Morgunblaðið - 10.09.2020, Blaðsíða 41
MINNINGAR 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2020
✝ Guðbjörg Stef-anía Andrés-
dóttir, Lilla, fædd-
ist á Saurum í
Hraunhreppi þann
24. janúar 1941.
Hún lést í Brák-
arhlíð í Borgarnesi
2. september 2020.
Foreldrar henn-
ar voru Andrés
Guðmundsson
(1900-1985) og
Lilja Finnsdóttir (1905-1998),
bændur á Saurum. Systkini
hennar eru Guðmundur Ragnar
(1926-1984), Hervald (1927-
2002), Óskar (1928-2003), Unn-
ur (1929-2018), Guðrún (1930-
Lilla ólst upp á Saurum hjá
foreldrum sínum og bjó þar
allt til þess að hún flutti að
Sveinsstöðum haustið 1959, þá
heitbundin Jonna. Árið 1964
fluttu Lilla og Jonni í Borg-
arnes þar sem þau áttu heimili
eftir það, lengst af á Þórólfs-
götu 10.
Fyrst eftir að Lilla kom í
Borgarnes vann hún í stuttan
tíma hjá Vírneti eða í nagla-
verksmiðjunni. Var heimavinn-
andi um tíma en hóf svo störf
hjá Kaupfélagi Borgfirðinga,
fyrst í kjötbúðinni og síðar
kjörbúðinni. Starfsferil sinn
endaði hún hjá Samkaupum 65
ára eða árið 2006.
Útför Guðbjargar Stefaníu
fer fram frá Borgarneskirkju í
dag, 10. september 2020, kl.
14. Athöfninni verður streymt
á www.kvikborg.is. Virkan
hlekk á streymi má nálgast á
https://www.mbl.is/andlat/.
1983), drengur
(1931-1931), Þor-
steinn Arnar (1933-
2007), Ragnhildur
(1947) og Bragi
(1949).
Þann 29. október
1960 giftist Lilla
Jóni Helga Ein-
arssyni, f. 21. maí
1938, d. 26. ágúst
2017, sem þá var
bóndi á Sveins-
stöðum í Álftaneshreppi. For-
eldrar hans voru Einar Ágúst
Jónsson (1900-1969) og Þórdís
Sigurðardóttir (1914-1996),
bændur á Sveinsstöðum. Lilla
og Jonni voru barnlaus.
Ættar- og fjölskyldubönd eru
margbreytileg. Ýmsar ástæður
eru fyrir nánu sambandi okkar
Beigaldasystkina við Lillu og
Jonna. Systratengsl móður okk-
ar og Lillu meðan báðar lifðu
vega þungt. Við fráfall mömmu
varð sess Lillu stærri. Því mið-
ur varð þeim hjónum ekki barna
auðið en umhyggja og áhugi á
þroska og athöfnum ungra ætt-
menna veittu henni lífsfyllingu.
Þau voru hluti kjarnafjölskyld-
unnar og þátttakendur þegar
gerður var dagamunur. Gilti þá
einu hvort veisluhöld væru á
okkar vegum eða þeirra.
Skírnarnöfn Lillu frænku eru
stór.
Hún var heitin eftir Guð-
björgu Stefánsdóttur móður-
ömmu sinni og (Þóru) Stefaníu
Finnsdóttur, yngsta barni henn-
ar, sem lést 12 ára gömul. Þeg-
ar gælunöfn festast við fólk þá
falla skírnarnöfn oft í skugga og
séu þau notuð geta þau hljómað
harkalega.
Þótt nokkuð beri í milli mik-
ilfengleika skírnarnafnanna og
gælunafnsins er þetta ekki
nefnt til að smækka Lillu. Hið
síðarnefnda festist strax við
hana enda hún litla systirin, sú
sjöunda í röð níu systkina. Þeg-
ar Lilla fæddist voru þau eldri
komin á legg og gegndu mik-
ilvægu hlutverki í búverkunum.
Hver veit nema hún hafi verið
pínulítið djásn á heimilinu enda
fríð sýnum og nett auk þess að
vera alllengi litla systirin. Hún
vildi vera kölluð Lilla og fáum
datt í hug að fara í bága við
það.
