Morgunblaðið - 01.08.2020, Síða 25

Morgunblaðið - 01.08.2020, Síða 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 2020 Boðið er upp á einkaskoðun og fólk vinsamlegast beðið um að hafa samband í síma 898-9396 eða á hakon@valfell.is og panta tíma til skoðunar. Kirkjubraut 2, 300 Akranesi | Sími: 570 4824 | hakon@valfell.is | valfell.is Þingvangur ehf byggir 10 hæða lyftuhúsnæði á góðum stað miðsvæðis á Akranesi. Staðsett við verslunarkjarnann Dalbraut 1, Akranesi. STILLHOLT 21 - AKRANESI Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar og seljast fullbúnar án gólfefna nema forstofa, þvottahús og baðherbergi flísalagt. Öllum íbúðum fylgir kæliskápur og uppþvottavél í eldhúsinnréttingu. Sýningaríbúð á 1. hæð. Innréttingar og fataskápar frá danska framleiðandnum HTH Innhurðir og flísar frá Parka Heimilistæki frá Ormsson Þrír ungir skákmenn, DagurRagnarsson, VignirVatnar Stefánsson ogHilmir Freyr Heimisson, verða vonandi innan ekki of langs tíma næstu titilhafar Íslendinga en þeir hafa allir nælt sér í áfanga að al- þjóðlegum meistaratitli, hafa greini- lega styrkinn sem til þarf og væru hugsanlega búnir að klára dæmið ef ekki hefði komið til stórkostleg rösk- un á keppnisvettvangi sem skákin hefur mátt þola eins og svo margar aðrar greinar. Danir gerðu í vetur hlé á skák- mótahaldi en í júlímánuði rofaði loksins til og í Kaupmannahöfn lauk á dögunum opnu móti í tveimur styrkleikaflokkum. Í flokki stór- meistara sigraði Svíinn Nils Grande- lius, en í flokki alþjóðlegra meistara varð hinn 18 ára gamli Hilmir Freyr Heimisson einn efstur, hlaut sjö vinninga af níu mögulegum, krækti sér í annan áfanga að titli alþjóðlegs meistara og hækkaði um tæplega 50 elo-stig. Hilmir vann sinn flokk á NM einstaklinga undir 20 ára í vetur en hefur ekkert getað teflt síðan. Greinarhöfundur renndi yfir allar skákir Hilmis frá mótinu og það er alveg greinilegt að pilturinn er að finna sinn stíl; þegar best lætur tefl- ir hann af miklum krafti, sniðgengur ekki flækjur, er útsjónarsamur í erf- iðum stöðum og gefst ekki upp þótt á móti blási. Sænski stórmeistarinn Stellan Brynell var fjórum peðum yfir gegn Hilmi í 3. umferð sem virt- ist ekki hafa beinar bætur fyrir en samt náði okkar maður jafntefli! Þegar tvær umferðir voru eftir var heilmikið undir hjá Hilmi og þá kom þessi staða upp: Copenhagen Chess challenge 2020: Michael Vesterli – Hilmir Freyr Heimisson Svartur hefur bætur fyrir skipta- mun og „Houdini“ metur stöðuna jafna. En með þróttmikilli tafl- mennsku tókst Hilmi að skapa sér vinningsfæri: 35. … Ha3! Með hugmyndinni 36. Hxb4 d2! og vinnur. 36. He1 Hc3 Svipuð hugmynd, 3676. Hxb4 gengur ekki vegna 37. … d2 38. Hd1 Rd3! og vinnur. 37. Hc1 e4! Ryður brautina fyrir kónginn. 38. fxe4 Ke5 39. He1 Kd4 40. Kf2 b3! Allt saman hnitmiðaðir leikir. Hvítur hefur ratað í mikil vandræði. 