Morgunblaðið - 29.08.2020, Side 38

Morgunblaðið - 29.08.2020, Side 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2020 Eiríkur Brynjólfsson, góður félagi, samstarfs- maður til áratuga, skyndilega horfinn á braut eftir skammvinn veikindi, mikil sorg og við sitjum eftir hljóð. Við Eiríkur hittumst fyrst þegar hann vann fyrir Hið ís- lenska kennararfélag 1988 en ár- ið eftir kem ég til starfa við Fjöl- brautaskólann við Ármúla þar sem Eiríkur kenndi íslensku. Ei- ríkur kenndi við grunnskóla Ár- múlaskóla 1974-1979 en við FÁ 1979 til 1999 en kom síðan aftur 2007. Hann var þá ráðinn kennslustjóri almennrar náms- brautar og framhaldsskólabraut- ar og starfaði við það alla tíð síð- an. Eiríkur var mjög öflugur fé- lagsmálamaður. Hann var rit- stjóri Kennarablaðsins fyrir Hið íslenska kennarafélag 1988-2000. Vann ýmis störf fyrir Hið ís- lenska kennarafélag og Bandalag háskólamanna á árunum 1990- 2000. Var foringi Hins íslenska glæpafélags frá árinu 2007. Hið íslenska glæpafélag er félag rit- höfunda og fróðra manna um glæpasögur. Eiríkur var einstaklega laginn skólamaður og öflugur talsmaður nemenda sinna. Tillögugóður, ákveðinn og náði sérlega vel til nemenda. Byrjaði strax sem kennslustjóri að boða nýnema og foreldra í viðtal og skoða skólann að hausti áður en kennsla hófst. Það kom enda í ljós að þetta skipti miklu máli, hér mynduðust tengsl sem reyndust vel og brott- hvarf minnkaði umtalsvert. Hafði samband við nemendur sem voru að gefast upp og komu stopult í skólann, þetta reyndist vel og við höfum fjölmörg dæmi um hvað nemendum þótti þetta mikils virði. Í FÁ er starfandi tippklúbbur, meðlimir hans hafa farið á fót- boltaleiki í London og Liverpool. Það var nú ekki leiðinlegt að hafa Liverpool-mann með í svona ferð. Andúð á leyndarhyggju og undirferli, kröftug barátta fyrir jöfnuði og betra samfélag var alla tíð kjarni í viðhorfum Eiríks og fyrir það vil ég þakka. Sem dæmi má taka að fyrir fáum árum var fyrirhuguð sam- eining Fjölbrautaskólans við Ár- múla og Tækniskólans. Eiríkur sagði í blaðaviðtali: „Það er alrangt að það hafi verið blendnar tilfinningar hjá kennurum og öðrum starfsmönn- um FÁ, þar eru einfaldlega allir á móti þessu og mönnum var veru- lega brugðið. Kennarar og starfs- menn höfðu ekki hugmynd um þessar bollaleggingar ráðherrans fyrr en í morgunfréttum RÚV í dag. Leyndin hefur verið alger og starfsmönnum er verulega mis- boðið yfir þessari lágkúrulegu að- ferð við einkavæðinguna, Þetta er einkavæðing og ekkert annað, ég fullyrði að allir starfsmenn FÁ eru andsnúnir þessari svokölluðu sameiningu sem heitir á íslensku einkavæðing, fólkið verði að koma að stofnun alvörustofnana, slíkt sé ekki gert með gerræðis- legum hætti.