Dugnaður og höfðingsskapur
einkenndu heimilislífið á Saur-
um þótt auraráð væru takmörk-
uð. Það var veganesti frænku.
Til hennar voru allir vel-
komnir. Það varð hennar hlut-
skipti þar til heilsu þraut að
vera til staðar fyrir aðra. Átti
hún sjálf frumkvæðið en það
var fjöldi ættingja sem sóttist
eftir greiða og gistivináttu
hjónanna á Þórólfsgötu 10.
Frændfólk átti vísan næturstað
í risinu á Þórólfsgötu 10, sem
húsfreyja af hófsemd kallaði
Hótel Hörmung. Það var í
sjálfu sér öfugmæli því viður-
gjörningur var hinn ríkulegasti.
Nýleg ummæli ungrar konu
sem ólst upp í næsta nágrenni
voru á þá leið að þau hefðu ver-
ið yndislegir nágrannar. Líklegt
er að oft hafi verið laumað góð-
gæti í lófa nágrannabarnanna
líkt og frændfólksins.
Jonni átti jafnan hesta og
stundum brá Lilla sér með í
reiðtúra enda hestlagin eins og
hún átti kyn til. Á síðari árum
tók hún þátt í hestaferðum með
því að aka í veg fyrir ferðafólk-
ið með veisluföng. Í töskunni
voru gjarnan ríkulega smurðar
hveitikökur með hangikjöti
ásamt margs konar heimagerðu
bakkelsi sem rann ljúflega nið-
ur.
Undir ferðalok hraðaði hún
sér heim til þess að matreiða
vel útilátnar máltíðir sem biðu
ferðalanga að kvöldi dags.
Lilla ól önn fyrir foreldrum
sínum meðan þau lifðu og fyrir
það hljóta skyldmennin að
standa í þakkarskuld við þau
Lillu og Jonna. Þá skal hér
nefnd umhyggjan sem hún
sýndi pabba alla tíð eftir fráfall
eiginkonu hans.
Stundum svo mikla að honum
þótti nóg um en ætla má að þau
öll þrjú hafi fengið sitt út úr
ótöldum sunnudagsmálsverðum
á Þórólfsgötu 10. Margt var
spjallað og nóg etið af kræs-
ingum sem einkenndu allt heim-
ilishald Lillu frænku.
Við leiðarlok er áratuga sam-
fylgd þökkuð.
Lilja Árnadóttir.
Lilla hefur verið sjálfsögð í
minni tilveru frá því ég fæddist.
Yngri systir mömmu sem pass-
aði mig heilu og hálfu dagana
þegar ég var barn. Frænkan
sem hélt alltaf boð á 17. júní og
á jóladag og það hélst alveg þar
til þau Jonni fluttu í blokkina.
Í þeim boðum voru heldur
betur kræsingar á borðum þar
sem hveitikökur með hangikjöti
og reyktum laxi voru þunga-
miðjan ásamt nokkrum tertum
sem enginn var færari í að gera,
s.s. karamelluköku og appels-
ínuköku.
Sumarið 1983 var örlagaríkt
fyrir mig. Lilla umvafði mig
skilyrðislausum kærleika og
Jonni með sinni hægu fram-
komu, án orða, lét mig finna að
ég skipti máli. Þetta haust var
mér afhentur lykill að Þórólfs-
götu 10 og þangað mátti ég
koma þegar ég vildi á nóttu sem
degi.
Í janúar 1984 lofaði Lilla mér
því að hún myndi alltaf hjálpa
mér og passa upp á mig. Lilla
stóð við sitt og meira en það.
Hún færði loforðið yfir á fyrr-
verandi eiginmann minn og
börn og var alltaf fljót til að
bjóða fram aðstoð þegar á
þurfti að halda. Ég hins vegar
var þá á því aldursskeiði að mér
fannst alls ekki líklegt að Lilla
myndi nokkurn tímann þurfa á
hjálp að halda þó seinna reyndi
ég að launa henni umhyggjuna.
Líf okkar var samtvinnað bæði
í gleði og sorg. Ég man glað-
værð á aðfangadagskvöldum
þar sem spennan var alveg að
fara með börnin mín og hún
smitaðist til þeirra sem eldri
voru. Ég man eftir litlum dreng
sem hringdi í Lillu og sagðist
vera að koma í heimsókn og
svarið kom um hæl: „Já, ég er
heima og nú skal ég baka
pönnukökur.“ Ég man líka eftir
lítilli stúlku sem var kynnt fyrir
dásemd niðursoðinnar ferskju
með þeyttum rjóma. Ég man
eftir spilastundum, bæði sem
barn og fullorðin.
