Morgunblaðið - 01.08.2020, Blaðsíða 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
©2019 Disney/Pixar
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
S P LÚNKUNÝ OG STÓRSKEMMT I L EG
RÓMANT Í SK GAMANMYND.
KAT I E HOLMES JOSH LUCAS
Sýnd með
íslensku tali
HEIMSFRUMSÝNING!
Magnaður nýr spennuþriller með Russell Crowe in aðalhlutverki.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Næst á svið var sillus, lista-mannsnafn SigurlaugarThorarensen. Hennar sett
var einkar forvitnilegt, nokkuð
nösk blanda af „r og b“, silki-
mjúku og poppuðu á köflum, og
tilraunakenndari óhljóðalist. Hún
byrjaði með öflugu hljóðverki, fór
svo yfir í r og b-kafla en undar-
legheitin aldrei langt undan samt
... sillus gerði vel, hefur sálarríka
og sannfærandi rödd og sviðs-
framkomu sem hæfir efninu ...
Áreynslulaust einhvern veginn.
Fylgist með frá byrjun!“
Svona skrifaði ég um sillus
fyrir tveimur árum og ég verð að
viðurkenna að ég hef hugsað til
hennar annað slagið síðan, vonast
til að hún haldi áfram, þar sem
efniviður í ýmislegt gott er að
sönnu til staðar. Mig rak því í
rogastans þegar ég fékk frétta-
tilkynningu frá henni fyrir stuttu
um myndband sem var gert við
lagið „dapply“ sem kom út á fjög-
urra laga stuttskífu í enda árs
2018. Sú stuttskífa kom út nær-
fellt ári eftir að ég skrifaði inn-
gangsorðin mín, en þau fóru nið-
ur á blað eftir að ég sá hana á
tónleikum á Húrra. Listakonan
lýsti því á Fésbókarsetri sínu
hversu fegin hún væri að koma
lögunum loksins út í endanlegu
formi, hún hefði verið búin að
spila þau, hugsa um þau, efast um
Silla var ein í heiminum
Ljósmynd/Berglind Erna Tryggvadóttir
þau, taka þau í sátt – allur skal-
inn semsagt. 2019 var síðan hljóð-
látara en góðu hófi gegni og lista-
konan er því í raun búin að
endurræsa verkefnið núna sem er
fagnaðarefni. Í tilkynningunni
kemur blessunarlega fram að hún
er að vinna að nýrri stuttskífu
ásamt bróður sínum, Hermigervli
(Sveinbjörn Thorarensen), og
stefnt er á útgáfu á þessu ári. Ég
hafði og unun af því að lesa um
það í tilkynningunni að með sillus
er hún að sækja í „áhrif í DIY
(gerum það sjálf) hugmyndafræð-
ina með ófullkomnun að leiðar-
ljósi“. Fullkomnunarátta er, að
mati þess sem hér skrifar, mesta
plága samtímans, ástand sem
heftir fjöldann allan af mjög svo
hæfileikaríku fólki að uppfylla
það sem það hefur í sér og ég
gleðst alltaf þegar ég finn að fólk
er að kýla á hlutina burtséð frá
því hvernig útkoman verður.
Myndbandið við „dapply“ er
unnið af Uglu Hauksdóttur, en
gerð þess er tilkomin vegna þess
að lagið mun birtast í þáttaröð
frá Amazon Prime sem ber heitið
HANNA en Ugla leikstýrði ein-
mitt þremur þáttum af átta. Þetta
er fimmta tónlistarmyndbandið
sem Ugla leikstýrir en áður hefur
hún gert myndbönd fyrir Bang
Gang, East of My Youth og Cell7.
Sigurlaug lauk BA-námi í fé-
lagsfræði nú í febrúar og er í
hljóðupptökunámi í Stúdíó Sýr-
landi einnig. Hún er þá með ann-
að verkefni á kantinum, BSÍ, sem
er að eigin sögn í „riot grrrl“
ham. Fyrsta breiðskífa hennar er
væntanleg, en BSÍ átti lag á safn-
plötunni Drullumall 2, ansi glúrna
útgáfu af „Wannabe“ þeirra Spice
Girls. Ég endurtek, ég fagna því
enn og aftur innilega að sillus-
verkefnið – og allt það sem Sigur-
laug ákveður að gera – sé komið í
farvatn. Það er ekki að ástæðu-
lausu að ég setti þessi orð niður á
blað á sínum tíma, uppfullur af
andagift og áhuga. Innistæðan er
þarna í massavís og nú er bara að
leysa út af sem mestum móð.
» Svona skrifaði égum sillus fyrir tveim-
ur árum og ég verð að
viðurkenna að ég hef
hugsað til hennar annað
slagið síðan
Sigurlaug (Silla) Thor-
arensen eða sillus hefur
vakið verðskuldaða at-
hygli í íslenskum indí-
heimum að undan-
förnu. Hún er með ærið
mörg járn í eldinum nú
um stundir.
Beðið Næstu mánuðir
verða forvitnilegir hjá
listamanninum sillus.
Peter Bradshaw, kvikmyndagagn-
rýnandi hjá dagblaðinu Guardian,
skrifar um heimildarmynd Jóhanns
Jóhannssonar heitins, Endalok upp-
hafsins eða Last and First Men eins
og hún heitir á
ensku, í nýjustu
gagnrýni sinni á
vef blaðsins og
gefur henni þrjár
stjörnur af fjór-
um mögulegum í
einkunn. Brads-
haw segir tónlist
myndarinnar,
sem Jóhann
samdi með Yair
Elazar, falla vel
að myndmálinu, sem virðist ójarð-
neskt. Segir Bradshaw þær myndir
sem Jóhann velur til frásagn-
arinnar sýna furðulega og ónota-
lega skúlptúra sem líti út fyrir að
hafa verið gerðir af geimverum en
séu í raun minnisvarðar frá ríkja-
sambandinu Júgóslavíu sem hóf að
liðast í sundur í upphafi tíunda ára-
tugarins. Bradshaw segir mynd Jó-
hanns stutta en áhugaverða en er
lítt hrifinn af innálestri leikkon-
unnar Tildu Swinton.
Myndin verður sýnd um helgina á
Skjaldborg og segir á vef hátíðar-
innar um myndina að í henni
„flökkum við um svæði í niður-
níðslu þar sem sorglegir atburðir
hafa gerst – staðir hlaðnir tákn-
rænni merkingu. Gegnum myndina
skynjum við nærveru, einhvers
konar vitund sem er að reyna að
hafa samband við okkur.“
Furðulegir Einn af skúlptúrunum sem sjá
má í mynd Jóhanns.
Mynd Jóhanns fær
þrjár stjörnur hjá
rýni Guardian
Jóhann
Jóhannsson