“ Sendi Steinunni og fjölskyldu innilegar samúðarkveðjur Ólafur Hjörtur Sig- urjónsson fyrrverandi skólameistari FÁ. Árið 1999 kom saman hópur áhugamanna um glæpasögur og Eiríkur Brynjólfsson ✝ Eiríkur Brynj-ólfsson fæddist 19. maí 1951. Hann lést 23. ágúst 2020. Útför Eiríks fór fram 28. ágúst 2020. stofnaði með sér Hið íslenska glæpa- félag. Á stofnfundi var var kosinn for- ingi Kristinn Krist- jánsson og undirrit- aður var kosinn ritari. Markmið fé- lagsins var að stuðla að viðgangi íslensku glæpasögurnnar sem hafði átt undir högg að sækja í um- ræðu og á bókamarkaði. Ekki voru miklar vonir um mikinn vöxt þessarar bókmenntagreinar en við félagarnir höfðu væntingar um að geta vakið athygli á þeim fáu glæpasögum sem komust á prent. Fljótlega eftir stofnun félags- ins lét féhirðirinn af embætti en Kristinn lagði til að samkennari hans úr Fjölbrautaskólanum við Ármúla, Eiríkur Brynjólfsson, yrði kosinn í hans stað og varð það svo. Félagið fór kröftuglega af stað, skipulagði upplestra og ráðstefnur með fjölda erlendra gesta. Fjölmiðlar höfðu gaman að þessu brölti og það var auðvelt að fá athygli. Félagið tilnefndi bæk- ur til norrænu glæpasagnaverð- launanna Glerlykilsins og með tímanum varð þessi tilnefning að íslensku glæpasagnaverðlaunun- um Blóðdropanum. Kristinn lést snemma árs 2008 en skömmu áð- ur hafði Eiríkur tekið við sem foringi og var í því embætti alla tíð síðan. Það má segja að Hið íslenska glæpafélag hafi snemma orðið fórnarlamb eigin velgengni. Öll markmiðin rættust langt umfram væntingar. Í dag eru glæpasögur mjög áberandi á íslenskum bóka- markaði og koma fjölmargar bækur út á hverju ári. Eldmóður félagsmanna dvínaði því snemma og það var aðeins fyrir atorku Ei- ríks að það lifði áfram með árlegu upplestrarkvöldi, vali á bestu ís- lensku glæpasögunni ár hvert og afhendingu Blóðdropans. Glæpa- félagið hefur einnig komið að vali á bestu norrænu glæpasögunni sem er verðlaunuð með Glerlykl- inum. Ég er löngum hættur að sinna félaginu og við Eiríkur höf- um verið í litlu sambandi undan- farin ár. Öðru hvoru hefur hann leitað til mín með smá viðvik sem ég hef getað annast fyrir Glæpa- félagið og svo höfum við hist á öðrum vettvangi sem var okkur báðum mjög kær, þ.e.a.s. heima- leikir KR. Það var ávallt gott að hitta Eirík, hann hafði góða nær- veru. Ég votta fjölskyldu hans mína innilegustu samúð. Viktor Arnar Ingólfsson. Það er oft erfitt að útskýra til- finningar með orðum – en ég reyni samt. Að vera heil mann- eskja og að hafa sterka réttlæt- iskennd – eru þau orð sem mér finnst lýsa Eiríki Brynjólfssyni best. Ég þakka þér vináttuna. Agnar Kristinsson. Það er stríð í þagnar rann, þulinn sjóður af vilja, að missa þann, sem mikið er við að skilja. segir í eldgömlu viðlagi. Við kynntumst á upphafsárum FÁ þar sem við kenndum íslensku. Þetta var áhugaverður tími, bjartsýni réð ríkjum og við litum á erfiðleika sem snurður á þræði en ekki óríðandi vað. Við vorum að móta nýjan skóla og sjón- hringur nýr fyrir augum. Ís- lenskudeildin var vel með á nót- um og við gengum ótrauð til verka og skemmtum okkur vel. Oft var tekist á um efni og aðferð- ir en jafnan komist að niðurstöðu. Eiríkur var þrautreyndur í þrætubókarlist eftir að hafa tekið þátt í margvíslegum klofnings- brotum á ysta væng til vinstri. Deildin var framsækin og frjó- söm, leyfi ég mér að segja. En nú hefur fækkað í hópnum sem mót- aðist fyrstu áratugina í sögu skól- ans, Gerður Magnúsdóttir, Krist- inn Kristjánsson, Una Þóra Steinþórsdóttir og nú Eiríkur hafa gengið um kvölddyr sínar, öll fyrir aldur fram. „Mörg er heims mæða /og mannraunin sár.