Ég man eftir leiðsögn í
berjaferðum þar sem hækkaði
mjög mikið í minni dós þegar
heim var komið. Ég man eftir
nestinu sem Lilla gerði svo vel.
Ég man eftir sumarbústaða-
ferðum þar sem Lilla og Jonni
voru gestgjafar eða gestir, þau
nutu þess að fara í ferðir frá
bústaðnum og að kvöldi var eld-
aður góður matur og svamlað í
heitum potti.
Ég man líka eftir erfiðari
augnablikum þar sem fátt gat
sefað sorgina og lítið annað að
gera en faðma, vera til staðar
og deila skilyrðislausum kær-
leika.
Ég var ekki sú eina sem naut
þess að eiga þessa sómakonu
að, öll systkinabörn hennar áttu
sérstakan stað í hennar huga og
hún var tilbúin að rétta fram
hjálparhönd, hvort sem það var
barnapössun, að lána híbýli sín
undir veislur, baka hveitikökur
fyrir veislur eða veiðiferðir,
hýsa ungmenni um skemmri
eða lengri tíma eða skreppa út
á Akranes til að kaupa úlpu á
ungmenni.
Nú er komið að leiðarlokum.
Ég hef heyrt sagt að dauðinn
geti verið jafn sjálfsagður og
kærkominn og fæðingin. Ég
held að það hafi átt við þessa
umhyggjusömu og kærleiksríku
frænku mína.
Hún Lilla var tilbúin í sína
hinstu ferð.
Ég kveð Lillu frænku með
þakklæti og virðingu.
Steinunn Þórdís.
Guðbjörg Stefanía
Andrésdóttir
Hann stóri bróðir minn hefur
kvatt þennan heim eftir erfið
veikindi. Minningarnar um hann
eru margar og góðar. Hann var
klár, traustur, ábyrgðarfullur,
umhyggjusamur, barngóður,
hraustur og fallegur bróðir.
Ég er yngst í hópi fimm systk-
ina og hann tólf árum eldri. Elstu
minningarnar mínar um hann
eru frá því að ég var um fimm ára
og hann leyfði mér að hlusta á
tónlist í herberginu sínu – og
kenndi mér um leið að fara vel
með vinylplöturnar sínar. Hand-
Pétur Rúnar
Ragnarsson
✝ Pétur RúnarRagnarsson
fæddist 7. mars
1948. Hann lést 27.
ágúst 2020.
Útför Péturs fór
fram í kyrrþey.
Fyrir mistök
birtist eftirfarandi
grein ekki með öðr-
um greinum um
Pétur Rúnar í
blaðinu 9. sept-
ember. Beðist er velvirðingar á
því.
tökin sem ég lærði
þá hafa fylgt mér
síðan. Þannig var
hann einstaklega
duglegur við að leið-
beina mér og kenna
mér margt í gegnum
lífið. Við tengdumst
frá því ég var mjög
ung í gegnum áhuga
okkar á fjölbreyttri
tónlist og hann benti
mér reglulega á nýj-
ar plötur og hljómsveitir sem voru
að koma fram á sjónarsviðið.
Þannig eignaðist ég með honum
skemmtilegt og gefandi áhuga-
mál.
Pétur bróðir var fyrirmynd
mín í mörgu, meðal annars í
áhuga á hreyfingu og góðri heilsu.
Við fórum gjarnan saman út að
hlaupa þegar ég komst á ung-
lingsaldur. Á þeim tíma var ekki
margt fólk úti að hlaupa og við
völdum oft að fara á gamla Kefla-
víkurveginn og hlaupa þar fram
hjá gamla sumarbústaðnum okk-
ar, Gerðinu. Okkur fannst þetta
góður staður til að vera á, kannski
ekki síst af því við vorum bæði
hlédræg og frekar feimin við að
láta aðra sjá til okkar hlaupa.
