Morgunblaðið - 19.11.2020, Page 24

Morgunblaðið - 19.11.2020, Page 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2020 Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður - Við erum hér til að aðstoða þig! - Erum með samning við sjúkratryggingar Íslands Tímapantanir í síma 533 1314 Göngugreiningar • Sérsmíðaðir skór Sérhæfum okkur í göngugreiningum, sérsmíðuðum skóm, innleggjasmíði og skóbreytingum. Skóviðgerðir - Komdu með skóna þína í yfirhalningu Mannbroddar - Mikið úrval Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Sex tegundir svokallaðra hámúsa finnast á hafsvæðinu við Ísland. Ekki teljast þær til nytjafiska og ekki er líklegt að svo verði. Til- raunir hafa þó verið gerðar til að nýta geirnyt og þá gjarnan þegar sneiðst hefur um afla úr öðrum teg- undum. Hámýs mynda undirflokk brjóskfiska og eru náskyldar skötum og háf- um. Í skýrslu sem fjórir sérfræð- ingar á Hafrann- sóknastofnun hafa tekið saman um hámýs kemur fram að yfirleitt komi eitthvað af þessum teg- undum í trollið í stofnmælingum. Skýrslan er samantekt á gögnum um útbreiðslu og helstu líffræði- legum þáttum hámúsa byggð á ára- tugalangri sýnasöfnun í stofnmæl- ingaleiðöngrum Hafrannsókna- stofnunar. Hvítnefur sjaldgæfastur Aðalhöfundur er Klara Björg Jakobsdóttir fiskifræðingur og seg- ir hún að rannsóknir á þessum teg- undum hafi aukist á síðustu árum, en margt sé enn óljóst um þær. Að- spurð segir hún ekki líklegt að nýta megi þessar tegundir. Stofnarnir séu viðkvæmir og ekki stórir. Við- koma tegundanna sé lítil og t.d. gjóti/hrygni þeir yfirleitt aðeins tveimur pétursskipum, sem reyndar séu lífvænleg. Fjórar tegundir hámúsa eru af hámúsaætt; geirnyt, stuttnefur, digurnefur og hvítnefur. Af trjónu- ætt eru langnefur og trjónufiskur. Útbreiðsla flestra tegundanna virðist vera bundin við hlýjan sjó frá miðum og djúpmiðum suðaustanlands til Grænlandssunds. Geirnyt er algengasta hámúsateg- undin í stofnmælingaleiðöngrum Hafrannsóknastofnunar og er út- breiðsla hennar ólík hinum að því leyti að hún heldur sig grynnra og í tiltölulega hlýrri sjó. Geirnyt getur orðið 120 sentimetra löng eða lengri, en er oftast 70-95 cm. Lengsta geirnyt á Íslandsmiðum mældist 110 cm. Stuttnefur, digurnefur, hvítnefur, langnefur og trjónufiskur flokkast sem djúpsjávartegundir og af þeim er trjónufiskur algengastur. Sjald- gæfasta hámúsin í stofnmælinga- leiðöngrum er hvítnefur sem hefur aðeins fundist sjö sinnum yfir það tuttugu ára tímabil sem rannsóknin spannar. Langnefur veiddist að meðaltali á mesta dýpi en stuttnefur og hvítnefur í kaldasta sjónum. Nið- urstöður skýrslunnar benda til að geirnyt og trjónufiski hafi fjölgað og jafnframt að trjónufiski hafi fjölgað á norðlægari svæðum útbreiðsl- unnar, þ.e. djúpt vestur af landi. Mörg heiti á fiskunum Ýmis nöfn hafa verið notuð á þessa fiska og þá yfirleitt geirnyt- ina. Líklega eru hámýs og hákettir algengustu heitin, einnig hafmús og háfmús. Heitið rottufiskur er einnig þekkt og er það þýðing úr ensku. Það heiti gæti tengst því að sporður fiskanna minnir á hala, auk þess sem þeir eru með trjónu og sam- vaxnar tennur. Um fjölda fiska á Íslandsmiðum er á vísindavef Háskólans vitnað til „fiskatals“ sem Gunnar Jónsson fiskifræðingur tók saman. Þar kem- ur fram að árið 2000 hafi verið vitað um 360 fisktegundir sem fundist hefðu í íslenskri lögsögu, sumar þeirra mjög sjaldgæfar. Af þessum 360 tegundum voru 39 tegundir brjóskfiska, þar af 19 háffiskar, 14 skötutegundir og sex hámýs. Bein- fiskategundirnar voru 319. Í heims- höfunum þekkjast 24-25 þúsund fisktegundir, segir á Vísindavefn- um. Hámýs seint taldar til nytjastofna  Sex tegundir á Íslandsmiðum  Geirnyt algengust  Náskyldar skötum og háfum  Margt óljóst Ljósmynd/Svanhildur Egilsdóttir Fagur fiskur í sjó Sex tegundir hámúsa: Geirnyt og hvítnefur í efstu röð, þá stuttnefur og langnefur og í neðstu röð digurnefur og trjónufiskur. Klara Björg Jakobsdóttir Fyrir röskum 20 árum voru furðufiskadagar nokkrum sinn- um á matseðlinum á veitinga- staðnum Jónatan Livingstone Máv við Tryggvagötu. Þar eld- uðu Úlfar Finnbjörnsson og samstarfsfólk rétti úr sjaldséð- um fiskum og óvenjulegu sjáv- arfangi. Fram kom í Morg- unblaðinu veturinn 1997 að þá voru meðal annars á matseðl- inum bökuð geirnyt með engi- fer- og gulrótarsósu og grill- aður broddbakur með græn- ertusósu. Samstarfsmaður á Morgun- blaðinu rifjaði upp kvöldverð fyrir mörgum árum hjá Úlfari Eysteinssyni á Þremur frökkum. Þar var meðal annars boðið upp á geirnyt og sagði samstarfs- maðurinn að rétturinn hefði verið sérkennilegur og minnt á graut. Hann bað ekki um ábót! Heldur er geirnyt sjaldgæf á fiskmörkuðunum. Þar hefur fiskurinn ekki verið seldur í ár, en tvö kíló 2018 fyrir fimm krónur kílóið. 300 kíló voru seld 2016, 15 og 16 kíló tvö ár þar á undan og 872 kíló voru seld af geirnyt á mörkuðunum 2013. Bað ekki um ábót FURÐUFISKAR Á MATSEÐLI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.