41. axb3 Rxb3 42. Kb1 Ra5 43. g4 Rxc4+ 44. Kb1 Hb3+ 45. Kc1 Kc3 46. Hd1 Re3 47. Hdd2 Rxg4 48. Hf7 Re5 49. Hxh7 Rc4 50. Hc7 Ha3 51. Hb1 Ha1+ – og hvítur gafst upp því að 52. Hb1 er svarað með 52. … d2+ og vinnur. Í lokaumferðinni vann Hilmir svo snaggaralegan sigur. Copenhagen Chess challenge 2020: Hilmir Freyr Heimisson – Esben Hove Slavnesk vörn 1. d4 d5 2. c4 c6 3. cxd5 cxd5 4. Rc3 Rc6 Svartur hefði getað orðið fyrri til og leikið strax 4. … e5!? en fræði- menn ýmsir mæla með þeim leik. Annað vinsælt afbrigði yngri manna okkar hefst eftir 4. … Rf6 5. f3. 5. e4! dxe4 6. d5 Rb8 7. Da4 Rd7 8. Bf4 Óþægileg staða fyrir svartan sem þarf að búast við Rb5-leiknum á hverri stundu. 8. … Rgf6 9. Hc1 Db6 10. Bc4 Rg4 11. Rh3 g5 Svartur er með alla mennina inni og reynir að losa um sig. 12. Bxg5 Bh6 13. Rxe4?! Einfaldast var að hrókera. 13. … Bxg5 14. Rhxg5 f5 Hann varð að leika 14. … Rxf2! Eftir 15. Rxf2 De3+ 16. Kd1 Dxg5 er svartur sloppinn þó að hvíta sé betri eftir 17. Bb3. 15. Be2 Dxb2 16. 0-0! Dxe2 17. Rd6+! Þessi lá í loftinu. 17. … Kf8 17. … exd6 er vitaskuld svarað með 18. Hfe1. 18. Re6+ Kg8 19. Rxc8 b5 20. Df4 – og svartur gafst upp. Hilmir Freyr sigraði á Opna Kaupmanna- hafnarmótinu Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Heimasíða Útsjónarsamur Hilmir Freyr náði jafntefli gegn Stellan Brynell fjórum peðum undir. Í blaði LEB spyr for- maður landssambands- ins, Þórunn Svein- björnsdóttir, hvað hægt sé að gera til að bæta kjör eldri borgara, sem orðnir eru 45 þúsund. Hún bendir einnig á að stór hópur þessa fólks búi við mjög slæmar að- stæður og lifi í sárri fá- tækt. Ég vil benda á einfalda og örugga leið til að lagfæra þetta. Sú leið er að LEB beiti sér fyrir stofnum stjórnmála- flokks til verndar gömlu fólki. Stjórn- málaflokkur skipaður eldra fólki úr LEB til setu á Alþingi er eina raun- hæfa leiðin til að lagfæra og vernda lífskjör eldri borgara. Eldri borgarar hafa engin vopn til að verja kjör sín. Þeir eru beininga- menn og algerlega háðir valdhöfum þjóðarinnar: ríkisstjórn, stéttar- félögum og öðrum valdastofnunum þjóðfélagsins. Stjórnmálaflokkur á vegum eldri borgara, sem eru 45 þús- und talsins, myndi örugglega fá fimm til átta manns kjörna í kosningum inn á löggjafarþing þjóðarinnar. Á löggjafarþinginu eru 63 þing- menn og á bak við hvern þeirra eru um 4.200 atkvæði með 100% kjörsókn sem eru liðlega 265 þúsund atkvæði. Ef 45 þúsund eldri borgarar kysu full- trúa sinn á þing með 100% kjörsókn myndu þeir eiga 10 þingmenn af 63 á Alþingi. Þetta eru einungis töl- fræðilegar staðreyndir en gefa vís- bendingu um styrk LEB ef samtökin byðu fram pólitískan lista við alþingis- kosningar. Ég er sannfærður um að fleiri en eldri borgarar myndu kjósa flokk þeirra, þ.e. börn þeirra, ætt- ingjar og vinir. Kosningastefna þeirra ætti að vera í anda þess sem stjórnlagaráð lagði fram árið 2011. Þessi hugmynd, að eldri borgarar stofnuðu pólitísk sam- tök, hefur lengi kraumað innan margra félaga eldri borgara um land allt, en hængurinn er sá að í lögum LEB eru tvær greinar um hlutverk og markmið LEB og er ákvæði þar sem segir: „LEB er sjálfstætt starf- andi landssamband félaga eldri borg- ara og hlutlaust gagnvart trúmálum og stjórnmálaflokkum.