Morgunblaðið - 29.08.2020, Side 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2020
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Mótmælendur söfnuðust saman í
Washington, höfuðborg Bandaríkj-
anna, í gær til þess að mótmæla kyn-
þáttamisrétti, en mótmælunum var
ætlað að minnast þess að í gær voru
57 ár liðin frá „milljón manna göng-
unni“, en hápunktur hennar var
ræða Martins Luthers King um
þann draum sem hann átti um jafn-
ræði kynþáttanna.
Al Sharpton, prestur og baráttu-
maður fyrir réttindum blökku-
manna, flutti ræðu við minnismerki
Lincolns, á sama stað og King flutti
ræðu sína, en Sharpton og elsti son-
ur Kings skipulögðu gönguna í sum-
ar, þegar mál George Floyds var í
hámæli.
Búðareigendur byrgðu fyrir
glugga og lögreglan lokaði götum í
gær vegna ótta um að mótmælin
muni fara úr böndunum, en gert var
ráð fyrir að allt að 50.000 manns
myndu koma til Washington-borgar
í gær til að mótmæla.
Reiði vegna árásarinnar
Talið er að mótmælin hafi orðið
fjölmennari en ella vegna skotárásar
lögreglunnar á Jacob Blake síðast-
liðinn sunnudag, en hún hefur vakið
mikla reiði meðal minnihlutahópa
vestanhafs. Blake lifði árásina af, en
mun líklega ekki ganga aftur. Það
hefur því vakið athygli, að lögreglan
í Kenosha, sem skaut Blake, ákvað
að hann skyldi handjárnaður við
sjúkrarúm sitt. Tony Evers, ríkis-
stjóri Wisconsin, hefur sagt að hann
geti ekki ímyndað sér hvers vegna
þörf sé á slíku í ljósi þess ástands
sem Blake er í.
Mannréttindahópar í Bandaríkj-
unum hafa krafist þess að bæði lög-
reglustjóri og fógeti Kenosha segi af
sér vegna málsins. Þá var 17 ára
unglingur handtekinn í Illinois-ríki
fyrir að hafa myrt tvo mótmælendur
í vikunni. Stendur til að framselja
hann til Wisconsin, og verður réttað
yfir honum sem fullorðnum.
Fjölmenni kom til mótmæla
Minntust ræðu Martins Luthers King við Lincoln-minnismerkið Blake í járnum
AFP
Bandaríkin Mótmælendur komu
saman við minnismerki Lincolns.
Tónlistarunnendur í Bítlaborginni Liverpool gátu tekið
gleði sína á ný í fyrrakvöld þegar hinn sögufrægi
Cavern-klúbbur fékk að opna dyr sínar fyrir gestum á
ný. Klúbburinn neyddist til að loka líkt og aðrir
skemmtistaðir í kórónuveirufaraldrinum, en fær nú að
hleypa inn 150 manns í einu. Opnun klúbbsins helst í
hendur við alþjóðlega Bítla-viku, þar sem aðdáendur
hljómsveitarinnar fagna ferli hljómsveitarinnar.
AFP
Rokkað á ný í Cavern-klúbbnum
Utanríkis-
ráðherrar Evr-
ópusambandsins
vöruðu í gær
Tyrki við því að
sambandið kynni
að leggja við-
skiptaþvinganir
á landið, náist
ekki árangur í
fyrirhuguðum
viðræðum þeirra
við Grikkland og Kýpur um nátt-
úruauðlindir í austurhluta Miðjarð-
arhafs.
Sögðu ráðherrarnir að þeir vildu
gefa viðræðunum tækifæri, en að
sambandið myndi styðja við bakið á
Grikkjum og Kýpverjum, en báðar
þjóðir eru innan ESB.
Nikos Dendias, utanríkis-
ráðherra Grikklands, sagði að
Grikkir hefðu náð þeim árangri á
fundinum sem hægt var, en þeir
höfðu krafist þess að gripið yrði til
aðgerða strax. Sagðist Dendias
vona að Tyrkir myndu láta af ögr-
unum sínum á Miðjarðarhafi.
Hóta Tyrkjum
viðskiptaþvingunum
Nikos
Dendias
TYRKLAND
Evrópusam-
bandið hvatti
Rússa í gær til
þess að grípa
ekki inn í ástand-
ið í Hvíta-
Rússlandi, eftir
að Vladimír Pút-
ín hét hvítrúss-
neskum stjórn-
völdum
hernaðarlegum
stuðningi ef ástandið versnaði.
„Ég hef heyrt Rússa halda því
fram margoft að þetta sé innanrík-
ismál fyrir Hvít-Rússa og að þeir
vilji ekki að utanaðkomandi skipti
sér af. Ég býst við að það gildi einn-
ig um þá sjálfa,“ sagði Josep Bor-
rell, utanríkismálastjóri Evrópu-
sambandsins, í gær.
