Morgunblaðið - 01.08.2020, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 01.08.2020, Blaðsíða 48
Mörgum menningarviðburð- um hefur verið aflýst vegna nýrrar fjöldatakmörkunar og skyldubundinnar tveggja metra reglu. Má þar nefna kvikmyndahátíðina Skjald- borg, sem halda átti á Pat- reksfirði nú um helgina, Listahátíð Samúels í Selár- dal, einleikjahátíðina Act Alone, Hinsegin daga, djass- tónleika sem halda átti á Jómfrúnni í dag og tónlistar- hátíðina Innipúkann sem halda átti í gær og í dag. Hafa þá aðeins nokkrir viðburðir verið nefndir. Hljómsveitin Ljótu hálfvitarnir átti að halda þrenna tónleika um helgina en einn liðsmanna hennar, séra Oddur Bjarni Þorkelsson, sagði í samtali við blaðamann mbl.is fyrir helgi að vissulega væri súrt að geta ekki haldið tón- leika en þó ekki heimsendir. Þegar sveitin gæti aftur troðið upp yrði bara enn meira gaman. Menningarviðburðum aflýst vegna hertra fjöldatakmarkana LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 214. DAGUR ÁRSINS 2020 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.196 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is „Ég held að þessi deild sé góður stökkpallur fyrir mig enda sterkari deild en í Svíþjóð. Litháen er líka þjóð sem nýtur virðingar í körfuboltaheiminum. Þarna geng- ur allt út á körfuboltann því þetta er langvinsælasta íþróttin í landinu,“ segir Elvar Már Friðriksson, lands- liðsmaður í körfuknattleik, meðal annars í samtali við Morgunblaðið í dag um vistaskipti sín frá Svíþjóð til Litháen. Verður hann fyrstur íslenskra körfubolta- manna til að spila í litháísku deildinni en hann gerði samning við BC Siauliai. »41 Áhugavert fyrir Elvar að spreyta sig þar sem áhugi almennings er mikill ÍÞRÓTTIR MENNING Sighvatur Bjarnason sighvaturb@mbl.is „Það þarf að láta vel að honum og tala við hann,“ segir Marinó Fló- vent bakarameistari um súrinn sem hefur verið honum innblástur til þáttagerðar um súrdeigsbakstur sem birtir eru á streymisveitunni Youtube. Einfaldara en það sýnist Bökun á súrdeigi virðist að hluta til vera vísindi og listsköpun sem ekki er á allra færi. Marinó segir að efnafræðin sé vissulega slungin, en að í grunninn byggi þetta á lif- andi gerli sem nærist á hveiti. Við efnahvörf verður til gas sem lyftir brauðinu og gefur því hið sérstaka og einkennandi bragð. Baksturinn sjálfan segir hann ekki vera flók- inn þegar öll hráefni eru til staðar. „Þetta er aðallega yfirlega og að vera á staðnum,“ segir hann, en vinnan í kringum þetta sé ekki mikil. Úr grunninum má gera ýms- ar tegundir af brauðmeti, allt eftir því hvaða korni er blandað saman við og hvernig form er valið. „En þetta er lífvera sem þarf atlæti og alúð,“ segir Marinó og útskýrir að ótal afbrigði séu til af gerlinum, sem hver hafi sína sérstöðu og ein- kenni. Sé gerlinum haldið við sé hann í raun ódauðlegur, þar sem alltaf lifi eitthvað af þeim gamla við endurnýjun. Hann segir að margir hafi í sínum fórum gerla sem teljist áratugagamlir, en sjálf- ur hefur hann notast við sama ger- ilinn í fimm ár og hefur gefið hon- um nafnið „Malli“, í höfuðið á franskri sinnepskrukku sem er heimili hans. Mikill áhugi hér á landi Marinó segir að hér á landi sé heilmikið samfélag í kringum súr- deigsbakstur og hægt sé að tala um hálfgert æði. Hann bendir á að um 12 þúsund manns deili áhuga sínum á Facebook, þar sem fólk skiptist á uppskriftum og ráðlegg- ingum um baksturinn. Fyrir marga sé þetta hluti af lífsstíl, þ.e. ánægjan sem felst í því að annast gerilinn, ferlið við að baka brauðið og unaðurinn við að borða eigin bakstursafurð. Marinó hefur tröllatrú á góðum heilsufarsáhrifum súrdeigsbrauðs- ins og segist borða það í miklu mæli en léttast á sama tíma. „Malli er góður fyrir malla,“ segir hann hlæjandi og er greinilega hlýtt til vinar síns. Ótrauður í þáttagerð Fyrir þremur mánuðum hófst Marinó handa við heimildar- þáttagerð um súrdeigsbakstur. Hann hefur breytt eldhúsi sínu í lítið tökuver og þegar lokið 15 þáttum þar sem víða er komið við. Hann er þegar kominn með 500 fasta fylgjendur en markmiðið er að ná a.m.k. þúsund, sem hann segir myndu tryggja honum samn- ing við veituna. Hann hvetur byrj- endur að kynna sér þættina og hefjast handa við baksturinn. Hann leggur áherslu á að þetta sé einfalt mál og tilvalin afþreying fyrir þá sem kjósa að halda sig innandyra í sjálfskipaðri sóttkví. Súrdeigsbrauðið allra meina bót Ljósmynd/Aðsend Bakar brauð Marinó við undirbúning súrdeigsbaksturs á heimili sínu.  Bakari streymir kennsluefni um súrdeigsbakstur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.