á leigugreiðslum Íslandshótela vegna hótels í Katrínartúni, stærsta hóteli landsins. Aðili tengdur Íþöku hafði uppi sams konar kröfur gagnvart Mið- bæjarhótelum ehf. (CenterHótelin) vegna Laugavegar 95-99. En sátt náðist áður en lögbannsbeiðni á hendur Íslandsbanka var tekin fyrir. Ef gengið er að ábyrgð fær leigu- salinn greidda leigu í samræmi við ábyrgðina en til verður að sama skapi gjaldfallin krafa bankans á hendur þeim sem hann veitti ábyrgðina. Gjaldfelling einnar kröfu getur valdið gjaldfalli allra krafna og því var mikilvægt að geta stöðvað greiðslu ábyrgða með lögbanni. Settir í slæma stöðu Spurður til hvaða aðgerða leigu- salar hefðu getað gripið í slíkum til- vikum segir Sigurður að ásamt því að ganga að eignum hafi þeir getað sett leigutakann í mjög slæma stöðu, þar til lög nr. 57/2020 tóku gildi. „Eftir gildistöku laga nr. 57/2020 er hægt beita greiðsluskjóli og frysta allar greiðslur í ár. Ferða- þjónustan er því í dag orðin til- tölulega vel í stakk búin verkfæra- lega séð til þess að glíma við fjármagnið. Það er alveg ljóst að ef þetta heldur áfram í þessum farvegi [vegna faraldursins] þurfa allir að gefa eitthvað eftir. Og eigendur ferðaþjónustufyrirtækja þurfa líka hugsanlega að koma inn með nýtt fjármagn í reksturinn,“ segir Sig- urður, sem telur æskilegt að við endurskipulagninguna verði fylgt sama verklagi og tíðkast í sjórétti. Málsaðilar taki allir á sig tjón „Þ.e.a.s. að þegar það verður sam- eiginlegt sjótjón þarf að dreifa því eftir ákveðnum reglum á þá sem eru aðilar að tjóninu. Það getur þá falist í því að eigendur fyrirtækja komi með nýtt fé, lánveitendur afskrifi eitthvað af kröfum sínum og svo hef- ur ríkið auðvitað hjálpað til með því að vera með hlutabótaleið og greiða laun í uppsagnarfresti og fleira. Ég held að þetta sé í fyrsta skipti á Íslandi sem menn eru komnir með verkfæri til að vinna úr efnahags- legu hruni á þann átt sem er hugs- unin með t.d. greiðslustöðvun og nauðasamningum. Þ.e. að það sé ekki óhjákvæmilegt að allir fari á hausinn, öll verðmæti og þekking glatist og að menn þurfi að byrja upp á nýtt, heldur sé reynt að halda verðmætunum og þekkingunni í fyr- irtækjunum. Þá að því gefnu að þeir sem hafa þá þekkingu geti lagt eitt- hvað af mörkum líka.“ Sigurður kveðst aðspurður hafa komið að mörgum slíkum viðræðum eftir efnahagshrunið 2008. Málin séu nú í allt öðrum og betri farvegi. Mikil breyting frá hruninu „Á þessu er mikill munur vegna þess að eftir setningu laganna [57/ 2020] er réttarstaðan allt önnur og betri. Eftir hrunið 2008 var meira hugað að lagasetningu til hagsbóta fyrir kröfuhafa og þeim gert auðvelt að knýja skuldara í þrot. Þannig gat lánardrottinn komið fram gjaldþroti ef skuldari lýsti því ekki formlega yfir að hann gæti greitt skuld sína við viðkomandi lánardrottin þegar hún félli í gjalddaga, eða innan skamms tíma, ef hún var þegar fallin í gjalddaga. Ég held að fáir skuld- arar hafi getað gefið slíka yfirlýs- ingu eftir efnahagshrunið 2008 og í raun heldur ekki eftir faraldurinn.