Morgunblaðið - 19.11.2020, Síða 34
34 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2020
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Bandaríski lyfjarisinn Pfizer og
þýska líftæknifyrirtækið BioNTech
greindu frá því í gær að loka-
niðurstöður prófana bentu til þess
að bóluefni þeirra verndaði um 95%
fólks gegn kórónuveirunni, og að
þau myndu sækja um leyfi til banda-
ríska lyfjaeftirlitsins, FDA, fyrir því
innan örfárra daga.
Frumniðurstöður fyrirtækjanna,
sem kynntar voru í síðustu viku,
höfðu gefið til kynna að bóluefni
þeirra sýndi um 90% virkni. Þá sýna
lokaniðurstöður að bóluefnið sýni
sambærilega virkni hjá öllum ald-
urshópum, kynjum og kynþáttum.
Prófanirnar, sem náðu til 44.000
manns í sex mismunandi ríkjum,
benda enn fremur til að aukaverk-
anir séu skammvinnar og í flestum
tilfellum mildar.
Ákveði FDA að veita leyfi fyrir
bóluefninu verður það á grundvelli
neyðarheimildar, þar sem lokapróf-
anir geta oft tekið ár. Gert er ráð
fyrir að hægt verði að byrja að veita
fyrstu skammtana í byrjun desem-
ber, en bandarísk stjórnvöld gera
ráð fyrir að bóluefnið verði orðið að-
gengilegt almenningi fyrir apríl á
næsta ári.
Huga að dreifingu og geymslu
Annað lyfjafyrirtæki, Moderna,
kynnti einnig í vikunni niðurstöður
sinna prófana, en bóluefni þess
sýndi 94,5% virkni. Bæði bóluefnin
byggjast á sömu tækni, þar sem
genaupplýsingar veirunnar, mót-
andi-RNA (e. messenger-RNA eða
mRNA), eru nýttar til þess að láta
frumur líkamans mynda mótefni,
þannig að ónæmiskerfið geti tekið á
móti veirunni ef smit verður.
Þetta er ný tækni við framleiðslu
bóluefnis, og til þessa hefur ekkert
bóluefni byggt á mRNA fengið sam-
þykki hjá bandaríska lyfjaeftirlitinu.
En hinni nýju tækni fylgja vanda-
mál og áskoranir sem þarf að leysa.
Eitt af því helsta sem stendur í veg-
inum fyrir almennri dreifingu bólu-
efnanna tveggja er að þau þarf bæði
að geyma við mikinn kulda. Bóluefni
Pfizer og BioNTech þarf til að
mynda að geymast við 70°C frost, en
það er um það bil sami hiti og er á
Suðurskautslandinu þegar þar er
hvað kaldast á veturna. Bóluefni
Moderna geymist hins vegar við 20
gráða frost, sem er nær því sem ger-
ist í venjulegum frysti.
Efnin flutt í „pítsukassa“
Ástæðan fyrir því að þennan mikla
kulda þarf til þess að geyma efnin er
að mRNA getur auðveldlega eyði-
lagst og því þarf að hægja á efna-
hvörfum þess, líkt og þegar matur er
geymdur í frysti svo hann rotni ekki.
Talsmenn Pfizer og BioNTech
reyndu í gær að svara áhyggjum
fólks vegna geymslunnar á bóluefn-
inu, en fyrirtækin hafa hannað sér-
staka frystikassa sem treysta á
þurrís til þess að flytja efnið á milli
staða. Þannig verður hægt að geyma
það í allt að 15 daga án þess að vera
með sérhannaðar frystigeymslur.
Kassinn mun þegar hafa fengið við-
urnefnið „pítsukassinn“, en sá bögg-
ull fylgir skammrifi að einungis má
opna hann tvisvar á dag, og þá þarf
að loka honum innan mínútu svo að
bóluefnið skemmist ekki.
Tíu efni á lokastigi
Allar líkur eru á því að ráðlegg-
ingar Pfizer um geymsluþol efnisins
muni breytast eftir því sem meiri
reynsla kemst á það, en prófanir á
hitaþoli taka jafnan langan tíma. Hin
brýna þörf á bóluefni vegna heims-
faraldursins hefur því komið í veg
fyrir að þær prófanir hafi farið fram.
Sú þörf endurspeglast svo aftur í
því að bóluefnin frá Pfizer og Mod-
erna verða vísast ekki þau einu sem
verða fáanleg á næsta ári. Sam-
kvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
uninni, WHO, er nú verið að þróa 42
mismunandi bóluefni gegn kórónu-
veirunni, þar af tíu sem eru á loka-
stigi prófana.
Flest af þeim treysta hins vegar á
hefðbundnari framleiðsluaðferðir en
mRNA. Niðurstöður Pfizer og Mod-
erna hafa hins vegar vakið athygli og
er víst að þeirri aðferð verður beitt
mun oftar í framtíðinni.
Bæði bóluefnin með 95% virkni
Hin nýja framleiðsluaðferð á bóluefni vekur athygli Ekkert bóluefni sem byggist á mRNA hefur
áður fengið samþykki FDA Bóluefni Pfizer þarf að geymast í sérstökum kassa við mikinn kulda
AFP
Bóluefni Bæði Pfizer og Moderna treysta á nýja tegund bóluefnis til þess að berjast gegn kórónuveirunni.