“ Þetta orðalag, „hlut- laus“, hafa ráðamenn í stjórn LEB túlkað sem bann við því að LEB stofni stjórnmálaflokk og hafi verið sett inn í lög af ákveðnum póli- tískum öflum. Í sömu grein kemur fram: „Stuðla skal að áhrifum eldri borgara í sam- félaginu og að þeir séu hafðir með í ráðum við ákvarðanir um eigin kjör.“ Í 74. grein stjórnarskrár Íslands segir: „Rétt eiga menn á að stofna fé- lög í sérhverjum löglegum tilgangi, þar með talin stjórnmálafélög og stéttarfélög, án þess að sækja um leyfi til þess.“ Túlkun stjórnar LEB um að sam- tökin megi ekki stofna pólitískan flokk á landsvísu er því alröng. Rök fyrir framboði eldri borgara til Alþingis eru margvísleg og ætla ég að nefna nokk- ur sem eru öllum augljós: 1. Á undanförnum árum hefur lítið áunnist fyrir eldri borgara til lagfær- ingar á kjörum þeirra. 2. Þegar Ingibjörg Sólrún, Jóhanna Sigurðardóttir og stelpan frá Stokks- eyri, Margrét, tóku höndum saman og stofnuðu stjórnmálaflokk, Samfylk- inguna, gjörbreyttist staða kvenna í landinu. Áhrifamáttur þeirra, kjör og völd stórbötnuðu eins og allir vita. 3. Á meðal meðlima LEB er fjöldi fólks með gífurlega reynslu og þekk- ingu á öllum sviðum þjóðlífsins sem er til skammar að nýta ekki á löggjafar- þingi þjóðarinnar. 4. Þegar fólk er orðið fullorðið, hætt brauðstritinu, þá breytist líf þess mik- ið. Margir verða þunglyndir, finnst að þeim hafi verið hafnað og telja sig vera beiningamenn á þjóðfélaginu og líf sitt tilgangslaust og lítils virði. 5. Forsetafrú Íslands, Eliza Reid, segir í sama blaði LEB: „Stimplum okkur ekki út við ákveðinn aldur.“ Þessi orð segja sitt. Eldri borgarar og LEB Eftir Hafstein Sigurbjörnsson »Eldri borgarar og LEB ættu að stofna stjórnmálaflokk. Hafsteinn Sigurbjörnsson Höfundur er eldri borgari. hafsteinnsig@internet.is Jónas Guðmundsson fædd- ist 1. ágúst 1820 í Þverárdal í Laxárdal, A-Hún. Foreldrar hans voru hjónin Guðmundur Einarsson, bóndi þar, og Mar- grét Jónasdóttir. Jónas varð stúdent 1843 frá Bessastaðaskóla og tók guð- fræðipróf frá Kaupmanna- hafnarskóla 1850. Jón varð aðjunkt í Lærða skólanum 1851, prestur í Hítardal 1872 og á Stað- arhrauni 1876 þegar það var sameinað Hítardal og var Jónas því síðasti presturinn í Hítardal. Jónas fékk lausn frá prestskap vegna sjóndepru 1890 og fluttist að Skarði á Skarðsströnd til tengdamóður sinnar og lést þar. Jónas gaf sig mikið að rit- störfum og var þekktur fyrir ferskeytlur sínar. Benedikt Gröndal segir um Jónas í Dægradvöl: „…andlitið fjör- mikið og leikandi af lífi, enda var hann vel gáfaður til flestra hluta, iðinn og stað- fastur og fyndinn“. En segir síðan að hann hafi verið nísk- ur á Kaupmannahafnarár- unum. Eiginkona Jónasar var Elínborg Kristjánsdóttir, f. 1840, d. 1902, húsfreyja og smáskammtalæknir. Þau eignuðust sex börn. Jónas lést 23.10. 1897. Merkir Íslendingar Jónas Guð- mundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.