Morgunblaðið - 10.09.2020, Blaðsíða 18
18 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2020
Sýning í Gallerí Fold 12. - 26. september
Opið virka daga
10–18,
Laugardaga 12–16
Lokað á sunnudögum
Elínborg
Jóhannesdóttir
Ostermann
Opnun kl. 14 á laugardag
Flæði
Í hádeginu fjóra næstu þriðjudaga
fjallar sr. Sigurður Árni Þórðarson
sóknarprestur við Hallgrímskirkju um
vatn og trúarlega merkingu, með til-
liti til menningar, trúarbragða og
framtíðar. Fyrsti hádegisfundurinn
verður 15. september og síðan 22. og
29. september og 6. október, alltaf kl.
12:05 -12:45. Fundirnir verða í Hall-
grímskirkju, og 13. september til 11.
október verða helgihald og fræðsla í
kirkjunni helguð náttúru og trú.
Vatnið í veröldinni er yfirskrift fyr-
irlesturs 15. september – þar sem sr.
Sigurður Árni fjallar um málin í stóru
samhengi. Hann segir trú alltaf
tengjast stórum málum lífsins Í trú-
fræði og siðfræði séu mál skoðuð
skipulega og ígrunduð stefna mótuð
á forsendum ábyrgðar og kærleika. Í
fyrirlestrinum 6. október ræðir Sig-
urður Árni svo um hver eigi vatnið og
lítur þá á Þingvelli þar sem hann bjó
um árabil. „Lögin um Þingvelli segja í
fyrstu grein að Þingvellir skuli vera
„friðlýstur helgistaður allra Íslend-
inga“. Hvað þýðir ljóðrænt helgi-
staðamál? Þingvellir voru kirkjueign.
Á kirkjan þá vatnið eða er það ríkið
sem á alla dýrðina og þar með krist-
altært vatnið í gjánum, vatnsbirgðir
framtíðar Íslands? Hverjir eiga vatn?
Hefur kristnin eitthvað að segja um
vatn og nýtingu þess? Þetta eru
spurningar sem verður gaman að
leita svara við,“ segir prestur.
Helgihald og fræðsla helgað náttúru og trú
Vatnið rætt í Hallgrímskirkju
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hraunfossar Uppspretta í hrauninu og tært vatnið streymir hér fram.
Samkaup, það er Nettó í samstarfi
við Krambúðina, býður viðskiptavin-
um sínum í Búðardal, Reykjahlíð,
Hólmavík og Flúðum nú á að fá vörur
sendar úr netverslun Nettó. Þjónusta
þessi hófst sl. mánudag.
„Með netverslun Nettó gefst okkur
tækifæri á að bjóða íbúum á þessum
svæðum upp á enn hagstæðari verð í
heimabyggð,“ segir Gunnar Egill Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri versl-
unarsviðs Samkaupa.
Fólki gefst kostur á að panta vörur
í gegnum netverslun Nettó og fá af-
hentar í Krambúðum á svæðinu. Til
að byrja með verður eingöngu hægt
að fá þurrvörur sendar en unnið er að
því að bæta aðstöðu svo hægt sé að
senda kæli- og frystivörur. Talsvert
hefur borið á gagnrýni frá íbúum
framangreindra byggða með vöru-
verð sem þeir segja hafa hækkað þó
talsmenn Samkaupa séu á öðru máli.
Landsbyggðarverslun
Nettó á netinu
Flúðir Ný þjónusta í Krambúðinni þar.
JCI Ísland leitar nú að framúrskar-
andi ungum Íslendingi árið 2020 á
aldrinum 18-40 ára. Verðlaunin eru
veitt fólki sem tekst á við krefjandi
verkefni og nær góðum árangri.
Tilnefnt er í tíu mismunandi flokk-
um sem eru eftirfarandi, það er störf
á sviði viðskipta, frumkvöðla og/eða
hagfræði; störf á sviði stjórnmála,
ríkismála og/eða lögfræði; leiðtogar
eða afrek í menntamálum; störf og
afrek í menningu; störf á sviði sið-
ferðis og/eða umhverfismála; fram-
lag til barna, heimsfriðar og/eða
mannréttinda; störf á sviði mannúðar
og/eða sjálfboðaliðamála; störf á
sviði tækni og/eða vísinda; ein-
staklingssigrar og/eða afrek og störf
/uppgötvanir á sviði læknisfræði.
Hægt er að skila tilnefningum á
www.framurskarandi.is. Úr tilnefn-
ingum er valinn hópur af fólki sem
fær viðurkenningu fyrir störf á sínu
sviði og einn verðlaun sem forseti Ís-
lands afhendir í október nk.
