Morgunblaðið - 10.09.2020, Síða 44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2020
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15
ARCO gólflampi
Achille & Pier Giacomo Castiglioni 1962
Verð 349.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Þóra Kolbrá Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Það eru þau Stefán Einar og Guð-
rún Björk Geirsdóttir, veitinga-
stjóri á VOX sem eru fólkið á bak
við Kampavínsdagana sem haldnir
verða dagana 16.-20. september.
Þar verður gestum boðið upp á
þriggja rétta glæsilegan matseðil
ásamt lystauka (f. amouse-bouche).
Með seðlinum verður hægt að
panta svokallaða „wine-flight“-
kampavínspörun sem saman-
stendur af fordrykk og smakki á
þremur öðrum vínum sem gestir
geta parað við réttina og að lokum
valið sitt uppáhald og fengið áfyll-
ingu. Þetta gefur fólki einstakt
tækifæri til að bera saman ólíkar
tegundir af kampavíni og finna
hversu ólík vínin í raun eru. „Þarna
erum við með úrval vína frá Phil-
ipponnat sem er virkilega áhuga-
vert að bera saman. Með þessari
aðferð kemur afgerandi karakter
hvers víns vel í ljós,“ segir Stefán
Einar um vínpörunina en mat-
reiðslumeistarar VOX hafa lagt
mikinn metnað í matseðilinn og það
sama gildir um val á víninu.
Guðrún Björk segir samstarfið
við Kampavínsfjelagið vera hval-
reka fyrir VOX. „Það vill nú þannig
til að starfsfólkið hér er mjög hrifið
af og áhugasamt um kampavín
þannig að þetta er einstakt tæki-
færi fyrir alla aðila að kynna sér
kampavín með þessum hætti.“
Kampavínsdagarnir í næstu viku
eru þó eingöngu fyrsti viðburðurinn
því ætlunin er að endurtaka leikinn
á tveggja mánaða fresti og bjóða þá
upp á kampavín frá öðrum fram-
leiðendum. „Með þessu gefst ís-
lensku áhugafólki um kampavín
einstakt tækifæri til að smakka á
vínum frá ólíkum kampavíns-
húsum,“ segir Stefán.
„Markmiðið er að Kampavíns-
dagarnir verði haldnir með reglu-
bundnu millibili og verði á end-
anum þekkt stærð meðal neytenda
sem viti að hverju þeir gangi,“ seg-
ir Guðrún. „Starfsfólk okkar mun
svo fræða gesti um eiginleika vín-
anna sem þeir eru að smakka á og
auka þannig enn á upplifunina.“
Félagar í Kampavínsfjelaginu fá
þar að auki sérstaka kynningu og
smökkun í upphafi Kampavínsdag-
anna en í félaginu eru aðeins 100
félagar á hverjum tíma að hámarki.
Meðlimir greiða hóflegt mán-
aðargjald og fá aðgang að við-
burðum félagsins, fréttabréfi og
kampavínskjörum sem þekkjast
ekki.
Stefán Einar hefur verið öflugur
talsmaður kampavíns hér á landi og
óþreytandi í viðleitni sinni við að
fræða fólk um hvað kampavín er,
hvernig það er ræktað, hverjir séu
helstu gerendur og leikendur í vín-
ræktarhéraðinu fræga og hvernig
best sé að njóta þess. Hann segist
merkja aukinn áhuga á kampavíni
hér á landi og að fólk þyrsti í upp-
lýsingar um hvað það sé að drekka
og hvaða eiginleika vínið hafi.
Þannig sé t.d. ekki sama við hvaða
hitastig vínið er drukkið og á tali
þeirra Stefáns og Guðrúnar má
heyra að hér eru harðkjarna
„kampavínsnördar“ á ferð (eins og
þau segja sjálf) sem gera sér allt er
viðkemur víninu að umtalsefni.
Ljóst er að áhuginn og þekkingin
er mikil en þau eru sammála um að
gestir eigi mikið í vændum og eigi
eftir að njóta þess að kynnast
kampavíni betur.