“ Gæfuspor að leita til Markúsar Sigurður segir lagasmíði Mark- úsar Sigurbjörnssonar, fv. forseta Hæstaréttar, hafa þegar komið að gagni og veitt nokkrum ferðaþjón- ustufyrirtækjum greiðsluskjól. „Núverandi ríkisstjórn bar gæfu til að leita til sérfræðinga eins og Markúsar, sem samdi frumvarp það sem varð að lögum nr. 57/2020. Ef menn skoða þróunina í gjaldþrota- rétti á Norðurlöndunum, meðal ann- ars í Noregi, kemur í ljós að Norð- menn settu svipaðar reglur í maí til þess að bjarga ferðaþjónustunni þar í landi. Ríkisstjórn Noregs brást við far- aldrinum með svipuðum hætti og ís- lenska ríkisstjórnin, en hugmyndin er að reyna að halda í þekkingu þeirra sem hafa byggt þjónustuna upp og gera þeim kleift að hafa þá einhver vopn til þess að glíma við lánardrottnana og geta komið þeim í skjól. Það hefur mikla þýðingu að geta komist í eins árs greiðsluskjól, þótt framkvæma þurfi ákveðna vinnu á því tímabili og kannski ná samkomulagi við kröfuhafa, án þess að það verði að kalla til her lögfræð- inga eða endurskoðenda.“ Samningsstaðan nú allt önnur  Hæstaréttarlögmaður segir fyrirtæki í betri stöðu til að semja við kröfuhafa en eftir hrunið  Ný gjaldþrotalög hafi mikla þýðingu  Leigusalar reyndu að taka til sín tvö hótel í miðborginni Morgunblaðið/Baldur Hótelturn Félagið Íþaka hugðist ganga að eign sinni á Höfðatorgi.Sigurður G.Guðjónsson Morgunblaðið/Árni Sæberg Opnað 2019 CenterHótelið á Laugavegi 95-99 í Reykjavík. Hönnun Eitt af herbergjunum á CenterHótelinu Laugavegi 95-99. Fram kom í Morgunblaðinu í gær að dæmi væru um að fjármálastofn- anir hefðu tekið til sín eignir ferða- þjónustufyrirtækja, bíla og tæki, vegna vangoldinna skulda. Spurður um slíka innheimtu seg- ir Sigurður ekki óeðlilegt að slíkt sé gert hjá félögum sem hafi engar tekjur og geti ekki lagt neitt af mörkum til endurskipulagningar rekstrarins. „Þá er best að þú farir á hausinn. Það er hagkvæmast fyrir alla. En reynsla mín er sú að enn sem kom- ið er hefur fjármálakerfið frekar verið viljugt til þess að vinna með fyrirtækjunum vegna þess að hags- munir þess eru auðvitað gífurlegir. Bankarnir hafa verið með varúðar- niðurfærslur vegna faraldursins og fært niður lánasöfn sín vegna þess- ara mála. Það er ekki gott fyrir neitt fjármálafyrirtæki að sitja uppi með fjölda hótela, gistihúsa, bílaleiga eða nokkurn skapaðan hlut vegna þess að það verða ekki til mikil verðmæti úr því. Verðmætin verða til í því að endurskipuleggja þann rekstur sem er til staðar í dag,“ segir Sigurður. Hann segir bankana gera ráð fyrir að ferðaþjónustan verði komin í fullan gang 2022. Bakslagið gegn veirunni hafi áhrif á væntingar um bata. En eins og sjá má á grafinu varð hrun í eftirspurn hjá hótelum. Stundum rétt að fara í þrot SAMDRÁTTUR Í FERÐAÞJÓNUSTU Greiddar gistinætur ferðamanna Þúsundir gistinátta frá júní 2019 til júní 2020 1.600 1.400 1.200 1.000 800 600 400 200 0 Heimild: Hagstofa Íslands Hótel og gistiheimili Vefsíður á borð við Airbnb Aðrar tegundir júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní 2019 2020

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.