Sagði Borrell að Hvít-Rússar
ættu sjálfir að fá að ákveða framtíð
sína og hvaða stjórnarhættir eigi að
ríkja í landi sínu.
Biður Rússa um að
skipta sér ekki af
Josep
Borrell
HVÍTA-RÚSSLAND
Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans,
tilkynnti í gær að hann myndi segja af
sér embætti af heilsufarsástæðum.
Greindi Abe frá því að hann væri aft-
ur kominn með sáraristilbólgu, colitis
ulcerosa, en hún neyddi hann einnig
til þess að láta af embætti forsætis-
ráðherra árið 2007.
„Nú þegar ég get ekki uppfyllt um-
boð þjóðar minnar hef ég ákveðið að
sitja ekki lengur í embætti forsætis-
ráðherra,“ sagði Abe í tilkynningu
sinni, en enginn hefur gegnt embætt-
inu lengur samfleytt.
Afsögn Abes kom nokkuð á óvart,
en vangaveltur voru komnar á kreik
um heilsufar forsætisráðherrans eftir
að hann fór tvisvar á sjúkrahús með
stuttu millibili í skoðun.
Hylltur af öðrum leiðtogum
Abe hyggst gegna embættinu
áfram þar til eftirmaður hans er fund-
inn, og bað hann japönsku þjóðina af-
sökunar á að hafa ekki getað klárað
kjörtímabil sitt í miðjum kórónu-
veirufaraldrinum.
Ekki leið á löngu áður en aðrir
þjóðarleiðtogar sendu Abe batakveðj-
ur sínar og hylltu hann fyrir þann ár-
angur sem hann hefur náð í embætti.
Narendra Modi, forsætisráðherra
Indlands, sagði að Abe hefði sýnt
mikla visku og stuðlað að bættum
samskiptum Indlands og Japans, og
rússnesk stjórnvöld sögðu hann hafa
átt ómetanlegan þátt í að bæta sam-
skipti ríkjanna.
Boris Johnson, forsætisráðherra
Breta, sagði Abe hafa afrekað mikið í
embætti og suðurkóresk stjórnvöld
tóku í sama streng. Kínversk stjórn-
völd neituðu hins vegar að tjá sig og
sögðu ákvörðun Abes vera innanríkis-
mál Japana.
Abe segir af sér
ráðherradómi
Greindist með
sáraristilbólgu í
annað sinn
AFP
Abe Enginn hefur setið lengur í
stóli forsætisráðherra Japans.
Hollenskur karlmaður á fertugs-
aldri lést í gær eftir að hvítabjörn
réðst á hann á tjaldsvæði í ná-
grenni Longyearbæjar. Þetta er
sjötta dauðsfallið á Svalbarða af
völdum hvítabjarnar á und-
anförnum 50 árum.
Maðurinn, sem var 38 ára, fannst
alvarlega særður í tjaldi sínu og
lést hann af sárum sínum stuttu
síðar, en hann vann við tjaldsvæðið.
Þeir sem komu að manninum
skutu á hvítabjörninn og fannst
hann síðar dauður á bílastæði flug-
vallar Longyearbæjar.
„Birnirnir halda sig venjulega
fjarri mönnum. Við erum ekki efst-
ir á matseðlinum, þar sem þeir
vilja frekar éta seli,“ sagði Jon
Aars, vísindamaður við norsku
heimskautastofnunina, við AFP-
fréttastofuna. Bætti hann við að
birnirnir létu þó til skarar skríða
gegn mönnum ef þeir væru nægi-
lega hungraðir.
Lést eftir
árás hvíta-
bjarnar
Sjötta dauðsfallið
á Svalbarða frá 1971
Boðið er upp á einkaskoðun og fólk vinsamlegast beðið um að
hafa samband í síma 898-9396 eða á hakon@valfell.is
og panta tíma til skoðunar.
Kirkjubraut 2, 300 Akranesi | Sími: 570 4824 | hakon@valfell.is | valfell.is
Þingvangur ehf byggir 10 hæða lyftuhúsnæði á góðum stað miðsvæðis
á Akranesi. Staðsett við verslunarkjarnann Dalbraut 1, Akranesi.
STILLHOLT 21 - AKRANESI
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar og seljast fullbúnar
án gólfefna nema forstofa, þvottahús og baðherbergi
flísalagt. Öllum íbúðum fylgir kæliskápur og uppþvottavél
í eldhúsinnréttingu. Sýningaríbúð á 1. hæð.
Innréttingar og fataskápar frá danska framleiðandanum HTH
Innhurðir og flísar frá Parka
Heimilistæki frá Ormsson
Aðeins
örfáar íbúðir
eftir