“ Við sem eftir lifum af sam- starfsfólki þeirra getum hermt upp á okkur annað viðlag: „Kóln- ar mér á kinnvöngunum mínum.“ Eiríkur var lipur starfsbróðir, verkhygginn og einstaklega geð- góður, kærulaus með köflum og ýtti þá undan sér viðfangsefnum eins og hendir okkur öll, hafði lif- andi áhuga á samtíð sinni, hrær- ingum hennar og háskaleik, rót- tækur í skoðunum alla tíð en sá hlutina mildari augum eftir því sem árin liðu. Hann átti skáld- lega æð, skrifaði smásögur og orti ljóð og birti á prenti, notin- virkur á þeim vettvangi og veitti forstöðu Hinu íslenska glæpa- félagi langa hríð og sinnti útgáfu- málum. Hann var góður heim að sækja, greiðvikinn og hlýr í við- kynningu. Hinir minnstu þegnar í skólasamfélaginu áttu hann að vini og talsmanni. Eiríkur var tví- kvæntur, átti fyrst Ingibjörgu Einarsdóttur, þau skildu. Hann kvæntist hið síðara sinni heim í Skagafjörð, henni Steinunni sinni Hafstað, sveitunga mínum. Þau voru einstaklega sæl og samhent á lífsgöngunni og tókust á við þau viðfangsefni sem veröldin fékk þeim í faðm. Börnum sínum og stjúpbörnum var hann þolinmóð- ur og óbilandi bakhjarl. Nú er skarð fyrir skildi. Við Magnea sendum Steinunni og öðrum ást- vinum samúðarkveðju. Sölvi Sveinsson. Hann var einn þeirra fáu kenn- ara í Fjölbrautaskólanum við Ár- múla sem voru þar þegar ég kom til skólans og allt til þessa tíma. Hann gekk hnarreistur um gang- ana og fyrstu viðbrögð mín voru að þar færi montrass. Fljótlega komst ég þó að því að sú lýsing átti allra síst við hann. Hann var auðmjúkur maður sem var slæm- ur í baki. Eiríkur Brynjólfsson var mað- ur margra verka. Hann var skáld og þýðandi, pistlahöfundur og rit- stjóri og svo var hann foringi Hins íslenska glæpafélags. Hann var vinur minn bæði í starfi og einkalífi. Hann var þó fyrst og fremst kennari bæði að lífsstarfi og í samskiptum við aðra. Þegar ég kynnist honum fyrst í Fjölbrautaskólanum við Ármúla þá kenndi hann þar íslensku. Hann var þó ekki maður formsins og gerði litlar athugasemdir við að nemendur segðu að þeim lang- aði eða að þeim hlakkaði til. Hann lét sér aðallega annt um nemend- ur sem áttu undir högg að sækja og kennsla hans miðaði að því að slíkir nemendur næðu sér á strik. Hann fór enda frá því að vera ís- lenskukennari í framhaldsskóla og í að verða sérkennari í grunn- skóla. Síðar kom hann aftur í Ár- múlaskóla og tók að sér að stýra þar sérúrræðum fyrir nemendur. Þar var honum umhugað um að skólinn gæti verið opnari foreldr- um og byrjaði á því að kalla for- eldra til viðtals um nám barnanna. Á sínum tíma var okk- ur, sem vildum sem minnst ut- anaðkomandi afskiptasemi, ekki skemmt. Við erum margir kennararnir sem finnst starfið skemmtilegast þegar við erum með nemendur sem standa vel að vígi. Þeim nem- endum þarf hins vegar oft lítið að kenna. Við samstarfsmenn Eiríks Brynjólfssonar höfum misst góð- an vin allt of fljótt. Nemendur sem eiga í erfiðleikum með nám hafa misst bakhjarl. Hannes Ísberg Ólafsson. Það leið ekki langur tími á milli þess að þú fórst á sjúkrahúsið til myndatöku og þar til sjúkdóm- urinn sigraði. Við fengum ekki tíma til að kveðjast og það er margt sem ég hefði viljað segja þér. Við vorum lengst af nánir en fjarlægðumst á síðustu árum. Við kynntumst á fyrsta kenn- arafundi við stofnun Fjölbrauta- skólans við Ármúla og urðum strax góðir vinir. Þú varst mikill baráttumaður í kjarabaráttu kennara og báðir aðhylltumst við sósíalískt raunsæi. En við kunn- um einnig að skemmta okkur. Þú lánaðir mér bindi til að komast inn á ballstað. Ég man þegar við dönsuðum saman, tveir karlar að dansa saman var ekki algeng sjón á þeim árum. Svo fórum við sam- an í bústaðarferðir. Þér fannst alltaf skondið hvað mér tókst að finna margar krókaleiðir. Einu sinni vorum við fimm klukkutíma á leiðinni í bústað HÍK í Brekku- skógi. Mig minnir að það hafi ver- ið 30. apríl og daginn eftir fórum við tveir saman í kröfugöngu í Brekkuskógi og sungum Nall- ann. Þú máttir aldrei missa af 1. maí göngu verkalýðsins. Svo varðstu ástfanginn af nýjum kennara í skólanum og komst til mín til að spyrja mig ráða. Úr því varð hjónaband ykkar Steinunn- ar og var brúðkaupið haldið í sveitarsælunni að Reykjafelli. Ég saumaði fána fyrir þessa stund með sigð og hamar og risandi sól. Manstu? Þú vildir ekki staðna og próf- aðir sífellt nýjar leiðir. Þú ortir ljóð, skrifaðir smásögur og þýdd- ir skáldsögur. Ég gat hjálpað þér með umbrot á fyrstu ljóðabókinni þinni. Þú fórst í framhaldsnám í sérkennslu, skiptir um vinnustað og kenndir við grunnskóla. Þér var alltaf hugleikið að aðstoða nemendur sem eiga erfitt með nám. En svo komstu til baka og sást um almenna námsbraut Fjölbrautaskólans við Ármúla. Það var mikill fengur að fá þig, bæði fyrir nemendur sem þú hafðir umsjón með og fyrir skól- ann. Sagði ég þér það einhvern tímann? Fyrir son minn, Húna, varstu eins og frændi. Nú kemur að því að kveðja kæri vinur og vildi ég gjarnan taka utan um börnin þín til að að tjá þeim væntumþykju og samúð mína. En á þessum skrítnu tímum veirusóttar verð ég að láta þessar línur duga. Ég kveð þig vinur. Helmut Helgi Hinrichsen. Kæra Steinunn Hafstað, gamla bekkjarsystir frá MA; leitt er að frétta að maðurinn þinn, Ei- ríkur Brynjólfsson, er nú allur! Ég hitti hann nokkrum sinnum í tengslum við skólamál og fylgdist líka með blaðaskrifum hans. Hann virtist hafa mikinn metnað sem fulltrúi menntafólks. Þið virðist nú bæði hafa náð fullri starfsævi við kennslustörf og hann náði næstum sjötugs- aldri! Ég þakka þér fyrir strjálu kynnin gegnum árin, sem og blaðaskrif þín um samstúdenta okkar sem féllu frá fyrir tímann. Á þeim tíma hef ég kynnst ýmsum öðrum ættmennum þín- um, í tengslum við ritstörf og menningarmál, og vænti að svo verði lengi enn. Við höfum raunar alltaf talað saman af einlægni. Og mig minn- ir að ég hafi gefið ykkur ljóðabók eftir mig á einu útskriftarafmæli MA-stúdenta fyrir norðan. Því vil ég nú bæta í þá einlægni og láta hér fylgja með ljóð sem ég orti eftir móður mína, en við höfum nú víst flest kynnst sorginni eink- um gegnum okkar foreldramissi. Það heitir Flatlendisljóð II og er svona: Upp á fjall ég hingað fló, fékk að hitta skáld: Lí Pó. Sagði mína för ei slétta, bað hann mig úr harmi slétta: „Aldrei aftur verði stríð; né hverfi’ af jörðu móðir blíð.“ Tryggvi V. Líndal. Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GERÐAR STEFANÍU ELIMARSDÓTTUR frá Hólmum í Austur-Landeyjum, Stóragerði 7, Hvolsvelli. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut fyrir einstaka alúð, aðgætni og virðingu. Kristján Ágústsson Ágúst Kristjánsson Gunnhildur E. Kristjánsdóttir Hrafnhildur Rósa Kristjánsd. Fannar Jónasson Haukur Guðni Kristjánsson Guðmunda Þorsteinsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og fjölskyldur Elskuleg eiginkona mín, móðir, dóttir, systir, mágkona og tengdadóttir, REYNHEIÐUR ÞÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR, Sólarsölum 7, Kópavogi, andaðist á heimili sínu laugardaginn 22. ágúst. Útför verður frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 31. ágúst klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Samferða góðgerðarsamtök. Svanur Örn Þrastarson Hafrós Lilja Svansdóttir Hrafn Elís Svansson Sigurbjörg Gunnarsdóttir Arnar Jakob Guðmundsson Þorgerður Egilsdóttir Ingiríður Karen Jónsdóttir Þröstur G. M. Eyjólfsson Okkar ástkæri faðir, afi og langafi, GUÐJÓN S. ÞÓRARINSSON, Stekkjargötu 55, Njarðvík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 12. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Fjölskylda hins látna Við fráfall Gerðar Pálsdóttur, hús- stjórnarkennara og fyrrverandi for- manns Félags eldri borgara í Eyjafjarðarsveit, reikar hugurinn rúm 30 ár aftur í tímann. Okkur verður hugsað til þess góða fólks sem þá kom saman til að kanna áhuga eldri borgaranna á stofnun félagsskapar sem hefði þann tilgang að efla andlega, fé- lagslega og líkamlega velferð þeirra sem komnir voru á efri ár, svo og að auðvelda fólki að koma saman því að maður er manns gaman. Er skemmst frá því að segja að hugmyndinni var vel fagnað og félagið stofnað 1989. Strax á fyrsta ári voru félagar orðnir 60 talsins. Gerður var í þeim hópi sem leiddi „hjörðina“ og er óhætt að segja að hún ásamt nokkrum fleirum eigi stærstan þátt í því að félagið var stofnað. Hún var kosin formaður 1994 og gegndi því embætti í 11 ár, og Kolfinna Gerður Pálsdóttir ✝ Kolfinna Gerð-ur Pálsdóttir fæddist 12. ágúst 1924. Hún lést 6. ágúst 2020. Útförin fór fram 25. ágúst 2020. vann félaginu af alúð og fórnfýsi. Þegar blaðað er í fundar- gerðabók félagsins má sjá nafn Gerðar æði oft í sambandi við leit félagsins að samastað fyrir starf- semina, hún stjórn- aði öllum fundum ár- um saman, fór á fundi hjá Landssam- bandinu, leitaði að hæfileikafólki til að leiðbeina við handmennt og létta leikfimi. Fé- lagsmenn sýndu gömul vinnu- brögð í og við Laufásbæinn svo eitthvað sé nefnt. Síðast en ekki síst hélt hún stjórnarfundi árum saman með veislukaffi á heimili þeirra Friðriks manns hennar. Hann studdi hana með ráðum og dáð í félagsstörfunum og var alltaf hjálplegur við hvaðeina sem félag- ið vanhagaði um. Á þessum tímamótum vilja fé- lagarnir senda ástvinum Gerðar innilegustu samúðarkveðjur. Við minnumst hennar með virðingu og miklu þakklæti fyrir hið fórnfúsa starf sem hún innti af hendi til hagsbóta fyrir okkur öll. Fyrir hönd í Félags eldri borg- ara í Eyjafjarðarsveit, Valgerður Schiöth. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.