JCI Ísland
Framúrskarandi
Byrjun haustsins og skól-arnir loksins að byrja meðtilheyrandi rútínu sem svomörg börn og foreldrar
þrá. En svo kemur pósturinn sem
flestir foreldrar „bíða“ eftir. Fyrsti
lúsapósturinn frá skólanum!
Lúsin er lítið skordýr sem hefur
aðlagað sig manninum og lifir sem
sníkjudýr í hári á höfði. Lúsin verpir
eggjum sem kallast nit. Á sex til tíu
dögum klekst nitin út sem á 9-12
dögum þroskast yfir í fullorðna lús.
Lúsin er ekki talin bera sjúkdóma og
er því skaðlaus. Það geta allir smit-
ast af lús en þó er algengast að börn
á aldrinum 3-12 ára smitist.
Nitin er einkenni
Lúsin sjálf veldur litlum einkenn-
um en egg hennar (nit) geta sést í
hárinu. Nitin líkist flösu en ólíkt
flösu festist nitin við hárið. Algengt
er að nitin sé fyrir aftan eyru og neð-
an til á hnakka. Algengur misskiln-
ingur er að allir finni fyrir kláða þeg-
ar þeir hafa smitast af lús. Einn af
hverjum þremur fær kláða en hann
stafar af ofnæmi gegn munnvatni
lúsarinnar sem hún spýtir í hár-
svörðinn þegar hún sýgur blóð. Þó fá
margir kláða bara þegar lúsin er
nefnd og í raun er mjög líklegt að
margir séu nú þegar farnir að klóra
sér bara við það að lesa þetta. Til að
greina lús þarf nákvæma skoðun
sem best er að gera með því að
kemba hárið með lúsakambi. Ef lús
finnst, jafnvel bara ein, þarf að veita
meðferð.
Meðferðin og kamburinn
Meðferðin felst í að kemba hárið
með góðum lúsakambi og getur
þessi meðferð dugað ein og sér ef
kembt er samviskusamlega einu
sinni á dag í 14 daga. Gott er að
kemba blautt hár með hárnæringu í,
það gerir lúsinni erfiðara fyrir að
hreyfa sig og þannig verður auðveld-
ara að kemba hárið.
Einnig má nota lúsadrepandi efni
samhliða kembingu. Ekki er mælt
með notkun ilmolíu sem meðferð við
lúsinni og engar rannsóknir sem
styðja notkun slíkra efna. Einnig
hafa rannsóknir sýnt fram á að
jurtaseyði og gömul húsráð drepa
ekki höfuðlús.
Á tímum sem þessum hefur þjóðin
án efa aldrei verið jafn meðvituð um
forvarnir. Besta forvörnin við lús er
að fylgjast með hárinu og kemba
vikulega. Þannig er komið í veg fyrir
að lúsasmit nái fótfestu. Gott getur
verið t.d. að hafa ákveðið kvöld vik-
unnar sem „kembingarkvöld“. Þá er
hægt að setja góðan þátt eða mynd í
sjónvarpið og hafa það huggulegt
meðan á kembingu stendur. Buff
hafa reynst vel til að minnka líkur á
smiti en þau gera lúsinni erfiðara
fyrir að fara frá einum kolli yfir á
annan. Best er að börn með sítt hár
séu ekki með það slegið í skólanum
og gott að minnka sjálfsmyndatökur
eða „selfies“ í hóp.
Tilkynna lúsasmit
í skóla barnsins
Lús er tilkynningarskyldur smit-
sjúkdómur. Ef lús finnst í höfði
barns er mikilvægt að láta vita í
skóla/leikskóla barnsins svo hægt sé
að tilkynna foreldrum annarra
barna og hefta þannig útbreiðslu
lúsarinnar. Upplýsingar og mynd-
bönd um lúsina, meðferð og fleira
má finna á heilsuvera.is og á landla-
eknir.is
Fyrsti lúsapóstur haustsins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Klipping Lúsin er lítið skordýr sem hefur aðlagað sig manninum og lifir sem sníkjudýr í hári á höfði.
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
Heilsuráð
Anna Lillý Magnúsdóttir,
Anna María Guðnadóttir og
Sigríður Elísabet Árnadóttir,
hjúkrunarfræðingar á
Heilsugæslu Hlíðum.
Ekki er mælt með notk-
un ilmolíu sem meðferð
við lúsinni og engar
rannsóknir styðja notk-
un slíkra efna. Einnig
hafa rannsóknir sýnt
fram á að jurtaseyði og
gömul húsráð drepa
ekki höfuðlús.
AFP
Þvottur Hár og hendur sé hreint.