Vínin sem verða í boði á
Kampavínsdögum eru
öll frá Philipponnat:
Royale Réserve Brut Royale
Réserve Zero Dosage
Royale Réserve Rosé
Grand Blanc 2010
Blanc de Noirs 2012
Clos des Goisses 2009
Matseðillinn
Fersk ostra „amouse-bouche“
Borin fram á klaka fruit de mer
style
Íslensk hörpuskel
Bakaður blaðlaukur, græn jarð-
arber, beurre blanc og kart-
öflucrisp
Kálfa rib-eye
Djúpsteikt svartrót í raspi, jarð-
skokkamauk, kálfasoðsósa
Græn epli og karamella
Karmellað hvítsúkkulaði-gan-
ache, græneplasorbet, pistasíu-
mulningur og græn epli í kara-
mellu
Þriggja rétta matseðill ásamt
„amouse-bouche“: 7.900 kr. á
mann.
Philipponnat kampavínspörun
„Wine-Flight“ með kvöldverði:
11.900 kr. á mann.
Töfrar kampavíns afhjúpaðir
Áhugi Íslendinga á kampavíni hefur aukist mikið undanfarin ár og má tala um ákveðna vitundarvakningu í þeim efnum. Þannig er
fólk farið að kynna sér vínin betur og læra meira á leyndardóma hvers og eins. Starfsmenn Matarvefs mbl.is hafa ekki farið varhluta
af þessari þróun þar sem einn nánasti samstarfsmaður vefsins er fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu, Stefán Einar Stefánsson,
sem er fróður um kampavín og hefur skrifað talsvert um efnið í blaðið og á mbl.is á síðustu árum. Stefán er formaður hins nýstofn-
aða Kampavínsfjelags og co., sem í samstarfi við veitingastaðinn VOX Brasserie á Hilton Reykjavík Nordica stendur að metnaðar-
fullri dagskrá í næstu viku þar sem gestum gefst tækifæri til að para ólík kampavín með mat og kynna sér muninn á þeim.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Elska kampavín Guðrún
Björk Geirsdóttir, veit-
ingastjóri á VOX Brasserie,
og Stefán Einar Stefánsson,
formaður hins nýstofnaða
Kampavínsfjelags og co.
Meðan á Kampavínsdögunum stendur verður boðið upp á kampavín
á hamingjustund eða „happy hour“, bæði í flösku- og glasavís. Guðrún
hvetur fólk til að nýta tækifærið og panta sér ólíkar tegundir og bera
saman á mjög hagstæðu verði.
Kampavín á happy hour
Meðal þess sem boðið verður
upp á er einnarekruvínið Clos
des Goisses sem ræktað er á
þekktustu vínekru Champ-
agne-héraðs. Hún snýr í há-
suður og er í 45° halla þannig
að öll vinna við ræktunina fer
fram í höndum. Hlíðin er úr
kalksteini og framleiðslan af-
ar takmörkuð. Það þykir því
merkilegt að tekist hafi að fá
nokkrar flöskur til landsins
sem verða í boði á Kampavíns-
dögunum. Það verður einnig
selt á einstöku verði en á veit-
ingastöðum erlendis er al-
gengt að flaskan kosti um og
yfir 60 þúsund krónur en á
Kampavínsdögunum á Vox
verður hún í boði á tæpar 40
þúsund krónur.
Vínið sem
þú verður að
smakka áður
en þú deyrð
Philipponnat-fjölskyldan hefur stundað víngerð í Champagne frá
árinu 1522 og í aldanna rás hefur hún eignast nokkrar af verðmæt-
ustu vínekrum héraðsins. Frægust þeirra er án nokkurs vafa Clos des
Goisses sem almennt er talin merkilegasta ekran af þeim tugum þús-
unda sem finna má í Champagne. Þekktasta vínið frá Philipponnat er
kennt við þessa ekru og er efniviðurinn í vínið einungis sóttur þangað.
Philipponnat framleiðir úrval kampavína sem spanna allt frá blönd-
uðum og aðgengilegum vínum til höfugri árgangs- og einnarekruvína
líkt og Clos des Goisses og 1522 Extra Brut. Þá sendir húsið alla jafna
frá sér einnarþrúguvín úr Chardonnay eða Pinot Noir. Lengst af hef-
ur húsið lagt áherslu á ræktun Pinot Noir (Blanc de Noirs) en síðustu
árgangar Chardonnay (Grand Blanc) hafa hlotið lof gagnrýnenda um
heim allan.
Um Philipponnat