Morgunblaðið - 10.09.2020, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 10.09.2020, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2020 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15 ARCO gólflampi Achille & Pier Giacomo Castiglioni 1962 Verð 349.000,- CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði. Þóra Kolbrá Sigurðardóttir thora@mbl.is Það eru þau Stefán Einar og Guð- rún Björk Geirsdóttir, veitinga- stjóri á VOX sem eru fólkið á bak við Kampavínsdagana sem haldnir verða dagana 16.-20. september. Þar verður gestum boðið upp á þriggja rétta glæsilegan matseðil ásamt lystauka (f. amouse-bouche). Með seðlinum verður hægt að panta svokallaða „wine-flight“- kampavínspörun sem saman- stendur af fordrykk og smakki á þremur öðrum vínum sem gestir geta parað við réttina og að lokum valið sitt uppáhald og fengið áfyll- ingu. Þetta gefur fólki einstakt tækifæri til að bera saman ólíkar tegundir af kampavíni og finna hversu ólík vínin í raun eru. „Þarna erum við með úrval vína frá Phil- ipponnat sem er virkilega áhuga- vert að bera saman. Með þessari aðferð kemur afgerandi karakter hvers víns vel í ljós,“ segir Stefán Einar um vínpörunina en mat- reiðslumeistarar VOX hafa lagt mikinn metnað í matseðilinn og það sama gildir um val á víninu. Guðrún Björk segir samstarfið við Kampavínsfjelagið vera hval- reka fyrir VOX. „Það vill nú þannig til að starfsfólkið hér er mjög hrifið af og áhugasamt um kampavín þannig að þetta er einstakt tæki- færi fyrir alla aðila að kynna sér kampavín með þessum hætti.“ Kampavínsdagarnir í næstu viku eru þó eingöngu fyrsti viðburðurinn því ætlunin er að endurtaka leikinn á tveggja mánaða fresti og bjóða þá upp á kampavín frá öðrum fram- leiðendum. „Með þessu gefst ís- lensku áhugafólki um kampavín einstakt tækifæri til að smakka á vínum frá ólíkum kampavíns- húsum,“ segir Stefán. „Markmiðið er að Kampavíns- dagarnir verði haldnir með reglu- bundnu millibili og verði á end- anum þekkt stærð meðal neytenda sem viti að hverju þeir gangi,“ seg- ir Guðrún. „Starfsfólk okkar mun svo fræða gesti um eiginleika vín- anna sem þeir eru að smakka á og auka þannig enn á upplifunina.“ Félagar í Kampavínsfjelaginu fá þar að auki sérstaka kynningu og smökkun í upphafi Kampavínsdag- anna en í félaginu eru aðeins 100 félagar á hverjum tíma að hámarki. Meðlimir greiða hóflegt mán- aðargjald og fá aðgang að við- burðum félagsins, fréttabréfi og kampavínskjörum sem þekkjast ekki. Stefán Einar hefur verið öflugur talsmaður kampavíns hér á landi og óþreytandi í viðleitni sinni við að fræða fólk um hvað kampavín er, hvernig það er ræktað, hverjir séu helstu gerendur og leikendur í vín- ræktarhéraðinu fræga og hvernig best sé að njóta þess. Hann segist merkja aukinn áhuga á kampavíni hér á landi og að fólk þyrsti í upp- lýsingar um hvað það sé að drekka og hvaða eiginleika vínið hafi. Þannig sé t.d. ekki sama við hvaða hitastig vínið er drukkið og á tali þeirra Stefáns og Guðrúnar má heyra að hér eru harðkjarna „kampavínsnördar“ á ferð (eins og þau segja sjálf) sem gera sér allt er viðkemur víninu að umtalsefni. Ljóst er að áhuginn og þekkingin er mikil en þau eru sammála um að gestir eigi mikið í vændum og eigi eftir að njóta þess að kynnast kampavíni betur. Vínin sem verða í boði á Kampavínsdögum eru öll frá Philipponnat:  Royale Réserve Brut Royale  Réserve Zero Dosage  Royale Réserve