Morgunblaðið - 19.11.2020, Side 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2020
Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður
- Við erum hér til að aðstoða þig! -
Erum með samning við sjúkratryggingar Íslands
Tímapantanir í síma 533 1314
Göngugreiningar • Sérsmíðaðir skór
Sérhæfum okkur í göngugreiningum,
sérsmíðuðum skóm, innleggjasmíði
og skóbreytingum.
Skóviðgerðir - Komdu með skóna þína í yfirhalningu
Mannbroddar - Mikið úrval
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Sex tegundir svokallaðra hámúsa
finnast á hafsvæðinu við Ísland.
Ekki teljast þær til nytjafiska og
ekki er líklegt að svo verði. Til-
raunir hafa þó verið gerðar til að
nýta geirnyt og þá gjarnan þegar
sneiðst hefur um afla úr öðrum teg-
undum. Hámýs mynda undirflokk
brjóskfiska og
eru náskyldar
skötum og háf-
um.
Í skýrslu sem
fjórir sérfræð-
ingar á Hafrann-
sóknastofnun
hafa tekið saman
um hámýs kemur
fram að yfirleitt
komi eitthvað af
þessum teg-
undum í trollið í stofnmælingum.
Skýrslan er samantekt á gögnum
um útbreiðslu og helstu líffræði-
legum þáttum hámúsa byggð á ára-
tugalangri sýnasöfnun í stofnmæl-
ingaleiðöngrum Hafrannsókna-
stofnunar.
Hvítnefur sjaldgæfastur
Aðalhöfundur er Klara Björg
Jakobsdóttir fiskifræðingur og seg-
ir hún að rannsóknir á þessum teg-
undum hafi aukist á síðustu árum,
en margt sé enn óljóst um þær. Að-
spurð segir hún ekki líklegt að nýta
megi þessar tegundir. Stofnarnir
séu viðkvæmir og ekki stórir. Við-
koma tegundanna sé lítil og t.d.
gjóti/hrygni þeir yfirleitt aðeins
tveimur pétursskipum, sem reyndar
séu lífvænleg.
Fjórar tegundir hámúsa eru af
hámúsaætt; geirnyt, stuttnefur,
digurnefur og hvítnefur. Af trjónu-
ætt eru langnefur og trjónufiskur.
Útbreiðsla flestra tegundanna
virðist vera bundin við hlýjan sjó
frá miðum og djúpmiðum
suðaustanlands til Grænlandssunds.
Geirnyt er algengasta hámúsateg-
undin í stofnmælingaleiðöngrum
Hafrannsóknastofnunar og er út-
breiðsla hennar ólík hinum að því
leyti að hún heldur sig grynnra og í
tiltölulega hlýrri sjó. Geirnyt getur
orðið 120 sentimetra löng eða
lengri, en er oftast 70-95 cm.
Lengsta geirnyt á Íslandsmiðum
mældist 110 cm.
Stuttnefur, digurnefur, hvítnefur,
langnefur og trjónufiskur flokkast
sem djúpsjávartegundir og af þeim
er trjónufiskur algengastur. Sjald-
gæfasta hámúsin í stofnmælinga-
leiðöngrum er hvítnefur sem hefur
aðeins fundist sjö sinnum yfir það
tuttugu ára tímabil sem rannsóknin
spannar. Langnefur veiddist að
meðaltali á mesta dýpi en stuttnefur
og hvítnefur í kaldasta sjónum. Nið-
urstöður skýrslunnar benda til að
geirnyt og trjónufiski hafi fjölgað og
jafnframt að trjónufiski hafi fjölgað
á norðlægari svæðum útbreiðsl-
unnar, þ.e. djúpt vestur af landi.
Mörg heiti á fiskunum
Ýmis nöfn hafa verið notuð á
þessa fiska og þá yfirleitt geirnyt-
ina. Líklega eru hámýs og hákettir
algengustu heitin, einnig hafmús og
háfmús. Heitið rottufiskur er einnig
þekkt og er það þýðing úr ensku.
Það heiti gæti tengst því að sporður
fiskanna minnir á hala, auk þess
sem þeir eru með trjónu og sam-
vaxnar tennur.
Um fjölda fiska á Íslandsmiðum
er á vísindavef Háskólans vitnað til
„fiskatals“ sem Gunnar Jónsson
fiskifræðingur tók saman. Þar kem-
ur fram að árið 2000 hafi verið vitað
um 360 fisktegundir sem fundist
hefðu í íslenskri lögsögu, sumar
þeirra mjög sjaldgæfar. Af þessum
360 tegundum voru 39 tegundir
brjóskfiska, þar af 19 háffiskar, 14
skötutegundir og sex hámýs. Bein-
fiskategundirnar voru 319. Í heims-
höfunum þekkjast 24-25 þúsund
fisktegundir, segir á Vísindavefn-
um.
Hámýs seint taldar til nytjastofna
Sex tegundir á Íslandsmiðum Geirnyt algengust Náskyldar skötum og háfum Margt óljóst
Ljósmynd/Svanhildur Egilsdóttir
Fagur fiskur í sjó Sex tegundir hámúsa: Geirnyt og hvítnefur í efstu röð, þá
stuttnefur og langnefur og í neðstu röð digurnefur og trjónufiskur.
Klara Björg
Jakobsdóttir
Fyrir röskum 20 árum voru
furðufiskadagar nokkrum sinn-
um á matseðlinum á veitinga-
staðnum Jónatan Livingstone
Máv við Tryggvagötu. Þar eld-
uðu Úlfar Finnbjörnsson og
samstarfsfólk rétti úr sjaldséð-
um fiskum og óvenjulegu sjáv-
arfangi. Fram kom í Morg-
unblaðinu veturinn 1997 að þá
voru meðal annars á matseðl-
inum bökuð geirnyt með engi-
fer- og gulrótarsósu og grill-
aður broddbakur með græn-
ertusósu.
Samstarfsmaður á Morgun-
blaðinu rifjaði upp kvöldverð
fyrir mörgum árum hjá Úlfari
Eysteinssyni á Þremur frökkum.
Þar var meðal annars boðið upp
á geirnyt og sagði samstarfs-
maðurinn að rétturinn hefði
verið sérkennilegur og minnt á
graut. Hann bað ekki um ábót!
Heldur er geirnyt sjaldgæf á
fiskmörkuðunum. Þar hefur
fiskurinn ekki verið seldur í ár,
en tvö kíló 2018 fyrir fimm
krónur kílóið. 300 kíló voru seld
2016, 15 og 16 kíló tvö ár þar á
undan og 872 kíló voru seld af
geirnyt á mörkuðunum 2013.
Bað ekki
um ábót
FURÐUFISKAR Á MATSEÐLI