Morgunblaðið - 19.11.2020, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2020
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég er mjög ánægð með tæknibylt-
ingu síðustu ára. Hún hefur gagnast
mér vel,“ segir Vera Illugadóttir, út-
varpskona á Rás 1.
Vera er stjórnandi þáttarins Í ljósi
sögunnar sem er á dagskrá gömlu
gufunnar eftir níufréttir á föstudags-
morgnum. Ekki er reyndar víst að
allir viti að Í ljósi sögunnar sé út-
varpsþáttur í línulegri dagskrá því
hann hefur náð óhemjuvinsældum
sem hlaðvarp. Hlustendur sækja sér
þáttinn á ýmsar streymisveitur og
hlusta á hann í snjalltækjum sínum
þegar og þar sem þeim hentar.
Hlaðvörp eru ekki nýtt fyrirbæri,
hvorki hér á landi né annars staðar.
Hins vegar hefur þeim fjölgað hratt
síðustu misseri og breyttir lífshættir
af völdum kórónuveirunnar hafa orð-
ið til þess að nýir hlustendur hafa
bæst í hópinn. Ekki vantar úrvalið; á
hlaðvarpsvef mbl.is (mbl.is/hlad-
varp) má finna á annað hundrað mis-
munandi þáttaraðir.
Nálgast fimm ára afmæli
Vera byrjaði með Í ljósi sögunnar í
ársbyrjun 2016 og margir hlustend-
ur hennar virðast líta á þáttinn sem
hluta af lífi sínu. Það sést vel á sam-
félagsmiðlum því
þegar stjórnand-
inn dirfist að fara
í frí kvarta marg-
ir sáran.
Vera fjallar um
sögulega atburði í
þáttunum, bæði
atburði sem
margir þekkja og
muna en líka ým-
islegt forvitnilegt
sem ekki er á allra vitorði.
„Þátturinn virðist alltaf vera vin-
sæll og ég hef mjög gaman af þessu,
þetta hentar mér afskaplega vel. Ég
geri þetta nú varla að eilífu þótt það
sé af nógu að taka í mannkynssög-
unni. Ég verð alla vega ekki uppi-
skroppa með efni,“ segir Vera sem
hefur fundið góðan takt í frásögninni
sem heldur hlustandanum við efnið.
Frásögnin er svo gjarnan brotin upp
með beinum upplestri og nýtur hún
þá aðstoðar samstarfsmanna sinna í
Efstaleiti.
Hún segir nokkra þætti vera í
uppáhaldi hjá sér. „Mér fannst mjög
gaman að vinna þættina um hinn
sænska Thomas Quick. Þeir voru dá-
lítið umdeildir. Svo hef ég alltaf gam-
an af hrakningasögum. Það var mjög
skemmtilegt að vinna seríuna um
kapphlaupið á suðurpólinn.“
Fær hugmyndir frá öðru fólki
Í ljósi sögunnar er hugarfóstur
Veru og hún ákveður sjálf umfjöll-
unarefnin. „En ég fæ mikið af hug-
myndum frá öðru fólki. Bæði fólki í
kringum mig og frá fólki úti í bæ. Ég
tek alltaf vel í það,“ segir útvarps-
konan.
Hún segist aðspurð sjálf ekki hafa
gefið sig mikið að hlaðvörpum.
Vissulega hlusti hún eitthvað á hlað-
vörp, mest til að kynna sér ákveðin
og afmörkuð efni og hvað hafi verið
skrifað um þau. „Ég hlusta sjálf af og
til en ég er alls ekki forfallinn hlað-
varpshlustandi.“
Kvartað þegar stjórnandinn fer í frí
Vera
Illugadóttir
Íslensk hlaðvörp eru í mikilli sókn um þessar mundir Sífellt fleiri framleiða efni og hlustendum
fjölgar hratt í kófinu Eitt vinsælasta hlaðvarp landsins er útvarpsþáttur Veru Illugadóttur á Rás 1
„Það sem mér finnst frábært við
hlaðvarp er að ef þú hefur eitthvað
að segja, þá geturðu það. Það er
frábært að uppgötva klára sérvitr-
inga sem búa til efni á eigin for-
sendum, það er svo persónulegt,“
segir Baldur Ragnarsson, einn að-
standenda Hljóðkirkjunnar sem
framleiðir sex íslensk hlaðvörp í
hverri viku.
Baldur segir að hann hafi ekkert
kunnað að taka upp fyrir tveimur
árum en hann heillaðist af fyrirbær-
inu og ákvað að „hjóla í þetta“, eins
og hann orðar það, ásamt Snæbirni
bróður sínum.
„Grunnuppleggið hjá okkur
bræðrum er að passa upp á að þetta
hljómi ágætlega og framleiða efni af
heilindum. Sjálfur hef ég hlustað
mikið á hlaðvörp og verð leiður ef
einhver er með frábært efni en ég
heyri það ekki nógu vel.“
Gestir Hljóðkirkjunnar geta til að
mynda hlýtt á þáttinn Kokkaflakk,
þar sem Ólafur Örn Ólafsson spjall-
ar við fólk um heim víns og matar,
Drauga fortíðar, þar sem Baldur og
Flosi Þorgeirsson ræða áhugaverða
atburði úr fortíðinni, og Bestu plöt-
una þar sem Arnar Eggert Thor-
oddsen ræðir við þá bræður um
áhugaverðar hljómplötur.
Draugar fortíðar hafa vakið verð-
skuldaða athygli enda er þar vandað
til verka. Flosi Þorgeirsson, sem
kunnur er sem gítarleikari hljóm-
sveitarinnar Ham, en er jafnframt
sagnfræðingur, leggur upp með frá-
sögn af liðnum atburðum og Baldur
býr til hljóðmynd utan um. Að því
búnu spjalla þeir um umfjöllunar-
efnið. „Við erum búnir að þekkjast
svo lengi að það hefur myndast gott
traust. Það er trikkið við að búa til
eitthvað svona, að þekkja hvor ann-
an nógu vel. Svo er Flosi minn
uppáhaldssögumaður af vinum mín-
um.“
Baldur segir að hlaðvörp séu í
mikilli sókn hér á landi og hann hafi
orðið var ákveðna viðhorfsbreytingu
síðustu tvo mánuði. „Ég held að
fleiri og fleiri séu að kveikja á þessu
út af ástandinu í þjóðfélaginu. Fólk
er að leita nýrra leiða til afþrey-
ingar,“ segir hann og kveðst merkja
mikla aukningu í hlustun.
Hljóðkirkjan er rekin með því að
fá styrktaraðila á hlaðvörpin. Að-
spurður segir Baldur að sífellt fleiri
séu að átta sig á styrkleikum miðils-
ins. „Það hefur verið skjálfti í mörg-
um vegna árferðisins en fólk er farið
að átta sig á því hvað þetta er stórt.
Hver einasti hlustandi hefur tekið
meðvitaða ákvörðun um hlustun og
þarna má ná beinni tengingu við það
fólk.“
Sex messur í Hljóðkirkjunni
Bræðurnir Baldur og Snæbjörn Ragnarssynir halda úti
Hljóðkirkjunni sem framleiðir vinsæla hlaðvarpsþætti
Morgunblaðið/Eggert
Hljóðkirkjan Bræðurnir Baldur og Snæbjörn Ragnarssynir bjóða hlust-
endum upp á sex hlaðvörp í viku hverri sem njóta síaukinna vinsælda.
Dagskrá:
Staða og starfsemi Gildis á COVID-19 ári
Fjárfestingar Gildis
Önnur mál
Hægt verður að horfa á fyrirlestra á netinu og senda fyrirspurnir
á frummælendur. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag fundarins
verða birtar á heimasíðu sjóðsins viku fyrir fund.
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs
3. desember klukkan 16:00
Gildi–lífeyrissjóður
Rafrænn sjóðfélaga-
og fulltrúaráðsfundur
▪
▪
▪
Lífeyrissjóður www.gildi.is
Hjörvar Hafliðason heldur úti hin-
um vinsæla hlaðvarpsþætti Dr.
Football þar sem töluð er tand-
urhrein íslenska og velt við stein-
um – svo vitnað sé til vinsælla
frasa í þættinum. Hjörvar segir að
hugmyndin að þættinum hafi
sprottið upp í kringum HM í
knattspyrnu árið 2018 þegar hann
sá að umfjöllun í sjónvarpi rúmaði
ekki allt sem hann vildi gera. „Ég
hafði ákveðnar hugmyndir um það
hvernig útvarpsþáttur um fótbolta
ætti að vera enda hef ég víðtæka
reynslu af fjölmiðlum, prenti,
sjónvarpi og útvarpi. Svo hef ég
byggt upp þáttinn þannig að fólki
líkar,“ segir hann. Í fyrstu var um
hliðarverkefni að ræða en síðar
kom Hjörvar sér sjálfur upp hljóð-
veri og tók hlaðvarpið fastari tök-
um. Nú eru þættirnir orðnir yfir
350 talsins og óhætt er að fullyrða
að doktorinn á sér traustan hóp
aðdáenda.
Mikil vinna að baki þættinum
„Í dag fer mikil vinna í þetta.
Að baki hverjum 70 mínútna þætti
er kannski átta tíma vinna. Ég
fylgist auðvitað mikið með fótbolta
en þetta er líka utanumhald um
tvær mjög stórar Facebook-síður
og mikil samskipti við hlustendur.
Ég er auðvitað allt of aðgengileg-
ur náungi og fólk hefur bara sam-
band, bæði þegar það er ánægt
eða óánægt. Samtalið er virkt.
Þegar ég var yngri horfði ég á
Hemma Gunn en ég var ekkert að
fara að hringja í hann. Þá hefði ég
ábyggilega þurft að komast í
gegnum svona sjö hliðverði.“
Leyfist meira en í sjónvarpi
Hjörvar kveðst telja að vinsæld-
ir þáttanna megi rekja til þess að
í þeim geti stjórnendur leyft sér
miklu meira en til að mynda er
hægt í sjónvarpi. Bæði gagnrýni
en líka smá hálfkæringur. „Við
förum út í alls konar pælingar og
teiknum upp sviðsmyndir. Um það
snýst fótboltinn, 90 mínúturnar
sjálfar eru bara brotabrot af þess-
um leik.“
Þakklátur styrktaraðilum
Það fer ekki fram hjá hlust-
endum Dr. Football að þátturinn
er kostaður og raunar gengur
Hjörvar nokkuð langt í að boða
fagnaðarerindi sinna samstarfs-
aðila. Hann gengst fúslega við
þessu. „Ég er þakklátur þeim sem
eru með mér í liði. Yfirleitt þekki
ég vörur þeirra mjög vel og því
líður mér vel með að kynna þær.
Auglýsendur kunna því enda vel
að komast í Doc-fjölskylduna.“
Engan bilbug er að finna á
Hjörvari og hann segist hafa sama
áhuga á fótbolta núna, fertugur að
aldri, og hann gerði þegar hann
var sex ára. „Frá HM í Mexíkó
hefur allt mitt líf verið skipulagt
eftir knattspyrnudagatalinu og Dr.
Football er komið til að vera.“
Samtalið er virkt
hjá Dr. Football
Hjörvar Hafliðason á afar traustan
hlustendahóp Tandurhrein íslenska
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Áhrif Hjörvar Hafliðason stýrir Dr. Football úr hljóðveri sínu í Kópavogi.
Hann leitar oft innblásturs hjá sjálfum Járntúlípananum, Louis van Gaal.