Rosé  Grand Blanc 2010  Blanc de Noirs 2012  Clos des Goisses 2009 Matseðillinn  Fersk ostra „amouse-bouche“ Borin fram á klaka fruit de mer style  Íslensk hörpuskel Bakaður blaðlaukur, græn jarð- arber, beurre blanc og kart- öflucrisp  Kálfa rib-eye Djúpsteikt svartrót í raspi, jarð- skokkamauk, kálfasoðsósa  Græn epli og karamella Karmellað hvítsúkkulaði-gan- ache, græneplasorbet, pistasíu- mulningur og græn epli í kara- mellu Þriggja rétta matseðill ásamt „amouse-bouche“: 7.900 kr. á mann. Philipponnat kampavínspörun „Wine-Flight“ með kvöldverði: 11.900 kr. á mann. Töfrar kampavíns afhjúpaðir Áhugi Íslendinga á kampavíni hefur aukist mikið undanfarin ár og má tala um ákveðna vitundarvakningu í þeim efnum. Þannig er fólk farið að kynna sér vínin betur og læra meira á leyndardóma hvers og eins. Starfsmenn Matarvefs mbl.is hafa ekki farið varhluta af þessari þróun þar sem einn nánasti samstarfsmaður vefsins er fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu, Stefán Einar Stefánsson, sem er fróður um kampavín og hefur skrifað talsvert um efnið í blaðið og á mbl.is á síðustu árum. Stefán er formaður hins nýstofn- aða Kampavínsfjelags og co., sem í samstarfi við veitingastaðinn VOX Brasserie á Hilton Reykjavík Nordica stendur að metnaðar- fullri dagskrá í næstu viku þar sem gestum gefst tækifæri til að para ólík kampavín með mat og kynna sér muninn á þeim. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Elska kampavín Guðrún Björk Geirsdóttir, veit- ingastjóri á VOX Brasserie, og Stefán Einar Stefánsson, formaður hins nýstofnaða Kampavínsfjelags og co. Meðan á Kampavínsdögunum stendur verður boðið upp á kampavín á hamingjustund eða „happy hour“, bæði í flösku- og glasavís. Guðrún hvetur fólk til að nýta tækifærið og panta sér ólíkar tegundir og bera saman á mjög hagstæðu verði. Kampavín á happy hour Meðal þess sem boðið verður upp á er einnarekruvínið Clos des Goisses sem ræktað er á þekktustu vínekru Champ- agne-héraðs. Hún snýr í há- suður og er í 45° halla þannig að öll vinna við ræktunina fer fram í höndum. Hlíðin er úr kalksteini og framleiðslan af- ar takmörkuð. Það þykir því merkilegt að tekist hafi að fá nokkrar flöskur til landsins sem verða í boði á Kampavíns- dögunum. Það verður einnig selt á einstöku verði en á veit- ingastöðum erlendis er al- gengt að flaskan kosti um og yfir 60 þúsund krónur en á Kampavínsdögunum á Vox verður hún í boði á tæpar 40 þúsund krónur. Vínið sem þú verður að smakka áður en þú deyrð Philipponnat-fjölskyldan hefur stundað víngerð í Champagne frá árinu 1522 og í aldanna rás hefur hún eignast nokkrar af verðmæt- ustu vínekrum héraðsins. Frægust þeirra er án nokkurs vafa Clos des Goisses sem almennt er talin merkilegasta ekran af þeim tugum þús- unda sem finna má í Champagne. Þekktasta vínið frá Philipponnat er kennt við þessa ekru og er efniviðurinn í vínið einungis sóttur þangað. Philipponnat framleiðir úrval kampavína sem spanna allt frá blönd- uðum og aðgengilegum vínum til höfugri árgangs- og einnarekruvína líkt og Clos des Goisses og 1522 Extra Brut. Þá sendir húsið alla jafna frá sér einnarþrúguvín úr Chardonnay eða Pinot Noir. Lengst af hef- ur húsið lagt áherslu á ræktun Pinot Noir (Blanc de Noirs) en síðustu árgangar Chardonnay (Grand Blanc) hafa hlotið lof gagnrýnenda um heim allan. Um Philipponnat
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.