Morgunblaðið - 19.11.2020, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sesamgaldur er dásamleg blanda
af sesam- og birkifræjum, hvítlauk,
laukdufti og flögusalti.
Frábær blanda t.d. í baksturinn,
á brauðið eða beygluna og yfir salatið.
Rótargrænmetið er blanda af lauk,
hvítlauk, rósmarin, þurrkuðum tómötum,
steinselju, timian, svörtum pipar og
lárviðarlaufi.
Blandan smellpassar á ofnbakað grænmeti
og á sætu kartöflurnar með kalkúninum.
Spennandi nýjungar
frá Pottagöldrum
Hreinleiki krydds leggur grunninn
að góðri og hollri matseld.
Allar okkar vörur eru án auka- og
íblöndunarefna og koma frá viður-
kenndum birgja í Evrópu, sem
styður vistvæna og sjálfbæra fram-
leiðslu kryddbænda víða um heim.
Við höfum séð landsmönnum fyrir kryddum og kryddblöndum allt frá árinu 1989
www.pottagaldrar.is • Sími 564 4449
Þess er minnst að í dag er 250 ára af-
mæli Bertels Thorvaldsens mynd-
höggvara, einhvers mesta listamanns
af íslenskum uppruna. Faðir hans var
Gottskálk Þorvaldsson frá Reynistað í
Skagafirði, en móðirin Karen Dagnes
dönsk. Jafnan er talið að hann hafi
fæðst í Danmörku, en þó eru sagnir
um það að hann hafi raunar fæðst í
Skagafirði.
Eftir nám í Fagurlistaskólanum í
Kaupmannahöfn hélt Bertel til Rómar,
enda nýklassískur listamaður, og þar
bjó hann óslitið síðan. Ættjörðinni í
norðri gleymdi hann þó ekki, en óræk-
asta dæmið um það er skírnarfont-
urinn í Dómkirkjunni, sem Bertel
Thorvaldsen gaf 1827 og letraði sjálf-
ur á hann, að það gerði hann af rækt-
arsemi.
Í dag kl. 9.30 mun forseti Íslands,
herra Guðni Th. Jóhannesson, leggja
sveig að líkneski Bertels Thorvaldsens
í Hljómskálagarðinum, en kl. 10 hefst
hátíðardagskrá og málþing um lista-
manninn í Listasafni Íslands, sem
streymt verður frá listasafn.is. »62
250 ára afmælis Bertels Thorvaldsens minnst með blómsveig og hátíðardagskrá
Dýrgripur
í Dóm-
kirkjunni
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss.
Skírnarfonturinn Hinn fagri skírnarfontur Thorvaldsens er einn mesti dýrgripur Dómkirkjunnar, segir síra Sveinn Valgeirsson dómkirkjuprestur. Hann er
með lágmyndum á öllum hliðum; fremst er skírn Krists, á vinstri hlið er María með barnið, á hægri hlið blessar Jesús börnin, en að altarinu snúa þrír englar.
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Það getur tekið langan tíma að vinna
úr samráði ef marka má birtar tíma-
setningar og fresti í samráðsgátt
stjórnvalda. Dæmi eru um að enn sé
verið að vinna úr innkomnum um-
sögnum í nánast þrjú ár eftir að um-
sagnarfrestur rann út og hafin var
vinna í viðeigandi ráðuneyti við að
móta niðurstöðu.
Fram kemur í samráðsgáttinni að
niðurstöður samráðs um drög að
reglugerð um fráveitur og skólp hafi
verið í vinnslu í umhverfis- og auð-
lindaráðuneytinu frá 25. apríl 2018.
Um efni reglugerðarinnar segir að
„breyttar aðstæður og lagaumhverfi
síðan 1999 hafa leitt til þess að breyt-
ingar á reglugerðinni eru orðnar
tímabærar“.
Þá hefur í samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðuneytinu verið unnið að
niðurstöðum úr samráði vegna mats-
lýsingar umhverfismats samgöngu-
áætlunar 2019-2033 frá 29. júní 2018,
en engar umsagnir bárust vegna
málsins. Umsagnir bárust heldur
ekki vegna samráðs um eyðublað
fyrir úttektaryfirlýsingu á íbúðar-
húsnæði og hefur félagsmálaráðu-
neytið ekki birt niðurstöður þess
samráðs, en úrvinnsla hófst 6. des-
ember 2018.
Fjöldi mála bíður úrvinnslu
Mennta- og menningarmálaráðu-
neytið er engin undantekning hvað
varðar úrvinnslu samráðs. Hinn 25.
nóvember 2018 hófst úrvinnsla sam-
ráðs vegna draga að frumvarpi til
laga um breytingu á lögum um við-
urkenningu á faglegri menntun og
hæfi til starfa hér á landi og hafa nið-
urstöður enn ekki verið birtar. Það
skal þó tekið fram að umsagnir, sem
þarfnast úrvinnslu, bárust vegna
málsins en þær voru alls tvær.
Þá hefur verið beðið eftir niður-
stöðum úr samráði dómsmálaráðu-
neytisins vegna draga að reglugerð
um rafrænar þinglýsingar frá 24.
mars 2019. Ein umsögn frá Samtök-
um fjármálafyrirtækja barst 22.
mars sama ár.
Alls bíður 251 mál þess að fá nið-
urstöðu úr samráði eða 33,8% allra
mála sem skráð hafa verið frá því að
samráðsgáttin var tekin í notkun 5.
febrúar 2018. Þá hafa verið birtar
niðurstöður samráðs í 64,3% skráðra
mála og eru 14 mál í virku samráðs-
ferli. Frá upphafi hafa borist 7.100
umsagnir í samráðsgáttina.
Samráð stjórnvalda getur tekið fleiri ár
251 mál bíður úrvinnslu ráðuneyta í samráðsgátt Frá upphafi hafa borist 7.100 umsagnir í gáttina
Fjölskyldubingó mbl.is verður haldið í
fjórða sinn í kvöld klukkan 19:00. Þar færa
þau Siggi Gunnars og Eva Ruza fjöl-
skyldum landsins bingótölurnar beint heim
í stofu. Söngkonan Bríet mætir sem gestur
og ætlar að syngja fyrir þátttakendur í
þetta skiptið.
Aðalvinningur kvöldsins er Sam-
sung Galaxy-sími af tegundinni
S20 FE en ásamt honum
verður fjöldi gjafabréfa
og ógrynni af ýmsum
öðrum glæsilegum
vinningum í boði.
Þá verður tekið í
notkun myllumerkið
#mblbingo og
hvetja bingóstjór-
arnir fólk til þess
að deila myndum
á instagram með myllu-
merkinu.
„Mig langar að fá aðstoð hjá
áhorfendum við að finna upp á
einhverju sniðugu til að segja og
ætla ég að byrja á b-röðinni.
Það verður hægt að gera það í
gegnum facebook en líka undir
myllumerkinu #mblbingo ef
menn eru á twitter,“ segir Siggi,
sem er greinilega orðinn mjög
spenntur fyrir kvöldinu.
Siggi og Eva bjóða í
bingó á mbl.is í kvöld
Siggi
Gunnars
Samsung Galaxy-sími í aðalvinning