Hann hvatti mig líka til að prófa
„ræktina“ þegar fyrsta líkams-
ræktarstöðin var opnuð í Hafnar-
firði og ekki má gleyma sundferð-
unum, en við áttum um tíma það
markmið sameiginlegt að synda 1
km á dag. Hann kenndi mér að
keyra á öruggum stað, löngu áður
en ég hafði aldur til, hjálpaði mér
við bíla-, íbúða- og græjukaup,
alltaf boðinn og búinn að aðstoða
og veita ráðgjöf.
Pétur gerði miklar kröfur til
sín og annarra. Hann fylgdist af
áhuga með námi mínu, ekki síst á
námsárum mínum í London 1985-
1987 og hvatti mig til að stunda
námið af metnaði. Hann kom til
London í ótal vinnuferðir þegar
hann starfaði hjá IBM og við hitt-
umst þá reglulega. Þessar ferðir
hans til London styrktu enn frek-
ar tengsl okkar. Saman prófuðum
við alls konar veitingastaði og átt-
um sameiginlega okkar uppá-
halds, sem voru indverskir og
nepalskir staðir.
Pétur var einstaklega góður og
ljúfur við okkur yngstu systurnar,
leitaðist við að styðja okkur á
ýmsan hátt en líka eiga skemmti-
legar stundir með okkur. Honum
var oft falið það hlutverk að passa
okkur, fara í sendiferðir eða bíl-
túra með okkur og í minningunni
eru þessar stundir ógleymanleg-
ar. Þá var stutt í húmorinn og
prakkaraskapinn hjá Pétri.
Þó að hann væri hlédrægur og
dulur, og liði best í fámennum og
góðum vinahópi og með sínum
nánustu, var hann hrókur alls
fagnaðar þegar við stórfjölskyld-
an komum saman. Þannig eru
gamlárskvöldin hjá Pétri, Möggu
og krökkunum á Norðurvangi
ógleymanleg.
Umhyggja Péturs birtist ekki
síst í því hve einstaklega vel hann
hugsaði um foreldra okkar og
Möggu sína í veikindum þeirra,
allt þar til þau kvöddu.
Ég kveð þig nú með söknuði
elsku bróðir. Hvíldu í friði og
hjartans þakkir fyrir allt.
Við sjáumst síðar.
Þín systir
Hanna.
Harpa Heimisdóttir
s. 842 0204
Brynja Gunnarsdóttir
s. 821 2045
Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær
s. 842 0204 | www.harpautfor.is
Sálm. 86.5
biblian.is
Þú, Drottinn,
ert góður og fús
til að fyrirgefa,
gæskuríkur öllum
sem ákalla þig.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför okkar ástkæru
DAGNÝJAR HARÐARDÓTTUR,
Ægisgrund 19, Garðabæ.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Ægisgrundar 19, líknarheimaþjónustu Heru
og starfsfólki deildar 11E á Landspítalanum.
Gréta Guðmundsdóttir Hörður Arnþórsson
Arna Harðardóttir Njáll Hákon Guðmundsson
Ólafía Harðardóttir Hannes Viktor Birgisson
Gréta, Viktor, Atli Hrafn og Pétur Kári
Sendum innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð, kærleika og hlýhug við
andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
HÁKONAR MAGNÚSSONAR,
skipstjóra og útgerðarmanns.
Sérstakar þakkir til starfsfólks krabbameinsdeildar LHS,
líknardeildar Kópavogs og starfsfólks Heru.
Rósa Sigurðardóttir,
börn, tengdabörn og fjölskyldur þeirra
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, og afa,
SVEINS STEFÁNSSONAR
húsasmiðs,
Brekkuhvammi 8, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki
HERU fyrir hlýhug og ómetanlegan stuðning.
Hulda Kristinsdóttir
Bylgja Sveinsdóttir
Birkir Sveinsson
Bjartey Sveinsdóttir Kristján Andrésson
og barnabörn
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför okkar ástkæru móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
HULDU VORDÍSAR
AÐALSTEINSDÓTTUR,
húsfreyju á Syðri-Bægisá,
Hörgársveit.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk lyfjadeildar Sjúkrahússins á
Akureyri fyrir einstakan hlýhug og góða umönnun i veikindum
hennar.
Katrín Steinsdóttir Jóhannes Sigfússon
Helgi Bjarni Steinsson Ragnheiður M. Þorsteinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn