Morgunblaðið - 19.11.2020, Side 22

Morgunblaðið - 19.11.2020, Side 22
FRÉTTASKÝRING Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Gamla höfnin í Reykjavík hefur gengið í endurnýjum lífdaga á undanförnum árum. Þar hafa risið íbúðarhús og hót- el, afþreyingarfyritæki hafa tekið til starfa, ný veitingahús verið opnuð og svo mætti áfram telja. Höfnin hefur mikið aðdráttarafl, bæði fyrir Íslend- inga og erlenda ferðamenn. Það þurfti því ekki að koma á óvart þegar Morgunblaðið flutti af því fréttir í júní í sumar að malasíski auðkýfing- urinn Vincent Tan vildi byggja rúm- lega 33 þúsund fermetra fjölnotabygg- ingu á Miðbakka hafnarinnar. Send var inn fyrirspurn þess efnis sem vísað var til umsagnar verkefnisstjóra skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar. Vincent Tan var fyrst þekktur á Ís- landi sem eigandi velska knattspyrnu- félagsins Cardiff City, en með því liði lék landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson um árabil. Tan komst aft- ur í fréttirnar í fyrra, þegar hann keypti meirihluta í Icelandair Hotels af Icelandair Group. Fimm stjörnu lúxushótel Hinn 11. nóvember sl. birti Við- skiptaMogginn viðtal við Tryggva Þór Herbertsson fulltrúa Vincents Tans hér á landi. Þar upplýsti Tryggvi Þór að malasíski kaupsýslumaðurinn hefði tryggt 40 milljarða króna fjármögnun til þess að hefjast handa við uppbygg- ingu hússins. Í hluta þess á að reka 150 herbergja fimm stjörnu lúxushótel undir merkjum Four Seasons- keðjunnar. Hún myndi einnig þjónusta 100 fimm stjörnu þjónustuíbúðir í hús- inu, sem seldar yrðu einkaaðilum. Nokkrum dögum áður en viðtalið birtist, eða hinn 6. nóvember, hafði embætti skipulagsfulltrúa Reykjavík- ur tekið neikvætt í fyrirspurnina, m.a. með tilvísan til lóðareigandans, Faxa- flóahafna, sem tók neikvætt í erindið. Gamla höfnin í Reykjavík var byggð upp í áföngum á fyrri hluta síðustu ald- ar, eða fyrir rúmlega hundrað árum. Síðan þá hefur athafnarými verið auk- ið stórlega með landfyllingum, ekki síst í Örfirisey. Á árunum 1992-1993 var Miðbakki, fyrir framan hafnar- húsið, fluttur fram með landfyllingum. Mest var breikkunin næst Grófar- bakka eða um 90 metrar en minnst næst Austurbakka, 30 metrar. Á þessu svæði eru lóðirnar Geirsgata 11-15, þar sem malasíski milljarðamæring- urinn vill byggja stórhýsið. Á lóðinni Geirsgötu 11 stendur vöruskemma, 2.574 fermetrar, sem reist var árið 1982 úr forsteyptum einingum og er varðveislugildi hennar ekki talið mikið. Þar voru fyrst vörugeymslur Ríkis- skipa, en síðar var þar fiskvinnsla Jóns Ásbjörnssonar hf. og Fiskkaupa hf. sem seldu Guðmundi Kristjánssyni í Brimi húsið. Hann seldi svo félagi Vin- cents Tans, Berjaya Corporation, hús- ið á 1.670 milljónir í fyrra. Áður hafa komið fram hugmyndir um stórfellda uppbyggingu á lóðinni en þeim hefur verið hafnað. Má nefna að Guðmundur í Brimi sótti árið 2018 um að fá að byggja tæplega 28 þúsund fermetra hús á lóðinni. Lóðin Geirsgata 11 er í eigu Faxa- flóahafna en Berjaya Corporation er lóðarhafi. Fyrirtækið ræður ekki yfir lóðunum númer 13 og 15, sem eru í eigu Faxaflóahafna. Engu að síður óskaði fyrirtækið eftir því við Reykja- víkurborg að fyrirhugað stórhýsi yrði skipulagt á lóðunum þremur. Kristín Soffía Jónsdóttir, stjórnarformaður Faxaflóahafna, brást hart við viðtalinu við Tryggva Þór. Hún sagði í viðtali við mbl.is að Vincent Tan hefði engin vil- yrði fyrir því að hann geti byggt á Mið- bakkanum. „Það sem áformin snúast um er langt umfram skipulag, langt umfram gildandi skipulagslýsingu og það er enginn samningur til á milli hans og hafnarinnar,“ sagði Kristín Soffía. Þetta væri líkast því að vilja byggja á lóð nágrannans án þess að hafa nokkurt vilyrði þess efnis. Í umsögn Magnúsar Þórs Ás- mundssonar hafnarstjóra frá 27. októ- ber sl. segir m.a. að að svo stöddu hafi Faxaflóahafnir ekki áform um að fara í uppbyggingu á Miðbakka umfram það sem sýnt er í gildandi skipulagslýs- ingu. Ekki verði hugað að uppbygg- ingu þar fyrr en eftir að Vesturbugtin vestan Slippsins hefur byggst upp og að fenginni reynslu borgarbúa af þeirri tegund byggðar. Áhersla á hafnsækna starfsemi Búið sé að byggja þétt í kringum höfnina á þessu svæði og frekari upp- bygging með háreistum byggingum hindri sjónlínur til hafnar og sjávar. Faxaflóahafnir leggi áherslu á að for- gangsraða uppbyggingu á hafnar- svæðum þannig að hún þjóni hafnsæk- inni starfsemi og skerði ekki framtíðartækifæri í þeirri starfsemi. „Það er álit Faxaflóahafna að Mið- bakkinn sé eitt af dýrmætustu svæð- unum í hjarta Reykjavíkurborgar og uppbygging þar muni ekki fara fram nema að undangengnu ferli með hug- mynda- og skipulagsvinnu, hugsanlega hönnunarsamkeppni og útboði á þeim framkvæmdum sem ráðist yrði í. Faxaflóahafnir taka því neikvætt í er- indið,“ segir Magnús hafnarstjóri. Tvö undanfarin sumur hefur verið fjölbreytt mannlíf á Miðbakka. Bíla- stæði voru aflögð en þess í stað var bakkinn málaður í áberandi litum. Á svæðinu voru til að mynda hjóla- brettavöllur, hjólaleikvöllur, körfu- boltavöllur og matartorg. Eftirsótt að byggja við höfnina  Faxaflóahafnir tóku neikvætt í ósk kaupsýslumanns í Malasíu sem vildi byggja 40 milljarða króna stórhýsi á Miðbakka  Slíkum óskum hefur verið hafnað áður  Miðbakki á nýlegum landfyllingum Tölvumynd/Yrki arkitektar Miðbakkinn Fyrstu hugmyndir arkitektanna um það hvernig stórhýsið gæti litið út. Eins og myndin sýnir myndi húsið þekja stærstan hluta Miðbakkans. Fjölnotahús Gert er ráð fyrir miðrými í húsinu með gróðri og útilistaverkum þar sem almenningur hefði aðgang. 22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2020 N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Glæsileg borðstofuhúsgögnum frá CASÖ í Danmörku Ryðfrítt vinnsluborð og bandsagarblað Vinnsluhæð: 240 mm Vinnslubreidd: 250 mm Færanlegt vinnsluborð 47 Mótor: 550 w Hæð: 1.470 mm Þyngd: 58 kg Verð aðeins87 VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, RE DYNAMIX Frábær k með hakk ARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888 0x6 .9 YKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFN jö a s 00 mm 00 kr. tsög fs.i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.